Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1991, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNl 1991.
Fréttir
Tímaritið Visbending:
Óvíst er að Landsbank
eigi fyrir skuldum
„Óvíst er að Landsbankinn stand-
ist 5 prósent eiginfjárákvæöi laga
þegar öll kurl koma til grafar og
gæti jafnvel farið svo að hann ætti
ekki fyrir skuldum," segir í nýút-
komnu tímaritinu Vísbendingu sem
Kaupþing gefur út. Þar er farið ofan
í saumana á stöðu bankanna.
Lög um banka og sparisjóði kveða
á um að hlutfall eiginfjár af heildar-
fjármunum fyrirtækisins, reiknað
eftir vissum reglum, skuli vera að
minnsta kosti 5 prósent. Hjá flestum
bönkum og sparisjóðum er hlutfallið
langt yfir þessu lágmarki en Lands-
bankinn og Sparisjóðurinn í Keflavík
standa tæpt. Eiginfjárhlutfall Lands-
bankans er samkvæmt skilgreiningu
laga 6,8 prósent. Ef frá eru dregin
nokkur atriði, sem gefur réttari
mynd, svo sem vantalin skuldbind-
Arðsemi eiginfjár bankanna 1989-1990
Landsbankinn
Búnaðarbankinn
íslandsbanki
SPRON
Sparisj. vélstj.
Sparisj. Hafnarfj.
Sparisj. í Kefl.
Meöaltai
H 1990
I I 1989
— p .
illii!
-
i
111111!
11111111111!
imi
0% 2% 4% 6% 8% 10% 12% 14% 16%
Arður banka og sparisjóða af eigin fé.
ing um eftirlaun, viðskiptavild vegna
kaupa á Samvinnubankanum og
söluverð hlutabréfa, sem ágreining-
ur er um, að mati Vísbendingar,
lækkar eigið fé bankans um rúman
milljarð. Eiginfjárhlutfallið verður
þá 5,5 prósent.
Ný áföll
Síðustu daga hefur komiö fram að
fallvölt fyrirtæki, Álafoss, Síldar-
verksmiðjur ríkisins og fiskeldisfyr-
irtæki, skulda Landsbankanum á
þriðja milljarð. Óvíst er, segir Vís-
bending, hve mikið fé hefur verið
lagt í dfekriftasjóð vegna þessara fyr-
irtækja en vafalaust mun ganga á
eigið fé bankans ef fyrirtækin falla.
Vísbending segir einnig að Lands-
bankinn hafi lánað langmest banka
til fyrirtækja í sjávarútvegi en þau
standa mörg hver tæpt. Með öam-
vinnubankanum hafi Landsbankinn
fengið mikið af lánum kaupfélaga en
nokkur þeirra eru illa stödd.
Visbending kemst því að þeirri nið-
urstöðu, að óvíst sé að Landsbankinn
standist 5 prósent eiginfiárákvæði og
óvíst að hann eigi fyrir skuldum eins
og sagt var að framan. Mönnum til
hugarhægðar segir að sparifé í bank-
anum sé ekki í hættu því að ríkið
ábyrgist það. Ennfremur segir að í
fyrra hafi bankinn getað lagt einn
og hálfan milljarð í afskriftasjóð án
þess að ganga í eigið fé og bendi það
til þess að Landsbankinn gæti staðið
undir allstórum áföllum á næstu
árum meö fé úr eigin rekstri.
-HH
Nú stendur yfir sýning á verkum barna úr umhverfismenntun. Það eru leik-
skólar og skóladagheimili Ríkisspitalanna sem standa að sýningunni sem
er í anddyri K-byggingar Landspítalans. Hún stendur yfir til 23. júní næst-
komandi. DV-mynd BG
Bankamir verjast gjaldþrotunum:
5 milljarðar til að
mæta töpuðum lánum
- þar af tveir og hálfur milljarður í fyrra
Bankarnir og sparisjóðirnir af-
skrifuðu eða settu í afskriftasjóð
tvo og hálfan milljarð króna í fyrra.
Þetta er 50 prósent meira en árið
áður á föstu verðlagi. Bankastofn-
anir hafa nú alls sett um fimm
milljarða króna í sjóði til aö mæta
útlánum sem búist er við að tapist.
Gjaldþrot hafa verið fleiri og
stærri undanfarin misseri en dæmi
hafa verið um áður.
Annað sem skýrir mikið framlag
í afskriftasjóðina er það að menn
eru í uppgjöri sínu farnir að viður-
kenna tap frá fyrri árum.
Hlutfall afskriftasjóðs af heildar-
eignum er hæst hjá íslandsbanka,
Landsbankanum og Sparisjóði
Reykjavíkur.
Ekkert lát er á gjaldþrotum. Bú-
ast má við að tjón af þeirra völdum
verði áfram mikið á næstunni.
-HH
I dag mælir Dagfari
Var Leifur norskur?
Ellefu nafnkunnir íslendingar hafa
sent frá sér mótmælaskjal vegna
þess uppátækis Norðmanna að
tengja nafn Leifs Eiríkssonar við
Noreg. í skjalinu segir meðal ann-
ars: „Vegna þess skringilega og
óprúttna tiltækis manna í Noregi
að leggja upp í siglingu yfir Atlants-
haf til Washington í Bandaríkjum
Norður-Ameríku í því skyni að
tengja nafn Leifs Eiríkssonar við
Noreg viljum við sem ritum nöfn
okkar hér undir mótmæla þessu
uppátæki Norðmanna. Einnig mót-
mælum við því bragði þeirra að
tengja nafn Leifs við fyrirbærin
vikinga og víkingaskip. Leifur Ei-
ríksson var íslendingur og heföi
borið íslenskt vegabréf ef slík skil-
ríki heföu tíðkast á hans dögum.
Leifur var íslenskur maður í landa-
leit en ekki sjóræningi. Víkinga-
heitiö er skandinavískur merkim-
iði og aldrei ætlaður íslendingum.
Það var og er sitt hvaö að vera ís-
lendingur eða vera Skandinavi."
Allt er þetta auðvitaö hárrétt hjá
mönnunum. Norðmenn hafa ekk-
ert með Leif að gera og við höfum
ekkert með víkinga að gera. Hvað
þá víkingaskip og þegar Gaia sighr
hér inn á ytri höfnina í Reykjavík
í minningu Leifs Eiríkssonar þá
eigum við að snúa okkur undan eða
gefa þessu skipi langt nef. Það er
okkur algjörlega óviðkomandi.
Norðmenn eru Norðmenn meðan
þeir búa í Noregi en þegar þeir eru
fluttir til íslands þá eru þeir íslend-
ingar. Enda er ellefumenningunum
fullkunnugt um að Leifur sótti um
vegabréfsáritun hér á landi og
hefði fengið íslenskt vegabréf ef
slík skilríki hefðu verið til í þá
daga. Leifi var hins vegar ekki
kunnugt um að vegabréf væru ekki
gefin út, svo hann sótti um en fékk
ekki. En það var ekki honum að
kenna heldur stjórnvöldum þess
tíma, sem ekki höfðu vit á því að
gefa út vegabréf til að Leifur gæti
sannað þjóðerni sitt.
Það er líka rétt hjá ellefumenn-
ingunum að íslendingar hafi ekki
verið víkingar. Það er söguleg stað-
reynd aö þeir voru góðir menn og
vænir og fóru aldrei í víking. Sög-
urnar af Agli Skallagrímssyni og
fleiri fornköppum eru mestallt lyg-
ar og sögufölsun, enda var Egill
ekki sjóræningi heldur íslendingur
sem lagðist í ferðalög, nokkurs
konar túristi síns tíma. Auk þess
drápu íslendingar heiðarlega og
drengilega ef þeir drápu annað fólk
sem auðvitað kom fyrir þegar ann-
að fólk varö á vegi þeirra í útlönd-
um. Þeir pyntuðu ekki fólk eða
særðu það heldur hjuggu af því
höfuðið í einu höggi og lýstu svo
viginu á hendur sér eins og sönnum
íslendingum sæmir. Nei, þeir voru
ekki víkingar heldur venjulegir ís-
lendingar.
Leifur heppni fann Vínland.
Hann var fyrstur hvítra mann til
að finna Ameríku og það var ein-
mitt vegna þess aö hann kom frá
íslandi. Hann hefði aldrei fundið
Ameríku ef hann hefði komiö frá
Noregi. Norðmenn voru flón og
Norðmenn voru víkingar en ekki
landleitarmenn eins og við íslend-
ingar. Norðmenn fundu ekki ísland
af því þeir voru landleitarmenn
heldur af því að þeir voru víking-
ar. En um leið og þeir fundu Island
hættu þeir að vera víkingar og
hættu að vera Norðmenn. Þá urðu
þeir góðir íslendingar en ekki
vondir Norðmenn. Þetta vitum við
af sögunni og þó að sagan hafi ver-
ið fölsuð þegar sagt var frá víking-
unum þá er hún ekki fölsuö þegar
sagt er frá Leifi heppna. Sérstak-
lega er ellefumenningunum kunn-
ugt um þetta, því þeir hafa lesið
íslendingasögurnar og þeir voru
sjálfir mættir á staðnum með Leifi
þegar Leifur fann Ameríku. Þeir
hefðu séð vegabréfið hans ef hann
hefði haft með sér vegabréf.
íslendingar eru hér með varaöir
við að skrifa undir eða styrkja ferð-
ir víkingaskipsins til Washington,
vegna þess að þetta er billegt trikk
hjá Norðmönnum til að eigna sér
Leif heppna sem alls ekki var
norskur og vildi aldrei vera norsk-
ur. Annars hefði hann orðið eftir í
Noregi eða farið aftur til Noregs.
Leifur kom aldrei til Noregs. Þess
vegna er hann kallaður Leifur
heppni. Hans heppni var ekki fólg-
in í því að finna Ameríku. Heppni
hans var sú að koma aldrei til Nor-
egs. Þess vegna er hann íslending-
ur.
Dagfari