Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1991, Blaðsíða 8
PPt HATIHP3'-I . (i HIIOAt BÍLAMARKAÐURINN v/REYKJANESBRAUT ___SMIÐJUVEGI 46 E, KÓPAVOGI- ‘sp 67 18 00 Vantar nýlega bíla á staðinn Chevrolet Astro, 7 manna, ’86, rauður, 6 cyl., ssk., ek. 54.000, vandaöur fjölskyldu- og feröabill, v. 1.280.000, sk. ód. Nissan Bluebird SLX '89, blór, ssk., ek. 20.000, vökvast./overdrive, álfelgur, o.fl., sem nýr, v. 1.050.000. Blazer S-10 '87, rauöur, sjálfsk., meö overdrive, ek. 61.000, ný dekk o.fl., v. 1.800.000. M. Benz 190 '88, blár, beinsk., ek. aöeins 36.000, ýmsír aukahl., v. 1.600.000, sk. á nýl. minni bíi. Ford Bronco XLT '89, grár, 4ra g., ek. 23.000, rafm. í rúðum o.fl. aukahl., v. 2.300.000. Nissan Patrol turbo/dísil '90, lúxusútgáfa, 5 g., ek. aöeins 15.000, v. 2.950.000. MMC Lancer GLX 4x4 '87, hvitur, 5 g., ek. 67.000, v. 850.000. VW Golf CL 1800 '87, rauöur, 5 g., ek. 52.000, GT-innrétting o.fl. aukahl., v. 720.000. Chrysler Le Baron turbo '85, gullsans., 5 g., sóllúga, raf. í öllu, skemmtilegur framdrifs- bill, v. 780.000, sk. ód. VIÐ SELJUM BÍLANA Útlönd Saddam Hussein lýsir yfir sigri í Persaflóastríðinu: Bush andvígur landhernaði nú - efasemdir um að íraski herinn muni allur berjast Straumur liöhlaupa úr íraska hernum vex nú dag frá degi. Um helgina komu 75 hermenn yfir víglín- una og gáfu sig á vald íjölþjóðahem- um í Saudi-Arabíu. Þessir menn sögöu ástandið í írak hörmulegt og að mannfall hefði orðið mikið í loft- árásum síðustu daga. Talmenn hers bandamanna segja að frásagnir hermannanna bendi til að hluti af íraska hernum muni að öllum líkindum leggja niður vopn komi til innrásar á landi. Sagt er að matarskortur hrjái hermennina og þeir biði þess eins að stríðinu ljúki. Af nýjustu yfirlýsingum Saddams Hussein verður þó ekki ráðið að upp- gjöf sé í liði hans. Hann kom fram í gær í fyrsta sinn i langan tíma. Sögur voru á kreiki um að forsetinn væri sjúkur og að hann hefði þurft á ró- andi lyfjum að halda. í útvarpsávarpi sagði hann að ír- aska þjóðin hefði nú þegar sigrað í stríðinu í augum Guðs. Hann sagði að írak væri nú „virki trúarinnar, umsetið af heiðingjum og voðamönn- um“. í dag á George Bush Bandaríkjafor- seti fund með æðstu ráðgjöfum sín- um í hermálum.’ Þetta eru þeir Dick Cheney vamarmálaráðherra og Col- in Powell, forseti herráðsins. Þeir voru um helgina í Saudi-Arabíu og kynntu sér stöðu mála af eigin raun. Fyrir liggur að ákveða hvenær ráð- ist verður til atlögu við her íraka á landi. Bush segir að hann muni ekki rasa um ráð fram í þessu máli heldur verði ákvörðunin tekin þegar rétti tíminn er kominn. Þessi orð hans eru túlkuð svo að ekki sé stefnt að árás á landi í bráð og jafnvel ekki í þessum mánuði. Að öllum líkindum verða því gerð- ar loftárásir á írak næstu vikur eða á meðan skotmörk endast. Cheney lét þess getið þegar hann var í Saudi- Arabíu að flugmenn bandamanna ættu oröið erfitt með að finna staði til að varpa sprengjum á. Bush ítrekaði í máli sínu að mark- miðið væri að forðast eins og kostur væri mannfall í liði bandamanna. Því væri rétt að láta reyna á það enn um sinn hvort loftárásirnar á írak skil- uðu ekki einar þeim árangri sem fjöl- þjóðahernum f Saudi-Arabíu væri ætlað að ná. Loftárásir á írak standa enn án viðstöðu. Síðustu daga hafa skot- mörkin einkum verið brýr og önnur samgöngumannvirki. Þá er reglulega skotið af fallbyssum frá skipum Bandaríkjamanna á stórskotalið ír- aka í Kúvæt. Reuter Colin Powell og Dick Cheney ræddu við flugmenn Bandarikjahers í Saudi-Arabíu í heimsókn sinni til fjölþjóðahers- ins þar. Hér eru þeir á tali við flugmann einnar Stealth þotunnar sem notuð hefur verið til árása allt frá upphafi stríðsins. Símamynd Reuter Kórsöngur fyrir hermennina Margir af frægustu leikurum Hollywood hafa myndað kór og tekið að sér að syngja hvatning- arlög fyrir bandarísku hermenn- ina í Saudi-Arabíu. Þarna þenur raddböndin frægt fólk eins og Meryl Streep, Dudley Moore, Kevin Costner, Whoopi Goldberg og Sissy Spacek. Söngurinn sem þau syngja heitir „Voices that Care“. „Við viljum að hermennirnir viti að við stöndum heilshugar að baki þeim óháð því hvort við teljum þetta stríð eiga rétt á sér,“ segir Goldberg. Með í kórnum er einnig Mike Tyson, fyrrum heimsmeistari í þungavigt henfaleikanna, radd- maður mikill. Hann lét þess getið að hann væri sjálfur dauöhrædd- ur ef hann þyrfti að vera í Saudi- Arabíu. Margt fleira af frægu fólki er í kórnum og hagnaður af plötusölu rennur allur til Rauða krossins. Reuter Gorbatsjov: Vaxandi áhyggjur Sovétmanna Ákvörðun Gorbatsjovs Sovét- forseta um að senda sérlegan sendi- mann í friðarför til Bagdad þykir sýna greinilegar en áður vaxandi áhyggjur Moskvuvaldins yfir því að bandamenn kunni að leggja írak í rúst. í gær tilkynntu arabískir stjórn- arerindrekar í Bagdad að sérfræð- ingur Sovétríkjanna í málefnum Miðausturlanda, Jevgeni Prim- akov, væri væntanlegur til Bagdad síðdegis í gær eða í dag. Ekki er búist við að Primakov, sem í október fór tvisvar til Bagdad til að reyna að fá Saddam til að fara frá Kúvæt, hafi nú meðferðis sérstaka friðartillögu frá Sovét- forsetanum heldur nýja viövörun um hvað áframhaldandi stríð geti haft í för með sér bæði utan og inn- an landamæra íraks. í yfirlýsingu, sem Tass-fréttastof- an sovéska birti á laugardagskvöld, sagði Gorbatsjov að sovésk yfirvöld styddu í grundvallaratriðum álykt- anir Öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna sem miða að því að binda enda á hernám íraka í Kúvæt. For- setinn bætti því þó við að hætta væri á að gengið yrði lengra en ályktanirnar heimiliðu. Jafnframt virðist sem Gorbatsjov hafl orðið fyrir áhrifum að gagn- rýni ýmissa íhaldsmanna í komm- únistaflokknum og í hemum sem fullyrða að Kreml hafi í raun veitt Bandaríkjamönnum og banda- mönnum þeirra heimild til að sprengja írak í rúst. TT MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1991. DV Atburðarásin 10. febrúar 05.30 - Dick Cheney, vamarmála- ráðherra Bandaríkjanna, kveðst ekki telja að vopnahlé í Persaflóa- stríðinu muni koma aö gagni. 08.30 - Breskt dagblað segir ír- aska hermenn koma fyrir jarð- sprengjum á götum Kúvætborgar til varnar gegn árás banda- manna. 09.10 - Tarez Aziz, utanrikisráð- herra iraks, segir íraksstjórn hafa hafnað friöan/iöleitni for- sætisráðherra Pakistans, Nawaz Sharif. 10.30 - Aðstoðarforsætisráðherra íraks, Saadoun Hammadi, hvetur öU arabaríki til að slíta sljórn- málasambandi við ríki sem gera loftárásir á írak. 11.50 - Douglas Hurd, utanríkis- ráðherra Bretlands, kveðst ekki búast við að breskir hermenn verði staðsettir við Persaflóa að stríðinu loknu. Hemaðaraðstoð kunni þó að verða veitt ef araba- ríki fara fram á hana. 12.45 - Arabískir stjórnarerind- rekar segja sovéskan sendimann væntanlegan til Bagdad næsta sólarhringinn. 13.40 - Háttsettur starfsmaður Frelsissamtaka Palestínu, PLO, segir ísraela undirbua þátttöku í árás bandamanna á írak á landi. 13.50 - Indversk fréttastofa segir Indland og íran muni kynna sam- eiginlega áætlun um hvernig binda megi enda á stríðiö á fundi utanrikisráðherra óháðra ríkja i þessari viku. 14.00 - Flóttamenn, sem komu til Jórdaníu frá Kúvæt, segja ástandið þar óbærilegt. 15.13 - Tilkynnt um missi banda- rískrar Harríer-orrastuþotu yfir Kúvæt. Flugmannsíns er saknað. 15.35 -- Aðstoðarforsætisráðherra íraks segir yíirvöld í Bagdad fús til þátttöku í viðræðum araba um stríöið ef Bandaríkjamenn drægju herlið sitt til baka. 15.40 - írösk yfirvöld segja Al- þjóða Rauða krossinum heímilt að heimsækja stríðsfanga þegar bandamenn hætta loftárásum á óbreytta borgara. 16.45 - Útvarpið í Bagdad segir Bandaríkin og bandaménn þeirra hafa gert 164 loftárásir og að þrjár óvinavélar hafi verið skotnar nið- ur 17.10 - Kúvæskur embættismað- ur segir að hægt sé að gera Kúvæt byggilegt á níutíu dögum eftir brottför íraka. 17.15 - Breskar orrustuþotur varpa sprengjum á flórar brýr í írak, þar á meðal tvær sem notað- ar voru af úrvalssveitum Sadd- ams til birgðaflutninga. 17.50 - James Baker, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, kveðst ánægður með ákvörðun Gor- batsjovs Sovétforseta um að senda sérstakan sendimann i friðarför til Bagdad ef heimsókn- 'in leiðir til brottíiutnings íraka frá Kúvæt. 18.55 - Sjötíu og fimm íraskir her- menn sagðir hafa gerst liðhlaup- ar síðasta sólarhringinn. Er það sagður mesti ijöldi á einum sólar- hring frá því að stríðið hófst. 20.25 - Frönsk yfirvöld undirbúa för fleiri hermanna til Persaflóa. 20.55 - Utanrikisráðherra írans, Ali Akbar Velayati, segir íraka enn ekki hafa útilokað friðsam- lega lausn á Persaflóadeilunni. 11. febrúar 00.35 - Saddam Hussein íraks- forseti segir sigur þegar unninn þar sem írakar hafi staðist loftár- ásir bandamanna í meir en þrjár vikur. 01.35 - Olíumálaráðherra Saudi- Arabíu, Hisham Nazer, segir vel hafa gengið að vernda vatns- hreinsistöðvar fyrir olíubrákinni á Persaflóa. 02.35 - Kínversk yfirvöld senda sérstakan sendimann til Sýr- lands, Tyrklands, Júgóslavíu og írans til að ilnna friðsamlega lausn á Persaflóadeilunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.