Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1991, Síða 43
LAUGARDAGUR 2. MARS 1991.
59
Afmæli
Ævar Jóhannesson
Ævar Jóhannesson, tækjafræðing-
ur við Raunvísindastofnun HÍ,
Kársnesbraut 34, Kópavogi, verður
sextugur á morgun.
Starfsferill
Ævar fæddist að Fagranesi í
Öxnadal í Eyjaflrði og ólst upp að
Steðja á Þelamörk í Eyjafiröi. Hann
var í barnaskóla og iðnskóla, lærði
húsasmíði og síðan ljósmyndun að
miklu leyti í sjálfsnámi, auk þess
' sem hann stundaði sjálfsnám í raf-
eindatækni. Hann hefur sótt ýmis
námskeið, m.a. í ónæmisfræðum og
rafeindatækni.
Ævar hefur skrifað fjölmargar
blaðagreinar, flestar um manneldis-
mál eða læknisfræðileg efni. Hann
hefur verið formaður ritnefndar
Heilsuhringsins í mörg ár, hefur
skrifað flölda greina í tímaritið Holl-
efni og heilsurækt, var stúkufor-
maður í Guðspekifélaginu í mörg
ár og hefur skrifað greinar í tímarit
Guöspekifélagsins, Ganglera, og í
tímarit Sálarrannsóknafélags ís-
lands, Morgun.
Ævar er félagi í Surtseyjarfélag-
inu og hefur samið skýrslur um
rannsóknir í Surtsey. Þá hefur hann
tekið flölda ljósmynda sem birst
hafa víða, bæði innanlands og utan.
Fjölskylda
Ævar kvæntist 1961 Kristbjörgu
Þórarinsdóttur, f. 24.8.1934, hús-
móður og afgreiðslustúlku, en hún
er dóttir Þórarins Jóhannssonar og
Ólafar Guðmundsdóttur, búenda á
Ríp á Hegranesi í Skagafirði.
Börn Ævars og Kristbjargar eru
Jóhannes Örn Ævarsson, f. 18.12.
1961, húsasmiður í Kópavogi,
kvæntur Sif Garðarsdóttur kenn-
ara; Sigríður Ævarsdóttir, f. 18.6.
1963, húsmóðir á Stað í Borgarfirði,
gift Benedikt Þorbjörnssyni tamn-
ingamanni, og eru synir þeirra
Ævar Þór og Guðni; Þórarinn Hjört-
ur Ævarsson, f. 9.2.1965, bakari í
Kópavogi, en dóttir hans er Unnur
Björk; ÓlöfÆvarsdóttir, f. 14.2.1967,
fulltrúi, gift Birni Hilmarssyni
skrúðgarðyrkjunema, en dóttir
þeirraer RakelRut.
Systkini Ævars eru Reginn Jó-
hannesson, f. 22.12.1932, Æsa Jó-
hannesdóttir, f. 13.1.1934, ogHaki
Jóhannesson, f. 30.9.1947.
Foreldrar Ævars: Jóhannes Örn
Jónsson, f. 1.10.1892, d. 15.10.1960,
fræðimaður og b. að Steðja á Þela-
mörk, og Sigríður Ágústsdóttir, f.
13.6.1908, d. 30.9.1988, húsfreyja.
Jóhannes Örn var sonur Jóns Jó-
hannessonar, b. í Árnesi í Tungu-
sveitíSkagafirði.
Ævar Jóhannesson.
Sigríður var dóttir Ágústs Guð-
mundssonar, b. í Kjós í Reykjarfirði
á Ströndum.
Ævar tekur á móti vinum og
kunningjum í Safnaðarheimili
Kópavogs, Borgum, klukkan 15.00.
Jóhann Sverrir Kristófersson
Jóhann Sverrir Kristófersson, flug-
vallarvörður á Blönduósflugvelli og
umboðsmaður Happdrættis HÍ, til
heimilis að Húnabraut 27, Blöndu-
ósi, verður sjötugur á morgun.
Starfsferill
Jóhann fæddist á Blönduósi og
hefur búið þar alla tíð. Hann var tvo
vetur í unglingaskóla á Blönduósi.
Jóhann var bifreiðarstjóri hjá
Kaupfélagi Húnvetninga í mörg ár.
Hann var hreppstjóri Blönduós-
hrepps 1965-88, umboðsmaður
skattstjóra 1965-88 og umboðsmað-
ur Vængja hf. meðan þeir flugu til
Blönduóss.
Fjölskylda
Jóhann Sverrir kvæntist 7.10.1945
Elísabetu Þórunni Sigurgeirsdóttur,
f. 23.9.1926, forstöðumanni Félags-
starfs aldraðra á Blönduósi, en hún
er dóttir Sigurgeirs Sigurðssonar,
sjómanns á ísafirði, og Ingibjargar
Þórunnar Jóhannsdóttur húsmóð-
ur. \
Jóhann Sverrir og Elísabet Þór-
unn eiga fimm börn. Þau eru Kristó-
fer Sverrir Sverrisson, f. 7.6.1945,
mjólkurfræðingur á Blönduósi,
kvæntur Önnu Guðrúnu Vigfús-
dóttur og eiga þau einn son, Magnús
Guömundsson, f. 6.9.1971, mennta-
skólanema við MA; Hildur Björg
Sverrisdóttir, f. 26.3.1947, húsmóðir
í Reykjavík, gift Birni Búa Jónssyni
menntaskólakennara og eru börn
þeirra Glúmur Jón Björnsson, f.
19.9.1969, nemi við HÍ, Ellisif Katrín
Björnsdóttir, f. 7.2.1972, nemi við
Kvennaskólann í Reykjavík, og Soff-
ía Hlín Björnsdóttir, f. 30.12.1976;
Sigurgeir Sverrisson, f. 14.10.1948,
bifreiðarstjóri og viðgerðarmaður á
ísafirði, kvæntur Huldu Baldurs-
dóttur og eiga þau saman Elísabetu
Þórunni, f. 3.8.1978, en stjúpbörn
Sigurgeirs eru Baldur R. Baldurs-
son, f. 5.12.1969, sjómaður, Jónína
Baldursdóttir, f. 23.3.1966, húsmóöir
á ísafiröi, en börn Sigurgeirs með
fyrri konu, Jónu Guðmundsdóttur,
eru Guðmundur Jóhann, f. 6.8.1967,
verslunarmaður í Kópavogi, Ólöf
Ragna, f. 29.1.1969, sem var að ljúka
stúdentsprófum frá fiölbrautaskóla
í Reykjavík, og Kristófer Skúli, f.
19.1.1972, nemiviðFjölbrautaskól-
ann í Ármúla; Jón Sverrisson, f.
11.6.1958, trésmiður og hljómlistar-
maður á Blönduósi, kvæntur Helgu
Snorradóttur frá Akureyri og eru
börn þeirra Rakel Ýr Jónsdóttir, f.
8.12.1975, Rebekka Ýr Jónsdóttir, f.
15.9.1979, og Kristófer Jónsson, f.
26.12.1989; Sverrir S. Sverrisson, f.
3.3.1964, starfsmaður við húsbygg-
ingar í Reykjavík, kvæntur Júlíu
Árnadóttur.
Jóhann Sverrir Kristófersson.
Systkini Jóhanns Sverris eru tvö:
Skafti Kristófersson, f. 14.3.1913,
fyrrv. b. í Hnjúkahlíð í Austur-
Húnavatnssýslu, var kvæntur
Helgu M. Ólafsdóttur, f. 10.7.1915,
d. 10.8.1982, en börn þeirra eru Sig-
ríður Skaftadóttir, Ingimar Skafta-
son, Ólafur Skaftason og Flosi
Skaftason; Jóna Sigríður Kristófers-
dóttir, f. 20.4.1918, fyrrv. iðjuþjálfi
við Kleppsspítalann í Reykjavík.
Foreldrar Jóhanns Sverris voru
Kristófer Kristófersson, f. 6.6.1887,
d. 7.7.1964, starfsmaður í.Sparisjóði
Austur-Húnvetninga, verslunar-
maður, smiður og meðhjálpari, og
Dómhildur S. Jóhannsdóttir, f. 28.6.
1887, d. 12.5.1967, húsmóðir ogfor-
maður Kvenfélagsins Vöku á
Blönduósi í flölda ára.
Guðlaugur Stefán Jakobsson
-'tiAionm.rStorán .laknhcsnn vífti- Böm GuðlaugsoeSteingeröareru l.:-... ' . ' .í
Guðlaugur Stefán Jakobsson, Víði
lundi 20, Akureyri, verður sjötugur
á morgun.
Guðlaugur fæddist á Akureyri og
ólst þar upp. Hann lauk vélstjóra-
námskeiði 1941 og stundaði sjó-
mennsku sem vélstjóri og háseti á
árunum 1940-51. Þá var hann starfs-
maður Útgerðarfélags Akureyringa
1952-88, þar af í þrjátíu ár verk-
stjóri, en hætti þá störfum vegna
veikinda. Hann var formaður Verk-
stjórafélags Akureyrar og nágrenn-
isífiögur ár.
Fjölskylda
Guðlaugur kvæntist 10.1.1949
Steingerði Hólmgeirsdóttur, f. 14.3.
1920, húsfreyju en hún er dóttir
Hólmgeirs Þorsteinssonar og Val-
gerðar Magnúsdóttur, búenda á
Grund og í Hrafnagili í Eyjafirði.
Börn Guðlaugs og Steingeröar eru
Þorgerður Jóhanna, f. 10.9.1951,
yfirkennari viö Síöuskóla, gift
Halldóri Jónssyni, f. 22.11.1950,
bæjarstjóra á Akureyri, og eru synir
þeirra JónTorfi, f. 28.1.1972,
menntaskólanemi og Guölaugur
Már, f. 17.4.1973, verslunarskóla-
nemi; Valgerður Kristjana, f. 19.10.
1952, ritari við Verkmenntaskóla
Akureyrar, gift Kristjáni Davíðs-
syni, f. 29.12.1951, trésmíðameistara
og starfsmanni við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri en börn
þeirra eru Ragna, f. 14.1.1970, stúd-
ent við nám í Þýskalandi, og Kristj-
án Valur, f. 7.3.1982, nemi í Síðu-
skólaáAkureyri.
Systkini Guðlaugs voru ellefu en
tvö þeirra eru á lífi, Indriði, f. 1909,
ogBirna.f. 1916.
Foreldrar Guðlaugs voru Jakob
Guðlaugur Stefán Jakobsson.
Jakobsson, f. 10.10.1876, d. 1949,
skipstjóri á Akureyri, og Þorgerður
Helgadóttir, f. 12.3.1876, d. 1945,
húsfreyja.
Chakravut Boonchang
Chakravut Boonchang, eigandi
Veitingastaðarins Ingólfsbrunns,
Aðalstræti 9, Reykjavík, til heimilis
að Mávabraut 9A, Keflavík, er fer-
tugurídag.
Chakravut fæddist í Phattalung í
Tælandi en ólst upp í Bangkok. Fólk
hans hefur lengstum verið bændur
og opinberir starfsmenn. Hann lauk
prófum frá Kennaraháskóla í Bang-
kok og starfaði síðan á vegum hins
opinberaum skeið.
Chakravut opnaði veitingastað í
Bangkok og í Suður-Tælandi. Hann
tók sig síðan upp og ferðaðist víða
um Evrópu en settist loks að á ís-
landi 1987 og stundaði þá fisk-
vinnslu. í ársbyrjun 1990 tók hann
við rekstri veitingastaðarins Ing-
ólfsbrunns, Aðalstræti 4 í Reykja-
vík.
Eiginkona Chakravut er Duangs-
iri Buangsruang (Dúna), f. 30.5.1964
í Phetchaburi í Tælandi, en hennar
fólk hefur einkum stundað við-
skipti.
Chakravut ætlar að halda upp á
daginn með því að bjóða upp á
ókeypis veitingar í Ingólfsbrunni á
afmælisdaginn frá klukkan 9.00-
21.00. Hver sem vill getur þvi þegið
ókeypis veitingar í Ingólfsbrunni í
dag.
Félagar frá Iþróttasambandi fatl-
aðra verða heiðursgestir Chakravut
í dag og munu þeir taka við frjálsum
Chakravut Boonchang.
framlögum sem ætlað er að styrkja
fór tuttugu og fimm fatlaðra ís-
lenskra barna og unglinga á nor-
rænt barna- og unglingamót fatl-
aðra í Danmörku næsta sumar.
Chakravut mun leggja til hráefniö
í þessa óvenjulegu veislu en starfs-
fólk hans gefur vinnu sína í dag.
80 ára 50 ára
Droplaug Pálsdóttir, Vifilsgötu 9, Reykjavík. Unnur Pólsdóttir, Vesturvegi22, Vestmannaeyjum. Ingvar E. ísdal, Haðarstig20, Reykjavik. Sigurbjörg Júlíusdóttir, Keilufelli 47, Reykjavík. Jóna Markúsdóttir, Strembugötu 24, Vestmannaeyjum.
70ára
Steingerður Eiðsdóttir, Munkaþverárstræti 30, Akureyri. 40 ára
Þuríður Magnúsdóttir, . Drekavogi 6, Reykjavík. Gísli Þórður Elíasson,
60 ára
Ragnar Hj álmarsson, Bröttukinn 14, Hafnarfirði. Rósa Guðmundsdóttir, Byggðavegi 101E, Akureyri. Ólafur Sigurðsson, Stapa, Vestmannaeyjum. Blöndubakka 5, Reykjavík. Jón Egill Unndórsson, Hábergi 26, Reykjavík. LárusGrímsson, Einilundi4, Garöabæ. Hafþór R. Róbertsson, Skuldarhalla 1, Vopnafirði.
Reynir Ingibjartsson
Reynir Ingibjartsson, starfsmaður
Búseta - landssambands húsnæðis-
samvinnufélaga, til heimilis að Há-
vallagötu 24, Reykjavík, verður
fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Reynir fæddist í Reykjavík en ólst
upp að Hraunholtum í Kolbeins-
staðahreppi. Reynir lauk lands- og
gagnfræðaprófi frá Reykholtsskóla
1961, var í framhaldsnámi hjá SÍS í
tvö ár og starfaði þar og hjá ýmsum
kaupfélögum til 1965. Hann stundaði
nám í ensku og verslunargreinum
við Pitman’s School í London 1967
oghefur sótt ýmis námskeið, s.s. í
blaðamennsku hjá BÍ1969 og í
sænsku hjá Norræna félaginu 1974
í Framnásfolkhögskola í Norður-
Svíþjóð.
Reynir var við verslunarstörf hjá
H.B. nú D.B., Danmarks Brugsfor-
ening 1965 í Kaupmannahöfn, hjá
Kaupfélagi Snæfellinga í Ólafsvík
1966, hjá Birmingham Co-operative
Society 1966, var gjaldkeri og bókari
hjá Kaupfélagi Stykkishólms
1967-68, starfaði hjá Fræðsludeild
SÍS, aðallega við tímaritið Sam-
vinnuna, 1968-73, starfsmaður
Landssambands íslenskra sam-
vinnustarfsmanna 1974 til ársloka
83, starfsmaður Húsnæðissam-
vinnufélagsins Búseta í Reykjavík
frá ársbyrjun 1984 og frá í sumar
starfsmaöur Búseta - landssam-
bands húsnæðissamvinnufélaga.
Reynir starfaði í Karlakór Reykja-
víkur 1969-84, var fyrsti formaður
Félags Framnásfara 1980-81, hefur
setið í stjórn Nemendasambands
Samvinnuskólans nær óslitið frá
1972, í útgáfustjórn tímaritsins
Hlyns 1974-83, hafði umsjón með
félagsstarfi í Hamragörðum 1971-84,
sat í undirbúningsnefnd að stofnun
Búseta og sat í fyrstu stjórn félags-
ins, sat í fyrstu stjórn Félagsútgáf-
unnar og Þjóðlífs 1985-86, hefur ver-
ið á framboöslistum Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík 1974 og 78, félagi
í stjórnmálafélaginu Birtingi frá
stofnun 1989, var á framboðslista
Nýs vettvangs við borgarstjómar-
kosningarnar 1990, vann að tmdir-
Reynir Ingibjartsson.
búningi að koma á fót stofnun Jón-
asar Jónssonar frá Hriflu og á sæti
í stjórn Styrktarfélags fyrir stofnun-
ina, hefur setið í stjórn húsnæðis-
hópsins „Þak yfir höfuðiö" frá 1986,
sat í byggingarnefndum orlofshúsa
að Bifröst í Borgarfirði 1970-84, sat
í nefnd sem samdi lagafrumvarp um
félagslegar íbúðir og einnig í nefnd
sem samdi lagafrumvarp um hús-
næðissamvinnufélög og búseturétt
og sat í stjórn Félags áhugamanna
um samvinnumál 1984-87. Þá hefur
hann setið í deildarstjórn Kron um
árabil.
Fjölskylda
Reynir kvæntist 30.12.1976 Ritvu
Jouhki, f. í Finnlandi 14.6.1946, hús-
móður og húsverði í Hamragöröum,
félagsheimili samvinnumanna í
Reykjavík, en hún starfaði áður á
skrifstofu Jafnaðar’mannaflokksins
í Rovaniemi í Finnlandi.
Sonur Ritvu er Risto Jouhki, f.
19.1.1967, rafeindavirkiognemi við
Tækniskóla íslands. Börn Reynis og
Ritvu eru Rúnar, f. 7.4.1978, og Rós-
ey, f. 12.5.1984.
Reynir á einn hálfbróður, sam-
mæðra, Magnús Guðmundsson, f.
29.10.1952, vistmann á Kópavogs-
hæh.
Föreldrar Reynis: Ingibjartur
MagnúSson, f. 5.9.1906, verkamaður
í Reykjavík, og Anna Magnúsdóttir,
f. 10.12.1920, húsmóðir.
Haldinn verður afmælisfagnaður
í Fóstbræðraheimilinu við Lang-
holtsveg eftir klukkan 20.30. í kvöld.