Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Blaðsíða 3
 - ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991. Fréttir Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri: Gáleysisleg hleðsla orsök margra óhappa - bátur sem sökk á dögunum bar 1,3 tonn en í honum voru rúm 4 tonn „Þaö sem skiptir einna mestu máli varðandi öryggi smábátanna er hleðsla þeirra. Menn hafa verið að hlaða þessa báta langt umfram það sem leyfilegt er. Til að tryggja öryggi opins báts, þarf að tryggja fríborð. Með því að setja lensport á opinn bát minnkar fríborðið og eykur þar með hættuna á að sjór komi inn. Á sama hátt minnkar fríborðið ef bátur er hlaðinn meira en hann ber. Það hef- ur komið fram við rannsókn á óhöpp- um sem orðið hafa á síðustu árum að menn hlaða smábáta langt um- fram það sem þeir bera og viö höfum samþykkt að væri öruggt. Ég get nefnt sem dæmi aö þessi bátur sem sökk á dögunum var samþykktur fyrir 1300 kílóa hieðslu en í honum voru rúm 4 tonn þegar hann sökk. Ef menn taka þá ákvörðun að hafa báta sína opna, vegna þess að þeim þykja tryggingargjöld á þilfarsbátum of há, þá verða þeir að taka mið af því við notkun bátsins hvernig hann er,“ sagði Magnús Jóhannesson sigl- ingamálastjóri vegna þess sem kom fram í viðtali við Guðlaug Jónsson bátasmið og gagnrýni hans á Sigl- ingamálastofnun og tryggingakeríið varðandi lensport á smábátum. „Þaö er auðvitað út í hött að ætla að gera Siglingamálastofnun ábyrga fyrir því að menn láti byggja fyrir sig opna báta, eins og kom fram í máli Guðlaugs Jónssonar í DV. Það eru eigendur bátanna og skipasmiðir sem ákveða það hvort bátur er smíð- aður opinn eða lokaður," sagði Magnús Jóhannesson . „Lensport eru ekki sett á opna báta. Þeir verða hinsvegar að vera með greiöa leið fyrir sjó sem báturinn tekur inná sig, niður í botn á bátnum. Þilfars- báturinn aftur á móti verður að vera með lensport til að sinna sama hlut- verki,“ sagði Magnús. - Guðlaugur segir að bátar sem skráðir eru opnir séu eigi að síður með dekk, er það rétt? „Þeir eru ekki með fullkomið dekk og þess vegna eru þeir skráðir opnir. Þetta svokallaða dekk er langt frá því að vera þétt. Það eru alveg ákveðnar reglur hjá okkur um hvað opið þarf að vera mikið svo að sjór sem kemur inn á dekk komist niður í botn á skipinu og stöðugleikinn raskist ekki,“ sagði siglingamála- stjóri. -S.dór VIDEOTÖKUVÉLAR 3 LUX Fjöldi fólks mætti á staðinn til að skoða og kaupa. DV-mynd Sigrún Hverageröi: Torgsala í Kolaportsstíl Sigrún Lovisa, DV, Hveragerði: Sú nýbreytni hefur verið tekin upp í Tivolíinu í Hveragerði að þar verð- ur torgsala í sumar að Kolaportsstíl. Fyrsti söludagurinn var 5. maí og voru viðbrögð fólks mjög jákvæð, bæöi heimamanna og ferðamanna. Fjöldi fólks kom og skoðaði og keypti vörur. Útgeröarfélag Akureyringa: Ætlum ekki að loka í sumar - segir Vilhelm Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Við höfum prófað það í tvö ár að loka fyrirtækinu og láta fólkið taka sumarleyfi á sama tíma en við ætlum ekki að gera það í sumar,“ segir Vil- helm Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf. Vilhelm sagði að meginástæða þess að lokað var tvö sl. sumur og fólkið sent í sumarleyfi hafi veriö sú að „treina“ átti kvóta togara félagsins. „Við urðum hins vegar fyrir von- brigðum í fyrra og sátum uppi með kvóta. Við vorum að leggja það niður fyrir okkur að hafa vinnu fram und- ir'miðjan desember en það fór svo að við urðum að láta vinna á milli jóla og nýárs ogtókst ekki að klára kvótann," sagði Vilhelm. Hann sagöi aö ÚA hefði keypt mik- inn kvóta í fyrra og reyndar hefði fyrirtækið gert það á hverju ári síðan kvótakerfið var sett á. Fyrstu fjóra mánuðu ársins veiddu togarar fé- lagsins 7.212 tonn en á sama tíma í fyrra 6.542 tonn. Þess ber þó að geta að nú gerir ÚA út 7 togara en þeir voru einum færri fram eftir ári í fyrra. Egilsstaðir: Rúður brotnar í barnaskólanum Fjórar rúður voru brotnar í barna- skólanum á Egilsstöðum aðfaranótt sunnudags. Grjóti hafði verið kastað í rúðurnar, að því er virðist til þess eins að skemma eitthvað. Ölvun var töluverð í bænum þessa nótt og talið að hópur ölvaðra hafi verið hér að verki. Ekki hefur tekist að hafa hend- ur í hári spellvirkjanna. -JJ Z ■ ■ ii>* v ■■ pi.SSZg* I V^UV^lf % SPORTS'NEAR 4. 1asBSSSSS^ V 0 R 0 G SUMAR TÍSKAN FRÁ CIAO KOMIN // VJ nl'simRJFmiiifi* SNORRABRAUT 56 C 13505 + C 14303 KAUPSTAÐUR ÍMJODD KQQBÖÐKl 3 LUX MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU SEM GEFUR ÞÉR MÖGULEIKA Á AÐ AFSPILA BEINT VIÐ SJÓNVARPSTÆKIÐ ÞITT. MEÐ ALLRA BESTU MYNDGÆÐUM. - 3 LUX ÞÝÐA ALLRA BESTU UÓSNÆMNI Á MYNDBANDSVÉLUM Á MARK- AÐNUM í DAG. h\Ð ER EKKI BARA NÓG AÐ TALA UM LINSUOPSTÆRÐ. HELDUR VERÐUR UÓSKUBBURINN AÐ VERA ÞETTA NÆMUR. - MACRO LINSA 8xZOOM - SJÁLFVIRKUR FOCUS - MYNDLEITUN í BÁÐAR ÁTTIR - SJÁLFVIRK UÓSSTÝRING — VINDHUÓÐNEMI — FADER — RAFHLAÐA/HLEÐSLUTÆKI/MILLI- STYKKI o.n. - VEGUR AÐEINS 1.1 KG. SÉRTILBOÐ KR. 69.950,- stgr. Rétt verd KR. 90.400.- stgr. GB Afborgunarskihnálar [g] VÖNDUÐ VERSLUN hijLjco, FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.