Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1991, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1991, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1991. 39' Fréttir Athugasemd frá Landsvirkjun í grein, sem birtist í DV föstudag- inn 8. þ.m., er haft eftir Ragnari Árnasyni prófessor aö kostnaðará- ætlanir virkjana á íslandi séu alltaf langt undir raunverulegum kostn- aði. í lok greinarinnar segir: „Síðan væri það einnig staðreynd að Landsvirkjunarmenn vilji virkja sem mest. Því væri freistandi fyrir þá að vera frekar á lægri kantinum með áætlanir." Þar sem hér er um alvarlegar ásakanir að ræða í garð Lands- virkjunar og ráðgjafa hennar er nauðsynlegt að koma á framfæri nokkrum athugasemdum við áður- nefnda grein. Stofnkostnaöaráætlanir Lands- virkjunar fyrir virkjanafram- kvæmdir fyrirtækisins hafa byggst á mati innlendra og erlendra verk- fræðiráðgjafa sem vandað hefur verið til eins vel og unnt er hverju sinni og eru ákvarðanir um virkj- anir byggðar á niðurstöðum svo- kallaðrar verkhönnunaráætlunar en búast má við að endanlegur kostnaður geti legið á bilinu + 12% frá slíkri áætlun. Til að skera úr um áreiðanleika þessara áætlana hefur Landsvirkj- un af og til gert samanburð á raun- verulegum virkjunarkostnaði og hlutaðeigandi áætlunum. Við slík- an samanburð verður að gæta þess að bera endanlegan virkjunar- kostnað saman við þá áætlun sem byggt var á við ákvörðun fram- kvæmda. Hér er um mjög vandasa- man samanburð að ræða sem krefst þess að gætt sé fyllsta sam- ræmis varðandi verðgrundvöll, vexti o.íl. en það getur oft verið vandkvæðum bundið, einkum á tímum mikilla breytinga á gengi og verðlagi. Samanburður sem þessi var síð- ast gerður í október sl. og þá á verk- hönnunaráætlunum og endanleg- um kostnaði fyrir eftirtalin mann- virki sem Landsvirkjun hefur haft í byggingu á sl. 10 árum: Hrau- neyjafossvirkjun en byggingu hennar lauk í ársbyrjun 1983, Sult- artangastíflu, sem lokið var 1984, fyrsta til fjórða áfanga Kvíslaveitu, en framkvæmdum við þá lauk 1985, og fyrir Blönduvirkjun, en stofn- kostnaður hennar er að hluta til áætlaður þar sem byggingu hennar er ekki lokið enn. Þessi saman- burður leiddi í ljós að frávik frá verkhönnunaráætlunum var nokkuð mismunandi eftir mann- virkjum eða frá 23% undir áætlun til 13% yfir áætlun. Samanlagt virðist endanlegur kostnaður þess- ara mannvirkja nánast sá sami eins og verkhönnunaráætlanir höfðu gert ráð fyrir. Þær saman- burðartölur, sem birtar eru í um- ræddri grein í DV, eru því rangar og fullyrðingum um að áætlunum Landsvirkjunar sé ekki treystandi er vísað á bug. F.h. Landsvirkjunar. Halldór Jónatansson forstjóri K* N XX. - UTSALA VIÐ FLYTJUM BRATT A NYJAN STAÐ NÆSTU 12 DAGA GETUR ÞÚ GERT REYFARAKAUP - VIÐ LEYSUM ÞÍN HElMILISTÆKJAMÁL. KÆLISKAPAR - KÆLI/FRYSTISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR Gerð Heiti. Kælir Frystir HxBxD Verðlista- Útsölu- Þú sparar Lýsing lítra lítra cm verð kr. verð kr. kr. ZI-9243 Kælisk. til innb. 240 18 122x56x55 58.535 40.975 17.561 Z-916/2 Kæli/frystisk. 160 124 166x54x60 78.931 55.252 23.679 Z-9350 Frystisk. m/2 hurðum 350 210x60x60 101.278 70.895 30.383 Z-9410 Kælisk. m/2 hurðum 410 210x60x60 96.475 67.533 28.943 Z-9165 Kæliskápur 160 85x55x57 39.691 27.784 11.907 Z-622SBS Samb. kæli/frystisk. 128 52 82x90x60 71.911 50.338 21.573 Z-614/4 Kæli/frystisk. 140 40 122x50x60 45.408 39.051 6.357 Z-618/8 Kæli/frystisk. 180 80 140x55x60 56.806 48.853 7.953 Z-619/4 Kæli/frystisk. 190 40 142x53x60 50.648 43.557 7.091 Z-620VF Frystiskápur 200 125x55x57 57.932 49.822 8.110 Z-622/9 Kæli/frystisk. 220 100 175x60x60 75.567 64.988 10.579 Z-6235C Kæliskápur 240 125x55x57 48.499 41.709 6.790 Z-300H Frystikista 271 85x92x65 44.150 37.969 6.181 Z-400H Frystikista 398 85x126x65 52.985 45.567 7.418 ELDAVÉLAR - ELDAVÉLASETT - STAKIR OFNAR - HELLUBORÐ Gerð Heiti Fjöldi Stærð -HxBxD Verðl.- Útsölu- Þú sparar Lýsing hellna ofns 1. cm verð kr. verð kr. kr. EEH-63CWLB Innb. ofn m/bl„ hvítur 65 59x59x55 79.222 55.455 23.767 EM-60-W Helluborð, 4 hraðsuðuh. 4 4x58x51 17.093 11.965 5.128 EM-80-L Ryðfr. helluborð 4 4x77x51 21.055 14.739 6.317 EK-60-SWZ Keramik helluborð - útlg. 5 4x58x51 40.424 28.297 12.127 EKS-62-W Keramik hellub. m/rofum 4 4x58x51 49.434 34.604 14.830 EH-540-WN Eldavél frístandandi 4 58 85x50x60 41.517 35.705 5.812 EH-640-WN Eldavélfrístandandi 4 65 85x60x60 47.351 40.722 6.629 A 40 B Rafha eldavél 4 63 85x60x60 51.849 44.590 7.259 ÞVOTTAVÉLAR - ÞURRKARAR - UPPÞVOTTAVÉLAR - ÞEYTIVINDUR Gerð Heiti Fjöldi Vind- HxBxD Verðl.- Útsölu- Þú sparar Lýsing valk. hraði cm verð kr. verð kr. kr. ZF-700XG Þvottavél 16 700 85x60x60 56.543 46.365 10.178 ZF-800 Þvottavél 18 800 85x60x60 61.685 50.582 11.103 ZF-1142XG Þvottavél 1100 85x60x60 80.626 66.113 14.513 ZD-120 Þurrkari 85x60x60 39.542 32.424 7.118 ZD-201 Þurrkari 85x60x60 54.067 44.335 9.732 Z-710 Þeytivinda 1400 18.542 15.204 3.338 ZW-106 Uppþvottavél, hvít 4 12 p. 85x60x60 65.206 53.469 11.737 ID-5020V Uppþvottavél innb. 7 12 p. 85x60x60 67.691 55.507 12.184 Þvottavélar eru með ryðfríum belg og tromlu. ÖRBYLGJUOFNAR - ELDHÚSVIFTUR - RYKSUGUR - POTTAR - PÖNNUR OG FLEIRA. Útsöluverð er miðað við staðgreiðslu. Okkar frábæru greiðslukjör! Útborgun aðeins 25% og eftirstöðvar á allt að 12 mánuðum. ^Nl ŒHB® C) □ OPIÐ SEM HER SEGIR: VIRKA DAGA TIL 15. FEBR. TIL KL. 19.00. LAUGARDAG 16. FEBR. KL. 10.00 TIL KL. 16.00. VERSLUNIN RAFHA, HAFNARFIRÐI. SIMI 50022 - LÆKJARGATA 22 BILAGALLERÍ opið virka daga 9-18. Laugardaga 10-16. Subaru 4WD station '82, rauður, 4 gfra, útv./segulb., ’91 skoðun, ek. 120.000, nýtt lakk. Verð 280.000,- Lada 1500 station ’88, rauður, 5 gira, útv./seg., vetrard., ek. 38.000. Verð 350.000,- Fiat Uno Stíng '87, blár, 4 gíra, útv./seg., vetrard. ek. 27.000, sami eigandi. Verð 410.000,- Lada Sport ’88, hvítur, 5 gira, iéttstýri, útv./segulb., ek. 42.000. Verð 550.000,- Lada Sport ’88, rauður, 4 gíra, útv./seg., 2 dekkjag. á felgum, ek. 31.000. Verð 530.000,- Volvo 245 GL ’84, grár met., 5 gira, vökvast., útv./seg., ek. | 104.000. Verð 710.000,- Rocky Wagon ’87, hvítur, bensín- vél, 5 gira, vökvast., útv./seg., ekinn 43.000. Verð 1.200.000,- Charade turbo ’88, svartur, 5 gíra, sóllúga, rafspeglar, útv./seg., álfelgur, ek. 46.000. Verð 680.000,- Subaru 4WD 1,8, statíon ’86, Ijós- blár, 5 gfra, vökvast., útv./seg., ratdr. rúður, læst dril, ek. 90.000. Verð 780.000,- Brimborg hf. Faxafeni 8, s. (91) 685870

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.