Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1991, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1991, Page 36
 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjalst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1991. Hekla sígur „Það er marktæk breyting á halla við fjallið. Ég á hins vegar eftir að reikna út hversu mikið sig um er að ræða í heild, miðju þess og fleira,“ Fsagði Eysteinn Tryggvason, jarð- fræðingur á Norrænu eldljallastöð- inni, við DV. Hekla er að síga og það er nokkuð sem Eysteinn vissi að mundi gerast. Það gerðist alitaf þegar hraunþró undir eldíjöllum tæmdist. Eysteinn sagði þessar mælingar sambærilegar við mæhngar norður við Kröflu síð- ustu fímmtán árin en þar mældist mesta sig um tveir og hálfur metri. -hlh Rotuðu húsbónd- ann og nauðguðu eiginkonunni Kona nokkur kom inn á lögreglu- stöð í gær og kærði tvo menn fyrir nauðgun. Konan, sem var mikið ölv- uð, hafði boðið mönnum þessum heim til sín en nokkru síðar kom eig- inmaður hennar heim. Gestirnir réð- ust að húsbóndanum og rotuðu hann og nauðguðu síðan eiginkonunni. Hún lagði fram kæru í gær en menn- irnir voru ekki fundnir. Málið er komiðírannsóknhjáRLR. -ELA Vaknaðivið strokurókunn- ugsmanns Konu einni í Norðurmýrinni brá illilega i brún er ókunnugur maður stóð allt í einu við rúm hennar snemma í gærmorgun og þuklaði á henni lærin. Hún vakti eiginmann- inn sem rauk upp og lét kauða fá það óþvegið. Innbrotsmaðurinn, sem var mjög ölvaður, hafði komið inn um glugga íbúðarinnar. Maöurinn hafði ekki verið yfirheyrður í gær en talið að hann hafi farið húsavillt í ölæðinu og haldið sig vera að strjúka sína "ektakvinnu. -ELA Ölvaður ökumaður: Reyndiaðstinga lögreglu af Olvaður ökumaður ók á ljósastaur við Austurbrún aðfaranótt sunnu- dagsins. Maðurinn ók í burtu á skemmdum bílnum en leigubílstjóri, sem varð vitni að ákeyrslunni, lét lögreglu vita, enda ökulag ekki eins og það átti að vera. Þegar maðurinn varð lögreglu var hljóp hann úr bíln- um og hugðist stinga af en náðist ^skömmu síðar. Maðurinn slapp ómeiddur, bíllinn skemmdist nokkuð en ekkert sást á ljósastaurnum. -ELA LOKI Það er ekki nóg að veiða loðnuna ef fiskifræðing- arnirfinna hana ekki. Enginn samnmgur fvir en næsta haust „Við áttum fund með þeim frá Atlantsálhópnum á miðvikudaginn en þar voru engar endanlegar ákvarðanir teknar né ákveðíð hve- nær næsti fundur verður haldinn. Það hefur verið rætt um það lengi að ganga frá þessum samningi í mars næstkomandi en nú er það Ijóst að stjórnir erlendu fyrirtækj- anna treysta sér ekki til að ganga frá honum fyrr en í haust,“ segir Árni Finnur Grétarsson, stjómar- maður í Landsvirkjun. Árni Grétar var í samninga- nefndinni sem fór til New York um miðja síðustu viku tii að semja um raforkusölu Landsvirkjunar við Atlantsál. Auk hans fóru þeir Dav- íð Oddsson og Páll Pétursson. Ætl- unin var aö viðræðumar stæðu yfir í minnst tvo daga en þar sem erlendu viðsemjendurnir voru ekki tilbúnir til að ganga til samninga var viðræðunum slitið eftir nokkra klukkutíma. ar eins og til stóð. Einnig segir hann ljóst að framkvæmdum við sjálft álverið muni seinka um minnst eitt ár og því muni þaö í fyrsta lagi taka til starfa árið 1995. Frestun framkvaemda óhjákvæmileg Að sögn Árna er ljóst að þar sem samningur náist ekki fyrir vorið muni Landsvirkjun ekki fara út í virkjanaframkvæmdir næsta sum- Mikil undirbúningsvinna „Það er búið að vinna mikið und- irbúningsstarf vegna þessa samn- ings og því ætti samningsgerðin að geta gengið fljótt fyrir síg þegar viðsemjendur okkar eru tilbúnir til þess. Á næstumú munum við halda áfram efnislegri vinnu við og vera í símsambandi við þá ytra. Það ligg- ur hins vegar Ijóst fyrir að Lands- virkjun getur ekki ráðist i neinar framkvæmdir fyrr en endanlegur samningur liggur fyrir. Við erum í startholunum og munum bíða átekta," segir Árai Grétar. Aðspurður kvað Ámi ekkert hafa verið rætt um sjálft raforkuveröið á fundinum í New York né hafi fulltrúar Landsvirkjunar farið fram á hærra verð. Rætt hafi verið um málin á almennum nótum. Til dæmis hafi menn verið að skoða ýmsa möguleika á mynttengingu hugsanlegs raforkusamnings. -kaa Loðnan loksins fundin? Bolludagurinn er í dag. Aætlað er að landsmenn borði um milljón bollur í dag, eða um fjórar bollur á mann að meðaltali. Ása Axelsdóttir og Hildur Harðardóttir hjá Bakaríi Austurvers sýna hér hreyknar hluta af framleiðslunni. DV-mynd Hanna „Ég reikna með aö útreikningar á þessum loðnumælingum liggi fyrir í dag og niðurstaðan verði kynnt sjáv- arútvegsráðherra,“ segir Jakob Jak- obsson, forstjóri Hafrannsóknastofn- unar. Stofnunin hefur undanfarna daga mælt loðnu út af Suðausturlandi. Sjómenn eru bjartsýnir og lifa í von- inni eftir að loðnuskipin Guðmundur VE, Grindvíkingur GK og Bjarni Ól- afsson AK, fylltu sig á svipstundu í fyrrinótt. „Skipin fengu þessa loðnu rétt út af Hornafirði. Loðnan var mjög vel veiðanleg,” segir Jakob. Þær loðnumælingar, sem fram hafa farið í vetur, sýna loðnustofn upp á um 400 þúsund tonn. Stjórn- völd telja það vera lágmarksstærð á stofninum og hafa því ekki heimilað veiðar. Útreikningarnir í dag verða þess vegna að sýna loðnustofn upp á mun meira en 400 þúsund tonn til að veið- ar verði leyfðar. -JGH Veðrið á morgun: Snjó- eða slydduél vestanlands Suðvestan- og vestangola eða kaldi. Snjó- eða slydduél vestan- lands og á annnesjum norðaust- anlands en annars léttskýjað. Hiti á bilinu 0-4 stig. > C 7*177 'V SMIÐJUKAFFI ^ SeHDUM FR/TT HF/M OPNUM KL. 18VIRKA DAGA 0G KL. 12 UM HELGAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.