Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1991, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 2. MARS 1991
„Ég hef'ekki kynnt mér til hlítar
þær kenningar sem hggja til grund-
vallar. Landiö geymir lykilinn,
kenningin virðist passa. Eg hef í
nokkrum tilfellum getaö reiknað
út fyrirfram hvar muni að finna
vörður og leiðarmerki og gengið að
þeim. Það dugar mér. Það finnst
mér sanna að fornmenn bjuggu
yfir meiri vitneskju en við höfum
haldið en treysti mér ekki til þess
að útskýra nákvæmlega hvað lá
þar að baki,“ segir Þórarinn Þórar-
insson arkitekt í samtali við DV.
Þórarinn hefur um tíu ára skeið
fengist við það í tómstundum sín-
um að finna merka staði í landnámi
Ingólfs Arnarsonar og við þær
rannsóknir hefur hann gengiö út
frá kenningum Einars Pálssonar
um þekkingu fornmanna á flatar-
málsfræði og staðsetningu bústaða
þeirra og þingstaða. Samkvæmt
kenningunum reiknuðu fornmenn
mjög nákvæmlega út staðsetningu
fjalla og helgra staða miðað við
sólargang og virðast hafa stuðst við
þríhyrningamæhngar og tylftar-
kerfi við útreikningana.
Keilir er minn lykill
„Keilir er minn lykill," segir Þór-
arinn. „Hafi bær Ingólfs staðið við
enda Suðurgötu, svona nokkurn
veginn við hornið á Herkastalan-
um, þá hverfur sólin bak við Keili
um vetrarsólstöður. Þar stóð ég um
vetrarsólstöður og horfði á sólina
hverfa bak við fjallið. Þá skildi ég
að fjalliö hafði sérstaka þýðingu.
Það tengdist heiðnum trúarbrögö-
um til dýrðar þvi að sólin reis á
ný. Sé dregin lína frá Keili gegnum
Þórarinn Þórarinsson arkitekt hefur gert sérstæðar uppgötvanir í landnámi Ingólfs. DV-mynd GVA
Landið geymir lykilinn
- segir Þórarinn Þórarinsson arkitekt sem gert hefur merkar uppgötvanir í landnámi Ingólfs
Þórarinn við vörðuna á Ásfelli ofan Hafnarfjarðar.
Kortið sýnir afstöðu bæjar Ingólfs til helstu kennileita þar sem eni
standa fornar vörður.
bæ Ingólfs þá liggur hún að Hofi á
Kjalarnesi en þar er mín kenning
að fyrsti þingstaðurinn hafi verið.
Lína samsíöa þessari liggur gegn-
um tvö Helgafell, bæði í Mosfells-
sveit og ofan Hafnarfjarðar. Við
enda þeirrar línu er örnefnið Gull-
bringa sem sýslan heitir eftir. Sá
sem stendur uppi á Helgafelli í
Mosfellssveit um vetrarsólstöður
við sólsetur sér, ef hann er hepp-
inn, Gullbringu baðaða í gullnu
sólarljósi og þá liggur nafngiftin í
augum uppi.“
Fornar vörður finnast
Það næsta sem Þórarinn gerði
var að draga línu í hásuður frá
bæjarstæði Ingólfs. Sú lína liggur
gegnum Ásfell ófan við Hafnarfjörð
og áfram til Gullbringu. Uppi á
Ásfellinu fann Þórarinn forna
vörðu, stóra og rammbyggilega
sem er ævaforn. Frá bæ Ingóífs að
Ásfelli eru nákvæmlega 36.000 forn
fet sem eru 3 megalítísk fet. Þarna
er talan 12 grundvöllurinn en hún
er talin vera lykillinn að talnakerfi
fornmanna eins og talan 10 er lyk-
illinn að tugakerfi nútímans. í há-
vestur frá bæ Ingólfs er Úlfarsfell
í 36.000 feta fjarlægð. Þar fann Þór-
arinn leifar þriggja varða, einnar
hæstrar í miðjunni, sem mynda
þríhyrning.
„Þegar ég síðan dró línu milli
þeirra undir hornunum 36 og 54
gráður skárust þær um Elliðavatn
en þar var hinn forni þingstaður
sem Landnáma segir að írskir
menn, búsettir á Kjalamesi, hefðu
aðstoðað við að finna stað. Þar
rennur lind út í vatn eins og reynd-
ar á Þingvöllum og það var helgur
staður samkvæmt fomum átrún-
aði,“ segir Þórarinn. „Þar sem lín-
umar skerast, utan í hólnum við
bæinn á Elliöavatni, þar tel ég að
hinn upprunalegi þingstaður hafi
verið.“
Varða með gati
fyrir sólina
Þórarinn gekk á staðinn þar
sem línur frá bústað Ingólfs og um
Helgafellin tvö skerast. Þar fann
hann vörðu sem vísaði leiðina upp
á fjallið og uppi á Vatnshlíðarfiall-
inu gekk hann fram á sérkennileg-
ar minjar. Þar er að finna þrjár
vörður. Tvær þeirra eru með sér-
stökum steinum sunnan við og
mynda þannig þríhyrning sem vísa
á þriöju vörðuna. Þriðja varðan er
með gati í gegnum þó hún virðist
heil að öðru leyti. Þórarinn stóð
sunnan við vörðuna um sumarsól-
stöður og lét sjóndeildarhringinn
bera í gatið og þegar sólin kom upp
lýsir hún nákvæmlega gegnum gat-
ið.
Ekkertertilviljun
„Þessar uppgötvanir sannfæra
mig um það að ekkert af þessu er
tilviljunum háö. Bæjum var fund-
inn staður eftir ákveðnu kerfi sem
aftur var í samhengi við trú forn-
manna á mætti sólarinnar og
náttúrunnar. Þannig má benda á
kaflann í Landnámabók sem segir
að enn sjáist öndvegissúlur Ingólfs
í eldhúsi. Hvað þýðir eldhús og
hvað eru öndvegissúlur? Stærsti
eldurinn sem brennur er sólin sjálf
og fiöllin hásæti hennar eða önd-
vegi. Þetta þýðir að enn standa
vörður sem marka öndvegi sólar-
innar og bústað Ingólfs. Þaö eru
vörðurnar á Ásfelli, Úlfarsfelli,
Sandfelli og Vatnshlíðarfialli."
Á Sandfelli, sem er á línu í há-
austur frá Ásfelli, og á línu frá bæ
Ingólfs um Elliðavatn fann Þórar-
inn reyndar súlu í bókstaflegri
merkingu en það er rösklega
tveggja metra há steinsúla sem
hefur verið færð úr nærliggjandi
gildragi og reist upp á endann á
ákveðnum stað á fiallinu.
Sandfell, bæjarstæði Ingólfs og
Ásfell mynda horn í þríhyrningi
sem er nákvæmlega rétthyrndur
og lýtur lögmáli Pýþagórasar. Bær
Ingólfs, Elliðavatn og Ásfell mynda
horn í nákvæmlega jafnhliða þrí-
hyrningi.
EinarPálsson
umdeildur
kenningasmiður
Þær kenningar sem Einar Páls-
son byggir ritverk sín á gera ráð
fyrir að ekkert sé tilviljunum háð
heldur hafi land verið numið og
búum valinn staður eftir ákveðn-
um reglum. Þær uppgötvanir sem
Þórarinn hefur gert byggja á kenn-
ingum Einars en munurinn er sá
að Þórarinn hefur ávallt reiknað
út fyrirfram hvar hann gæti fundið
vörður og dranga og það gengið
eftir.
Einar Pálsson heldur því fram að
heiðnir menn hafi búið yfir þessari
þekkingu og getað reiknað ná-
kvæmlega með þríhyrningamæl-
ingum hvar reisa skyldi hof og
helga staði. Hann telur einnig að
þegar kristni var lögtekin hafi þessi
þekking samhliða hinum fornu
trúarbrögðum týnst en þó varð-
veist fram á 13. öld. Goðarnir, sem
voru æðstir í hverju goöorði, hafi
átt að varðveita hana og tekiö þáð
til ráðs í nýjum sið að geyma hana
í dulsögnum sem menn í dag kalla
einu nafni íslendingasögur.
Kenningar Einars hafa í gegnum
tíðina ekki átt upp á pallborðið hjá
hefðbundnum fræðimönnum, enda
ganga þær nokkuð á skjön við hefð-
bundna söguskoðun. Þó hafa er-
lendir vísindamenn tekið undir
kenningar hans og rannsóknir frá
Norðurlöndum og Ítalíu hafa leitt
í ljós að sömu fræði lágu þar til
grundvallar. Hefur Þórarinn kynnt
einhverjum vísindamönnum upp-
götvanir sínar?
„Já. Þegar ég reiknaöi út að á til-
teknum staö austur í Þrengslum
skærust línur sem hefðu merkingu
vegna staðsetningar Alþingis á
Þingvöllum og fann þar tveggja
metra háa steinsúlu, nokkurs kon-
ar hornstein Alþingis, þá fór ég á
fund þjóðminjavarðar og skýrði
honum frá uppgötvun minni.
Farið um
miðjarnætur
Þórarinn hefur einkum rann-
sakað landnám Ingólfs út frá þess-
um kenningum en ennfremur hef-
ur hann skoðað Suðurlandsundir-
lendið nokkuð. Hans rannsóknir
hafa byggst á mælingum á kortum
og svo gönguferðum þangað sem
hann býst við vörðum éða merkj-
um.
„Ég hef stundum farið af staö eld-
snemma á sunnudagsmorgnum
eða pm miðja nótt þegar ég hef
verið að rannsaka afstöðu sólar-
innar á tilteknum stöðum um vetr-
ar- eða sumarsólstöður. Ég er yfir-
leitt einn á ferð enda nýt ég útivist-
ar og þetta er kærkomin tilbreyting
frá erli vinnudagsins."
-Pá