Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Síða 13
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1991. Utlönd Dame Margot Fonteyn: Frægasta baller- ína Breta látin Margot Fonteyn, ein frægasta ball- erína allra tíma, er látin á heimili sínu í Pariama, 72 ára gömul. Hún varö fræg fyrir dans sinn á fjórða áratug þessarar aldar og síðar fyrir samvinnu sína með sovéska ballett- dansaranum Rudolf Nureyev. Þá hafði hún verið fremst í flokki ball- ettdansara í fulla þijá áratugi. Fonteyn var fædd í Bretlandi árið 1919 og gerði dans að atvinnu sinni 17 ára gömul. Árið 1964 dansaði hún aðahlutverkið í Svanavatninu í Vín- arborg og var kölluð 89 sinnum fram á sviðið að sýningu lokinni, oftar en dæmi eru um með aðra dansara. Árið 1955 giftist hún Roberto Arias, stjórnmálamanni frá Panama, og bjó þar eftir það. Fyrir þremur árum veiktist hún af krabbameini sem dró hanatildauða. Keuter Margot Fonteyn var ein frægasta ballerína sem uppi hefur verið. Símamynd Reuter VETRARTILBOÐ HAFIÐ SAMBAND Í SÍMA 91 -61 -44-00 BlLALEIGA ARNARFLUGS Jeanne Clament er elsta kona heims. Símamynd Reuter Elsta kona heims 116 ára Elsta kona heims heitir Jeanne Clament og varð 116 ára í gær. Hún býr í Arles í Frakklandi og er enn vel ern. Fyrir skömmu dó í Banda- ríkjunum kona sem einnig hafði náð 116 ára aldri og var hún aðeins eldri 1 árinu en Clament. Clament hélt upp á afmælið með ættingjum sínum og vinum þar sem hún dvelur á elliheimili í heimabæ sínum. Hún fæddist árið 1875. Reuter til að í fullkomið lag Eftirlitsmenn heimsækja fyrirtæki og verslanir. Undanfama mánuði hafa fjármálaráðuneytið og embætti ríkisskattstjóra beitt sér fyrir kynningarátaki til að bæta úr vanköntum á söluskráningu í verslun og þjónustu. Nú er hafinn lokaþáttur átaksins til að koma þessum málum í fullkomið lag. Næstu sex mánuði heimsækja eftirlitsmenn skatt- rannsóknarstjóra verslunar- og þjónustufyrir- tæki um allt land til að kanna ástand og notk- un sjóðvéla og sölureikninga. Ef í ljós kem- ur að söluskráningu er verulega áfátt hefur viðkomandi fyrirtæki 45 daga til að kippa sínum málum í liðinn. Að öðrum kosti verð- ur því lokað í samræmi við lög sem nýlega voru samþykkt á alþingi. Mikilvægi löglegra sjóðvéla og fullkom- inna sölureikninga er augljóst: Þetta er vís- bending um full og heiðarleg skattskil og neytandinn nýtur sjálfsagðs réttar og öryggis í viðskiptum sínum. Ef allir skila sínu í sam- eiginlegan sjóð landsmanna verður byrðin léttari á hverjum og einum. Full skattskil samkvæmt settum reglum eru grundvallar- forsendur heilbrigðs viðskiptalífs þar sem fyrirtækin standa jafnfætis á samkeppnis- grundvelli. Christian Brando skaut á ann- an mann Forsvarsmenn í verslun og viðskiptum! Takið vel á móti starfsmönnum skattrannsóknarstjóra - með ykkar mál á hreinu. Örvqai i -heidarleg skaminl! Saksóknarar í Los Angeles fuUyrða að Christian Brando, sonur leikarans Marlons Brando, hafi ekki aðeins myrt ástmann hálfsystur sinnar heldur einnig skotið á annan mann fyrir tveimur árum og þar að auki barið fyrrverandi eiginkonu sína til óbóta. „Christian Brando er hættulegur maður, harðlyndur og alvarleg ógn- un við umhverfi sitt,“ segir í máli saksóknaranna tveggja sem sækja málið gegn Christian. Þeir leggja til að hann veröi dæmdur í 16 ára fang- elsi fyrir morðið á Dag Drollet, sem var ástmaður Cheyenne Brando. Christian hefur þegar viðurkennt sekt sína í málinu en þó kann svo að fara að málarekstur verði einnig hafmn gegn honum vegna fyrri til- raunar til að drepa mann. Þá skaut hann í andlitið á manni að nafni Ric- ando Alvarez og særði hann illa. Al- varez kærði ekki árásina en sak- sóknaramir nota málið til að sýna ofbeldishneigð Christians og hafa einnig dregið ofbeldi hans í garð fyrr- verandi eiginkonu fram í dagsljósið. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.