Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Síða 26
34 n>()! itqci , * q ‘i {l A f?T t \>( l'-r FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991. Afmæli Sverrir Tómasson Sverrir Tómasson, handritafræö- ingnr við stofmrn Áma Magnússon- ar, Bakkastíg 4, Reykjavík, er fimm- tugurídag. Starfsferill Sverrir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1961, stundaöi nám í ger- mönskum málum og bókmenntum við Justus-Liebig-háskólann í Giess- en í Þýskalandi 1965-66, lauk cand. mag. prófi í íslenskum fræðum við HÍ1971 og varð dr. phil. frá HÍ1988. Sverrir var stundakennari við Flensborg í Hafnarfirði 1964-65, við Justus-Liebig-háskólann 1965-66, við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1967-69 og við HÍ frá 1975. Hann kenndi íslenskar nútímabókmennt- ir við University College í London á vormisseri 1977, var lektor í ís- lensku og íslenskum bókmenntum við Christian-Albrecht-háskólann í Kiel í Þýskalandi 1978-81, stunda- kennari við háskólann í Cambridge á Englandi 1981-83 og gestaprófess- or í íslenskum fornbókmenntum við Berkeley-háskólann í Kaliforníu vorið 1986. Sverrir hefur verið sér- fræðingur við stofnun Árna Magn- ússonar 1972-76 og frá 1983. Rit Sverris: Fyrsta málfræðirit- gerðin og íslensk menning á 12. öld, 1987, og Formálar íslenskra sagna- ritara á miðöldum, 1988. Sverrir hefur skrifaö fiölda fræðigreina og ritgerða í tímarit og safnrit, innlend og erlend. Þá sá hann um útgáfu á Laxdæla sögu 1973; á Köflum úr Nikulás sögu Bergs Stokkasonar, í íslensk miðaldahandrit II, 1982; sá ásamt öðrum um útgáfu íslendinga- sagna 1985-87 og Sturlungu 1987. Fjölskylda Fyrri kona Sverris var Susan Bury, f. 5.5.1944, bókasafnsfræðing- ur og kennari, en þau skildu 1983. Synir Sverris og Susan eru Snjólf- ur Richard, f. 16.1.1969, sagnfræði- nemi við háskólann í York, og Alan Sturla, f. 18.7.1971, stærðfræðinemi viö háskólann í Glasgow. Seinni kona Sverris er Sigríður Dagný Þorvaldsdóttir, f. 30.4.1960, kennari við HÍ, en hún er dóttir Þorvalds Kristmundssonar, arki- tekts í Reykjavík, og Sólveigar Gísladóttur hjúkrunarkonu. Sjúpsonur Sverris er Þorvaldur Skúli Björnsson, f. 11.4.1983. Dóttir Sverris og Sigríöar Dagnýjar er Ingigerður Sólveig Sverrisdóttir, f. 22.9.1988. Systkini Sverris: Magnús Tómas- son, f. 29.4.1943, myndlistamaður; Þóranna Tómasdóttir Gröndal, f. 17.12.1945, stud. mag; Sigurður, f. 1.12.1950, dagskrárgerðarmaður á rás 2; Sigríöur Tómasdóttir, f. 5.7. 1955, stud. mag; Jóhanna M. Tómas- dóttir, f. 5.3.1957, d. 1973; Gerður Tómasdóttir, f. 3.9.1961, kennari. Foreldrar Sverris: Tómas Gísla- son, f. 3.8.1913, rafvirki í Reykjavík, og kona hans, Gerður Magnúsdóttir, f. 12.12.1919, kennari. Ætt Tómas er sonur Gísla, sjómanns í Hafnarfirði, bróður Eyjólfs, móður- afa Guðrúnar Helgadóttur þingfor- seta. Gísli var sonur Ámunda, b. í Bjólu, Filippussonar. Móðir Tómas- ar var Þóranna, systir Ingibjargar, móðurömmu Guðrúnar Helgadótt- ur. Bróðir Þórönnu var Þórður, langafi Hannesar Hlífars Stefáns- sonar skákmanns. Þóranna var dóttir Tómasar, b. í Húnakoti í Þykkvabæ, Þórðarsonar. Móðir Þórönnu var Jóhanna Jónsdóttir, prests í Kálfholti, Sigurðssonar, sagður launsonur Jóns Þorláksson- ar, prests og skálds á Bægisá. Sverrir T ómasson. Gerður er dóttir Magnúsar, rit- stjóra Storms, Magnússonar, b. á Ægissíðu í Þverárhreppi, Kristins- sonar. Móðir Magnúsar ritstjóra var Sigurlaug Guðmundsdóttir, b. í Enniskoti, bróður Jóhanns gull- smiðs, langafa Friðriks Pálssonar, forstjóra SH. Guðmundur var sonur Guömundar á Refsteinsstöðum Jónssonar, b. á Auðunnarstöðum, bróður Jóns, langafa Bjarna, afa Ólafs landlæknis. Móðir Gerðar var Sigríður Helgadóttir, trésmiðs í Reykjavík, Jósefssonar. Haukur Guðlaugsson Haukur Guðlaugsson, söngmála- stjóri Þjóðkirkjunnar, Heiðarbraut 58, Akranesi, er sextugur í dag. Starfsferill Haukur fæddist á Eyrarbakka og ólst þar upp. Hann hóf nám við Tón- listarskólann í Reykjavík 1945 og tók þaðan burtfararpróf í píanóleik 1951. Þá stundaði hann nám í orgel- leik við Staatliche Hochschule fúr Musik í Hamborg hjá prófessor M.G. Förstemann 1955-60, stundaði fram- haldsnám í orgelleik við Accademia di Santa Cecilia í Róm hjá Maestro Femando Germani 1966,1968 og 1972. Haukur var kennari við Tónlistar- skóla Siglufiarðar 1951-55, söng- stjóri Karlakórsins Vísis á Siglufirði 1951-55, skólastjóriTónlistarskól- ans á Akranesi 1960-82, organisti við Akraneskirkju l%0-82, söngstjóri Karlakórsins Svana á Akranesi 1960-76 og hefur verið söngmála- stjóri Þjóðkirkjunnar frá 1974. Fjölskylda Fyrri kona Hauks var Svala Ein- arsdóttir, f. 23.1.1932, dóttir Einars Bjarnasonar og Guðbjargar Gunn- arsdóttur en Haukur og Svala skildu. Dóttir Hauks og Svölu er Svan- hildur Ingibjörg Hauksdóttir, f. 26.12.1954, húsmóðir á Eyrarbakka, gift Guðmundi Sigurjónssyni, verk- stjóra Eyrarbakkahrepps, og eiga þau þrjú börn, Sigurjón, Karenu og Hauk. Haukur kvæntist 26.10.1958 seinni konu sinni, Grímhildi Bragadóttur, f. 10.10.1937, bókasafnsfræðingi við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hún er dóttir Braga Steingrímssonar dýralæknis og Sigurbjargar Lárus- dóttur húsmóður. Synir Hauks og Grimhildar eru Bragi Leifur Hauksson, f. 24.2.1959, tölvunarfræöingur í Reykjavík, og Guðlaugur Ingi Hauksson, f. 12.7. 1965, nemi í vélaverkfræði við HÍ, búsettur í Reykjavík, kvæntur Katr- ínu Guðlaugsdóttur, nema í blóma- skreytingum, og er dóttir þeirra Eva. Systir Hauks, samfeðra, er Guð- rún, f. 15.8.1924, skrifstofumaður hjá Sól hf., gift Magnúsi Vilhjálms- syni skipasmiö og eiga þau eina dóttur. Alsystkini Hauks eru Ingveldur, f. 31.1.1928, starfsmaöur íslands- banka í Reykjavík, var gift Geir Gunnarssyni ritstjóra og eignuðust þau fimm dætur; Jónas, f. 22.7.1929, iðnrekandi í Reykjavík, kvæntur Oddnýju Nicolaidóttur húsmóður og eiga þau fimm böm; Páll, f. 28.8. 1939, rennismiður í Svíþjóö, kvænt- Haukur Guðlaugsson. ur Britths Guðlaugsson kennara og á hann einn son frá fyrri sambúð; Steinunn, f. 9.5.1942, sem rekur verslun í Reykjavík ásamt manni sínum, Magna R. Magnússyni, og eiga þau þrjú börn; Guðleif, f. 26.6. 1945, sem rekur hljóðfæraverslun í Reykjavík ásamt manni sínum, Leifi H. Magnússyni, og eiga þau saman tvö börn auk þess sem hún á eina dóttur frá fyrra hjónabandi. Foreldrar Hauks: Guölaugur Páls- son, f. 20.2.1896, kaupmaður á Eyr- arbakka, og kona hans, Ingibjörg Jónasdóttir, f. 22.3.1905, d. 5.11.1984, húsmóðir. Haukur tekur á móti gestum ásamt konu sinni í safnaðarheimil- inu Vinaminni á Akranesi í dag, 5. apríl frá klukkan 15.00 og fram eftir kvöldi. Júlíana Einarsdóttir Júlíana Silfa Einarsdóttir, hús- freyja í Fremri-Langey, er niutíu og fimmáraídag. Starfsferill Júlíana fæddist í Bíldsey á Breiða- firði og ólst þar upp. Hún sinnti öll- um almennum sveitastörfum og hóf ung sjóróðra með föður sínum en þess hefur verið getið í innlendum og erlendum ritum aö auk hús- freyjustarfans sinnti hún gjarnan sjóróðrum síðar á ævinni. Hún lærði fatasaum í Reykjavík 1919-20 og var í hússtjómarskóla þar 1920-21. Fjölskylda Júlíana giftist30.4.1921 Kjartani Eggertssyni, b. og kennara í Fremri-Langey, f. 16.5.1898 en hann er sonur Eggerts Thorbergs Gísla- sonar, b. í Fremri-Langey, ogkonu hans, Þuríðar Jónsdóttur húsfreyju. Böm Júlíönu og Kjartans eru Svava, f. 5.7.1923, húsfreyja í Reykjavík, gift Reyni Guðmunds- syni símamanni og eiga þau þrjú böm; Selma, f. 30.8.1924, húsfreyja á Ormsstöðum í Klofningshreppi, gift Baldri Gestssyni, b. þar og eiga þau þrjár dætur; Gunnar, f. 29.5. 1927, jámsmiður í Reykjavík, kvæntur Ólöfu Ágústsdóttur hús- freyju og eiga þau fiórar dætur; and- vana stúlka, f. 9.11.1928; Unnur, f. 25.2.1930, húsfreyja í Reykjavík, ekkja eftir Ágúst Björnsson bif- reiðastjóra og era synir þeirra fiór- ir; Eggert Thorberg, f. 20.12.1931, múrari í Reykjavík, kvæntur Hólm- fríði Gísladóttur ættgreini og eiga þau fimm böm; Kópur Zophanías, f. 24.5.1933, bifreiðastjóri í Reykja- vík, kvæntur Öldu Þórarinsdóttur verkstjóra og eiga þau fiögur böm; Elsa, f. 18.2.1937, fyrrv. húsfreyja að Hnúki í Kofningshreppi, var gift Gunnari Valdimarssyni, fyrrv: b. þar og eiga þau fiögur börn. Hálfsystkini Júiíönu, samfeðra, voru Kristján Hólm, f. 6.9.1884, d. 8.9. sama ár; Ólöf, f. 28.5.1886, d. 15.1.1967,húsfreyjaíHafnarfirði, gift Erlendi Jóhannssyni verka- manni sem einnig er látinn; Hall- dóra, f. 20.2.1888, d. 7.7.1927, hús- freyja á Hellu á Fellsströnd, var gift Tryggva Gunnarssyni, b. þar sem einnig er látinn; Guðjón, f. 8.5.1889, d. 12.5. sama ár; Pétur, f. 1.8.1890, d. 20.4.1974, sjómaður í Bíldsey og Fremri-Langey. Hálfsystkini Júlíönu, sammæðra, vom Kristjana, f. 20.6.1901, d. 23.6. 1985, húsfreyja á Hvanná á Jökul- dal, gift Einari Jónssyni, b. þar sem er látinn; Guðmundur, f. 8.9.1902, drukknaði 29.10.1924; Hjálmtýr Ragnar, f. 7.10.1907, drukknaði 10-11.9.1940, skipstjóri á Hópi í Eyr- arsveit; Guðrún Sólveig, f. 11.7.1910, d. 22.1.1975, húsfreyja í Grandar- firði, var gift Ólafi Björnssyni sjó- Júlíana Silfa Einarsdóttir. manni en hann drukknaði með Hjálmtý mági sínum. Foreldrar Júlíönu voru Einar Jónsson, f. 22.10.1847, d. 26.2.1936, b. í Bíldsey, og Guðrún Helgadóttir, f. 30.3.1873, d. 11.4.1958, síöar hús- freyja á Hópi í Eyrarsveit. Ætt Einar var sonur Jóns, dbrm. og lóðs í Bíldsey, Bjamasonar, og k.h. Þorgerðar Björnsdóttur. Jón var sonur Bjama Péturssonar, lóðs í Höskuldsey og k.h. Halldóru Ein- arsdóttur, b. í Hrísakoti, Einarsson- ar, b. í Fagurey, Pálssonar. Móðir Einars í Hrísakoti var Halldóra Sig- uröardóttir frá Fremri-Langey, systir Orms, ættföður Ormsættar- innar. Móðir Halldóru í Höskuldsey var Valgerður Ólafsdóttir, fræði- manns í Arney, Jónssonar, lrm. og annálaritara í Purkey, síðast á Grímsstöðum, Ólafssonar. Til hamingju með afmælið 5. apríl 80 ára Áskell Jónsson, Þingvallastræti34, Akureyri. JónSveinsson, Klukkufelli, Reykhólahreppi. 75ára Helga Eggertsdóttir, Boðagranda 7, Reykjavík. 60 ára Birna Jóhanna Jónsdóttir, Aðalstræti 29, Patreksfiröi. Guðrún Jósepsdóttir, Breiðumýri 3, Reykdælahreppi. Theódór Guðjónsson, Árlundi, Gaulvetjabæjarhreppi. 50 ára Kristín Munda Kristinsdóttir, Urðarteigi9, Neskaupstað. Birna Björnsdóttir, Endurvarpsstöðinni á Eiðum, Eíðahreppi. 40 ára Maria Selene Ascencao Ferreira, Ártúni, Tálknafirði. Einar Guðbjartsson, Reykjasíðu 22, Akureyri. Lúðvík Thorberg Halldórsson, Beykihlíð 25, Reykjavík. Benedikt Arnbjörnsson, Bergsstöðum, Aðaldælahreppi. Víðir Kristjánsson, Furugrund 54, Kópavogi. Bergur J. Hjaltah'n, Garðaflöt9, Stykkishólmi. Sveinn Sigurðsson, Öldugerði 17, Hvolsvelli. Páll Eggertsson, Mýrum, Skaftárhreppi. Anne Hayes, Faxatúni 25, Garðabæ. Jóhannes B. Sigurðsson, Sæmundur E. Þórðarson, Miðvangi 12, Hafiiarfirði. , .. .. . „ .. Guðfinna Valgeirsdóttir, Lvngbaröi 9, Hafnarfirði Borgarholtsbraut 33, Kópavogi. Sjá einnig bls. 39 Þorsteinn Jónsson Þorsteinn Jónsson, bóndi og rit- höfundur, Úlfsstöðum, Hálsahreppi, er níutíu og fimm ára í dag. Starfsferill Þorsteinn er fæddur á Úlfsstööum í Borgarfiarðarsýslu og ólst þar upp. Hann hefur búið þar með eiginkonu sinni síðan árið 1936, fyrst á hálfri jörðinni en síðan allri. Þorsteinn hefur látið frá sér fara bæði bundið mál og óbundið. Hann orti mest 1920-1935, en 1970-1980 fékkst hann við ljóðaþýðingar og hefur einnig ritaö óbundna ljóð- rænu. Ljóðabók hans „Til þín“ kom út árið 1956, en aðrar bækur hans eru heimspekilegs efnis: „Samtöl um íslenska heimspeki“ kom út áriö 1940, „Tunglsgeislar" kom út áriö 1953 og „Lausn gátunnar" kom út árið 1984. Árið 1948 skrifaöi Þorsteinn grein með nafninu „Til lesenda Nýals“ sem leiddi til þess að nokkur hópur áhugafólks kom saman til fundar í Reykjavík, og í framhaldi af því var stofnað Félag Nýalssinna árið 1950. Fjölskylda Þorsteinn kvæntist Áslaugu Steinsdóttur, f. 5.9.1907, húsmóður, ættaðri úr Miöfirði. Hún er dóttir Steins Ásmundssonar af Rauöseyj- arætt og Valgerðar Jónasdóttur. Þorsteinn og Áslaug eignuðust Qórar dætur, þær eru: Steingerður, gift Þorsteini Guðjónssyni og búsett Þorsteinn Jonsson. í Reykjavík; Guðrún Elsa, gift Sveini Þ. Víkingi, kennara við Reykholts- skóla; Ragnhildur, ógift; og Ásdis, gift Þorsteini Þorsteinssyni, b. á Skálpastöðum. Barnabörnin era ell- efu talsins og bamabarnabörnin átta. Foreldrar Þorsteins voru þau Jón Þorsteinsson, b. á Úlfsstöðum, og Guörún Hallfríður Jónsdóttir hús- móðir. Jón, faðir Þorsteins, var sonur Þorsteins Ámasonar á Hofsstöðum, af Kalmanstunguætt, og Guðrúnar Jónsdóttur frá Leirárgörðum. Guörún Hallfríður, móðir Þor- steins, var dóttir Jóns Þorvaldsson- ar og Helgu Jónsdóttur, en þau voru bræðabörn af Deildartunguætt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.