Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91 )27022- FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr. Verð I lausasölu virka daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr. Beitilandsstofnun Á móti 2000 hekturum, sem árlega eru klæddir gróðri hér á landi, tapast 3000 hektarar, þannig að árlegt heild- artap á gróðri er um 1000 hektarar, einkum af völdum ofbeitar sauðfjár. Þetta minnir á fátæku löndin sunnan við Sahara í Afríku, þar sem eyðimörkin færist í aukana. Þetta breytist ekki fyrr en raunveruleg landgræðslu- stofnun á vegum umhverfisráðuneytis kemur í stað beitilandsstofnunarinnar í Gunnarsholti, sem rekin er á vegum landbúnaðarráðuneytisins, er lítur á sig og stofnanir sínar sem hagsmunaaðila sauðíjárræktar. Beitilandsstofnunin í Gunnarsholti notaði þjóðargjöf- ina frá 1974 að mestu til að gera bændum kleift að reka fleira sauðfé á fjall en afréttir hefðu annars þolað. Sauð- féð hnappaðist á uppgræðslusvæðin eins og í rétt að hausti og át gjöfma nokkurn veginn jafnóðum. Beitilandsstjórinn í Gunnarsholti hefur stutt þá, sem reyna að bera blak af sauðfénu. Hann hefur talað um gróðureyðingu af völdum eldgosa og ills árferðis, rétt eins og slíkt hafi ekki tíðkazt fyrir landnám, þegar gróð- ur var tvöfalt víðáttumeiri en hann er núna. Sumir trúa ekki, að landið hafi við landnám verið viði vaxið milli Qalls og fjöru. Sönnunargögn eru þó til fyrir því, að á landnámsöld var gert til kola á Kili, svo að þar hefur þá verið sæmilegt kjarr. Breytingin, sem varð við landnám, fólst í skógarhöggi og sauðfjárbeit Beitilandsstofnunin hefur ekki heldur staðið sig við að varðveita friðlönd, sem henni hefur verið trúað fyr- ir. Hún hefur ekki höfðað mál gegn sauðíjármönnum, sem rifu landgræðslugirðingu á Auðkúluheiði, né þeim, sem hafa beitt friðaða Austurafrétt á vorin. Stofnanir á borð við Landgræðslu ríkisins nýtast ekki til landgræðslu, af því að þær taka meinta hags- muni landbúnaðarins alltaf fram fyrir hagsmuni þjóðar- innar. Og ekkert vit færist í umhverfismál, fyrr en þau verða leyst úr álögum sauðfjárræktarráðuneytisins. íslenzkar heiðar geta aftur orðið blómlegar eins og þær voru við landnám. Það sjáum við bezt á Hornströnd- um og Ströndum norðanverðum, sem hafa breytzt í gróðurvin við hvarf sauðfjárræktar úr héraði. Það þarf einfaldlega að friða heiðarnar fyrir þjóðaróvininum. Brýnast er að loka viðkvæmum móbergssvæðum, svo sem afréttum Gullbringu- og Kjósarsýslu, Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Þingeyjarsýslu, en einnig er of mikið álag á afréttum Skagafjarðar og Húnavatns- sýslna. Loka þarf svæðum til að þau nái að gróa. Enginn árangur er hins vegar af þeirri stefnu Al- þingis, landbúnaðarráðuneytis og beitilandsstofnunar- innar í Gunnarsholti að dreifa fræi og áburði úr lofti yfir opin afréttarsvæði. Sauðféð étur þetta allt. Þannig fór forgörðum hin mikla þjóðargjöf frá 1974. Af þessum ástæðum er brýnt, að landgræðsla losni úr álögum landbúnaðarráðuneytisins og öðhst frelsi í umhverfisráðuneyti, þar sem hagsmunir sökudólgsins eru ekki hafðir í hávegum. Að öðrum kosti er mark- laust að hafa sérstakt umhverfisráðuneyti á íslandi. Því miður virðist svo sem hin nýja ríkisstjórn muni engu breyta í betra horf í þessu efni. Heiðursmannasam- komulag flokksformanna nær skammt, þegar illvígir hagsmunir eru í húfi. Þess vegna mun máhð verða kjaft- að í hel með því að setja það í nefnd á nefnd ofan. 1000 hektara gróðurtapi á ári verður ekki snúið í 1000 hektara gróðurauka á ári fyrr en eftir að landgræðsla ríkisins hefur verið frelsuð úr klóm sauðfjárræktar. Jónas Kristjánsson Gíslatakan í Teheran olli vanmáttugri heift Bandaríkjamanna i garð írana. Enn í dag er íran í huga almenn ings mesta óvinaríki Bandaríkjanna. Stef na byggð á f ordómum Miðausturlönd eru frá heim- spólitísku sjónarmiði eitt allra mikilvægasta svæði jarðar. Ætla mætti að mesta stórveldi heims, sjálf Bandaríkin, umgengjust þetta svæði og þær þjóðir sem þar búa af þekkingu og raunsæi. Við því mætti búast að bandarísk utanrík- isstefna í málum þessa heimshluta væri þaulhugsuð og vandlega út- færð. - En raunin er allt önnur. Miðausturlönd eru og hafa um áratugi verið veikasti hlekkurinn í bandarískri utanríkisstefnu. Sú stefna hefur beinst að því nær ein- göngu að styrkja ísrael og halda góðum viðskiptasamningum við olíuríkin. Fyrir Persaflóastríðið, þegar Bandaríkjamenn fluttu inn, eins og þeir gera enn, yflr helming af allri olíu sem þeir nota, kom um einn fimmti af þeirri olíu frá írak. írak var stærsti viðskiptavinur Bandaríkjanna í Miðausturlönd- um. Þeir fluttu inn meira af korni og öðrum matvælum þaðan en nokkurt annað ríki á þessu svæði. í málum íraks, sem og annarra arabalanda, ríkti algert stefnuleysi. Mjög fáir í bandaríska stjórnkerf- inu voru sérfróðir um Miðausturl- önd, að undanteknum ótal sérfræö- ingum í vamarmálum ísraels. Fáfræði Þetta gilti ekki aðeins um araba- lönd. Sú hróplega fáfræði um Kúrda, sem nú er öllum augljós, er afleiðing langrar vanrækslu á þessu sviði. Það er engu líkara en allir séu búnir að gleyma því hversu miklu hlutverki Kúrdar hafa gegnt í samskiptum Tyrkja, íraka og írana. Stríð Iraks og írans 1980 til 1988 var beint framhald af Kúrdauppreisninni 1974 til ’75 sem leiddi til þess að írakar keyptu sér frið fyrir Kúrdum með því að af- henda íranskeisara hernaðarleg yfirráð yfir lífæð sinni, innsighng- unni í Shatt al-Arab árósanna. Þaö þýddi að íran hafði kverkatak á Irak. Upp úr þessu spratt stríð ír- ans og Iraks. Saddam Hussein var ekki óður Hitler að ráðast á ná- granna sína, hann var að reyna að endurheimta það sem íranir höfðu fengið í skiptum fyrir að hætta stuðningi við Kúrda í stjórnartíð Al-Bakrs, fyrirrennara síns. Ekkert af þessu var tekið með í dæmið þegar stríðið hófst. Bush forseti talaði eins og Kúvæt væri Tékkóslavakía og Saudi-Arabía Pólland, árið væri 1938, ekki 1990. En þessi fáfræði og misskilning- ur, sem á rætur að rekja til tak- markalauss stuðnings við ísrael og jafnframt til fordóma og jafnvel óbeitar á aröbum, er mjög sterkur þáttur í afstööu Bandarikjamanna alment ekki síður en bandarískra stjómvalda til Miðausturlanda. - Arabar eru lágt skrifaöir meðal al- mennings. KjaUaxiim Gunnar Eyþórsson fréttamaður Það hefði ekki tekist að magna upp þá móðursýki gegn írak og Saddam, sem Bush tókst í stríðinu, ef írak hefði ekki verið arabaríki. Auðmýking í íran En þessir fordómar eru ekki bundnir við araba. Öll ríki Mið- austurlanda, sem eru öll fjandsam- leg ísrael, era sett undir einn hatt. Það á sérstaklega við um íran sem er ekki arabaríki heldur Persía hin forna. Við íran er tengd martröö sem raskar hugarró Bandaríkja- manna enn þann dag í dag. í nóvember 1978 var bandaríska sendiráðið í Teheran hertekið af byltingarvörðum Khóomeinis aja- tolla og á þriðja hundra manns haldið þar í gíslingu í 444 daga. Þeim var loks sleppt nær nákvæm- lega á sömu stundu og Carter Bandaríkjaforseti lét af embætti og Ronald Reagan tók við hinn 20. jan- úar 1981. Þessi gíslataka í Teheran og sú algera auömýking, sem Bandaríkin urðu að þola af Khó- meini og öðrum ajatollum í íran, ollu svo vanmáttugri heift meðal Bandaríkjamanna í garð írana að enn í dag er íran í huga almenn- ings mesta óvinaríki Bandaríkj- anna. Ég var staddur í Bandaríkjunum 1980 þegar kosningabaráttan stóð sem hæst og hatrið á íran og fyrir- litningin á Carter fyrir að láta það viðgangast aö Bandaríkin væru auðmýkt og niðurlægð á þennan hátt var svo ríkjandi meðal fólks að það varð snemma augljóst að Carter yrði ekki endurkosinn for- seti. Khómeini, sem kallaði Bandarík- in hinn mikla Satan, hafði svarið þess dýran eið að kollvarpa Carter og hinum mikla Satan, og það tókst. Tilraun Carters til að bjarga gísl- unum með hervaldi rann út í sandinn í bókstaflegum skilningi, sú hernaðaraðgerð var ein niður- lægingin enn. Baktjaldamakk? En gíslamálinu í Teheran er ekki lokið enn. Það þótti snemma grun- samlegt að þeim var sleppt um leið og Ronald Reagan tók við embætti. Nú eru bornar fram áleitnar rök- semdir fyrir því að kosningastjórar Reagans og hugsanlega Bush sjálf- ur hafi samið við írani um að halda gíslunum fram yfir kosningar gegn loforðum um að þeir fengju síðar bandarísk hergögn fyrir milli- göngu ísraels til að nota í stríðinu við írak. Stefna Bandaríkjanna þá var að styðja írak í stríðinu. Þessar fullyrðingar koma aðal- lega frá ísraelskum heimildar- mönnum, auk þess sem Bani Sadr, fyrrum forseti írans í tíð Khómein- is, hefur tekið undir þær. Ef þetta verður rannsakað opinberlega í þinginu, og í ljós kemur að þessar ásakanir eiga við rök að styðjast, er Bush forseti í meiri vanda stadd- ur en hann hefur áður kynnst. Staðreyndin er sú að íranir fengu bandarísk vopn frá ísrael eftir að gíslunum var sleppt. AUt þetta minnir á Íran-Contra málið þar sem reynt var að fá gísla í Líbanon lausa fyrir bandarísk hergögn frá ísrael og ágóðinn notaður til að styrkja á ólöglegan hátt stríðið í Nicaragua. Af þessu á eftir að heyr- ast meira. Kúrdar og Kúvæt Stefna Bandaríkjanna í Miðaust- urlöndum hefur síðan mótast af fjandskap við íran. Sú er ástæðan fyrir því að Bush vildi ekki eyði- leggja herstyrk íraks svo algerlega að Iranir hefðu hernaðarlega yfir- burði. Þess gjalda Kúrdar nú. Svo er að sjá að í öllum stríðsæsingun- um út af Kúvæt hafi enginn haft heildaryfirsýn. Þar var flanað út í stríð sem vel hefði mátt komast hjá með smávægilegum tilhhðrunum. En viljinn var ekki fyrir hendi og heift og fordómar réöu feröinni. Gunnar Eyþórsson „Svo er að sjá að í öllum stríðsæsingun- um út af Kúvæt hafi enginn haft heild- aryfirsýn. Þar var flanað út í stríð sem vel hefði mátt komast hjá með smá- vægilegum tilhliðrunum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.