Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Blaðsíða 27
26
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1991.
- Sjálfstæðisflokkurinn í kreppu vegna vals á eftirmanni Davíðs Oddssonar
„Það er ekki byrjað að ræða við
einn né neinn um þessi mál,“ sagði
einn borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins í samtab við DV í gær.
Umræðuefnið var hiö sama og allir
Reykvíkingar og íleiri hafa skrafað
og skeggrætt um yfir kafiibollum og
bjórkrúsum undanfarna viku; hver
verður næsti borgarstjóri í Reykja-
vík?
Máliðtefstvegna
deilna í ríkisstjórn
Davíö Oddsson mun hafa ætlað að
nota tímann í liðinni viku til þess að
ræða einslega við alla borgarfulltrúa
flokksins bæði aðalmenn og vara-
menn. Á grundvelli þeirra viðtala
átti síðan að byggja tillögu að eftir-
manni Davíðs sem samstaða næðist
um. Samkvæmt upplýsingum DV
hefur formanninum ekki unnist tími
til þess vegna anna innan ríkisstjórn-
arinnar þar sem risnir eru úfar
vegna verkaskiptinga milli ráðu-
neyta. Málin þurfa að skýrast fljót-
lega vegna þess að 16. maí er boðaður
borgarstjórnarfundur þar sem leiða
á þessi mál til lykta.
Menn telja að Davíð hafi enn ekki
gert upp hug sinn varðandi borgar-
stjórnarefnið en borgarfulltrúar
vonast þó til aö málið liggi fyrir á
mánudag.
Fjórir taldir
líklegastir
Fjórir borgarstjórnarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins hafa öörum
fremur verið nefndir til sögunnar
sem arftakar Davíðs. Það eru þeir
Árni Sigfússon, Katrín Fjéldsted,
Magnús L. Sveinsson og Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson. Auk þess hefur Dav-
íð Oddsson látið aö því hggja að ná-
ist ekki samstaða innan borgar-
stjómarflokksins muni verða leitað
til sjálfstæðismanna utan raða borg-
arfulltrúa og hafa nokkrir verið
nefndir í þvi sambandi.
Árni og
Vilhjálmur berjast
Af þeim fjómm fulltrúum sem
nefndir hafa verið þykir ljóst að val-
ið standi milli Árna og Vilhjálms.
Davíð Oddsson þarf að höggva á þann hnút sem
er að myndast innan borgarstjórnar.
Ingibjörg Rafnar er meðai þeirra sem leitað hefur
verið til utan borgarstjórnarflokksins.
Olafur Thors hefur, eins og Ingibjörg, mikið fylgi
innan flokksins.
Bestu heimildamenn DV innan
flokksins segja að umtalsverður ríg-
ur sé milli þeima félaga vegna þessa
máls þó ekki sé um neina persónu-
lega óvild að ræða. Báðir eiga sér hóp
dyggra stuðningsmanna innan
flokksins en tahð er að Vilhjálmur
eigi breiðari stuðning bæði innan
borgarstjórnarflokksins og utan.
Starf hans sem formaður skipulags-
nefndar er viðamikiö ábyrgöarstarf
sem hann þykir hafa gegnt með prýði
ásamt fleiri trúnaðarstöðum fyrir
flokkinn. Einnig er bent á að þegar
Birgir ísleifur Gunnarsson var val-
inn borgarstjóri á sínum tíma vó
starf hans í umræddri nefnd þungt á
metunum. Auk þess er Vilhjálmur
búsettur í Breiðholti, fjölmennasta
hverfi borgarinnar, og hefur meiri
reynslu að baki en Árni, helsti keppi-
nautur hans. Það sem vinnur gegn
Vilhjálmi er tvennt; annarsvegar
þykir hann htt þekktur og ekki koma
vel fyrir í flölmiðlum og hinsvegar
eru fylgismenn Áma nógu harð-
skeyttir til þess að koma í veg fyrir
að samstaða náist um VUhjálm. Vil-
hjálmur á hinsvegar fáa eða enga
óvildarmenn.
Krónprins Davíðs
Árni Sigfússon hefur stundum ver-
iö kallaður krónprins Davíðs kon-
ungs því vitað er að Davíð hafði lengi
vel augastað á honum sem arftaka
sínum. Ámi geldur hinsvegar
reynsluleysis síns og þess að hann á
svama andstæðinga innan flokksins
sem telja hann framapotara sem
safni í kringum sig dyggum hðs-
mönnum, nokkurs konar hulduher.
Einnig er því haldið fram aö Árni
hafi ekki sýnt þau tilþrif á vettvangi
borgarmála sem réttlæti það að fela
honum embættið. Honum er tahð til
tekna að ver'a fuhtrúi yngri kynslóð-
arinnar og koma vel fyrir í fjölmiðl-
um og hafa þá persónutöfra út á við
sem nauðsynlegir þykja í starfi sem
þessu. Að auki segja heimUdir DV
aö Ámi hafi boöist til að standa upp
úr borgarstjórastólnum fyrir Davíð
fari svo að stjórnin springi.
Magnús tregur til
Magnús L. Sveinsson hefur óum-
deilanlega mesta reynslu þeirra sem
til greina koma enda setið í borgar-
stjórn síðan 1974. Magnús þykir
traustur og hollur flokksmaður og
DV er kunnugt um að margir telja
hann góðan eftirmann Davíðs. Sá
hængur er á því máli að þó Magnús
komi tU greina sem einhverskonar
málamiðlun mUli Árna og Vilhjálms,
sem myndi sitja fram að næstu kosn-
ingum, þá er hann sjálfur tregur til
að taka starfið að sér. Magnús er
valdamikih utan borgarstjómar sem
formaður VR og mun ekki kæra sig
um að breyta því. HeimUdir DV full-
yrða að hann muni þó láta til leiðast
ef allt um þrýtur.
Katrín geldur
andstöðu sinnar
Katrín Fjeldsted hefur getið sér
gott orð innan borgarstjórnar og hef-
ur sýnt starfi borgarstjóra áhuga.
Meðmælendur. hennar segja að bæði
sé hún hæf tU starfans og ennfremur
væri hollt fyrir flokkinn að fá konu
tU að stýra borginni. Það er hinsveg-
ar reynsluleysi sem notað er gegn
henni og einnig það aö í tveimur
málum á síðasta kjörtímabUi greiddi
hún atkvæði gegn vilja Uokksins.
Þekktir menn utan
borgarstjórnar
Nokkrir hafa verið nefndir utan
borgarstjórnarUokksins sem hugs-
anleg leið út úr þeim ógöngum ef
ekki næst samstaða um neinn innan
hans. Fullyrt er að Davíð noti það
sem svipu á fuhtrúana til að knýja
þá til samstöðu. Flestir þeirra borg-
arfulltrúa sem lýst hafa skoðun sinni
segjast andvígir því að sækja borgar-
stjóra út fyrir raðir fuUtrúanna. Þeir
sem helst hafa verið nefndir í þessu
sambandi eru Ólafur Thors, forstjóri
Sjóvá-Almennra, Ingibjörg Rafnar
lögfræðingur, eiginkona Þorsteins
Pálssonar og Kjartan Gunnarsson,
núverandi framkvæmdastjóri
Ookksins.
Viðmælendur DV voru á einu máh
um að bæði Ólafur og Ingibjörg nytu
mikils og óskoraðs trausts meðal
Uokksmanna og bæði hafa þau
nokkra reynslu af setu í borgarstjórn
og störfum á þeim vettvangi. GalUnn
er sá að hvorugt þeirra hefur ljáð
máls á því að taka starflð að sér þó,
eins og einn viömælenda DV orðaði
það, „flokkshoUustan vegi þungt og
aUir eru sammála um að hvað sem
það kann aö kosta þá má þetta mál
ekki verða til þess að rjúfa samstöðu
borgarfulltrúanna. ‘ ‘
Hafa staóið
í skugga Davíðs
„Ástæða þess að mörgum þykir
vænlegt að leita út fyrir borgar-
Vonbiðlar embættisins
Þeir fjórir borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins sem oftast hafa
verið nefndir sem hugsanlegir eft-
irmenn Davíðs Oddssonar i stól
borgarstjóra eru eflaust flestir vel
tU starfans fallnir að minnsta kosti
ætiar DV ekki aö gera upp á milli
þeirra hér og telur þá því upp í staf-
rófsröð.
Ámi Sigfússon
Árni er fasddur 30. júlí 1956 í Vest-
mannaeyjum og er af Johnsen ætt-
inni þar. Ámi varð stúdent frá MH
1977 og lauk prófi frá Kennarahá-
skólanum 1981 og mastersprófi í
sfjórnsýslu frá háskólanum í Ten-
nessee í Bandaríkjunum árið 1986.
Ámi varð framkvæmdastjóri
FuUtrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík 1982-1984 qg formaður
Heimdallar 1981-1983. Áriö 1986 var
Ámi kjörinn í borgarstjórn í
Reykjavík og hefur á vegum borg-
arinnar veriö formaður félags-
málaráös og setið í borgarráði und-
anfarin 2 ár. •
Katrín Fjeldsted
Katrín er fædd í Reykjavík 6. nóv-
ember 1946. Hún varð stúdent frá
MR 1966 og útskrifaðist úr lækna-
deild HÍ1973. Síðan lagöi hún stund
á framhaldsnám í Englandi og kom
alkomin heim 1980 og hefur starfað
sem heilsugæslulæknir síðan. Hún
hóf afskipti af stjómmálum fljót-
lega og var kosin í borgarstjóra
1982. Hún hefur setiö í borgarráði
frá 1986. Ennfremur formaöur
Heilbrigðisráðs borgarinnar og
varaformaður umferðamefndar.
Magnús L Sveinsson
Magnús er elstur þeirra fjögurra
sem kaUaðir hafa verið en ekki
útvaldir. Hann er fæddur 1. maí
árið 1931 á Uxahrygg í Rangárvalla-
hreppi og lauk prófi úr Samvinnu-
skólanum áríð 1951.1960 varð hann
skrifstofustjóri Verslunarmanna-
félags Reykjavikur, varaformaöur
sama félags frá 1965 og formaður
þess frá 1980. Magnús hefur setið í
borgarstjóm Reykjavíkur frá 1974
og hefur því mesta reynslu fjór-
menninganna þar innan veggja.
Hann sat í borgarráði 1974-78 og
síöan aftur frá 1982. Á vegum borg-
arinnar hefur hann verið formaður
atvinnumálanefndar og Innkaupa-
stofnunar borgarinnar frá 1982
og forseti borgarstjómar frá
1985.
VilhjálmurÞ.
Vilhjálmsson
VUhjálmur er fæddur i Reykjavík
26. apríl 1946 og lauk stúdentsprófi
frá VÍ og lagaprófi frá HÍ 1974.
Hann var framkvæmdastjóri Fuli-
trúaráös sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík 1974-1978 og fram-
kvæmdastjóri Sambands ungra
Sjálfstæðismanna 1972-1973. Hann
tók sæti í borgarstjóm 1982 og hef-
ur veriö formaður skipulagsnefnd-
ar Reykjavíkur síðan. Ennfremur
hefur hann setið í stjórn sjúkra-
stofnana borgarinnar, heilbrigðis-
ráði og launamálanefnd.
LAUGARDAGUR 11. MAÍ1991
88
39
stjómarflokkinn er einfaldlega sú að
mönnum þykir nauðsynlegt að borg-
arstjórinn í Reykjavík sé þekkt and-
Ut. Enginn þessara borgarfulltrúa er
að ráði þekktur meöal almennings
vegna þess að þau hafa aUa tíð staðið
í skugga Davíðs eins og aörir borgar-
fulltrúar,“ sagði sjálfstæðismaður
sem vel þekkir til í samtah við DV.
Af öllu þessu má ljóst vera að for-
manni flokksins, borgarstjóra og for-
sætisráðherra er nokkur vandi á
höndum og talsverða stjórnkænsku
og forystuhæfUeika þarf til þess að
höggva á hnútinn og sætta stríðandi
keppinauta.
Tekurfulltrúa-
ráðið af skarið?
Fari svo að ekki finnist lausn á
vettvangi borgarmálanna getur mál-
ið þurft að koma til kasta fulltrúa-
ráðs Sjálfstæðisflokksins sem myndi
einfaldlega kjósa nýjan borgarstjóra.
Slíkt væri hinsvegar nokkur áUts-
hnekkir fyrir nýkjörinn formann.
Þar sem ekkert prófkjör fór fram
fyrir síðustu borgarstjórnarkosning-
ar getur enginn einn bent á fleiri at-
kvæði en annar á bakvið sig. Á hitt
ber að Uta aö fordæmin eru engin í
sögu flokksins. Borgarstjóraskipti
hafa ávallt farið fram í friði og spekt
að minnsta kosti á yfirborðinu.
Spennan magnast
Almenningur tekur eftir hversu
erfiðlega tekst að manna borgar-
stjórastólinn og því lengri tími sem
Uður frá því Davíð myndaöi stjórn
Uti svo út sem enginn vænlegur
kanditat sé í röðum borgarfulltrúa.
Margir telja ekki gott afspurnar fyrir
svo stóran flokk að ekki skuli finnast
eftirmaður sem nýtur óskoraðrar
hylli. Spennan magnast dag frá degi
meðal þeirra sem „bíða“ en sá sem
öUu ræður virðist fara sér nokkuö
hægt.
Annar Birgir ísleifur?
Margir Uta þó svo á að borgar-
stjórastólUnn sé ekki mjög eftirsókn-
arverður þar sem Davíð hefur verið
mjög sterkur og með mikið persónu-
fylgi. Eftirmaður hans á fyrir hönd-
um erfitt verkefni meðal annars að
halda borgarstjórnarflokknum góð-
um en það getur verið hæpið ef ekki
næst algjör samstaða um nýjan borg-
arstjóra. Þá gæti farið fyrir nýjum
eftirmanni Davíð eins og fór fyrir
Birgi ísleifi á sínum tíma að tapa
borginni yfir til minnihlutans. Það
áfall hefur fylgt Birgi síðan og komið
í veg fyrir framgang hans í stjórn-
málum.
Einnig má telja víst að nýr borgar-
stjóri myndi að minnsta kosti út kjör-
tímabtiiö standa í skugga fyrirrenn-
ara síns að því leyti að hann þyrfti
að þola stöðugan samanburð við
Davíð..
Fyrsta próf Davíðs
Þá má einnig telja víst að margir
fylgist glöggt með því hvernig Davíö
Oddssyni forsætisráðherra og borg-
arstjóra takist að leysa þessa þraut.
Einn viðmælenda DV orðaði þaö svo
að þetta væri fyrsta prófið sem Davíð
gengist undir sem formaður fiokks-
ins og stjórnmálamaður á landsvísu.
Því hvUi ekki bara augu borgarbúa
á honum heldur allrar þjóðarinnar
og því mikilvægt að samstaða náist.
Niðurstaðan er því sú að borgar-
stjóri óskast í Reykjavík. Starfið er
laust nú þegar. Viðkomandi þarf að
vera þekktur sjálfstæðismaður sem
nýtur óskoraðs trausts flokksmanna
og er vel til forystu fallinn.
Árni vildi
ekki vera með
Rétt er að taka fram að sú stað-
reynd að Árni Sigfússon er ekki með
á forsíðumyndinni sem prýðir þetta
blað endurspeglar á engan hátt af-
stöðu DV til þessara fjögurra kandíd-
Margir vildu gjarnan sjá Katrinu Fjeldsted i stól borgarstjóra.
Magnús L. Sveinsson hefur mesta reynslu kandídatanna.
—;
Árni Sigfússon og Vilhjálmur keppa hart um útnefningu.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er af mörgum talinn liklegur borgarstjóri,
ata. Árni Sigfússon sagði, þegar blað-
ið leitaði til hans vegna umræddrar
myndatöku á miðvikudag, að hann
væri tregur til þess en myndi ekki
skorast undan ef hin þrjú samþykktu
að vera með. Þau tóku öll málaleitan
blaðsins ljúfmannlega. Árni mætti
hinsvegar ekki til leiks á fimmtudag
eins og um hafði verið talað. Hann
sagði í samtali við blaðamann DV,
þegar hann var inntur eftir ástæðum
þess, að hann teldi shkt ekki sæm-
andi og að hann vildi ekki taka þátt
í því sem hann kallaði tilbúna kosn-
ingabaráttu fjölmiðla.
-Pá/ELA
Fyrirrennarar
1. júli 1908 tók í fyrsta sinn sér- Jón Þorláksson 1933-1935
stakur borgarstjóri viö yfirsfjórn Pétur Halldórsson 1935-1940
Reykjavíkurborgar i kjölfar breyt- Bjarni Benediktsson 1940-1947
inga á lögum um málefni sveitar- Gunnar Thoroddsen 1947-1959
stjórna. Síðan hafa 11 borgarstjórar Auður Auðuns 1959-1960
gegnt þessu embætti og lengst sat Geir Hallgrímsson 1959-1972
Knud Zimsen í 18 ár en Auður Birgir ísleifur Gunnarsson 1972-
Auðuns styst í 1 ár. Borgarstjórar 1978
hafa verið: Egill Skúli Ingibergsson 1978-1982
Páll Einarsson 1908-1914 Davíð Oddsson 1982-1991
Knud Zimsen 1914-1932 1991 ???