Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1991. Útgáfufélag: FRJALS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJOLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JONAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr. Verð í lausasölu virka daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr. Menrtingarverðlaun Menningarverðlaun DV voru afhent í gær. Hér er um árlegan viðburð að ræða og mikilsmetinn af listamönn- um, menningarfrömuðum og öðrum áhugamönnum á þessum vettvangi. Jafnframt eru þetta einu menningar- verðlaunin sem veitt eru hér á landi til allra hinna viður- kenndu listgreina. Viðurkenningar eru veittar til rithöf- unda og að einhveiju leyti til hljómlistarmanna af öðr- um aðilum, en menningarverðlaun DV taka til allra þátta lista og hefðbundinna menningargreina og nú síð- ast var byggingarlistinni bætt við. , Dómnefndir tilnefna hugsanlega verðlaunahafa og velja úr þeim hópi þann einstakling eða listahóp sem hefur að áliti nefndarinnar lagt fram merkasta skerfmn til sinnar listgreinar á árinu. Auðvitað má alltaf deila um niðurstöður í svo huglægu mati, en aldrei hefur þó borið á því að verðlaunaveiting hafi verið gagnrýnd og fullyrða má að oftar en hitt hafi útnefning verðlauna- hafa mælst afar vel fyrir og hitt í mark. Oft er talað um að æðri listir.séu á undanhaldi og menningin fari halloka fyrir dægurpoppi hvers konar, sjónvarpsglápi og metnaðarleysi nýrra kynslóða gagn- vart sköpun og tjáningu í listum. Menn hafa áhyggjur af tungunni og telja að íslendingar séu í vaxandi mæli þiggjendur en ekki gefendur í menningarlegu framlagi samtíðarinnar. En þegar betur er að gáð kemur í ljós að sjaldan eða aldrei hefur vaxtarbroddurinn verið meiri og kröftugri í listsköpun þjóðarinnar. Alls staðar má sjá þess merki. Ungir rithöfundar hasla sér völl, myndlist stendur með miklum blóma, kvikmyndagerð sækir fram og í leik- húsinu hefur myndast nýr og upprennandi hópur leik- ara og leikritahöfunda, sem lofa góðu. í tónlistinni er. iðandi líf og enn er það ungt fólk og metnaðargjarnt sem er í fararbroddi og setur markið hátt. Svo mætti áfram telja. Það er ekki aðalatriðið hver fær verðlaun og viðurkenningu heldur hitt að áhuginn fyrir listum og menningarþátttöku hefur ekki minnkað með nýjum kynslóðum. Það geta ekki allir orðið meistar- ar en upp úr fjöldanum spretta snillingarnir og aðeins það eitt, að íslendingar leggja rækt við menningarstarf, taka virkan þátt í því og hafa skilning á gildi þess, er uppörvandi vottur þess að lágmenningin hafi ekki tekið völdin. Hávaðinn og athyglin í kringum óöld og upp- lausn kann að vera meiri, fréttir af lausung, óreglu og neikvæðum athöfnum kunna að vera fleiri. En þjóðlífið er engu að síður iðandi mannhaf af fólki á öllum aldri sem hefur aflað sér menntunar, drukkið í sig áhrif menningar og spreytir sig á listsköpun í einu eða öðru formi. Þessari staðreynd má ekki gleyma og að henni ber að hlúa. Fjölmiðlar geta því miður gert misjafnlega mikið að því að skýra frá öHu því merkilega starfi sem unnið er á vettvangi lista og menningar. DV hefur leitast við að sinna því eftir mætti. Gagnrýni og dómar birtast reglu- lega um menningarviðburði, viðtöl, frásagnir og dagleg- ar fréttir. Blaðið hefur og haldið úti fastri menningar- síðu. Síðast en ekki síst má nefna afhendingu menning- arverðlauna. Ritstjórn DV óskar verðlaunahöfunum til hamingju með sínar viðurkenningar. Þeir eru glæsHegir fuUtrúar Hstrænnar tjáningar og sköpunar, sem hafa skarað fram úr á Hðnu ári. Vonandi eru verðlaunin hvatning fyrir þá sem og aðra til að gera enn betur á komandi árum. Ellert B. Schram Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, tekur á móti Tarek Aziz, utanrikisráðherra íraks, sem flytur svar Saddams Husseins. Simamynd Reuter Að sprengja yf ir markið Úr því sem komið er í stríði Bandaríkjamanna við írak virðist rökrétt að leiða það til lykta hern- aðarlega eins og hugur Bush for- seta stendur til og að gefa Saddam Hussein ekkert færi á aö bjarga her sínum frá eyðileggingu í Kúvæt. En innrás í Kúvæt með tilheyrandi blóðbaöi verður gerð með þá vitn- eskju bak við eyrað að hún var óþörf. írakar hafa þegar fallist á að skila Kúvæt. Ef vilji væri fyrir hendi mætti ljúka stríðinu strax. En sá vilji er ekki fyrir hendi, tilgangur stríðsins er ekki og hefur aldrei verið sá einn að losa Kúvæt undan yfirráðum íraka. Ætlun Bush forseta er ekki aðeins að eyðileggja hernaðarmátt íraks heldur að ná sér persónulega niðri á Saddam Hussein. Bush hef- ur magnað upp slíka múgseíjun gegn Saddam og írak að allt annað en hernaðarlegur ósigur Saddams mun snúast upp í pólitískan sigur hans og það geta hvorki Bush né aðrir leiðtogar fjölþjóðabandalags- ins látið gerast. Það er því lítil hrifning í Hvíta húsinu yfir framtaki Gorbatsjovs. Friðartillögur Sovétmanna hafa flækt málið mjög og gert afdráttar- lausa niöurstööu í stríðinu mun erfiðari en ella. Það eitt aö þær skuli vera til og írakar samþykki þær getur sundrað fjölþjóðabanda- laginu gegn írak og umfram allt hafa þær nú þegar, hvort sem þær stöðva stríðið eða ekki, styrkt mjög stöðu Sovétmanna á þessum slóö- um. Þegar að því kemur aö gera upp málin að stríði loknu má búast við að Sovétmenn verði málsvarar íraka og vilji Bandaríkjamenn reka hernaðinn áfram inn fyrir landa- mæri íraks gæti komiö til alvar- legra árekstra við Sovétmenn. En Gorbatsjov hefur sýnt að Sov- étmenn ætla ekki að láta Bandarík- in verða eina risaveldið sem áhrif hefur í Miðausturlöndum, þau áhrif sem Sovétmenn hafa á Irak gætu komið þeim aö góðu haldi þegar að því kemur að finna ný- skipan mála á þessum slóðum, þar sem írak, með eða án Saddam Hus- seins, verður í lykilhutverki. Múgsefjun Þegar þetta er ritað er enn beðiö svars Husseins við tillögum Gor- batsjovs sem hittir Azis utanríkis- ráöherra íraks öðru sinni í Moskvu. - Talið er nær fullvíst að Bush hafni þeim og hefji árás á landi. Bandaríkjamenn telja íraska herinn í Kúvæt vera að því kominn að leysast upp, hann hafi beðið meira tjón í loftárásum en nokkur her geti þolaö og eftirleikurinn verði auðveldur. Hvort sem það er rétt eða ekki er enginn vafi um niö- urstöðuna, írakar verða sigraðir og þeir reknir frá Kúvæt. Allt verð- ur gert sem hægt er til að koma í KjaUarinn Gunnar Eyþórsson fréttamaður veg fyrir að Saddam geti haft nokk- urn pólitískan eða siðferðilegan ávinning af ósigrinum, tilgangur Bush forseta er að auðmýkja og lít- illækka Saddam Hussein persónu- lega sem allra mest. Það er þessi persónulegi þáttur sem flækir mál- iö óhóflega. Bush hefur útmálað Saddam sem Satan sjálfan í álíka sterkum litum og Khomeini aja- tolla í íran útmálaöi Carter og Bandaríkin á sínum tíma. Sú múg- sefjun sem Bush hefur komið af stað í Bandaríkjunum gegn Sadd- am persónulega er aðalástæðan fyrir vinsældum stríðsins vestra og ástæðan fyrir því að það er erf- itt fyrir Bandaríkjamenn að sætta sig við að Saddam verði áfram við völd eftir stríðið. Með þessu býður Bush heim þeirri hættu að Saddam verði písl- arvottur í augum annarra araba. Staðreyndin er sú að Saddam nýtur virðingar og aðdáunar um allan hinn arabíska heim. Enginn ætlast til að hann sigri Bandaríkin en því lengur sem hann heldur út því meira vex vegur hans og virðing og jafnvel þótt hann yrði settur af í hallarbyltinu eða drepinn gæti hann enn orðið píslarvottur og sameiningartákn. Lofthernaður Hatrið á Saddam persónulega ræður líka ferðinni í lofthemaðin- um, þar er lögð áhersla á að eyði- leggja það sem Saddam hefur látið byggja, hverju nafni sem það nefn- ist. Þessar loftárásir eiga eftir að koma Bandaríkjamönnum í koll þegar friður er kominn á og við blasir sú óheyrilega eyðilegging sem þær hafa valdið. Eins og ævinlega í stríði eru „hernaðarleg skotmörk“ allt það sem sprengja fellur á rétt eins og í Víetnam þar sem allir dauðir Víet- namar voru kommúnistar. Það virðist mikill barnaskapur af Bandaríkjamönnum að tala um frið og eindrægni í arabaheiminum eft- ir að þessi vondi maöur í írak hefur verið rassskelltur, nær væri að búast við hatri, beiskju og heift í garð Bandaríkjanna og allra Vest- urlanda vegna þess sem þau hafa gert almenningi í írak. Arabískur almenningur er and- vígur innlimun íraka á Kúvæt en þegar ljóst verður hvílík hervirki bandaríski flugherinn hefur unnið í írak í nafni frelsunar Kúvæts er það óhófleg bjartsýni að ætla að almenningsálitið þakki Bandaríkj- unum og áfellist Saddam. Þaö gagnstæða væri líklegra. Fullnaðarsigur Bush talar frjálslega en óljóst um frið og eindrægni í Miðausturlönd- um eftir að Saddam hafi verið beygður í duftið og niðurlægður og hernaöarmáttur Iraks eyðilagöur. En það er ekki hægt að eyðileggja hernaðarmátt neins ríkis til fram- búðar nema með því að eyðileggja þann efnahags- og iönaðargrund- völl sem hann byggist á, það er að segja sjálfan tilverugrundvöli ír- ösku þjóðarinnar. Þetta hefur veriö markmið loftárásanna á írak sem eru langt umfram það umboð sem Sameinuöu þjóðirnar gáfu til hern- aðar til að frelsa Kúyæt og ekkert dregur úr þeim þótt írakar séu nú reiðubúnir að skila Kúvæt. Niðurlæging er ekki góður grundvöllur til að byggja á varan- legan frið. Þjóðverjar voru niður- lægðir eftir fyrri heimsstyrjöldina, afleiðingin varð nasisminn og síð- ari heimsstyrjöldin. írakar eru ara- bar og sú skoðun er útbreidd i arab- alöndum að allir arabar séu ein þjóö. Hernaðarlegur fullnaðarsigur er það sem Bush stefnir að núna og sá sigur mun vinnast. En það -eina sem getur réttlætt stríðið við írak er póhtískur og varanlegur fullnaðarsigur og sá sigur er hvergi nærri í augsýn. Gunnar Eyþórsson „Þaö virðist mikill barnaskapur af Bandaríkjamönnum aö tala um frið og eindrægni 1 arabaheiminum eftir að þessi vondi maður í írak hefur verið rassskelltur... “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.