Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1991. Skák r>v Er þremur umferðum var ólokið á minningarmótinu um Max Euwe í Amsterdam, eða „5. Verenigde spaarbank schaaktoumooi", eins og mótið heitir upp á hollensku, sat Englendingurinn knái, Nigel Short, í efsta sætinu. Short hafði 4,5 vinn- inga úr sex skákum og Valery Salov kom næstur með 4 v. Sjöunda um- ferð var tefld í gær en mótinu lýkur á mánudag. Neðan við S-in koma svo K-in í hnapp: Karpov og Kortsnoj, sem hafa 3,5 vinninga, og sjálfur heims- meistarinn Kasparov með 3 vinn- inga en hann hefur gert jafntefli í öllum skákum sínum til þessa. Ljubojevic, van der Wiel og Tim- man hafa 2,5 v. og lestina reka Mikhail Gurevits og Jóhann Hjart- arson með 2 vinninga. Tafl Kasparovs og Karpovs í sjöttu umferð vakti óskipta athygli því að ekki varð betur séð en að heimsmeistarinn væri þar að tapa sinni fyrstu skák á mótinu. Karpov átti manni meira - tvo biskupa og hrók gegn riddara og hrók - en átti aðeins eitt peð eftir á borðinu. Svo fór að Kasparov tókst að krækja sér í peðið og halda jafntefli. Þar hafði heimsmeistarinn heppnina með sér og getur því sjálf- sagt tekið gleði sína á ný. í um- ferðinni á undan átti hann vinn- ingsstöðu gegn Jóhanni en glutraði henni niður. Það var heimsmeist- arinn óhress meö - barði í borðið aö skákinni lokinni og neitaði að taka í hönd Jóhanns. Eins og fram kom í DV fyrir viku fór Kasparov fram á það að keppendum mótsins yrði fækkað um tvo vegna þess hve Jóhann og van der Wiel væru lágir á stigum. En nú hefur heimsmeist- arinn gert jafntefli við þá báða og Júgósfavneski stórmeistarinn Ljubojevic tapar alltaf fyrir Short og gildir einu hvort hann leikur c-peði sínu fram um einn eða tvo reiti í byrjun. Euwe-mótið í Amsterdam: Skákar Short K-unum? - Kasparov óhress með jafnteflið við Jóhann sannast þar enn hið fornkveðna að ekki er nóg að eiga mörg stig held- ur verður líka aö tefla vel. Jóhann hefur enn ekki unnið skák, tapað fyrir Timman og Short en haldiö sínu gegn van der Wiel, Karpov, Kasparov og Kortsnoj. Hann átti að tefla við Ljubojevic í gær og sovésku stórmeistaramir Gurevits og Salov bíða hans í loka- umferðunum. „Skyldupunktur" Hér í skákþætti fyrir fáum \tikum var fjallað um Short og fórnarlömb hans í Sikileyjarvörn - einkum þó Júgóslavann „sókndjarfa", Ljubojevic. Þrátt fyrir þaö sem þar stóð afréð Jóhann að tefla Sikileyj- arvöm gegn Short en Ljubojevic tók hins vegar þann kostinn að þoka c-peði sínu aðeins fram um einn reit að þessu sinni - bauð upp á Caro-Kann vöm. Eftir þeirri skák að dæma mætti breyta boðorðinu „teflið ekki Sikileyjarvörn gegn Short“ í „leikið ekki c-peðinu fram í fyrsta leik gegn Short“! Ljubojevic reið ekki feitum hesti frá viður- eigninni við enska stórmeistarann fremur en fyrri daginn. Júgóslav- inn er sannarlega góður viðskipta- vinur Shorts, eða „skyldupunkt- ur“, eins og ísienskir skákmenn orða það gjaman. Hér er þá nýjasta dæmið um meðferð Shorts á aumingja Ljubojeyic: Hvítt: Nigel Short Svart: Ljubomir Ljubojevic Caro-Kann vörn. 1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. Rf3 e6 5. Be2 Svona teflir Short gjarnan gegn Caro-Kann vörninni en leikjaröð hans er þó með ýmsu móti. Hann er ekkert að angra biskup svarts á f5, eins og áður tíðkaðist í þessu afbrigði. Hann reynir að sýna fram á að biskupinn standi ekkert betur á f5 en innilokaður á c8, eins og í franskri vörn. 5. - c5 6. 6-0 Rge7 7. c3 Rec6 8. Be3 Rd7 9. a3 c4 Skák Jón L. Árnason Dæmigert svar áður en hvítur nær að leika b2-b4. Eftir að mið- borðsstaðan lokast undirbýr svart- ur peöasókn á drottningarvæng en hvítur beinir sjónum sínum að kóngsvængnum. 10. Rbd2 b5 11. Rel h5 12. g3 Bh3?! 13. Rg2 g6 14. Hel Bxg2 Nauösynlegt því að riddarinn var á leið til f4. En nú linar svartur tökin á hvítu reitunum á kóngs- vængnum. Líklega orkar áætlun hans, sem hófst með 12. leik, tví- mæhs. 15. Kxg2 Hb8 16. h3! a5 17. Rf3 Be7 18. Dd2 Rb6 19. Rg5 Kf8 20. g4! hxg4 21. hxg4 Kg7 Svo virðist sem svartur megi nú vel við una en brátt kemur í Ijós að Short hefur séð einum leik lengra. 22. Hhl Dd7 23. Bf4! Hcf8 24. De3 Dd8 Svartur er nú reiðubúinn að létta á stöðunni með 25. - Hxhl 26. Hxhl Hh8 o.s.frv. 25. Rh7! Sannarlega óvæntur leikur! Riddarann verður að drepa eins og eftirfarandi afbrigði gefa til kynna: i) 25. - Hfg8 26. Bh6 + Kxh7 27. Bf8 + Bh4 28. Dh6 mát, og ii) 25. - Hfe8 26. Rf6 BxfB 27. exf6+ Dxf6 28. Bg5 og drottningin fellur. 25. - Hxh7 26. Hxh7 + Kxh7 27. Hhl + Kg8 28. Dh3 Bh4 Eini leikurinn vegna máthótun- arinnar eftir h-línunni. Nú leiðir 29. Dxh4 Dxh4 30. Hxh4 Ra4 ekki til neins og heldur ekki 29. g5 Kg7 30. Dxh4 Hh8 o.s.frv. Enn lumar Short á trompi. 29. Bh6! g5 Ef 29. - He8 er 30. f4! með hótun- inni 31. Bg5 einfaldast. 30. f4 gxf4 Enn virðist svartur Ufa atlöguna af. Ef nú 31. BxfB KxfB 32. Dxh4 Dxh4 33. Hxh4 Ra4 nær svartur gagnfærum. 31. Bdl!! Frábær leikur sem undirstrikar vanmátt svarts. 31. Rd7 32. Bc2 Rdxe5 Örvænting en hvað var til ráða? 33. dxe5 Rxe5 34. Bxf8 f3+ 35. Kfl Dg5 36. Dxh4 Dcl+ 37. Del Dxel + Ef 37. - Dxc2 kæmi 38. Hh8 + ! Kxh8 39. Dxe5+ og mátar. 38. Kxel Kxf8 39. g5 Kg7 40. Kf2 f5 41. Hel Rd3 + 42. Bxd3 cxd3 43. Kxf3 Og Ljubojevic gafst upp. Enn ein glæsiskák Shorts. Skoðum þá viðureign „risanna" þar sem heimsmeistarinn bjargaði sér ævintýralega. Hvítt: Garrí Kasparov Svart: Anatoly Karpov Spænskur leikur. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 RÍ6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 (M) 9. h3 Bb7 10. d4 He8 11. Rbd2 Bf8 12. a4 h6 13. Bc2 exd4 14. cxd4 Rb4 15. Bbl c5 16. d5 Rd7 17. Ha3 f5 18. Hael Rf6 19. Rh2 Dd7 20. exf5 Hxe3 21. fxe3 Bxd5 22. Rg4 Be7 23. e4 Bf7 24. Rf3 Hd8 25. De2 Bc4 26. De3 Rxg4 27. hxg4 Bf6 28. Bd2 He8 29. b3 Bn 30. Df2 De7 31. axb5 axb5 32. Dfl Hb8 33. Bd3 Rxd3 34. Dxd3 c4 35. bxc4 bxc4 36. Da3 Hb3 37. Da8+ De8 38. Dxe8+ Bxe8 39. g5 hxg5 40. Bxg5 Bb2 41. Hdl Ba3 42. e5 c3 43. exd6 c2 44. Hd5 Hbl+ 45. Kf2 Hdl 46. Ha5 cl = D 47. Bxcl Bxcl 48. Ha6 Hd5 49. f6 g6 50. g4 g5 51. Ha7 Bf4 52. f7+ Bxf7 53. d7 Kf8 54. Rgl 54. -Hd2+?? Eftir 54. - Be6 vinnur svartur létt. T.d. 55. Rh3 Bd2, eöa 55. Ha5 Ke7. 55. Kel Hd5 56. Rh3 Bd2+ 57. Ke2 Kg7 Hvítur hótaði 58. Ha8+ Ke7 59. d8 = D+ Hxd8 60. Hxd8 Kxd8 61. Kxd2 o.s.frv. 58. Ha2! Bcl 59. Hc2 Ba3 60. Rxg5 Bg8 61. Hc7 Kg6 Og Karpov bauð jafntefli um leið, enda leikur hvítur 62. Hc8. Þar slapp Kasparov með skrekkinn. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.