Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1991, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991.
5
Fréttir
Sveinn Sveinsson hreinsar grásleppunetin eftir lélega vertið. DV-mynd GVA
* Hríseyjarferjan Sævar:
Við þurf um oft að
skilja f ólk eftir
- segir Smári Thorarensen skipstjóri
Gylfi Kiistjánsson, DV, Aknreyri:
Farþegar með Hríseyjarferjunni
Sævari voru tæplega 50 þúsund á
síðasta ári og vanþað metár. Ekki
er víst að það met verði langlíft og
sem dæmi um aukninguna má nefna
að í maí á síðasta ári voru farþegar
3800 en í sama mánuði á þessu ári
urðu farþegar 5300 talsins. „Það
stefnir í enn eitt metið,“ sagði Smári
Thorarensen skipstjóri er DV ræddi
við hann á dögunum.
Smári sagði að fjórir menn væru í
áhöfn ferjunnar og eru tveir þeirra
að störfum hverju sinni. Langmest
er að gera yfir sumartímann og
ferðamenn eru þá oft fjölmennir um
borð. „Við þurfum að fá nýjan bát
því að það hefur komið fyrir að við
höfum ekki komið öllum fyrir og
orðið að skilja fólk eftir,“ sagði
Smári.
Hríseyjarferjan Sævar er 29 tonna
skip og er í forum milli Árskógssands
og Hríseyjar á tveggja tíma fresti alla
daga. Siglingin út í eyjuna tekur ekki
nema um 15 mínútur og fer vel um
farþegana.
Grenivlk:
Fengu björgunarbát að gjöf
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta er góð gjöf enda er nauðsyn-
legt fyrir okkur að eiga svona tæki,“
segir Ásgeir Kristinsson, varaform-
aður björgunarsveitarinnar Ægis á
Grenivík um björgunarbát sem sveit-
in fékk að gjöf fyrir skömmu.
Það voru aðstandendur Þorsteins
Þórhallssonar og vinir hans sem gáfu
bátinn en Þorsteinn fórst í sjóslysi í
janúar sl. Báturinn ber nafnið Steini
Þórhalls og tekur 10 menn. Hann er
búinn 30 hestafla vél og honum
fylgdu fjórir björgunargallar.
Strandir:
Ferðafólk teppist vegna snjóa
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Á Ströndum er nú kalt og nýfallinn
snjór niður í miðjar hlíðar. Ferða-
fólk, sem kom til Gjögurs fyrir
nokkrum dögum komst ekki vegna
snjóa í Veiðileysukleif og víðar. En
síðan var mokað svo að fólkið komst
leiðar sinnar.
Barnaskóhnn á Finnbogastöðum
verður gististaður fyrir ferðamenn í
sumar eins og undanfarin ár. Þar er
góð aðstaða, sjónvarp, eldunarað-
staða og svefnpokapláss fyrir 20-30
manns.
„Afspyrnuléleg
grásleppuvertíð"
„Þetta var afspyrnu léleg grá-
sleppuvertíð. Við höfðum tæpar níu
tunnur af hrognum upp úr krafsinu
sem er mjög slappt," sagði Sveinn
Sveinsson, grásleppukarl á Vopna-
firði, í samtali við DV.
Sveinn var búinn að taka upp net
sín og var að hreinsa þau við gamalt
íbúðarhús, sem hann notar sem veið-
arfærageymslu, þegar DV bar að
garði.
Sveinn sagði hins vegar að hand-
færavertíðin, sem nú gengur í garð,
legðist vel í hann og fiskurinn gæfi
sig örugglega þegar norðanáttinni
slotaði.
-Pá
Panasonic
VHS MOVIE
VIDEOTOKUVEL
Nýja Panasonic NV-Gl videotökuvélin
færir þig nær raunveruleikanum bæöi hvaö varðar myndgæði
og verð, hún er einföld í notkun, með fullkomnum sjálfvirkum
fókus og vegur aðeins um 900 grömm. Komið og kynnist
þessari nýju og frábæru vél því sjón er jú sögu ríkari.
&XZO0M
DIGITÁL /\\ AF
LIGHTWEIGHT
&
COMPACT
3Lux
JAPISð
BRAUTARHOLTI 2 OG KRINGLUNNI
SÍMI 625200