Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Síða 4
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991.
Fréttir
1
£ l fc.
Forseti íslands, (rú Vigdis Finnbogadóttir, og biskupinn yfir íslandi, herra Ólafur Skúlason, ganga fyrir ráðherrum og þingmönnum til guðsþjónustu í Dómkirkjunni.
DV-mynd BG
Alþingi settígær:
Kosið í nef ndir þingsins í dag
Alþingi Islendinga, 114. löggjafar-
þingið, var sett í gær. Að vanda hófst
athöfnin í Dómkirkjunni, þar sem
séra Geir Waage messaði. Síðan las
forseti íslands u'pp forsetabréf. Þessu
næst tók aldursforseti, Matthías
Bjarnason, við stjórn þingfundar og
frestaði fundi þar til í dag. Þá verður
kosið í nefndir, forsetar deilda og
sameinaðs þings. Aðeins tvö mál
verða tekin fyrir á þessu þingi. í
fyrsta lagi breyting á stjómarskrá
um að Alþingi verði ein málstofa.
Verði það samþykkt, sem öruggt er
talið, verður lagt fram frumvarp um
breytingar á þingskaparlögum. Síð-
an verður þinghaldi frestað til
hausts. -S.dór
Núverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson, og fráfarandi forsætisráð-
herra, Steingrímur Hermannsson, heilsast við upphaf þings í gær.
DV-mynd GVA
Það eru margir nýir þingmenn á Alþingi nú. Hér má sjá nýliðana Finn Ingólfsson, Ingibjörgu Pálmadóttur, Sigur-
björn Gunnarsson og Kristin H. Gunnarsson koma til Alþingishússins eftir messu í fylgd þeirra eldri og reyndari.
DV-mynd GVA
Heiðursmannasamkomulag
Þeir eru miklir heiðursmenn þeir
Davíð forsætisráðherra og Jón
Baldvin utanríkisráðherra. Þeir
eru svo miklir heiðursmenn aö
þeim þótti ekki einu sinni taka því
að skrifa niður þau samkomulög
sem þeir gerðu úti í Viöey hér um
daginn. Sátu bara tveir einir og
bræddu með sér hvernig skipa ætti
stjórnina og hvernig taka ætti á
málum og tókust svo í hendur upp
á trúnað og traust. Það var meira
að segja ákveðið að hafa stjómar-
sáttmálann sem allra stystan til að
innsigla trúnaðinn og traustið aö
hætti viðurkenndra heiðurs-
manna.
Svo fóru þeir í land, heiðurs-
mennimir tveir, eftir að hafa tekist
í hendur hérna megin Viöeyjar-
sunds og hinum megin og báru lof
á hvern annan að hætti viöur-
kenndra heiðursmanna.
En svo kom babb í bátinn. Jón
Baldvin fór að asnast til að segja
frá því í þingflokknum sínum að
hann væri heiðursmaður og Davíð
væri heiðursmaður og hann sagði
frá því hvaða heiðursmannasam-
komulag þeir hefðu gert. Þetta tóku
þingmenn Alþýðuflokksins alvar-
lega og Eiður Guðnason var himin-
lifandi yflr þessum tveim heiðurs-
mönnum sem höfðu ákveðið að búa
til ráðuneyti fyrir Eið sem var
byggt á heiðursmannasamkomu-
lagi þeirra Jóns Baldvins og Dav-
íðs. Og þegar Eiður var spurður að
því hvaða mál heyrðu undir ráðu-
neyti hans taldi hann aðallega upp
mál sem heyröu undir önnur ráðu-
neyti og vísaði til heiðursmanna-
samkomulagsins.
Nú getur það vel verið að Eiður
og þeir kratarnir haldi að Jón Bald-
vin sé heiðursmaður en öðru máli
gegnir um þingflokk Sjálfstæðis-
flokksins og þá ráðherra sem Davíð
skipaði í stjórnina meö sér. Þeir
þekkja enga heiðursmenn á þeim
bæ og kannast ekki við nein heið-
ursmannasamkomulög. Halldór
Blöndal landbúnaðarráöherra hef-
ur aldrei lesið, heyrt eða séð nein
heiðursmannasamkomulög og ljær
þar af leiðandi ekki máls á þvi aö
hans verkefni séu flutt yfir í önnur
ráðuneyti.
Nú voru góð ráð dýr og þeir Jón
Baldvin og Davíð hittust á nýjan
leik til að ganga úr skugga um það
hvort þeir væru ekki lengur heið-
ursmenn og Davíð gaf út fréttatil-
kynningu til að staðfesta að þeir
væru ennþá heiðursmenn. Gallinn
var hins vegar sá, að sögn Davíðs,
aö Jón Baldvin hafði oftúlkaö að
Davíð væri meiri heiðursmaður
heldur en hann er og hefur látið
þess getið að heiðursmannasam-
komulög eigi ekki endilega að túlka
þannig að staöið verði við þau.
Aðalatriðið í augum Davíðs er að
menn takist í hendur og geri með
sér samkomulag til aö skapa trún-
að og traust en það þýðir ekki um
leið að menn þurfi að standa viö
samkomulagið eöá túlka það þann-
ig að mark sé á því takandi.
Þetta verður ekki skilið öðruvísi
en svo að þegar þeir Davíð og Jón
Baldvin sömdu um þaö að verkefni
landbúnaðarráðherra flyttust til
umhverfismálaráðherra þá fer það
eftir túlkun hvernig sá verkefna-
flutningur á sér stað. Það má flytja
verkefnin á ýmsum tímum og til
að mynda þegar Halldór er hættur
í landbúnaðarráðuneytinu og Eið-
ur er hættur í umhverfismálaráðu-
neytinu og menn mega ekki gleyma
því að ríkisstjórnin telur líklegt að
hún sitji fram á næstu öld og heið-
ursmannasamkomulög eru ekki
bundin við tíma eða aðstæður eða
handabönd heldur eru þau háð því
að báðir heiðursmennirnir geti
túlkað það með sínum hætti hve-
nær efndir samkomulagsins eiga
sér staö.
Þetta er auðvitað heldur óþægi-
legt mál fyrir heiðursmennina í
ríkisstjórninni og Dagfari leggur til
að þeir mæli sér aftur mót úti í
Viðey og setji sér reglur um það
hvenær heiðursmannasamkomu-
lög eiga aö koma til framkvæmda
og hvernig þau skulu túlkuð. Þeir
þurfa ekki að ákveða það skriflega
frekar en stjórnarsamstarflð, enda
byggist slíkt heiðursmannasam-
komulag á því heiðursmannasam-
komulagi að trúnaður og traust
liggi að baki því samkomulagi sem
gert verður.
Það er vissulega fengur að því að
fá heiðursmenn til að stjórna
landinu. Hins vegar er rétt að vara
við því að oftúlka þann skilning
sem lagður er í orðið heiðursmað-
ur.
Dagfari