Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991. íþróttir_______________ Sport- stúfar Gautaborg og AIK efst í sænska boltanum • Gautaborg og AIK eru efst í sænsku úr- valsdeildinni í knatt- spyrnu eftir leiki 7. umferðar á sunnudaginn. Gauta- borg vann Sundsvall, 3-0, og AIK sigraði Öster, 2-1. Norrköping vann GAIS, 2-1, Malmö FF vann Halmstad, 2-0, og Örebro og Djurgárden skildu jöfn, 1-1. Gautaborg og AIK era með 15 stig, Malmö FF og Örebro 14, Norrköping 10, Öster 7, GAIS og Sundsvall 5 og Djurgárden og Halmstad era með 4 stig. Bröndby fallið niður i 4. sætið í Danmörku • Bröndby heíúr ekki tekist að fylgja eftir góðu gengi í UEFA- bikarnum í vetur og er nú í 4. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspymu eftir jafntefli, 1-1, við OB á sunnudaginn. Önnur úrslit uröu þessi: Frem-AaB..........1-2 Lyngby-AGF........2-1 Silkeborg - Ikast.1-0 Vejle - B1903... 1-0 Lyngby er með 15 stig, AaB 11, Frem 11, Bröndby 11, Silkeborg 9, AGF 9, OB 8, Vejle 8, Ikast 5 og B 1903 er með 3 stig. Björn vann tvöfalt hjá Skotféiagi Reykjavíkur • Björn Birgísson vann tvöfald- an sigur á meistaramóti Skot- félags Reykjavíkur á sunnudag- inn. í keppni með staðlaðrí skammbyssu hlaut hann 537 stig, Karl Kristinsson varð annar með 513 stigog Carl J. Eiríksson þriðji með 511 stig. í keppni með loft- skammbyssu voru sömu menn í verðlaunasætum, Björn sigraði með 549 stig, Carl varð annar með 543 og Karl þriðji með 523 stig. Bjöm Birgisson hefur verið i mikilli framfór sem skotmaður og árangur hans á meistaramóti SR staðfestir að hér fer framtíðar- maður í skotfiminni. Milljónamæringurinn hreyfir ekki veskið • Milljónamæringur- inn franski, Bernard Tapie, eigandi franska meistaraliðsins Mar- seille, hefur veríð þekktur fyrir þaö síðustu fimm árin að eyða stórfé í nýja leikmenn á milli keppnistímabila í frönsku knatt- spyrnunni. Skýrt var frá þessu i gær og var það varaforseti félags- ins sem það gerði í nafni Tapies. Hann hyggst ekki selja einn ein- asta Ieikmann fyrir næsta tíma- bil og kom þessi yfirlýsing nokk- uö á óvart þar sem nokkrir leik- menn Marseille, þar á meðal Eric Cantona og Philippe Vercruysse hafa verið sterklega orðaðir við önnur frönsk félög. En nú hefur milljónamæringurinn sem sagt lýst því yfir að hann hyggist ekki hreyfa veskið fyrir næsta tímabil. Fyrsta stigamótið til landsliðs í golfi: Haglél og rigning settu svip á mótið Kylfmgar era komnir á fulla ferð og um liðna helgi fór fram fyrsta opna mótið á þessu tímabili. Hér var um að ræða Flugleiðamótið og fór það fram á golfvelli Golfklúbbs- ins Keilis í Hafnarfirði. Leikiö var á sumarflötum og er það frekar óvenjulegt á þessum árstíma. Flugleiðamótið var fyrsta stiga- mót sumarsins og sigurvegari í keppni án forgjafar varð Hjalti Pálmason, GR. Hann lék fyrri 18 holurnar á 77 höggum en tók sig heldur betur á í síðari hringnum, lék þá á 69 höggum og samtals á 146 höggum. Sigur Hjalta var væg- ast sagt naumur því Guðmundur Sveinbjörnsson, GK, varð annar á 147 höggum. Guðmundur lék fyrri hringinn á 74 höggum og þann síð- ari á 73 höggum. Þrír kylfmgar urðu jafnir í 3.-5. sæti; Björgvin Sigurbergsson, GK, Ragnar Ólafs- son, GR, og Örn Arnarsson, GA. Þeir léku allir á 148 höggum. Rok, rigning og haglél í keppni með forgjöf sigraði Viðar Þorkelsson, GK, Hann lék á 135 höggum nettó. Annar varð Krist- mann ísleifsson, GK, á 137 höggum og jafnir í 3.^4. sæti urðu þeir Öm Arnarsson, GA, og Hjalti Pálma- son, GR, á 138 höggum nettó. • Hjalti Pálmason náði bestu skori keppenda á mótinu á Hval- eyrarholtsvelli er hann lék á 69 höggum. Örn Arnarsson, GA, lék síðari hring sinn á 70 höggum og þriðja besta skorinu náðu Sveinn Sigurbergsson, GK, og Tómas Jónsson, GKj. með 72 högg. Tómas var einnig með hæsta skorið, 83 högg. • Leikið var í stinningskalda báða dagana og þurftu kylfingar um tíma að berjast um golfvöllinn gegn hagléli og rigningu. Þrátt fyr- ir óhagstætt veðurlag var skor keppenda mjög gott og lofar mjög góðu fyrir komandi golfmót. Og ljóst er að hart verður barist um landsliðssætin í golfinu í sumar. -SK Knattspyrna: U-18 ára liðinu boðið til Tékkó - leikur þar á sterku, alþjóðlegu móti Tékkneska knattspyrnusamband- ið er 80 ára um þessar mundir og bauð íslenska 18 ára landsliðinu til þátttöku í þessu mjög svo sterka al- þjóðlega móti, sem það heldur í til- efni afmælisins. ísland leikur í riðli með Rúmenum, Þjóðverjum, Grikkj- um og úrvalsliði Slóvakíu. Gylfi Orrason, u-18 ára landsliðs- nefndarmaður, sagöi í samtali við DV að það væri afar mikilvægt að fá slík boð, eins og þetta frá Tékkum. „Sú þróun hefur orðið undanfarin ár að evrópsku knattspyrnuveldin líta á okkur meira sem jafningja en oft áður. Þetta góða boð Tékka sann- ar það. í sambandi við væntanlegan árang- ur í þessu móti er meiningin hjá strákunum að standa sig vel og hver veit nema að þeir geri hið „ómögu- lega,“ allavega er markið sett hátt,“ sagði Gylfi. Hörður Helgason er þjálfari liösins og þeir sem hann hefur valið til far- arinnar eru eftirtaldir: Eggert Sigmundsson, KA, Friðrik Þorsteinsson, Fram, Arnar Arnars- son, Fram, Auðunn Helgason, FH, Bjarki Bragason, KA, Einar Baldvin Árnason, KR, Flóki Halldórsson, KR, Hákon Sverrisson, UBK, Helgi Sig- urðsson, Víkingi, Kári Steinn Reyn- isson, ÍA, Kári Sturluson, Fylki, Lúð- vík Arnarson, FH, Óskar Þorvalds- son, KR, Pálmi Haraldsson, ÍA, Rútur Snorrason, ÍBV, Hrafnkell Kristjáns- son, FH, Sigurður Eyjólfsson, KR, og Sturlaugur Haraldsson, ÍA. -Hson • Magic Johnson og félagar hans í LA La gegn Golden State Warrios. Johnson hefu inu sigri i deildinni. V Besta handknattleiksfólkið útnef nt Seve Ballesteros tók stórt stökk upp á við • Spánski kylfingurinn Sever- iano Ballesteros tók stórt stökk upp afrekalista atvinnukylfmga eftir að hann hafnaöi í öðra sæti á opna spánska meistaramótinu um liðna helgi. Ballesteros skaust i 7. sæti listans og er með 9,57 stig. Enn á hann þó langt í land með að ná efstu mönnum en Ian Woosnam er efstur með 20,15 stig. Jose Maria Olazabal er í öðru sæti með 18,36 stig og þriðji er Nick Faldo með 16,99 stig. Greg Norman er fjórði með 14,42 stig, Paul Azinger fimmti með 11,49 stig og sjötti er Payne Stewart meö 10,46 stig. • Bestu leikmennirnir og dómararnir á nýafstöðnu keppnistimabili í handboltanum með verðlaun sín. Efri röð frá vinstri: Hulda Bjarnadóttir, Selfossi, efn- ilegasta stúlkan, Karl Karlsson, Fram, efnilegasti pilturinn, Sigurður Gunnarsson, ÍBV, þjálfari ársins, Birgir Sigurðsson, Vikingi, besti sóknarmaðurinn, Alexej Trufan, Víkingi, besti varnarmaðurinn, Sigmar Þröstur Óskarsson, ÍBV, besti markvörður karla, Kolbrún Jóhannsdóttir, Fram, besti markvörður kvenna. Neðri röð frá vinstri: Valdimar Grímsson, Val, handknattleiksmaður ársins, Andrea Atladóttir, Vikingi, besta sóknarkonan, Rögnvald Erlingsson og Stefán Arnaldsson, bestu dómararnir, og Örn Magnússon, formaður handknattleiksdeildar FH, sem tók við verðlaunum Bjargar Gilsdóttur, bestu hand- knattleikskonunnar, og Rutar Baldursdóttur, bestu varnarkonunnar. Handknattleiksdeild ÍBV var verðlaunuð fyrir besta unglingastarf á árinu. DV-mynd GS Opið bréf til Knattspyrnuráðs Reykjavíkur Reykjavík 13. maí 1991. mættu til leiks á tilsettum tíma en og línuverðir sig vanta. Reykjavíkur aö haga verkum sínum Til Knattspyrnuráðs Reykjavíkur: dómarar og línuveröir hins vegar Framkvæmd móts með slíkum þannig aö öll mót á vegum þess fari ekki og fór leikurinn því ekki fram. hætti sem hér er lýst hlýtur að vera ávallt fram með þeim hætti sem svo Sunnudaginn 12. maí klukkan 13 átti Nú er það einnig svo að þessi sömu þeim er að henni standa til mikillar virðulegum félagsskap sæmir. að fara fram leikur KR og Vals í liðáttuaðleikafyrrileiksinníþessu vansæmdar. F.h. Hagsmunasamtaka knatt- Reykjavíkurmóti meistaraflokks sama móti fóstudaginn 26. maí síð- Því skora Hagsmunasamtök knatt- spymukvenna, kvenna í knattspymu. Bæði lið astliðin og einnig þá létu dómarar spymukvenna á Knattspymuráð Elísabet Tómasdóttir, formaður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.