Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991.
9
Utlönd
Svíþjóð:
Morðinginn og
hryðjuverka-
maðurinn gripnir
Venjum unga
hestamenn
strax á að
NOTA HJÁLM!
))
Fangarnir, sem flúðu úr rammgerð-
asta fangelsi Svíþjóðar síðastliðinn
fimmtudag, voru gripnir í nótt við
bæinn Arboga um 150 kílómetra
vestan við Stokkhólm. Lögregla við
umferðareftirlit gaf bifreið, sem
strokufangarnir reyndust vera í,
stöðvunarmerki sem þeir virtu að
vettugi. Lögreglan hóf eftirfór og eft-
ir nokkra kílómetra misstu stroku-
fangarnir stjórn á bifreiðinni og
keyrðu út af á akur.
Lögreglan vissi ekki hverjir voru í
bifreiðinni en var viðbúin öllu. Öku-
maðurinn reyndist vera Rúmeninn
Ursut sem skaut að lögreglunni um
leið og hann stökk út úr bifreiðinni.
Lögreglan svaraði með viðvörunar-
skotum en Ursut tókst að flýja. Pal-
estínumaðurinn Amandi reyndi
einnig að flýja en var gripinn óvopn-
aður eftir að hafa komist nokkur
hundruð metra frá bifreiðinni. Ursut
var hins vegar gripinn í skógi um
fimmtán metra frá hóteli eftir þriggja
klukkustunda umfangsmikla leit.
Hann var þá vopnlaus. Lögreglan
hafði fengið upplýsingar frá verslun
í hótelinu um að Ursut hefði komið
þar inn til að kaupa mat.
Það var venjulegt umferðareftirlit
sem skipulagt hafði veriö fyrir fjór-
um vikum, sem leiddi til handtöku
strokufanganna hættulegu. Umferð-
arlögregla stöðvaði í nótt allar bif-
reiðar á Evrópuvegi númer 3 í Ar-
boga. Hvit Saab-bifreið sinnti ekki
stöðvunarmerkjum lögreglunnar
heldur jók hraðann. Lögreglan hóf
þá eftirför.
í kjölfar innbrots í sumarbústað í
gær á þessu svæði fundu hundar slóð
tveggja manna sem stohð höfðu fatn-
aði. Greinilegt var á slóðinni að reynt
hafði verið að villa um fyrir leitar-
mönnum. En það var svo umferðar-
lögreglan eins og áður sagði sem
hafði hendur í hári strokufanganna.
Dómsmálaráðherra Svíþjóðar, La-
ila Freivalds, lýsti í morgun yfir
ánægju sinni með lausn málsins en
hart hefur verið deilt á yfirvöld fang-
elsismála vegna þess.
Strokufangarnir eru álitnir stór-
hættulegir. Ursut hafði síðast verið
dæmdur fyrir morðtilraun á tveimur
lögreglumönnum í Stokkhólmi við
síðustu flóttatilraun sína. Framselja
Um 30 manns eru látnir og yfir 400 særðir eftir eitt versta lestarslys sem
orðið hefur í Japan í tæp 30 ár. Simamynd Reuter
Hörmulegt lestarslys í Japan:
30 látnir og
yfir400særðir
Þijátíu farþegar létu lffið og yfir
400 særðust þegar tvær farþegalestir,
önnur þeirra yfirfull af ferðamönn-
um, skullu saman á járnbrautartein-
um á skógivöxnu svæöi í miðhluta
Jajians snemma í morgun.
I annarri lestinni voru allt að sex
hundruð ferðamenn sem voru á leið
frá hinni fornu höfuðborg Kyoto til
bæjarins Shigaraki þar sem þeir ætl-
uðu að skoða margrómaða leirmuni.
Flestir þeirra voru á miðjum aldr
eða eldri og svo þröngt var í lestinn:
að fólkið stóð þétt saman þegar slys-
ið varð.
Þetta er eitt versta lestarslys sem
orðið hefur í Japan í rúm 30 ár en
lögreglan telur að ljósin, sem beina
lestinni á annað spor þegar önnur
kemur á móti, hafi bilað. Reuter
á hann síðar meir til Ítaiíu vegna
morðs á mafíuforingja. Ursut vill fyr-
ir aha muni komast hjá að afplána
fangelsisvist á Ítalíu auk þess sem
hann óttast hefnd mafíunnar. Hann
reynir því stöðugt að flýja og fremja
ný afbrot í Svíþjóð, að því að sagt er.
Hann hefur meira að segja viður-
kennt morð á fimm löndum sínum í
Helsingborg til þess að fá að vera um
kyrrt í Svíþjóð.
Imandi hafði verið dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi fyrir sprengjuthræði í
Kaupmannahöfn.
Flótti þessara hættulega fanga hef-
ur leitt til umræðu um hversu örugg
sænskfangelsiséu. tt
Gabríel
HÖGGDEYFAR
STERKIR, ORUGGIR
ÓDÝRIR!
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88
VIRÐ. ISAUKASKATTUR
Endurgreiðsla
virðisaukaskatts
til íbúðarbyggjenda
Hvað er endurgreitt?
Virðisaukaskattur af vinnu manna sem
unnin er á byggingarstað íbúðarhús-
næðis er endurgreiddur. Endurgreiðsl-
an nær til virðisaukaskatts af:
• Vinnu manna við nýbyggingu íbúðar-
húsnæðis.
• Hluta söluverðs verksmiðjufram-
leiddra íbúðarhúsa hér á landi.
• Vinnu manna víð endurbætur og við-
hald á íbúðarhúsnæði í eigu umsækj-
anda.
Endurgreiðslubeiðni
Sækja skal um endurgreiðslu á sér-
stökum eyðublöðum til skattstjóra í því
umdæmi sem umsækjandi á lögheimili.
Eyðublöðin eru:
• RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis
til sölu eða leigu.
• RSK 10.18: Bygging, endurbætur og
viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Uppgjörstímabil
Hvert uppgjörstímabil ertveir mánuðir,
janúar og febrúar, mars og apríl, maí
og júní, júlí og ágúst, september og
október, nóvember og desember.
Skiladagur
Endurgreiðslubeiðni skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir
að uppgjörstímabili lýkur.
Sérstakt uppgjörstímabil
vegna endurbóta og við-
halds á árinu 1990
Beiðni um endurgreiðslu vegna við-
halds og endurbóta íbúðarhúsnæðis
sem unnið var 1990 skal skilað í einu
lagi til skattstjóra í síðasta lagi 20.
janúar 1991. Athygli skal vakin á því að
frumrit sölureikninga skal fylgja um-
sókn um endurgreiðslu vegna vinnu
við endurbætur og viðhald.
Hvenær er endurgreitt?
Hafi beiðni um endurgreiðslu verið
skilaö á tilskildum tíma fer endur-
greiðslan fram eigi síöar en 5. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
nýbygginga og eigi síðar en 20. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
endurbóta og viðhalds.
Launamiðar og
húsbyggingarskýrsla
Athygli skal vakin á þvf að þeir sem
sækja eða hafa sótt um endurgreiðslu
virðisaukaskatts af vinnu manna við
íbúðarhúsnæði á árinu 1990 skulu fylla
út launamiða (RSK 2.01) fyrir 20. janúar
1991 vegna greiddra launa og verktaka-
greiðslna. Launamiðann skal senda til
skattstjóra.
Þeir sem sótt hafa um endurgreiðslu
vegna nýbyggingar skulu einnig senda
skattstjóra húsbyggingarskýrslu (RSK
3.03) með skattframtali sínu.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI