Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Side 52
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1991. Leki kom að línubát: Sjór fossaði inn í lestina „Það hefur sennilega ekki lokast fyrir lensingu og því hefur sjórinn fossað viðstöðulaust í lestina. Við uppgötvuðum þetta þegar báturinn var farinn að þyngjast verulega en ástæðuna fyrir lekanum uppgötvuð- um við ekki fyrr en við vorum búnir að þurrlensa bátinn,“ sagði Ástþór Gunnarsson, skipstjóri á Guðmundi Kristni SU 404, í samtali við DV. Guðmundur Kristinn, um 200 lesta línubátur, var að veiðum suðvestur af Ingólfshöföa eftir hádegi í gær þegar sjórinn fór að leka í lestina. Kraftmiklar dælur höfðu þurrlensað bátinn svo hægt væri að stöðva lek- ann. Sjómælingabáturinn Baldur var staddur rétt hjá og var við hliðina á Guðmundi Kristni meðan gengið væri úr skugga um að allt væri í lagi. Engin slagsíða kom á bátinn og veður var gott þannig aö 7 manna áhöfn var aldrei í hættu. Þegar DV ræddi við Ástþór seinnipartinn í gær var allt í stakasta lagi um borð. -hlh Bílslysið 1 Exeter: Fjórireru komnirheim Sexmenningunum, sem lifðu af hið hörmulega bílslys í Exeter á Eng- landi í síðustu viku, líður öllum vel eftir atvikum. Fjórir þeirra eru komnir heim og þurfti einn þeirra, Jens Jensson, að fara beint á sjúkra- hús. Róbert Jónsson, sem lengi var með- vitundarlaus, er kominn til meðvit- undar og er allur aö braggast. Það er samt ekki þorandi að senda hann heim fyrr en eftir helgi. Hjá honum er bróðir hans, Karl Omar Jónsson, sem meiddist á andliti en er útskrif- aðurafsjúkrahúsinu. -HK NiYÐARHNAPPUR FRÁ vara fyrir heimabúandi sjúklinga og aldraSa VARI ® 91-29399 Alhliða öryggisþjónusta síðan 1 9ó9 LOKI Þetta eru ansi dýrir eyrnatappar! Hljoðmur fyrir iimm nus icosfSi sjö milljónir Verið er að byggja hljóðmúr frá íbúar húsanna óskuðu eftir að á hverjum stað. Fyrir húsin við Reykjanesbraut fyrir 5 hús viö þessihljóðmúryrðireistur.Sigurð- Bleikargrófhefðivarlaannaðkom- . Bleikargróf i Reykjavlk. Að sögn ur sagði að sams konar hþóðmúr ið til greina en steyptur veggur. Sigurðar Skarphéðinssonar, að- hefði ekki áður verið reistur og því En ekki veröur bæði sieppt og stoðargatnamálastjóra, kostar værífróðlegtaðsjáhvernigútkom- haldið. Múrimt mun að sjálfsögðu verkið 7 milljónir króna. anyrði.Hannsagðiaðþettavanda- takmarka útsýni úr húsunum Hávaðinn vegna umferðar um rnál með hávaða frá umferð væri flmm og nú eru íbúarnir með ein- Reykjanesbrautina var kominn til staðar víðar og myndi verða í hverja bakþanka þess vegna. upp í 70 desibil og því kominn framtíðinni. Fleiri en ein tegund -S.dór nærri hættumörkum sem eru 85 af hljóðmúrum kæmu til greina, desibil. allt eftir þvi hvernig aöstæður eru Starfsmenn ístaks unnu að þvi i gær að reisa hljóðmúr frá Reykjanesbraut fyrir fimm hús við Bleikargróf i Reykjavík. Kostnaðurinn við múrinn er 7 milljónir króna. DV-mynd GVA Bankar breyta ekki vöxtum Engar almennar vaxtabreytingar verða hjá bönkum og sparisjóðum eftir helgi. Þetta er þvert á það sem margir reiknuðu með. Þannig sagði Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, fyrr í vikunni við DV að hann ætti von á að vextir þokuð- ust nokkuð upp á við í dag, 11. maí. Þrátt fyrir að almennar vaxta- breytingar séu ekki á dagskrá bank- anna hreyfir einn þeirra, íslands- banki, vexti lítillega á innlendum gjaldeyrisreikningum og gengis- bundnum afurðalánum. Bæði er um vaxtahækkun og vaxtalækkun að ræða. Aðrir bankar breyttu vöxtum á gengisbundnum reikningum 1. maí en þá hreyfði íslandsbanki sig ekki. Bankamaður sagði við DV í gær að bankarnir biðu rólegir eftir að rík- isstjórnin hækkaði vexti á spariskír- teinum ríkissjóðs eftir helgi og létu þannig ríkið ryðja brautina fyrir vaxtahækkunum. -JGH Framfærsluvísitala: H ækkanir yf ir rauða strikið Vísitala framfærslukostnaðar var birt í gær og reyndist hún vera um 1,2 prósentum hærri en í apríl. Sam- kvæmt Hagstofunni er vísitala fram- færslukostnaðar nú um 0,56 prósent- um yfir viðmiðunarmörkum kjara- samninga, rauða strikið svonefnda. Af 1,2 prósenta hækkun vísitölunn- ar frá fyrri mánuði stafa um 0,5 pró- sent af árshækkun iðgjalda bifreiða- trygginga. Verðhækkun matvöru olli 0,2 prósentum og verðhækkun ýmissa vöru- og þjónustuliða olli um 0,5 prósenta hækkun. Síðustu þrjá mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 1,9 prósent og jafngildir sú hækkunn 7,7 prósentaverðbólguáári. -JGH Bamið frá Akranesi: Á batavegi Litli drengurinn, sem tvísýnt var um eftir að hann fannst meðvitund- arlaus í gosbrunni á Akranesi fyrr í vikunni, er á batavegi. Hann hefur verið færöur af gjörgæsludeild yfir á almenna deild. -hlh Veðrið á sunnudag og mánudag: Fremur svalt og slydduél um sunnan- og vestanvert landið Á sunnudag verður hæg suövestanátt. Skúrir eða slydduél um allt sunnan- og vestanvert landið én þurrt norðaustanland. Freniur svalt verður i veðri og hiti; á bilinu 3-10 stig og hlýjast fyrir austan. Á mánudag vecöur vestan- og norðvéstanátt, snjó- eða slydduél norðanlands og vestan en léttskýjað suöaustantil. Áfram verður svalt en þó sæmilega hlýtt aö deginum á.Suðausturlandi og hiti þár allt að 10 stig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.