Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Blaðsíða 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991.
Andlát
Sveinn Kristófersson frá Litla Bergi,
Skagaströnd, lést á Héraðshælinu á
Blönduósi funmtudaginn 9. maí.
Ragnar Þ. Guðlaugsson blikksmiður,
Hátúni 10, andaðist í Borgarspítalan-
um 12. maí.
Sigurrós Sveinsdóttir, fyrrum for-
maður Verkakvennafélagsins Fram-
tíðarinnar í Hafnarfirði, lést á Sól-
vangi 13. maí.
Þorgerður Guðmundsdóttir, Háaleit-
isbraut 16, andaðist á heimili sínu
mánudaginn 13. maí.
Þuríður Guðmundsdóttir andaðist
aðfaranótt 13. maí á Landakotsspít-
ala.
Jarðarfarir
Sigurbjörn Leifur Bjarnason raf-
virkjameistari, Jöklaseli 13, Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá Selja-
kirkju miðvikudaginn 15. maí kl. 15.
Hrólfur Kr. Sigurjónsson frá Ísafírði,
Krummahólum 10, Reykjavík, verð-
ur jarðsunginn frá Fella- og Hóla-
kirkju miðvikudaginn 15. maí kl.
13.30.
Þórunn Sigurðardóttir lést á Hjúkr-
unardeild Hrafnistu í Hafnarfirði
fimmtudaginn 9. maí. Jarðarförin fer
fram frá Fossvogskapellu fimmtu-
daginn 16. maí kl. 15.
Þórður Jónsson cand. mag., sem lést
7. þ.m., verður jarðsunginn frá nýju
kapellunni í Fossvogi miðvikudag-
inn 15. maí kl. 13.30.
Sigrún María Schneider, Reynimel
51, verður jarösungin frá Krists-
kirkju, Landakoti, fimmtudaginn 16.
maí kl. 15.
Bjarnína Guðrún Kristjánsdóttir,
Baldursgötu 34, verður jarðsungin
frá Fossvogskapellu miðvikudaginn
15. maí kl. 15.
Sigurður E. Markússon frá Svarta-
gih, sem andaðist 9. maí, verður jarð-
sunginn fimmtudaginn 16. maí kl.
13.30 frá Fossvogskapellu.
María Guðvarðardóttir, Álftamýri
50, sem lést í Borgarspítalanum laug-
ardaginn 11. maí, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 16.
maí kl. 13.30.
Sverrir Erlendsson fyrrv. skipstjóri
lést, 5. maí. Hann fæddist 19. júní
1925, spnur Erlendar Árnasonar og
Önnu Ófeigsdóttur. Sverrir stundaði
sjómennsku lengst af. Hann var um
árabil stýrimaður og síðar skipstjóri
á ýmsum togurum. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Dóra Bergþórsdóttir.
Þau hjónin eignuðust tvær dætur,
einnig ól Sverrir upp tvö börn af
fyrra hjónabandi Dóru. Sverrir átti
einn son fyrir hjónaband. Útfór
Sverris verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Safnaðarstarf
Breiðholtskirkja Bænaguðsþjónusta í
dagkl. 18.30, altarisganga. Fyrirbænaefn-
um má koma á framfæri við sóknarprest
í viðtalstímum hans þriðjudaga til fóstu-
daga kl. 17-18.
Dómkirkjan Þjónusta fyrir aldraða:
fótsnyrting í safnaöarheimilinu þriðju-
daga kl. 13-17. Tímapantanir hjá Ástdísi.
Grensáskirkja Biblíuiestur í dag kl. 14 í
umsjá sr. Halldórs S. Gröndal. Síðdegis-
kaffi.
Hallgrímskirkja Fyrirbænaguðsþjón-
usta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Seljakirkja Mömmumorgunn. Síðasta
opna húsið í vetur kl. 10.
Tilkyrmingar
Félag einstæðra foreldra
Óskar eftir alls konar dóti á maíflóa-
markað félagsins. Ef þú ert í vortiltekt í
geymslum, hugsaðu þá til okkar áður en
þú hendir. Með fyrirfram þökk. Sími
11822.
Neytendasamtökin kanna
banka- og tryggingamál
Sólrún Halldórsdóttir viðskiptafræðing-
ur hefur verið ráðin í fullt starf hjá Neyt-
endasamtökunum og mun sinna þar
ýmsum verkefnum, m.a. á sviði banka-
og tryggingamála. Sólrún er 26 ára gömul
og útskrifaðist sem viðskiptafræðingur
frá Handelshögskolen í Kaupmannahöfn
sl. vor.
Hvítasunnuferð fyrir
eldri borgara
á Snæfellsnes laugardaginn 18. mai. Lagt
af stað frá Umferðarmiðstöð BSÍ kl. 09.
Fararstjóri Pétur H. Ólafsson. Nánari
upplýsingar gefnar á ferðaskrifstofu BSI
sími 22300.
Haukur Dór í
Gallerí Borg
Fimmtudaginn 2. maí opnaði Haukur Dór
sýningu á verkum sínum í Gallerí Borg.
Sýningin átti að standa til þriðjudagsins
14. mai, en vegna mikillar aðsóknar verö-
ur henni framlengt til fóstudagsins 17.
maí. Sýningin er opin virka daga kl. 10-
18.
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu í dag frá kl. 13-17.
Fijáls spilamennska og bridge.
Opiðhús
„Styrkur" samtök krabbameinssjúkhnga
og aðstandenda þeirra halda opið hús í
kvöld, 14. maí kl. 20.30 í húsi Krabba-
meinsfélags íslands, Skógarhlíð 8. Guð-
jón Baldursson krabbameinslæknir flyt-
ur erindið: Hefðbundnar og óhefðbundn-
ar krabbameinslækningar. Kafflveiting-
ar. Mætum öll og tökum með okkur gesti.
t
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar,
Finnbogi Þorsteinsson,
Meistaravöllum 21,
andaðist á Landspítalanum 13. maí.
Lína Knútsdóttir
og börn hins látna
Garðar
og
gróðtir
FYLGIR
Á MORGUN
Meðal annars verður fjallað um
undirbúning og frágang nýrra lóða og
breytingar á eldri lóðum.
Myndgáta
Kór Flensborgarskóla
heldurtil Þýskalands
Kór Flensborgarskóla þiggur boð vina-
bæjar Hafnarfjarðar, Cuxhaven, um að
halda þar þrenna tónleika. Ferðin er lið-
ur í nemendasamskiptum vinabæjanna
og er von á þýskum menntaskólanemum
í september. Kórfélagar munu dveljast á
þýskum heimilum og gefst unglingunum
þá tækifæri til að skapa persónuleg tengsl
og kynnast ólíkum lifsvenjum og við-
horfum og öðlast þannig meiri skilning á
framandi þjóð sem einmitt er hugmyndin
að baki nemendaskiptanna. Kórinn fagn-
ar á þessu ári 10 ára starfsafmæli og af
þvi tilefni gaf kórinn út geisladisk um
síðustu jól og einnig stóð hann fyrir kór-
móti nokkurra framhaldsskóla í mars-
mánuði sl. Kórinn hefur hlotið góöan
fjárstuðning bæjaryfirvalda, einkafyrir-
tækja og síðast en ekki síst Flensborgar-
skóla til framkvæmda allra þessarra
hluta. Þetta er þriðja utanlandsferð kórs-
ins. Kórinn heldur tónleika miðvikudag-
inn 15. mai kl. 20.30 í Menningarmiðstöð-
inni Hafnarborg og er aðgangur ókeypis.
Á efnisskránni er að flnna íslensk þjóð-
og ættjaröarlög auk madrígala og kirkju-
legra smáverka.
„Birtir af degi“,
ný hljómplata
Út er komin hljómplata með lögum við
ljóð Bjöms Stefáns Guðmundssonar frá
Reynikeldu. Nefnist hún Birtir af degi.
Bjöm er mörgum kunnur fyrir ljóð sin,
og í Dalasýslu, heimabyggð hans, hafa
margar vísur hans orðið fleygar. Lögin
em samin af Dalamönnum, en flytjendur
em margir af fremstu tónlistarmönnum
landsins. Platan er gefm út í tengslum
við Jörfagleði, menningarhátíð Dala-
manna, sem stendur yfir þessa dagana.
Tónlistin fæst einnig á geisladisk og tón-
snældu.
Fundir
Kvennadeild Barðstrend-
ingafélagsins
Sameiginlegur fundur málfundadeildar
og kvennadeildar verður haldinn á Hall-
veigarstöðum í kvöld, 14. maí, kl. 20.
Sýndar verða litskyggnur.
Tónleikar
Blái fiðringurinn
á Púlsinum
Hljómsveitin Blái flðringurinn mun slá á
bláar nótur á Púlsinum tvö næstu mið-
vikudagskvöld, 15. og 22. maí. Hljómsveit-
ina skipa Árni Bjömsson bassi, Kjartan
Guönason trommur, Linda Gísladóttir
söngur, Magnús Sigurðsson gítar og
Skúli Thoroddsen saxófónn.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur á vegum Stofnunar
Sigurðar Nordals
Marianne E. Kalinke, prófessor við 111-
inoisháskóla í Urbana í Bandaríkjunum
flytur opinberan fyrirlestur um heilagra-
mannasögur frá síðmiðöldum í boði
Stofnunar Sigurðar Nordals, miðviku-
daginn 15. maí kl. 17.15 í Veitingastofunni
í Tæknigarði við Dunhaga. Fyrirlestur-
inn nefnist „Reykhólabók: An Icelandic
hagiography on eve of the reformation"
og verður fluttur á ensku. Marianne E.
Kalinke hefur skrifað mikið um riddara-
sögur, m.a. bókina Bridal-Quest Roman-
ce in Medieval Iceland, og gefið út Mött-
uls sögu. Hún vinnur nú að rannsóknum
á heilagramannasögum hér á landi.