Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1991, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1991, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1991. 31 Landgræðslu- og skógræktarátak 1991 Senn fer þessi óvenjumildi vetur að kveðja og menn og gróður jarðar að vakna úr vetrardvalanum. Þar sem aðalannatími skógræktarfólks er framundan er nauðsynlegt að huga að þeim verkefnum sem framundan eru en þar ber hæst landgræðsluskógaátakið sem hófst síðastliðið vor og á að endurtaka nú í vor. Þetta átak var kynnt mjög vel í blöðum, útvarpi og sjónvarpi, svo sem flestum er í minni. Þessi víð- tæka kynning bar ríkulegan ávöxt, það mátti finna á viðbrögðum fólks sem ekki hafði áður verið í skóg- ræktarfélögum og var tilbúið að leggja hönd á plóginn. Verkin tala í ár verður eflaust ekki hægt að eyða eins mikilh vinnu og fjármun- um í kynningu og síðastliðið ár heldur treysta á að sú vakning sem upphófst þá verði varanleg því áætlað er að gróðursetning verði ekki minni nú en síðastliðið ár. Þá voru gróðursettar um 1,3 milljónir plantna og er talið að um átta þús- und manns hafi komið að gróður- setningarstörfum undir forystu Skógræktarfélaga auk ýmissa ann- arra félaga og klúbba um land allt. Nú þarf enginn að fara í grafgötur lengur um hvað hægt er að gera í uppgræðslu og skógræktarmálum á landinu því verkin tala sínu máh. Enda heyrist nú varla úrtölurödd í dag um að ekki sé hægt að koma upp skógi á íslandi. Það er sifellt veriö að minna okkur á að við séum búin að fullnýta þá möguleika sem landið getur gefið okkur í hefð- bundnum búgreinum. Því er kom- inn tími th að ieita nýrra leiða til KjaUarinn Stefán Teitsson framkvæmdastjóri, Akranesi að nýta land okkar. Er skógræktin ekki ein þessara framtíðarleiða? Skógrækt sem búgrein Nú standa fyrir dyrum miklar breytingar í búskaparháttum í landinu, á næstu árum á að stórfækka sauðfé sem mun kosta þjóðina umtalsverða fjármuni. Er ekki kjörið tækifæri einmitt nú að nýta eitthvað af þessum fjármun- um til þess aö hefja skógrækt sem búgrein þar sem skilyrði eru fyrir hendi? Margt væri hér öðruvísi ef betur hefði verið hlustað á frumkvöðla okkar sem hófu skógrækt fyrir 50-60 árum og töluðu fyrir daufum eyrum aht fram undir þennan dag. Það má geta þess að frændþjóðir okkar á Norðurlöndum gerðu stórátak í skógræktarmálum um síðustu aidamót og eru nú að njóta þess í ríkum mæli. í dag telja þessar þjóðir skóginn eina verðmætustu eign sína. Skóg- urinn hefur ómæld og margs konar áhrif á gróðurfar og umhverfi þess- ara landa fyrir utan öll þau verð- mæti sem verða til í gegnum tijá- iðnaðinn. Rannsóknir sýna að á bestu skógræktarsvæðum hér á landi eru skhyrði th skógræktar svipuð og í Noregi. Vörn í sókn Við kostum miklum fjármunum th þess að mennta æsku þessa lands en hugsum minna um hvaða möguleika við gefum þessu unga fólki th að njóta menntunar sinnar þegar skólagöngu lýkur. Ráða- menn landsins, þeir sem fjárveit- ingavaldinu stýra, ættu að íhuga hvort ekki væri rétt að veita meiri fjármuni th uppgræðslu og skóg- ræktar í landinu og snúa vöm í sókn th hagsældar komandi kyn- slóðum. Viö höfum átt því láni að fagna að æðsti maður þjóðarinnar, forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, hefur sýnt landverndar- og skóg- ræktarmálum mikinn áhuga og skhning, ekki bara í máh heldur einnig í verki. Það hefur hún sýnt á ferðalögum sínum um landið. Hugur hennar hefur eflaust haft mikil áhrif á þá vakningu sem nú er meðal þjóðarinnar í þessum málum. Það er von og trú allra land- græðslu- og skógræktarmanna að átakið 1991 verði jafnmyndarlegt og síðastliðið ár. „Græna greinin" var boðin landsmönnum á sumardaginn fyrsta og svo aftur síðustu helgina í apríl en andvirði hennar fer til plöntukaupa í landgræðsluskóga- átakið 1991. Geram hreint og gott land ennþá betra með samstilltu átaki. Stefán Teitsson „I dag telja þessar þjóðir skóginn eina verðmætustu eign sína. Skógurinn hef- ur ómæld og margs konar áhrif á gróð- urfar og umhverfi þessara landa fyrir utan öll þau verðmæti sem verða til í gegnum trjáiðnaðinn.“ Stóryrði og saf nhugtök Það thheyrir því að vera íslend- ingur að ávarpa heimsmenninguna á íslensku, ef menn hafa eitthvað að segja. Ég ætla að nota hér meiri stór- yrði en ég tel mögulegt að aðrir menn geri á þessari öld eða þeirri næstu. Við lifum annars vegar við raun- veraleika, sem gerist, og hins vegar við okkar eigin lýsingu á þessum raunveruleika. Það sem við teljum gerast, það er módel í heha okkar um það sem raunverulega gerist. Hjá framstæðari menningum kunnu menn að telja upp að þrem, eftir það var safnhugtakið mikið notað. Við eram enn háð slíkum safn- hugtökum til að tjá það sem við teljum gerast í raunveruleikanum. Þegar það er tínt th, hvað það er, þá verður um stóryrði sem nístir að rótum menningar okkar, ef það stenst, vel að merkja. Safnhugtök eðlisfræði Fólk kannast við hugtakið um þyngdarkraftinn, alhr vita hvað það er, er það ekki? Rangt, þetta er safnhugtak. En við höfum fleiri slík hugtök, þar má nefna tíma, lengd, tregðu, sókn til lægstu spennu, massa, raf- hleðslu, kraft, viðhaldslögmál orku og massa. Stóryrðin í þessu sambandi eru þau að það breytir ekki eðhsfræði hið minnsta þótt við setjum hug- tökin „mikið númer eitt“, „mikið númer tvö“ og svo framvegis í stað- inn fyrir þessi safnhugtök. Sama vald yrði á viðfangsefninu, sömu formúlur yrðu notaðar og um sömu vísindin væri að ræða. Á sama hátt má greina safn- hugtök í öðrum fræöum en það er óþarft að minnast á það hér, aðal- erindi mitt við menninguna í þess- um stóryrðum er að menn læri að greina hvaða hugtök í fræðum þeirra eru safnhugtök og geri sér KjaUariim Þorsteinn Hákonarson framkvæmdastjóri grein fyrir lýsingareðli þeirra og miklum takmörkum. Meiri stóryrði Það er hægt að rekja eðlisgerð safnhugtakanna út frá almennri og einfaldari forsendum, það er hægt að rekja þau frá því að tilveran sé sveiflur á sjálfu rúminu, tími taln- ing þeirra sveiflna, lengd það sem sveiflað er og svo framvegis. Mannkynið mun hla þola það ægivald sem fæst við að ná valdi á eðlisatriðum safnhugtakanna, ef ekki kemur til félgaslegrar aðlög- unar th þess að umgangast shkt vald. Það kann að vera erfltt fyrir allan almenning að setja sig inn í þessi mál, finnst þetta vera mál vísind- anna, en þetta er spurning um að lifa af í náinni framtíð. Við það að ná valdi á þeim atrið- um sem nú felast í safnhugtökum, þá er mikil hætta á þekkingar- klofningi milli fátæks fólks og ríks fólks, th þess að tryggja stöðu hinna fátækari, tryggja framlegð- argetu þeirra á vinnumarkaði, tryggja virði þekkingar sem ahur almenningur hefur aflað sér, þá verður nauðsynlegt að leysa afl- vandann með léttum ódýrum og rýmdarmiklum rafgeymi. Þessi rafgeymir ætti þá að geta tryggt samkeppni við hátækni með því að orka verður ódýr, á formi sem auðvelt er að safna henni til, á formi sem auðvelt er að nota hana sem afl. Þetta er og nauðsynlegt til þess að tryggja virði núverandi fjárfestinga í iðnaði og þekkingar hans. Ekki les almenningur vísindarit, og ekki birta vísindarit þvíhk stór- yrði sem hér eru fram sett, koll- varpandi helgum bókum vísinda- manna, sem mannað hafa götuvígi fallins klerkdóms. Engu að síður er raunveruleikinn eins og að ofan greinir og varðar allan almenning, hvort sem hann skilur það eða ekki. Fjármögnun Það er háttur vísindamanna að hrópa úlfur úlfur. Við þekkjum þá marga; ózon, koltvíhdi, mengun, súrefnisframleiðsla skóga, geisla- virkni, kjarnorkuver og svo fram- vegis. Með aukinni þekkingu koma fleiri úlfar í ljós sem við vissum ekki um. Þessi háttur er hafður á svo menn fái pening í rannsóknir, en pening- ar í lausnir á augljósum vandamál- um eru ekki á lausu enda er það ekki vísindamanna að þróa lausnir, þeirra er að stunda vísindastarf- semi án tillits th annars. Ábyrgðin er stjórnmálamanna að setja fé í að þróa lausnir, th þess þarf ekki vísindamenn, heldur uppfinningamenn og verkfræð- inga. Það er þeirra aö heimta sitt th að fá að þróa lausnir. Þitt mál Þitt mál er að spyrja sijómmála- manninn þinn hvað hann ætli að gera th að stuðla að lausnum, ekki leyfa honum að skjóta sér á bak við vísindamenn, þeir eru í rann- sóknum óháð hvort þær hafa raun- hæft ghdi nú eða síðar. Ef sá stjómmálamaður hefur ekkert um að segja, þá fáðu þér annan, alveg eins og þú færð þér annan kaupmann ef vörumar fást ekki. Það er ekki þitt að gagnrýna, láttu þá sem bjóðast til að vera leiðtogar þínir gera það. Spurðu þá út úr. Þorsteinn Hákonarson „Þitt mál er aö spyrja stjórnmálamann- inn þinn hvaö hann ætli aö gera til að stuðla að lausnum, ekki aö leyfa hon- um að skjóta sér á bak við vísinda- menn.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.