Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Blaðsíða 29
41
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1991.
dv _____________________________________________________________Menning
Regnboginn - Cyrano de Bergerac: ★★★
Sé nef þitt of stutt...
Óskarsverðlaunamynd franskra um
greifann Cyrano de Bergerac er nú
loksins sýnd í Regnboganum. Kvik-
myndin er byggð á samnefndu leik-
riti Rostands sem var frumsýnt árið
1898 og hefur allar götur síðan verið
sýnt við stöðugar og miklar vinsæld-
ir víða um heim og er óumdeilanlega
hluti af menningararfi Frakka.
Sagan greinir frá risanum Cyrano
de Bergerac. Hann er mikill víga-
maður, fremstur í flokki bardaga-
manna frá Gascony. Hann leiðir lið
sitt í vonlausri baráttu gegn Spán-
verjum og hugsar ekki um tap eða
sigur því bardaginn er hið göfugasta
sem hann getur hugsað sér. En Cyr-
ano er líka skáld og getur sigrað
hvern sem er með óstöövandi orð-
gnótt og mælskuflóði og beitir þeim
vopnum jafnvel af meiri fimi en
sverðinu. Vandi Cyranos er sá að
hann ann frænku sinni hugástum en
þorir ekki að láta það uppskátt því
hann er með óskaplega stórt nef sem
ber andlit hans gjörsamlega ofurliði.
Það veldur því að hann verður að
láta sér nægja að aðstoða einn kad-
Hinn nefstóri Bergerac hæðir andstæðing sinn fyrir bardaga.
Laugarásbíó - White Palace ★★ V2
Ást og hamborgarar
Ástin og hennar mörgu andlit er viðfangsefni myndarinnar um Hvítu
höllina. Max er ungur uppi í góðri vinnu og býr í finni íbúð í dýru hverfi.
Hann hefur fíngerðan og vandaðan smekk og hlustar á óperur í Volvoin-
um á leið til vinnu sinnar. En Max er í sárum eftir missi eiginkonu sinnar
ungrar og sinnir því konum lítt eða ekki þó margar séu boðnar og búnar
að hugga hann.
Kvöld eitt rekst Max inn í Hvítu
höllina, subbulegan hamborgara-
stað, sem þjónar stritandi verkalýð.
Þar sér hann Noru, kjaftfora, gróf-
gerða boldangskonu sem rífur
stólpakjaft við kúnnann og er ekki
sérlega fingerð. Eftir margvíslega
örlaganna tilhliðran lenda þau
saman upp í rúm og Max verður
ástfanginn upp fyrir haus. En það
fylgja bögglar skammrifl. Nora er
óupplýst og fáfróð, drekkur eins og
svampur og er 17 árum eldri en
Max. Stóra spurningin er því. Geta
þau eignast börn og buru og lifað
„happilí ever after“? Eru hjóna-
bönd milli stétta möguleg. Getur
ríkur og vel menntaður gyðinga- skemmtilegri gamanmynd, White
drengur eins og Max tekið jafn- Palace, sem sýnd er í Laugarás-
hroðalega niður fyrir sig og hann bíói.
virðist ætla að gera?
Lengst af er þetta bráðskemmtileg mynd sem kannar samband þessara
tveggja ólíku persóna frá ýmsum hliðum og nær oft að vekja skellihlát-
ur, sérstaklega með hnyttnum og kaldranalegumn tilsvörum Noru. Susan
Sarandon leikur gengilbeinuna groddalegu býsna vel og nær að sýna vel
hvernig skrápurinn brestur á stundum og fyrir innan er lítil, hrædd
stúlka. James Spader leikur hér að mörgu leyti svipaðan karakter og
hann gerði í síðustu mynd (Bad Influence) og gerir það mæta vel. Spader
má hing vegar gæta sín að festast ekki í þessari rullu.
Kvikmyndir
Páll Ásgeirsson
í heild er handritið og öll úrvinnsla þess lítt aðfmnanleg, þó sagan sé í
sjálfu sér tilbrigði við gamalt stef, þar til dregur að sögulokum. Endirinn
er slík lumma að bíógestir hlógu þó ekki væri til þess ætlast.
En látiö það ekki spilla fyrir ykkur. Að tveimur síðustu mínútunum
frátöldum er þetta hin besta skemmtan.
White Palace - amerísk 1990
Leikstjóri: Luis Mandoki
Handrit: Ted Tally og Alvin Sargent eftir sögu Glenn Savan
Aóalhlutverk: James Spader og Susan Sarandon
Spader og Sarandon í bráð-
Kvikmyndir
Páll Ásgeirsson
etta sinna sem elskar sömu stúlkuna
við að semja eldheit ástarbréf sem
geta fengið hvaða konu sem er til að
líða í ómegin.
Leikstjóranum Jean-Paul Rap-
peneau hefur tekist stórkostlega vel
að gæða hið forna leikrit lífi. Þarna
er ekkert sem minnir á leikhúsið og
þær hömlur sem sviðið setur. Til
verksins þurfti enda 2000 leikara og
jafnmarga búninga en helmingur
þeirra var saumaður og hannaður
sérstakleea til verksins. 40 leikmynd-
ir og tökustaði. Meðal þess sem gera
þurfti var að breyta árfarvegi og
gróðursetja nokkra akra af réttum
gróðri sem hentaði sem umgerð um
orrustuna við Arras. Þá eru ekki
taldir tugir hrossa og hundruð vopna
og áhalda sem þurfti að smíða sérs-
taklega. Allt þetta stuðlar að því að
sumar senur myndarinnar, sérstak-
lega bardaginn við Arras eru stór-
kostlega glæsilegar eins og hæfir
stórmynd af þessu tagi
Stormsveipurinn sem ljær mynd-
inni þann ofsafengna þunga sem ger-
ir hana svo eftirminnilega er þó leik-
ur Gerards Depardieu sem fer með
aðalhlutverkið. Hann leikur skáldið
og bardagamanninn af þvílíkum ofsa
og slíkum krafti og snilld aö áhorf-
endur geta vart annað en setið agn-
dofa á köflum. Sannarlega glæsileg
frammistaða sem hæfir þessari
stærstu mynd Frakka á seinni árum.
Óhjákvæmilega standa aðrar per-
sónur nokkuð í skugga Cyranos en
Anne Brochet fer prýðisvel með hlut-
verk Roxane og Jaques Weber er frá-
bær í hlutverki illmennisins og
hrokagikksins De Guiche.
Á heildina litið afbragðs skemmtun
og hvalreki á fjörur þeirra sem eru
orðnir leiðir á glitrandi meðal-
mennsku amerískra kvikmynda.
Ekki missa af þessari.
Cyrano de Bergerac - frönsk 1990.
Leikstjóri: Jean Paul Rappeneau.
Aóalhlutverk: Gerard Depardieu, Anne
Brochet, Jaques Weber, Vincent Perez
og Roland Bertin.
ILII miLitöJ*
BtlllllWMMMl
nnipotgrCTwtop iwli
Hi ‘ilELLitE* mmm jamesspadeb ^eígefem
sœöft«l)1MliiALl'SAEGEiTWK1MOÖP0(i•••
I iÍFi’Stli lia(1?LnSMDQIl A L'XIVEIS.ALIELLASE ^ivérsal
iÞífÆÁhtt\r»fm>DfiÞgHfil ©Ö30Fniv^rsalCil>Stodies,Iw.
Þetta er bæði bráðsmellin gamanmynd og erótísk ástarsaga
um samband ungs manns á uppleið og 43 ára gengilbeinu
Stórmynd, sem hvarvetna hefur hlotið frábæra dóma
Box Office ★★★★, Variety ★★★★★, L.A. Times ★★★★★
Aðalleikarar: James Spader (Sex, Lies and Videotapes),
Susan Sharadon (Witches of Eastwick)
Sýnd í A-sal kl. 5 - 7 - 9 og 11.10.
Bönnuð innan 12 ára