Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1991, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1991, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991. Menning________________dv Myndir og músík Á sunnudaginn var efndi Listahátíð í Hafnarfirði til kammertónleika í listamiðstöðinni Hafnarborg, þar sem flytjendur voru flestir eða allir búsettir eða starf- andi í Hafnarfirði. Verkin voru öll fyrir píanó og einleikshljóðfæri, eins og stundum er sagt, enda þótt hlutverk píanósins í slíkum tvíleik sé yfirleitt sízt minna en einleikarans og svo hafi verið í meira en 200 ár. Þó að sónötur með píanó séu gífurlega stór partur af kammmertónbók- menntum og dijúgur hluti þeirra ætlaður borgara- stéttinni sunnar í álfu til heimilisbrúks, áður en raf- eindatæknin stórdró úr almennri tónlistariðkun, þá munu fæst þau verk, er nú lifa, ætluð áhugamönnum til skemmtunar. Þau eru öllu heldur tæknilega erfiö meistaraverk, er sloppið hafa gegnum gæðasíu sög- unnar. Fyrir vikið er löngu hætt að líta á þessa tón- grein sem skemmtitónlist. Það, ásamt funheitri sumar- sól, hefur vafalaust gert sitt til að draga úr aðsókn, því aö áheyrendur voru innan við hundrað talsins. Fyrst léku tveir kennarar úr Tónlistarskólanum í Hafnarfirði, Guörún Guðmundsdóttir, píanó, og Gunn- ar Gunnarsson, flauta, sem reyndar er skólastjóri þar, .Grande Sonate Concertante' Op. 85 í a moll frá 1825 eftir Friedrich Kuhlau. Kuhlau, sem var norður- þýzkur, en starfaði þroskaár ævinnar í Kaupmanna- höfn, kynntist Beethoven persónulega 1825. Kuhlau, sem var brennandi aðdáandi Beethovens og jafnframt snillingur í samkvæmiskeðjusöngvagerö, kvað hafa fengið kveðjuna „Ah, der groe Kanonier!" þegar þeir hittust fyrst. Það var því ekki illa til fundið að setja Vorsónötu Beethovens næst á eftir á tónleikaskrá. Kuhlau nefndu danskir samtímamenn Beethoven flautunnar og ekki að ófyrirsynju, því að mörg kamm- erverk hans gera ráð fyrir þessu mikla tizkuhljóðfæri ýmissa tíma. Gunnar blés sónötuna músíkalskt og örugglega, en ekki laust við, að lítið yrði úr eftirsókn- arverðum glæsibrag vegna hinnar erfiðu píanóraddar. Allegrokaflana hefði þurft að taka með trompi; í stað- inn féllu þeir nokkuö til jarðar með varfærnislegu tempóvah þeirra Guðrúnar, er hefði nærri því getað Tónlist Ríkarður Ö. Pálsson borið yfirskriftina Ahegretto quasi senza passione í fyrsta þætti. Tveir innfluttir Bretar, David Knowles, píanó, og Martin Frewer, fiðla, stóðu þvínæst að flutningi hinn- ar vel þekktu Vorsónötu Beethovens frá lokum fyrsta skeiðs tónskáldsins, þegar dregur úr áhrifum frá Haydn og Mozart og snemmrómantíska ,heróíska‘ stíl- tímabil hans er í burðarliðnum. Með glæsilega hljóðrit- un Ashkenazys og Perlmans í eyrunum er erfitt að una við verkið í meðförum annarra. Frewer og Know- les stóðu sig samt allþokkalega, enda þótt hröðu kafl- arnir næður ekki flugi frekar en hjá listamönnunum á undan. Verkið leið stórslysalaust áfram án meiri háttar viðburða, og maður beið hálfdottandi eftir að eitthvað mundi gerast, unz málverk eftir Svein Björns- son tók við sér í síðasta þætti og hrapaði niður af vegg meö flennidynk, sem hljómlistarmennirnir tóku hins vegar með sönnu, brezku jafnaðargeði. Spilamennskan færðist á hærra plan eftir hlé, þegar ungur klarínettleikari að nafni Ármann Helgason kom hressilega á óvart með fáguðum, innlifuðum og dýna- mískum leik í Fjórum íslenskum þjóðlögum Þorkels Sigurðssonar, er slagaði hátt í eftirminnilega hljóm- plötutúlkun eins kennara Ármanns, Einars Jóhannes- sonar. Samleikur Davids Knowles á píanó var með ágætum. Loks léku þeir félagar hina bráðfjörugu sónötu Pou- lencs frá 1962, og var Ármann þar ekki síðri, ef frá eru taldir nokkrir lágir tónar í byrjun hendinga í miðþætt- inum (Romanza), sem voru undarlega háir í intóna- sjón, en þó ávallt leiðréttir strax eftir fyrstu tilraun. Þaö er engin spurning, að Ármann (27) lumar á miklu, og væri vert að fylgjast með honum á næst- unni eftir þessa frammistöðu. Afmæli Eiríkur Elí Stefánsson Eiríkur Elí Stefánsson skrifstofu- stjóri, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, ersjöíugurídag. Starfsferill Eiríkur fæddist í Haga í Þjórsár- dal. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1943 og stundaði um skeið nám í byggingaverkfræði við HÍ. Eiríkur var kennari við Kvenna- skólann í Reykjavík 1945-47, var leigubílstjóri í Reykjavík 1946-55, skrifstofustjóri hjá Isarn hf. (Scan- ia-umboðinu), Landleiðum og loks Norðurleið hf. í Reykjavík frá árs- byrjun 1956. Fjölskylda Eiríkur kvæntist 31.12.1949 Guð- rúnu Ragnheiði Rögnvaldsdóttur Líndal, f. 16.6.1915, húsfreyju, en hún er dóttir Rögnvalds Hjartarson- ar Líndal, b. í Hnausakoti í Fremri- Torfustaðahreppi í Vestur-Húna- vatnssýslu, ogkonu hans, Þorbjarg- ar Guðmundsdóttur húsfreyj u. Sonur Ragnheiðar og stj úpsonur Eiríks er Grétar Hreinn Óskarsson, f. 3.3.1938, flugvélaverkfræðingur og framkvæmdastjóri Loftferðaeft- irlitsins, kvæntur Ingibjörgu Guð- -fmnu Haraldsdóttur, f. 19.4.1942, féhirði ASÍ, en börn þeirra eru Ei- ríkur Álmar Grétarsson, f. 14.8.1964, flugvélaverkfræöingwr hjá Flugleið- um í Reykjavík, Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir, f. 26.8.1966, háskóla- nemi, gift Ólafi Sverrissyni háskóla- nema og Haraldur Eyjar Grétars- son, f. 24.3.1969, háskólanemi. Systkini Eiríks: Guörún, f. 12.11. 1911, d. 19.8.1912; Guðrún, f. 19.3. 1914, d. 25.2.1943, kennari og hús- móðir; Sigurður, f. 3.2.1916, d. 29.11. 1916; Sigurður, f. 25.4.1918, d. 21:9. 1921; Jóhanna, f. 27.8.1919, húsmóð- ir á Seltjarnarnesi; Gestur, f. 8.12. 1923, verkfræðingur í Danmörku. Fósturbróðir Eiríks er Ágúst S.G. Hafberg, f. 30.6.1927, forstjóri í Reykjavík. Foreldrar Eiríks voru Stefán Sig- urðsson, f. 11.4.1885, d. 18.5.1927, bóndi í Haga, og kona hans, Jó- Eiríkur Eli Stefánsson. hanna Margrét Eiríksdóttir, f. 12.6. 1886, d. 23.6.1968, húsfreyja í Haga. Stefán var sonur Sigurðar Jóns- sonar, b. í Hrepphólum í Hruna- mannahreppi, og konu hans, Jó- hönnu Guðmundsdóttur húsfreyju. Jóhanna Margrét var dóttir Eiríks Jónssonar, b. í Fossnesi í Gnúp- veijahreppi, og konu hans, Guðrún- ar Jónsdóttur húsfreyju. Andlát Úlfar K. Þorsteinsson, Hraunbæ 6, er látinn. Margrét Árnadóttir Michelsen frá Kálfastöðum í Hjaltadal lést í Sönd- erborg, Danmörku, 14. júní sl. Hallsteinn Tómasson, Hraunbæ 156, Reykjavík, andaðist á Vífilsstöðum 17. júní. Einar Guðbjartsson, Eskihlíð 29, Reykjavík, lést á heimili sínu laugar- daginn 15. júní sl. Halldóra Jónsdóttir, Sæviðarsundi 40, Reykjavík, andaðist á heimili sínu aðfaranótt þriðjudagsins 18. júní. Gunnar Sigurmundsson prentari lést í Borgarspítalanum 18. júní. Kristín Aðalsteinsdóttir frá Lyng- holti andaðist á dvalarheimilinu Hlíö 16. júní. Ingólfur Guðmundsson (Bifreiða- verkstæðið Áki), Hólavegi 21, Sauð- árkróki, lést 16. júní. Svava G. Björnsdóttir, Mánagötu 9, lést í Landspítalanum þann 17. júní. Jarðarfarir Ottó G. Vestmann, Uppsölum, Fá- skrúðsfirði, lést að morgni 16. júní á heimili sonar síns. Jarðarförin fer fram frá Búðakirkju, Fáskrúðsfirði, laugardaginn 22. júní kl. 14. Kristin Finnbogadóttir Boulton frá Hítardal, andaðist í Norwich í Eng- landi hinn 15. júní. Bálfór hennar fer fram frá St. Barnabas-kirkju í Norwich fóstudaginn 21. júní. Minn- ingarathöfn í Reykjavík og greftrun í Hítardal verður auglýst síðar. Útfor Unu Jónsdóttur, Signýjarstöð- utíi, Hjarðarhaga 33, Reykjavík, fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 20. júní kl. 13.30. Alda Jensdóttir, Spóahólum 4, Reykjavík, lést í Landspítalanum sunnudaginn 16. júní. Útfórin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 21. júní kl. 10.30. Jón Stefánsson, Noröurbyggð 1C, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 20. júní kl. 13.30. Valgerður Bergþórsdóttir hjúkrun- arfræðingur, Ljósalandi 21, Reykja- vík, verður jarðsungin frá Bústaða- kirkju fimmtudaginn 20. júní kl. 15. Steinunn Hannesdóttir, Hofsvalla- götu 16, Reykjavík, sem lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, fostudaginn 14. júní sl., verður jarð- sungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík 21. júní kl. 13.30. Kristin Guðbrandsdóttir, áður til heimilis á Hverfisgötu 84, sem andað- ist í Sjúkrahúsi Suðurlands 12. júní sl., verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 20. júní kl. 13.30. Sigríður Ólafsdóttir, Kársnesbraut 76, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 20. júní kl. 15. Jarðarför Ingibjargar Þorsteinsdótt- ur frá Aöalbóli í Hrafnkelsdal, Snorrabraut 58, Reykjavík, verður gerö frá Fossvogskapellu fimmtu- daginn 20. júní kl. 15. Myndgáta dv Hjörtur Þorsteinsson, Eyri, Kjós, veröur jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fóstudaginn 21. júní kl. 13.30. Jón Guðbjörnsson bifreiðasmiður, Hátúni 6, verður jarðsettur frá Foss- vogskirkju í dag, 19. júní, kl. 13.30. Kristín Guðmundsdóttir lést 7. júní. Hún fæddist að Gerðum í Garði 13. september 1915, dóttir hjónanna Guðmundar Þórðarsonar og Ingi- bjargar Jónsdóttur. Kristín kvæntist Ingimundi Kristni Gestssyni en hann lést árið 1981. Þau hjónin eignuðust fjögur börn en þrjú dóu í fæðingu. Útfór Kristínar verður gerð frá Bú- staðakirkju í dag kl. 15. THkyimingar Nemendasýning Listdans- skóla Þjóðleikhússins Vetrarstarfi Listdansskóla Þjóðleikhúss- ins lýkur með nemendasýningu í Borgar- leikhúsinu í kvöld, 19. júni, kl. 20. Þar gefst foreldrum nemendanna og öllum almenningi kostur á að sjá afrakstur vetrarins og hjá eldri flokkunum afrakst- ur undangenginna ára. Að meðaltali hafa verið um 110 nemendur í skólanum í vetur og hafa auk skólastarfsins tekið þátt í nokkrum sýningum í vetur. Á nem- endasýningunni í Borgarleikhúsinu í kvöld verða sýnd atriði frá skólasýning- um í vetur auk nýrra atriða. Um 50 nem- endur, aðallega úr úrvalsflokkum skól- ans, taka þátt í þessari sýningu en kenn- arar skólans hafa samið dansana. Á Uðn- um vetri störfuðu eftirtaldir kennarar við skólann: Hlíf Svavarsdóttir, María Gísla- dóttir, Nanna Ólafsdóttir, Margrét Gísla- dóttir og Sylvia von Kospoth, auk skóla- stjórans, Ingibjargar Bjömsdóttur. Ný inntökupróf verða haldin í byrjun sept- ember og verða auglýst þegar þar að kem- ur. Ættarmót afkomenda Orms Ormssonar og Helgu Kristmundardóttur, verður haldið á Breiðabliki helgina 21.-23. júní. Dagskrá hefst á laugardag kl. 14. Grillveisla um kvöldið. Tjaldstæði á svæðinu. Erum flutt Neytendafélag Suðumesja hefur opnað skrifstofu að Hafnargötu 90, 2. hæð, (Dropinn, Keilavík). Skrifstofan er opin þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13-16. Sími 15234. Húnvetningafélagið Félagsvist í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30 í Húnabúð, Skeifunni 17. Allir vel- komnir. Félag eldri borgara Opið hús í Risinu, Hverfisgötu 105, frá kl. 13-15. Bridge og fijáls spilamennska. Berlín heiðrar konur í tilefni af Kvenréttindadegi íslands, þann 19. júní, en þann dag fyrir 76 árum fengu konur fyrst rétt til að kjósa til Al- þingis, ætlar skemmtistaðurinn Berlin að gleðja konur með spili og söng á sjálf- an hátíðardaginn, þann 19. júní. Um kl. 22.30 mun stíga á svið píanótríó Eddu Borg. Tríóið skipa Pétur Grétarsson á trommur, Þórir Baldursson á píanó og hin söngelska Edda Borg. Þeim til full- tingis verður kontrabassa-séníiö Bjarni Sveinbjörnsson. Aðgangur er ókeypis. Ættarmót afkomenda Orms Ormssonar og Helgu Kristmundardóttur verður haldið á Breiðabliki helgina 21.-23. júní. Dagskrá hefst á laugardag kl. 14. Grillveisla verð- ur um kvöldið og er fólk beðið að hafa með sér grill, kol og grillmat. Tíaldstæði em á svæðinu. Hjónaband 18. maí vom gefin saman í hjónaband af sr. Tómasi Sveinssyni í Háteigskirkju Ólöf A. Þorbergsdóttir og Þórir Stein- arsson, Vallargötu 3, Flateyri. Brúðar- meyja var Elva R. Antonsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.