Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1991, Page 29
i<>er riA’jri'i?^ ,:r nuDAGUMAK
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1991.
dv________________________Lífcstm
DV kannar verð á bollum:
Allt að 67% munur
Ein bolla með kremi, sultu og rjóma kostar frá 99 og upp i 135 krónur, eftir
þvi hvar hún er keypt. DV-mynd BG
Það er varla til sú manneskja sem
fær sér ekki bollu á bolludaginn og
flestir innbyrða fleirl en eina. Þær
eru til í mörgum gerðum. Gerdeigs-
bollur og vatnsdeigsbollur, krem-
lausar eða með kremi, með eða án
rjóma. Oftast er sett súkkulaðikrem
á bollurnar, en stundum glassúr eða
flórsykur. Bollur með rjóma sem
bragðbættar eru með púnsbragði eru
einnig vinsælar.
Það er ódýrara að kaupa bollurnar
sjálfur og þeyta rjómann á. Sumir
nenna þó ekki að standa í því og
kaupa bollurnar tilbúnar. Enda er
það svo að nánast allir staöir sem
selja bollur, eru með tilbúnar rjóma-
bollur á boðstólum. Nú á dögum virð-
ist engum detta í hug að selja bollur
með gervirjóma.
Verðið er ansi misjafnt milli staða.
í verðkönnun DV var allt að 67%
verðmunur á sömu tegundum. Nið-
urstöðuna af verðkönnuninni má sjá
á töflunni hér til hliðar. Þar sem tvær
tölur eru í hverjum dálki, er verðið
á gerdeigs- og vatnsdeigsbollunum
gefið upp í sitthvoru lagi.
Verð á bollum með kremi og rjóma
var aht frá 99 krónum upp í 135 krón-
ur. Sumir staðir buðu upp á tvær
gerðir, gerdeigs- og vatnsdeigsbollur.
Vatnsdeigsbollurnar voru yfirleitt
dýrari en sumir seldu þó báðar teg-
undir á sama verði.
Bakaríið Austurveri og Bernhöfts-
bakarí seldu báðar tegundir á sama
verðinu. Hagkaup og Mikhgarður
voru með hagstæðasta verðið, 99
krónur, en vatnsdeigsbollur hjá Hag-
kaupi voru á 125 með rjóma. Dýrustu
bollurnar með rjóma í könnuninni
voru vatnsdeigsbollur frá bakaríinu
Kornið, en þar kostuðu þær 135 krón-
ur. Þaö munar 36% á hæsta og lægsta
verði á bollum með rjóma.
Bollur með kremi voru ódýrastar
í verslunum Miklagarðs, en dýrastar
í Bernhöftsbakaríi. Þær kostuðu 47
krónur í Miklagarði en 70 krónur í
Bernhöfsbakaríi og er verðmunur-
inn 49%. Hinir samanburðarstaðirn-
ir eru með verð allt þar á milli.
Bollur án alls kostuðu allt frá 39
krónum (Mikligarður) og upp í 65
krónur, en þar er munurinn mestur
á milli verða. Hann nemur 67%. Hag-
kaup og Álfheimabakarí eru með
næst lægsta verðið, 44 krónur fyrir
gerdeigs- og 54 fyrir vatnsdeigsboll-
ur. Álfheimabakarí er með hagstæð-
asta verðið af bakaríunum.
Þeir sem eru stórtækir í bolluátinu,
og innbyrða til dæmis 5 bollur yfir
daginn, þurfa að borga frá 495 krón-
um upp í 675 krónur ef þeir kaupa
þær með öllu.
-ÍS
Verslun Bollurm. rjóma Bollurm. kremi Bollurán alls
Hagkaup 99/125 49/62 44/54
Mikligarður 99 47 39
Bakaríið Austurveri 130 63 53
Bakaríið Kornið 125/135 65 60
Bernhöftsbakarí 125 70 65
Álfheimabakarí 115/125 49/62 44/54
Bolludagur:
Fyrsti dagur í lönguföstu
Bolludagur er fyrsti dagur í löngu-
fóstu. Samkvæmt fornri reglu er
bannað að neyta kjöts þennan dag,
en eta mátti annan mat hömlulítið.
Það átti aðallega við um hvers kyns
kökur og brauð. Þessi fyrirmæli fyr-
irfmnast í Grágás sem rituð var fyrir
meir en 1000 árum. Sá siöur að eta
bollur með rjóma er hins vegar mun
yngri.
Talið er að hann hafi borist hingað
til lands á síðari hluta 19. aldar með
dönskum kaupmönnum og iðnaðar-
mönnum, einkum bökurum. Siður
þessi er sennilega upprunalega frá
Norður-Þýskalandi, einkum Slé-
svík-Holtsetalandi.
Einnig er talið að sú venja að
flengja á bolludag, hafi komið þaðan.
Óvíst er um elstu merkingar fleng-
inganna. Sumir telja að þær hafl
upprunalega verið liður í frjósemis-
galdri. Með þeim hafi átt að vekja
alla náttúruna til lífs og starfa, þegar
vorið er í nánd.
Aðrir álíta að rekja megi þær til
hirtinga og písla sem menn lögðu á
sig tið iðrunarmerkis á fostunni til
að minnast pínu frelsarans. Eftir sið-
breytingu er tahð að þessum sið hafl
verið slegið upp í gamansemi meðal
mótmælendatrúarmanna, svo aö
menn tóku að flengja hver annan en
ekki sjálfan sig.
Siðurinn barst til íslands fyrir
rúmum hundrað árum. íslendingar
virðast ekki hafa lagt dýpri merk-
ingu í hann en svo að börn fengu
útrás fyrir galsa sinn og gátu orðið
sér úti um ókeypis góðgæti.
Á bolludag hefur oft verið iðkaður
sá siður að slá köttinn úr tunnunni.
Hann er einnig talin vera kominn frá
Danmörku, en þaðan er talið að hann
hafi borist frá Hollandi. Köttur var
oft talinn tákn vetrarins og myrkurs-
ins og því táknrænn siður að reka
hann burt með hækkandi sól. Sá sið-
ur að hafa lifandi kött í tunnunni
lagðist þó fljótlega af enda grimmur
siður.
Nafnið bolludagur á sér ekki nema
um 45 ára sögu hér á landi. Hýðingar-
dagur og flengidagur voru orð sem
notuð voru um þennan dag en nafnið
Bolludagur virðist hafa náð lýðhyfli
fram yfir hin heitin fyrir um 45 árum.
Segja má að nafnið bolludagur hafi
þó ekki hlotið opinbera staðfestingu
fyrr en áriö 1967, en þá var það tekið
upp í Almanaki Þjóðvinafélagsins.
-ÍS
omRon
SJÓÐSVÉLAR
Gera meira
en að uppfylla
kröfur
fj ármálar áðuney tisins.
Yfir 15 gerðir fyrirliggjandi
Verð frá kr. 29.800.-
SKRIFSTOFUVÉLAR sund hf
NÝBÝLAVEGI 16 - SlMI 641222
-tækni og þjónusta á traustuni grunni
TRAKTORSKNUNAR RAFSTÖÐVAR
I tilefni þess aö
Búnaöarsamband
Suöurlands hefur
tekiö tilboöi frá okkur
í traktorsknúnar
rafstöövar, bjóöum
viö öllum sem vilja
njóta þessara
sérkjara aö ganga
inn í þessi samkauþ.
Rafstöövarnar eru
tengdar meö
drifskafti viö
dráttarvélar.
Teg.
3 fas
380 V/
1 fasa.
220 v
Tilboðsverð án VSK
7 TA
5,4 kw/4,5 kw
94.000.-
12,5 TA
10 kw/7 kw
118.000.-
17 TA
14,5 kw/8,4 kw
140.000.-
Traustar og vandaðar rafstöðvar.
G.A.Pétursson hf
Nútlöinni Faxafeni 14, simi 68 55 80