Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1991, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1991, Page 29
LAUGARDAGOR 2. MARS 1991 45 r- Þessi glæsilegi hópur tók þátt í æfingum þeirra Þorbergs og Gunnars. Gunnar stendur vinstra megin á myndinni en Þorbergur hægra megin. Við Hlið Þorbergs má sjá þá Hörð Harðarson og Ellert Vigfússon, en þeir eru báðir kunnir úr handboltanum og margreyndir landsliðsmenn og er það þeim að þakka hve mikill áhugi er á handbolta í Stykkishólmi. Mikill áhugi á Stykkishólmi Ungir Hólmarar i vigahug. - góður efniviður Þorbergur Aðalsteinsson lands- liðsþjálfari og Gunnar Einarsson, þjálfari landsliðs 21 árs og yngri, fóru til Stykkishólms á dögunum og voru með handboltaskóla og þjálfaranám- skeið ' Mikill áhugi hefur vaknað á hand- knattleiksíþróttinni upp á síðkastið, eða eftir að hið nýja íþróttahús þeirra Hólmara var reist. Húsið er mjög glæsilegt mannvirki og er ljóst að þetta verður mikil lyftistöng í bæjar- lífinu í Stykkishólmi. Þorbergur sagði í viðtali við DV að þessi ferð hefði verið mjög vel heppn- uð. „Efniviðurinn í Hólminum er mjög góður, þama finnast hæfir leið- beinendur þannig að ég sé ekkert til fyrirstöðu hjá Hólmuruni að keyra á handboltann á fullu,“ sagði lands- liðsþjálfari okkar íslendinga þegar DV ræddi við hann á dögunum. Það er mjög jákvæð þróun hjá HSÍ að nota þjálfara sína á þennan hátt. Útbreiða þarf þessa „þjóðarafreks- íþrótf ‘ okkar íslendinga eins og kost- ur er og enginn er betri og hæfari til þess en einmitt Þorbergur, sem þekk- ir þessi mál alveg út og inn. Hart barist um helgina Um helgina verður leikið í þremur flokkum á íslandsmótinu. í fimmta flokki karla er leikið í þremur deildum. 1. deild: Seljaskóli 2. deild: KR-hús 3. deild: Digranes 4. deild: Keflavík Þriðji flokkur karla leikur í þremur deildum og veröa þær leiknar á eftir- farandi stöðum: 1. deild: Strandgata 2. deild: Vestmannaeyjar 3. deild: Varmá Umsjón: Heimir Ríkarðsson og Lárus H. Lárusson í þriðja flokki kvenna er einnig leikið í þremur deildum og verða þær eins og hér segir: 1. deild: Seltjarnarnes 2. deild: Garðabær 3. deild: Valsheimili Eins og áður segir verður leikið um helgina í þessum flokkum og hefst keppni í flestum deildum á laugardag en þó eru undantekningar því keppni í 2. deild 3. flokks karla og 5. flokki karla hefst á föstudag. Þetta er síðasta leikhelgi fyrir úr- sht og hefur þessi leikhelgi tiltölu- lega litla þýðingu fyrir 1. deildar fé- lög, sem öll hafa þegar tryggt sé sæti í úrslitum, en þeim mun meiri keppni verður í 2. deild hvers flokks því Þessir kappar úr (immta flokki karla verða í sviðsljósinu um helgina en þá verður leikið í þessum flokki og ekki er vafi á að keppnin verður hörð og spennandi. aðeins tvö efstu liðin verða með aratitilinn, en hin liðin taka þátt í áfram í keppninni um íslandsmeist- svokölluðum B-úrshtum. Handbolti unglinga Yfir 500 ungir drengir í Hafnarfirði - Kóka kóla-mótið tókst vel Fyrir nokkru var leikið í Koka kóla-mótinu í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi FH-inga í Kaplakrika. Keppnin var jöfn og spennandi eins og alltaf í þessum aldursflokki og voru þátttökulið alls 37 frá 17 félög- um. KR-ingar urðu sigurvegarar í keppni A-liða og er þetta hreint ekki í fyrsta skiptið sem þeir standa uppi sem sigurvegarar. En það er þó greinilegt að önnur lið eru farin að velgja þeim allverulega undir uggum og er ljóst að keppnin á næsta móti verður enn harðari og meira spenn- andi og þótti sumum nóg'hm nú. í keppni B-Uða sigraði lið ÍR og sýndu leikmenn jöfnustu leiki í þessum styrkleikaflokki og voru sannarlega vel að sigrinum komnir. í keppni C-liða sigruðu gestgjafanir úr Hafn- aríirði og skal engan undra því þeir hafa sinnt yngstu krökkunum mjög vel eftir aö hið nýja íþróttahús kom til skjalanna. Umsjón mótsins var FH-ingum til sóma og með þessari nýju byggingu virðast þeir hafa skotið öðrum bæj- * arfélögum aftur fyrir sig í hæfni til að halda slík stórmót sem mót af þessu tagi vissulega er, því búast má við að um 5-700 krakkar hafi verið saman komnir í íþróttahúsinu í Kaplakrika þessa daga meðan á mót- inu stóð. Glæsileg tilþrif sáust á köflum í keppni þessara ungu framtiðar- manna í íslenskum handknattleik. Það þarf ekki að spyrja að því að skömmu síðar lá knötturinn í neti andstæðingsins Úr leik KR og Fylkis í 6. flokki karla. Bæði þessi lið eru mjög sterk og hafa KR-ingarnir margsinnis sýnt það i vetur. Fylkismenn eru í stöð- - ugri framför og til alls líklegir það sem eftir lifir vetrar. Þessi skemmtilega mynd er lýsandi dæmi um „hasarinn" sem oft er í keppni 6. flokks karla. VETRARTILBOÐ HAFIÐ SAMBAND I SÍMA 91 -61 -44-00 BÍLALEIGA ARNARFLUGS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.