Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1991, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJU'ÐAGUR 30.'APRít 1991.
Fréttir
Aðstandandi segir gæsluvarðhaldsfanga vera orðinn ekkert nema „skinn og bein“:
„Fangelsi og einangrun
eru ekki rétta lausnin“
- afþlánaði 45 daga fangelsisvist í fyrra þrátt fyrir ósakhæfi
Geödeild er rétta úrræöið fyrir drenginn - ekki fangelsi, segir fósturmóöir hans. Hann hefur verið vistaður í Síðumúlafangelsinu síðan i febrúar.
„Geðdeild er rétta úrræðið fyrir
drenginn - ekki fangelsi. Þegar hann
er farinn að fremja svona verknað
er þetta orðið meira en að vera van-
heill - þetta er líka geðveila. Vistin í
einangrunarfangelsinu í Síðumúla
hefur orðið til þess að hann er hætt-
ur að klippa sig og raka. Hann hefur
misst matarlyst og er ekkert nema
skinn og bein. Þeir menn, sem þarna
starfa, vinna eftir lögum. Þótt þeir
sjái að þetta sé ekki rétt mega þeir
skiljanlega ekki breyta út af sínum
vinnureglum. En þetta er ekki réttur
staður fyrir hann og heldur ekki
fangelsi. Við erum mjög uggandi um
að hann verði settur inn á Litla-
Hraun,“ sagði Dóra Guðmundsdótt-
ir, fósturmóðir 28 ára karlmanns sem
banaði ungri konu í austurbænum
fyrir skömmu.
Umræddur maður fékk heilablóð-
fall árið 1980 og er hann mjög and-
lega vanheill. I framhaldi af heila-
blóðfallinu komu fram persónuleika-
truflanir og skapbrestir sem stöfuðu
af Jömun við heila að hluta.
Mál hans hefur verið tekið til dóms
í Sakadómi Reykjavíkur. Dóms er að
vænta á næstunni og reyndar vegna
fleira fólks sem einnig er ósakhæft
og bíður niðurstöðu í sínum málum
í Síðumúlafangelsinu vegna voða-
verka á undanfórnum mánuðum.
Hent til og frá í kerfinu
Dóra segir að fangelsisvist muni
gera illt verra fyrir fósturson sinn
og telur hún að réttargeðdeild eða
vistun á geðsjúkrahúsi muni vera
eina úrræðið.
Maðurinn hefur veriö úrskurðaöur
ósakhæfur. Eigi að síður afplánaöi
hann 45 daga varðhaldsvist í hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustig
seinni hluta sumars í fyrra:
„Það er búið að henda honum til
og frá í kerfinu á undanfórnum
árum. Frá því hann fékk heilablóð-
fall er hann búinn að vera á upp
undir 20 stöðum. Hann hefur leikið
sér að bílum og hefur gaman af tón-
hst - hann þarf eftirlit. Þetta er þjóð-
félaginu til vansa og er eins og í til-
fellum fjölda annarra. Við erum með
einstakhnga í þjóöfélaginu sem eru
að sliga sína aðstandendur. Þetta eru
mannverur sem lífinu er haldið í á
ómanneskjulegan hátt,“ sagöi Dóra.
Stal bíl og fór I fangelsi
Dóra telur að eftir fangelsisvistina
í fyrrasumar hafi farið aö bera á reiði
og ilhndum hjá manninum. Árið 1989
var hann á vistheimilinu í Skaftholti
í Gnúpverjahreppi. Þar sem hann
„hefur gaman af bílum" hefur þurft
að passa bíhykla fyrir honum. Hann
tók þó bíllykla forstöðumannsins eitt
kvöldið, ók bílnum til Reykjavíkur
og var á leiö th Ólafsvíkur þegar lög-
reglan 1 Borgarnesi stöövaði hann.
Forstöðumaðurinn lét vita af bíl-
stuldinum.
Nokkru síðar hlaut maðurinn 45
daga varðhaldsdóm í Sakadómi
Reykjavíkur. Hann var þó ekki tek-
inn út th fullnustu. Síðasthðið sumar
var maðurinn á ferð á Vesturlandi.
Tók hann þar naglabyssu og hræddi
fólk. Þá var umsvifalaust tekin
ákvöröun um að vista manninn í
hegningarhúsinu við Skólavörðu-
stíg. Þar var hann í 45 daga. Fangels-
ismálayfirvöld gerðu tilraun til að fá
hann vistaðan á meira viðeigandi
stað með tilhti th aðstæðna en án
árangurs. Hann losnaði úr fangels-
inu þann 31. ágúst síðasthðinn. Voða-
verkið var síðan framið í febrúar síð-
astliðnum og hefur maðurinn verið
í gæsluvarðhaldi síðan.
-ÓTT
í dag mælir Dagfari__________________
Einir á báti
Það er mikhl rausnarskapur hjá
Davíð Oddssyni að samþykkja
fimm ráðherra Alþýðuflokksins
gegn fimm ráðherrum Sjálfstæðis-
flokksins. Ekki síst í Ijósi þess að
Alþýðuflokkurinn hefur ekki nema
tíu menn á þingi og á fullt í fangi
með að finna frambærilega menn
th að taka ráðherradóminn að sér.
En sjálfsagt er þetta með ráðum
gert hjá Davíð, til að losna við að
hafa fleiri en fimm ráðherra úr sín-
um eigin flokki, vegna þess að þar
er mannvaliö svo mikið að hann
getur ekki gert upp á mhh þeirra.
Annars hélt Dagfari að þeir Davíð
og Jón Baldvin létu það nægja að
vera tveir í ríkisstjórninni. Þetta
hefur gengið svo ágætlega hjá
þeim. Þeir boröa saman reglulega
úti í Viðey og halda þar blaða-
mannafundi undir húsgaflinum
þar sem áhorfendur hafa helst af
því áhyggjur hvort hatturinn hans
Jóns fjúki á haf út. Þarna stendur
Davíð berhöfðaður og Jón hinn
virðulegasti viö hhð hans og svara
spumingum blaðamanna um að
viðræðurnar gangi vel og sljómar-
sáttmáhnn verði stuttur og þeir
geri það að gamni sínu að togast á
um ráðherrastóla. Aht í góðu, segir
Davíð og aht í góðu, segir Jón Bald-
vin og svo sigla þeir ýmist út í eyna
eða úr eynni og sjónvarpsvélamar
suða fyrir aftan þá og fyrir framan
þá og aht er þetta voða, voða gam-
an.
ímyndið ykkur, kæru kjósendur,
hvað öll póhtíkin yrði þægilegri og
stjórnmálavafstrið fyrirhafnar-
minna ef landstjórnin yrði rekin
með þeim hætti aö Davíð og Jón
Baldvin hittust á degi hverjum úti
í Viöey og stjórnuðu landinu úr
bhasímanum í bátnum! Ekkert ves-
en meö ríkisstjómarfundi og ekk-
ert vesen með alls kyns ráðherra
sem neyddust til að hafa skoðanir.
Það er ekki mikill vandi að
mynda ríkisstjóm undir þessum
kringumstæöum og heppilegt var
að Viðeyjarstofa skyldi endurreist
og heppilegt að búið var að koma
á bátsferöum út í Viðey því að ann-
ars hefðu þeir Davíö og Jón Bald-
vin þurft að stinga sér th sunds og
þreyta Viðeyjarsund á hverjum
degi til að koma nýrri stjórn á
koppinn. Nú hafa íslendingar ekki
aðrar áhyggjur en þær að pappír-
arnir fjúki ekki út í hafsauga og
hatturinn hans Jóns haldist kjur á
höfði hans og em menn að tala um
að gefa Davíð skjalatösku áður en
næsta ríkisstjórn verður mynduð
og Jón fái hökuband fyrir hattinn
og þá em vandamálin úr sögunni.
Eins og fyrr segir þvæhst stjórn-
arsáttmálinn ekki fyrir þeim félög-
um í viðræðunum úti í Viðey. Það
er líkast því að enginn ágreiningur
sé til staðar mihi Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks og maður fer að
spyija sjálfan sig hvers vegna þess-
ir flokkar buðu fram hvor í sínu
lagi. Nú er að vísu rétt að rifja það
upp aö Sjálfstæðisflokkurinn hafði
vit á því í kosningabaráttunni að
hafa enga stefnu og ef það er rétt
að Alþýðuflokkurinn sé svona
samstíga sjálfstæðismönnum að
ekki gangi hnífurinná mihi þeirra
Jóns og Davíðs stafar þaö sjálfsagt
af því að Alþýðuflokkurinn er með
stefnuna sem Sjálfstæðisflokkur-
inn átti aö vera með. Stefnulaus
flokkur sem semur við flokk sem
hefur stefnu hins á ekki í vandræö-
um með aö samþykkja stefnu hins
ef það er stefna hans sjálfs að hafa
þá stefnu eina sem er stefna hins.
Já, þetta hefur gengið greitt fyrir
sig og nú er komið að því að skipa
ráðherra, fimm á móti fimm. Einn
ráðherrakandídatanna í Sjálfstæð-
isflokknum, Þorsteinn Pálsson,
segist hafa fyrirvara á því að taka
sæti í ríkisstjórn eftir því hvaða
stefna verði mótuð. Þorsteini hefur
greinilega hkað það vel að hafa
flokkinn sinn stefnulausan og er á
móti einhverri stefnu í stjórnar-
sáttmála. Þetta sannar þá kenn-
ingu sem hér er haldið fram aö það
verður eingöngu th baga og ama
fyrir þá Jón og Davíð að skipa aðra
menn í stjórnina heldur en sig
sjálfa.
En hér er kannski komin skýr-
ingin á því hvers vegna þeir vilja
að ráöherrarnir verði fimm úr
hvorum flokki. Með því að hafa
jafnmörg atkvæði frá báðum flokk-
um verða þeir Jón Baldvin og Dav-
íö að höggva á hnútinn og þá geta
þeir aftur fengið sér siglingu út í
Viðey og togast á í góösemi og útklj-
áð málin einir á báti. Til þess eru
bátsferðirnar farnar. Og til þess er
bílasíminn um borð.
Dagfari