Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Síða 18
Veiðivon
„Hin siðari ár hefur þeim stórfjölgað sem hafa byrjað að hnýta flugur hérlendis og það koma nýir hnýtingamenn á hverjum degi,“ sagði Kristján Kristj-
ánsson þegar þessi mynd af verðlaunahöfunum í fluguhnýtingakeppninni var tekin. 106 flugur voru sendar og 18 hnýtarar fengu verðlaun. 12 þeirra
mættu til að taka við þeim. DV-mynd G.Bender
Veiðivötnin að vakna
„Flugan er komin á kreik og flskur-
inn er farinn að vaka, þá er sumarið
komið. Svoleiðis var það við Elliða-
vatnið eitt kvöldið fyrir skömmu, þá
var gaman að vera við vatnið,“ sagði
einn af veiðidelluköllunum við und-
irritaðan í vikunni. Hann hefur dval-
ið öllum stundum við vatniö en
kannski ekki veitt mjög mikið ennþá.
„Þetta er að koma og það að vera
bara úti og reyna felur ýmislegt í
sér,“ sagði þessi veiðidellukall og
ætlaði að Elhðavatni í kvöld, annað
kvöld og kannski...
„Veiðin er að byrja í Kleifarvatni
og þar er sumarkortið selt á 3000 kr.
en heill dagur á 700 kr. og hálfur á
500,“ sagði Sigurður Bergsson, for-
maður Stangaveiðifélags Hafnar-
íjarðar, um Kleifarvatnið.
Það er hægt að reyna í mörgum
vötnum þessa dagana, eins og Meðal-
fellsvatni, Eyrarvatni, Þórisstaða-
vatniogGeitabergsvatni. Spurningin Einar Einarsson með einn af fyrstu
er bara: Tekur silugurinn agnið hjá silungunum úr Elliðavatni á maðk-.
veiðimönnum? -G.Bender inn' DV-mynd G.Bender
Ármann Sigurðsson og Sigurður Bergsson með tvo laxa og fimm bleikjur
úr Hlíðarvatni. DV-mynd Hilmar
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1991.
Þjóðarspaug DV
Ekki veit ég trúverðugleika eftir-
farandi sögu en læt hana þó
flakka engu að síður.
Þannig var mál með vexti að
Steingrímur Hormannsson hjálp-
aði eitt sinn gamalh konu, sem
dottið hafði á hálkubletti, að
standa á fætur aftur. Er hún var
staðin upp krafðist hún þess að
fá að borga Steingrimi 100 krónm-
fyrir hjálpina en hann neitaðí að
taka við þeim. Konan spuröi þá
hvort hún gæti ckki gert citthvað
fyrir liann fyrir hjálpina.
„Ja, þú getur t.d. kosið Fram-
sóknarflokkmn í næstu kosning-
um,“ svaraði Steingrímur.
„Ég datt nú ekki á höfuðiö,
væni minn," heyrðist gamla kon-
an tuldra um leið og hún hélt leið-
ar siimar.
Nancy
Gleymska SteingrímsTíermanns-
sonar er orðin landsfræg og er
hér ein saga tengd hcnni. Þannig
bar við að Steingrímur var i opin-
berri heimsókn í Bandaríkjunum
skömmu eftir að George Bush
varð forscti. Steingrími var að
sjálfsögðu boðið aö hitta hinn
nýkjörna forseta og konu hans.
Er Steingrímur mættí í veisluna
gekk hann rakleiðis að konu
Bush og sagði:
„Hi, Nancy, how are you?“
Boðoröið
Maður nokkur í smáþorpi úti á
landi tapaði reiðhjólinu sínu og
taldi víst að því hefði verið stolið.
Einhvcrn veginn datt honum í
hug að leita á náöir sóknai*prests-
ins tii að hafa uppi á hjólinu.
„Komdu til kirkju á sunnudag-
inn,“ sagöi presturinn, „og veittií
kirkjugestum vel athygh, scr-
stakiega þegar ég fer með boðorð-
ið: Þú skalt ekki stela. Það er
ekki ólíklegt að þjófnum bregði
þegar hann heyrir það, ef hann
mætir til messu.“
Daghm eftir messuna kemur
maðurinn alsæll til prestsins og
er þá með reiðhjólið.
„Jæja, þetta hefur þá heppnast
hjá okkur,“ sagði presturinn
hróðugur.
„Já, en ekki alveg eins og þú
heldur," svaraði maðurinn, „því
um leið og þú fórst með boðorðið:
Þú skalt ekki girnast konu ná-
unga þíns, þá mundi ég allt í einu
hvað ég hafði skilið hjólið mitt
eftir.“
Finnur þú fimm breytingai? 104
Q ((| [)) ■ Q
0 ’ o □ Q
11! □
D
'©PIB-^C_..„,
CBPINHACtM
..QX&
..//..QJjSé-
<9 V)
Má ég sýna þér nýjan bursta sem hægt er aö þrífa meö upp eftir öllum Nafn:..
veggjum ... ?
Heimilisfang:.
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur er
aö gáð kemur í ljós að á mynd-
inni til hægri hefur fimm atriðum
verið breytt. Finnir þú þessi fimm
atriði skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
hðnum birtum við nöfn sigurveg-
ara.
1. Fimm Úrvalsbækur að verð-
mæti kr. 3.743,-
2. Fimm Úrvalsbækur að verö-
mæti kr. 3.743,-
Bækurnar sem eru í verölaun
heita: Á elleftu stundu, Flugan á
veggnum, í helgreipum haturs,
Lygi þagnarinnar og Leikreglur.
Bækurnar eru gefnar út af
Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 104
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundruð-
ustu og aðra getraun reyndust
vera:
1. Guðrún S. Guðmundsd.,
Grandavegi 47, íbúð 802
107 Reykjavík
2. Guðný Gigja Benediksd.,
Austurbraut 19, 780 Höfn
Vinningarnir verða sendir
heim.