Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1991, Page 17
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1991.
17
Fréttir
Heimsmeistaramótin í hestaíþróttum laða að þúsundir áhugamanna um íslenska hestinn. Hér sést Bernd Vith á
Röði í Danmörku 1989. DV-mynd EJ
Heimsmeistarakeppnin í hestaíþróttum:
Himmelsdalslund-
svæðið brátt tilbúið
Heimsmeistaramótið í hestaíþrótt-
um verður haldið í Himmelsdalslund
við Norrköbing í Svíþjóð dagana 12.
til 18. ágúst næstkomandi. Mikill
áhugi hefur verið á heimsmeistara-
mótunum í hestaíþróttum sem hald-
in eru annað hvert ár. Mörg þúsund
manns koma frá rúmlega tuttugu
löndum til að bera saman bækur sín-
ar um íslenska hestinn.
Grjót í móa
olli vandræðum
Að sögn Hafliða Gíslasonar, hesta-
manns í Svíþjóð, sem er í nánu sam-
starfi við sænsku mótsstjómina,
gengur undirbúningurinn mjög vel.
„Skeiðbrautin er svo til tilbúin og
hringvöllurinn hefur verið form-
aður,“ segir Hafliði. „Útlitið var
reyndar ekki mjög gott á tímabili því
náttúruverndarráð staðarins bann-
aði að nokkrir steinar, sem við
myndum kalla á íslandi „grjót í móa“
væru færðir því það á eftir að kanna
hvað er undir þeim. En skeiðbrautin
var færð til og þá gekk þetta allt upp.
Mótssvæðið er hluti af geysistóru
íþróttasvæði í útjaðri Norrköbing.
Þar eru stórir útivistargarðar, ís-
hokkísvæði, skautabraut auk ann-
arra mannvirkja.
400 íslenskar lopapeysur
Mótsstjórnin er búin að panta upp
allt pláss á þvi hóteli sem er næst
staðnum en mörg hótel eru á þessu
svæði. Ég pantaði tæplega 400 lopa-
peysur frá íslandi sem eru merktar
WM 91, Sverige, og búið er að hanna
forsíðu mótsskrárinnar, með mynd
af Unn Kroghen á Kraka.
Skipulagsnefndin vinnur mjög öt-
ullega að undirbúningi mótsins, enda
hefur orðið vart við mikinn áhuga
hestaíþróttasambanda aðildarlanda
FEIF,“ segir Hafliði Gíslason að lok-
um. -EJ
Fyrir öskudaginn
Hár-litaspray
hár-litaspray
Rakarastofan
Klapparstíg
Sími 12725.
ODYRT LEIGUFLUG
LONDON
KR. 14.700
ÍVKAKR. 14.700
2V1KURKR. 15.800
3VIKURKR. 16.900
KAUPMANNAHOFN
KR. 15.800
ÍVIKAKR. 15.800
2V1KURKR. 16.900
3VIKURKR. 17.700
AÐEINS 370 SÆTI Á AFMÆLISVERÐI
BROTTFARARDAGAR
maí 1. 8. 15. 22. 29.
júní 5. 12.19. 26.
júlí 3. 10.17.24.31.
ágúst 7. 14. 21. 28.
sept. 4. 11. 18. 25.
LON KL. 160#
CPH KL. 800
Ofangreind verö eru afmælisveröin
á flugkostnaði, fram og til baka.
Síðan bætast við fjölbreyttir
gistimöguleikar að eigin vaii,
bflaleiga og margt fleira. ísienskt
starfsfólk okkar í Kaupmannahöfn
og London annast fyrirgreiðslu
farþega á flugvöllum.
Þeir sem missa af afmælissætunum geta bókaö sig í leiguflug á
12-16 % hærra gjaldi og samt komist miklu ödýrara yfír
Atlandshafíð en almennt gerist. Leiguflug okkar, sem opið er
öllum íslendingum, er sannkölluð kjarabót i anda þjóðarsáttar.
Sætaframboð er takmarkað, svo nú gildir að nota þetta einstaka
tækifæri strax, því afmælissætin okkar til útlanda eru ódýrari en
flugfar til Egilsstaða.
— fii inFPama
=SULRRFLUG
Vesturgötu 12 - Sími 620066 og 15331
Hryssur sigur-
sælar á Hellu
Hestamenn í hestamannafélag-
inu Geysi í Rangárvallasýslu
munu halda vetrarmót einu sinni
í mánuði fram á vor og er einu
mótinu reyndar lokið. Keppt
verður i tveimur flokkum í tölti
fullorðinna knapa og harna svo
og skeiði. Töltkeppnin er stiga-
keppni, þar sem hrossin safiia
stigum á þessum mótum. Tvö fol-
öld eru í verðlaun og fá eigendur
stigahæstu hrossanna folöldin
þegar öllum mótunum er lokið.
Það er greinilegt að hrossaeig-
endur í RangárvaUasýslu ætla
sér stóra hluti á kynbótakeppn-
inni á fjórðungsmótinu á Hellu
næsta sumar, því hryssur voru í
fimm efstu sætunum.
Efst var hryssan Kleópatra frá
Árbakka, í eigu þeirra bræðra
Anders og Lars Hansen, en knapi
var Magnús Hreinsson. Diijá frá
Skarði, Fjólu Runóli'sdóttur var
önnur. Knapi var Kristinn
Guönason. Sverta frá Stokk-
hólma var þríðja. Hún er einnig
í eigu bræðranna Anders og Lars
Hansen. Knapi var Gylfi Gunn-
arsson
í barnaflokki varð Sigríður Th.
Kristinsdóttir efst á Riddara,
Rafn Bergsson var annar á Funa
og Magnús Ágústsson þriðji á
Káinn. Ekki var keppt i skeiði að
þessu sinni.
Næsta mót er fyrirhugað 2.
mars. -EJ.
Ráðstefna fjármálaráðuneytisins þriðjudaginn 12. febrúar 1991
Opinber útgjöld: ísland í norrænu ljósi
í tilefni af þýðingu og útkomu skýrslunnar Norræna
velferöarríkiö á aöhaldstímum , sem fjármálaráðherrar
Noröurlanda létu semja, efnir fjármálaráðuneytið til ráöstefnu
að Borgartúni 6, þriöjudaginn 12. apríl. Ráöstefnan hefst kl.
13: 00 meö ávarpi Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráöhera.
Tvö erindi veröa flutt á ráöstefnunni. Henning Gorholt,
skrifstofustjóri fjárlagaskrifstofu norska fjármálaráöuneytisins,
fjallar um norrænu skýrsluna og Magnús Pétursson,
ráöuneytisstjóri í fjármálaráöuneytinu, reifar þróun og horfur á
Islandi.
Eftirtaldir lýsa skoöunum sínum varöandi útgjaldaþróun hins
oþinbera á íslandi: Friðrik Sophusson alþingismaöur, Höröur
Bergmann upplýsingafulltrúi, Markús Möller hagfræöngur, Már
Guðmundsson efnahagsráögjafi fjármálaráöherra, Ólafur
Davíösson framkvæmdastjóri Félags íslenskra iönrekenda, Páll
Skúlason prófessor, Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri
Verslunarráðs íslands og Ögmundur Jónasson formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja.
Eftir fyrirspurnir og almennar umræður veröa niöurstööur
dregnar saman af Davíð Scheving Thorsteinssyni forstjóra,
og Kristínu Á. Ólafsdóttur borgarfulltrúa.
Fundarstjóri á ráðstefnunni er Sigmundur Guöbjarnason
háskólarektor.
Uppstokkun, nýjar aöferöir og endurmat á verkefnum