Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991.
17
JOV
WMMMŒMŒSMiÍSÍm&ím íH
kers eru með góða stöðu í viðureign sinni
r leikið vel með Lakers og margir spá lið-
Fylkir í
3.sæti
Fylkir tryggði sér í gær 3. sætið
á Reykjavíkurmótinu í knatt-
spyrnu þegar liðið vann sann-
gjarnan sigur á Víkingi, 3-1, á
gervigrasvellinum í Laugardal í
gærkvöldi. Örn Valdimarsson
skoraði fyrsta mark leiksins í
fyrri hálfleik fyrir Fylkisroenn
og_ þannig var staðan í hálfleik.
í upphafi síðari hálfleiks jafnaði
Atli Einarsson metin fyrir Vik-
inga en Örn Valdimarsson var
aftur á ferðimii þegar hann skor-
aði glæsilegt skallamark og 10
mínútum íyrir leikslok innsiglaði
Guðmundur Magnússon sigur
Árbæjarliðsins þegar hann skor-
aði af stuttu færi.
• í kvöld leika KR og Valur til
úrslíta og fer leikurinn fram á
gervigrasvellinum og hefst Ieik-
urinnklukkan20. -GH
Jim Ryan, framkvæmdastjóri
enska 1. deildar liðsins Luton, var
í gær rekinn frá félaginu, 48
kiukkustundum eftir að hann og
félagar hans í Luton höföu bjarg-
aö sér frá falli í 2. deild eftir sigur
á Derby, 2-0, í síðustu umferð 1.
deildarinnar.
Peter Nelkin, forseti félagsins,
sagðist hafa tekið þessa ákvörðun
vegna ágreinings hans og Jim
Ryan og sagði ennfremur að nú
þyrfti félagið á góðum fram-
kvæmdastjóra á að halda. Nafn
Davids Pleat, sem var við stjórn-
völinn hjá Luton fyrir fimm
árum, hefur veið nefnt í því sam-
bandi. -GH
Chicago, Lakers og
Portland áf ram?
- eru öll meö 3-1 yfir gegn andstæðingum sínum
Þrír leikir voru í úrslitakeppni
NBA-deildarinnar í körfuknattleik í
fyrrinótt. Chicago vann öruggan sig-
ur á Philadelphia 76ers, 101-86, og
þar er staðan 3—1, en það lið sem fyrr
vinnur ijóra leiki fer áfram og næsti
leikur fer fram á heimavelli Chicago.
• Los Angeles Lakers átti ekki í
vandræðum meö Golden State
Warrios á útivelli. Lakers sigraöi,
107-123, og allt stefnir í sigur liðsins
en staðan er, 3-1, og næsti leikur fer
fram í Forum höllinni í Los Angeles.
• Sama staða er upp á teningnum í
viðureign Portland og Utah Jazz.
Portland leiðir, 3-1, eftir nauman sig-
ur á Utah, 104-101, og næsti leikur
fer fram á heimavelli Portland.
Rodman besti varnar-
maðurinn annað árið í röð
• ígærvoruútnefndirbestuvarnar-
mennirnir í NBA-deildinni á þessu
keppnistímabili. Dennis Rodman hjá
Detroit var útnefndur besti varnar-
maðurinn í annað árið í röð, hlaut
51 af 96 atkvæðum, annar varð David
Robertsson hjá San Antonio Spurs
með 18 atkvæði og í þriðja sæti varð
Alvin Robertson sem leikur með
Milwaukee, hann fékk 15 atkvæði.
-GH
íþróttir
Handknattleikur:
Sigurður til FH
- Sigurður Sveinsson, sem leikið hefur með KR, er genginn í FH
FH-ingar hafa fengið öflugan liðs-
styrk fyrir næsta keppnistímabil í
handboltanum. Sigurður Sveinsson,
sem leikið hefur með KR undanfarin
ár, hefur ákveðið að ganga til liðs við
FH og leika með liðinu á næsta
keppnistímabili.
Sigurður er 23 ára gamall og hefur
leikið sem hornamaður með KR og
hann á sæti í landsliðshópnum sem
Þorbegur Aðalsteinsson valdi fyrir
nokkru.
„Þetta er góður liðsstyrkur fyrir
okkur. Siguröur er mjög góður leik-
maður og mikill baráttumaður sem
ætti að nýtast FH-liðinu vel,“ sagði
Örn Magnússon, formaður hand-
knattleiksdeildar FH, í samtali við
DV í gær.
Að sögn Arnar þá er ekki annað
að vita en allir þeir sem léku með
FH-hðinu í vetur verði áfram á næsta
keppnistímabili en eins og áður hefur
komið fram hér í blaðinu tekur
Kristján Arason við þjálfun hðsins
og leikur jafnframt með því.
-GH
Guðmundur skorinn i gær
Kristjáii Bemburg, DV, Belgiu:
Það má segja að það hafl verið í
nógu að snúast í gær hjá Dr. Mart-
ens, einum frægasta íþróttaskurð-
lækni í heiminum í dag. Fyrstur á
skurðaborðið var hollenska knatt-
spymustjarnan Ruud Gulht en hann
var skorinn upp í liðþófa í hné og
sögðu læknar að hann gæti farið að
hlaupa eftir 4 vikur. Þar á eftir gerðu
Dr. Martens og aðstoðarmenn aögerö
á belgískum 1. dehdar leikmanni sem
fótbrotnaði í leik með liði sínu um
helgina og loks um klukkan 14.30 var
röðin komin að íslendingnum unga,
Guðmundi Benediktssyni, en eins og
kunnugt er slitnaði krossband í hné
hans í leik með íslenska drengja-
landsliðinu. Guðmundur var fluttur
á gjörgæslu eftir uppskurðinn og
þaðan á herbergi þar sem hann verð-
ur nokkra daga.
Það biðu hundruð blaða- og frétta-
manna fyrir utan og inni a spitalan-
um í Antwerpen sem Dr. Martens
hefur stofu og var Ruud Gullitt tilefn-
ið. Einn af forráðamönnum Eikeren
notaði tækifæriö og sagði frétta-
mönnum að nær væri að mynda ís-
lendinginn unga sem væri rísandi
stjarna í staðinn fyrir að taka mynd-
ir af hnígandi stjörnu og átti þá viö
Gullit. Ekki er annað vitaö en aö-
gerðin á Guðmundi hafi tekist vel.
Þorvaldur gekk f rá málum
sínum við Forest í gær
Þorvaldur Örlygsson ræddi við forr-
áðamenn Nottingham Forest um
helgina og sídegis í gær var endan-
lega gengið frá því að hann myndi
fara til íslands og leika með Fram.
Þorvaldur ræddi meðal annars sín
mál við Brian Clough, framkvæmda-
stjóra Nottingham Forest, og taldi
hann að það væri álitlegur kostur
fyrir Þorvald að leika á íslandi í sum-
ar.
DV sló á þráðinn til Þorvaldar Örl-
ygssonar í gær og spurði hann
hvernig það legðist í hann að leika
með íslandsmeisturum Fram í sum-
ar?
„Ég á von á því að það verði mjög
skemmtilegt og spennandi verkefni
að leika með Fram í sumar. Ég þekki
allflesta strákana í liðinu og tel það
góðan kost út af fyrir sig. Það kom
margt til greina í stöðinni hjá mér
en að vel athuguðu máli taldi ég besta
kostinn að leika með Fram. Auðvitað
leitaði hugurinn til KA en fyrst að
Fram leikur í Evrópukeppninni í
haust er það meira virði fyrir mig til
lengri tíma leitað.
- Hvað tekur við hjá þér þegar
keppnistímabilinu lýkur á íslandi í
haust?
„Þegar tímabilinu á íslandi lýkur í
haust mun ég spá í spilin. Eg hef
fullan hug á því að snúa mér aftur
að atvinnumennskunni. Eins og gef-
ur að skilja er ég í góðri æfingu enda
tímabilinu að ljúkja á Englandi en
með Fram í sumar ætla ég enn frek-
ar að ná mér á strik. Þetta var sterk-
asti leikurinn í stöðunni að koma
heim og leika með Fram. Við verðum
aö sjá hvað setur í haust og vonandi
býðst mér eitthvert spennandi verk-
efni.“
Þorvaldur sagði að dvölin hjá Nott-
ingham Forest hefði ekki alltaf verið
dans á rósum. Hann hefði átt sína
góðu daga og einnig slæma. Dvöhn
hjá Forest hefði verið góð reynsla og
hann væri betri knattspyrnumaður
núna en þegar hann gekk í raðir
Nottingham Forest. í vetur gekk illa
og sér hefði verið ýtt til hliðar. Núna
langaði hann að prófa eitthvað nýtt
og vonandi yrði það honum til góðs.
„Það eru eflaust margar skýringar
á því hvernig þessi mál þróðust hjá
Nottingham Forest. Brian Clough
taldi sig velja besta liðið hverju sinni
en það er líka alltaf spurning hvað
maður sættir sig við. Ég kem til með
að sjá þetta betur hvað fór úrskeiðis
þegar frá líður," sagði Þorvaldur.
Þorvaldur sagði að Forest-liöið
hefði leikið illa fyrri hluta tímabils-
ins. Eftir sem á tímabiliö leið fór lið-
inu að ganga betur og hann væri
bjartsýnn um gott gengi hðsins í úr-
shtaleik bikarsins á laugardaginn
kemur.
Þorvaldur kemur til íslands í lok
þessa mánaðar og byrjar þá strax aö
æfa með Fram en hann verður lög-
legur með liðinu gegn Val á íslands-
mótinulO.júní. -JKS
• Þorvaldur Örlygsson kemur til
landsins i lok mánaðarins og byrjar
þá strax að æfa með Fram. Hann
verður löglegur i 3. umferð íslands-
mótsins þegar Fram leikur gegn Val.
í
t V
G, J
H
ADEGISVEISLAN
Þríréttaður nádegisverður með forrétti og eftirrétti
frá krónum 890,-
Hönnusteikt lúðusneið
með fylltum pastakoddum kr. 890,-
0landaður sjávarréttur
„Gratin'með kryddgrjónum kr. 1020,-
Spaghetti kjötréttur
„Bolognese" með brauði kr. 1050,-
Balatdiskur með túnfiski
rækjum Og reyktum laxi kr. 990,- Laugavegur 178, við hliðina á Ríkissjónvarpinu, s. 34780
Forréttur að eigin vali (innifalið)
Súpa dagsins
Fylltir tómatar „Provenscale"
Craflaxatoppur á grænum bala
Jurtakrydduð svartfuglsbringa
Eftirréttur að eigin vali (innifalið)
Blandaður ostadiskur
Vanilluís með ferskju