Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ1991. Fréttir Það verður mjög harðsótt að ná fram tollaívilnunum - mikill árangur af ráðherrafundinum en erfiðasti hjaliinn eftir „Þaö sem gerðist á þessum fundi var að það náðist umtalsverður ár- angur varðandi mörg þeirra ágrein- ingsmála sem voru óleyst fyrir fund- inn. Nokkur dæmi: Dómstóll; sam- komulag um hann. Þátttaka í nefnd- um til undirbúnings ákvarðana; samkomulag um það. Varnagla- og öryggisákvæði; samkomulag um það. Tímabundnar undanþágur; samkomulag um þær. Upprunaregl- ur, samkeppnisreglur og eftirlit; samkomulag um það,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra í samtali við DV í nótt eftir að fundi utanríkisráðherra EFTA-ríkj- anna og Evrópubandalagsins um sameiginlegt evrópskt efnahags- svæði lauk klukkan að verða tvö í nótt að belgiskum tíma. „Það sem eftir stendur af stóru ágreiningsmálunum er það sem ég kalla hina vanheilögu þrenningu, fisk, landbúnað og sjóð. Það sem vannst í því var að viö náðum inn grein í sameiginlega yfirlýsingu beggja aðila um sjávarútvegsmál sem skilgreinir mælikvarðann á lausn; það er að ásættanleg heildar- niðurstaða sé háð því að um verði að ræða jafnvægi í ávinningi, réttind- um og skuldbindingum fyrir hvert þátttökuland." Ekki kom formlegt tilboð í sjávarútvegsmálum „Að því er varðar sjávarútvegsmál- in þá er það eina málið sem ekki ligg- ur fyrir formlegt tilboð frá Evrópu- bandalaginu. Það sem menn höfðu verið að gera sér vonir um og Evr- ópubandalagið hafði boðaö var að þeir kæmu með tilboð fyrir þennan fund. Það gerðist ekki. Þannig að þetta þrennt er ennþá eftir. Eini ávinningurinn á því sviði er að það vannst ákveöin viðurkenning á því hver ætti að vera mælikvarðinn á heildarniðurstöðuna. “ Sérstaða íslands viðurkennd „Það má færa rök að því í því felist viðurkenning á sérstöðu íslands þó ísland sé ekki nefnt þar til sögu sér- staklega. Hitt vita allir að sérstaða íslands er sú aö þaö verður ekki jafn- vægi í réttindum, ávinningum og skuldbindingum nema að það fáist tollfrjáls aðgangur fyrir sjávarafurð- ir okkar. Ástæðan fyrir því að þaö kom ekki tilboð þrátt fyrir að framkvæmda- stjórnin hafði gefið slíkt í skyn, reyndar boðað það, er náttúrlega sú að það er innbyrðis ágreiningur inn- an Evrópubandalagsins." - Hvað um Norðmennina. Eru þeir enn með kröfuna um að fá sömu meðferð varðandi fiskinn og við ís- lendingar? „Það er ekkert um Norðmenn að segja því það reyndi ekkert á það sérstaklega." Ánægður með árangur þessa ráðherrafundar - Ert þú ánægður með þennan ráð- herrafund? „Ég get ekki verið annað en ánægð- ur með að þessi árangur náðist. Þetta táknar í raun og veru að það verður ekki aftur snúið að því er varðar evrópska efnahagssvæðið. Það er búið að leysa stjórnunarþáttinn. Það sem eftir er eru þessi sérstöku vandamál. Það er í samræmi við það sem viö höfum sagt frá upphafi; sjáv- arútvegsmálið er erfiðasta málið í öllum þessum samningum. Við höf- um alltaf sagt að við gerðum ekki ráð fyrir að það fengist á því lausn sem við gætum sæst á fyrr en á lokastigi og það yrði að vera pólitísk lausn sem tæki tillit til sérstöðu íslands. Og sú pólitíska lausn fæst ekki fyrr en á hæsta þrepi, það er að segja í ráð- herraráðinu sjálfu þar sem eru staddir Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, Mitterrand, Frakk- landsforseti og aörir þeir sem hafa gefiö yfirlýsingar í því máli og lýst yfir stuðningi við sérstöðu íslend- inga í sjávarútvegsmálum.“ Stefnir í að hægt verði að skrifa undir í Saltzburg - Nú er ráðherrafundinum lokið. Hvert verður framhaldið? „Framhaldið veröur það að enn erum viö á réttri tímaáætlun og inn- an einhverra vikna verður næsta lota þar sem tekist verður á um hina vanheilögu þrenningu: fiskinn, land- búnað og sjóð. En ef við gerum ráð fyrir því að þaö takist þá er enn unnt að ljúka undirritun í lok for- mennskutímabils Austurríkis, í Saltzburg í lok júní.“ - Það yrði þá annar ráðherrafundur haldinn í millitíðinni sem yrði úr- slitafundurinn um evrópska efna- hagssvæöið? „Já, einn eða raunar tveir fundir." Það verður mjög harðsótt að ná fram tollaívilnunum - En þú ert enn vongóður um að það verði skrifað undir í Saltzburg 24. og 25. júní? „Við erum enn á tímaáætlun. Ég segi ekkert fyrirfram um þaö hvort þessi erfiðasti vandi sem er eftir er leysanlegur. Það verður mjög harð- sótt. Það getur út af fyrir sig brugðið til beggja vona 'með það.“ - Nú kom fram í Sjónvarpsfréttum fyrr í kvöld að Evrópubandalagið hefði ekki komið sér saman um til- lögu í sjávarútvegsmálum en hins vegar stæði bandalagið fast á að krefjast veiðiheimilda og ætli alls ekki að gefa það eftir? „Á meðan þeir hafa ekki komið fram með neitt tilboð þá er þaö hin opinbera afstaöa Evrópubandalags- ins. Það hefur frá upphafi til þessa dags sagt að það hefði ekki umboð til annars en fara eftir grundvallar- reglum sameiginlegrar fiskveiði- stefnu sem eru að ef það fellst á lækk- un tolla þá verðum við að fá í staðinn veiðiréttindi. Það er hins vegar svo að Evrópu- bandalaginu hefur ekki tekist að ná neinum slíkum samningum á undan- fórnum árum. Á lista Evrópubanda- lagsins yfir slíka tvíhliða samninga við önnur ríki var aðeins eitt ríki, Kanada, sem samþykkti aðgang að auðlindinni fyrir tollfríðindi. Kanadamenn sögðu þessum samn- ingi upp 1987 og síðan hefur ekkert ríki samið á þeim grundvelli. Evr- ópubandalaginu hefur heldur ekki tekist að fá þessa reglu sína sam- þykkta innan GATT meðal annars vegna þess að íslendingar hafa fyrr á tíð komið í veg fyrir það. Þannig að ef við tökum listann yfir alla þeirra samninga þá má flokka þá aöallega í tvennt. Annars vegar eru samningar sem eru á gagnkvæmnis- grundvelli; veiðiheimildir fyrir veiði- heimildir. Hins vegar eru samningar þar sem þeir greiða hreinlega fyrir veiðiheimildir eins og í tilvikinu Grænland og raunar mörg önnur þróunarríki.“ Hugmyndir um að hætta að krefjast fiskveiðiheimilda „Þess má geta að nú liggur fyrir skýrsla til ráðherraráðs Evrópu- bandalagsins frá framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins um sjávarút- vegsmál þar sem þeir láta í ljós þá skoðun aö þessi grundvallarregla þarfnist endurskoðunar vegna þess að hún hafi ekki leitt til samning- sniðurstööu í neinum tilvikum á undanförnum árum. Þannig að við erum staddir núna í tímanum þar sem Evrópubandlagið getur þurft að horfast í augu við að það nái ekki slíkum samningum framvegis. Hitt er svo annað mál að Spánverjar munu leggja höfuðkapp á að það að halda þessari kröfu til streitu.“ Sviss í miklum erfiðleikum eftir þennan ráðherrafund - Hvernig var andinn að þínu mati á þessum ráðherrafundi? „Þetta er búið að vera linnulaust púl í tvo sólarhringa. Mjög stift, mjög erfitt og erfiðleikar Sviss eru þó sýnu verstir því á þessari stundu er nán- ast ekki ljóst hvort Sviss er aðili að þessum samningum eða hvort það er komið út.“ - Getur þú útskýrt það betur? „Útskýringin er sú að Svisslend- ingar á þessum sólarhringum settu fram svo marga fyrirvara varðandi einstakar greinar sameiginlegrar niðurstöðu og var þeim yfirleitt öll- um hafnað af Evrópubandalaginu. Gallinn við þessa fyrirvara þeirra er að þeir eru margir, óljósir og al- mennir og þeir byggjast á sérstöðu Sviss, það er að segja svissneskri stjórnarskrá sem þýðir það að þeir verða að leggja undir þjóðaratkvæði slíkan samning og kannski mörg ákvæði hans. Þannig að þetta er þeim erfiðara en öðrum EFTA-ríkjum og nú þegar að komið er á lokastig má vel vera að það fari svo að það reyn- ist þeim ofviða." Fréttaskeyti Ritzau um fiskveiðikröfu er rangt Jón segir ennfremur að fjölmiðlar muni væntanlega fá fréttaskeyti frá Ritzau, haft eftir Uffe Elleman Jens- en, utanríkisráöherra Dana, að á ráð- herrafundinum hafi Evrópubanda- lagiö sett fram kröfu um 30 þúsund tonna veiðiheimildir sem hafi verið fallist á. „Svarið við því er mjög einfalt; þetta er gjörsamlega úr lausu lofti gripið. Slíkum kröfum var ekki kom- ið á framfæri á samningafundunum þannig að það kom aldrei til neinnar ákvörðunar. Það er alveg eitt á hreinu að ísland hefði aldrei á það fallist. En á það reyndi aldrei því til- boðiö kom ekki. Þetta er gamla til- boðið þeirra sem framkvæmda- stjórnin er búin að reyna síðan í fe- brúar að fá samkomulag um innan Evrópubandalagsins og hefur ekki tekist. Ástæðan fyrir því að tilboðið kom ekki er aö það er ekki samkomu- lag um það innbyrðis. Það að þetta rugl er haft eftir Uffe Ellemann veit ég ekki en þetta er tómt rugl.“ Tókstað viðhalda samstöðunni innan EFTA - Aö lokum, Jón, er góð samstaða innan EFTA núna, fyrir utan Sviss? „Ja, það tókst að viðhalda samstöð- unni innan EFTA skulum við segja fyrir utan Sviss.“ - Hvað um Svíana? „Við skulum ekkert ganga að því gruflandi að það eru skiptar skoðan- ir í grundvallaratriðum. Sum EFTA- landanna eru svo áíjáö að ná þessum samningum og eru því næst á leið inn í Evrópubandalagiö að þau munu nánast ganga að hverju sem er og þau hafa með þessum stofnana- lausnum, sem nú eru fengnar, tryggt sér slíkt hagræði af þessum samning- um á efnahagssviðinu aö út frá þeirra þjóöarhagsmunum er ekkert því til fyrirstöðu," sagði Jón Baldvin Hannibalsson eftir að ráðherrafundi EFTA og Evrópubandalagsins lauk í nótt. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.