Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1991, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991.
31
Veiðivon
Sá stærsti á þessu sumri:
22 punda lax í
Laxá í Aðaldal
Jón Þ. Jónsson með 11 punda lax úr Norðurá i Borgarfirði sem hann veiddi
fyrir fáum dögum á maðkinn. Áin hafði gefið 158 laxa í gærkveldi.
DV-mynd ÁGG
„Veiðin hefur verið róleg síðan við
opnuðum hérna á Nessvæðinu í Laxá
í Aðaldal og eru komnir aðeins tveir
laxar en hann er 22 pund sá stærsti,"
sagði Völundur Hermóðsson í Nesi í
Aðaldal í gærkveldi.
„Það var Sveinn Trausti Haralds-
son sem veiddi 22 punda fiskinn á
maðk og Sveinn veiddi hinn fiskinn
{ líka, 8 punda lax sem tók einnig
maðkinn. Veðurfariö hefur batnað
hérna í Aðaldalnum síðustu daga og
{ úr Laxá í Aðaldal eru komnir um 50
laxar,“ sagði Völundur í lokin.
' Flókadalsá gaf tvo laxa fyrsta
hálfa daginn
„Þeir voru tveir laxarnir sem komu
þennan fyrsta hálfa dag og það er
bara allt í lagi, 14 og 10 pund á maðk-
inn,“ sagði Ingvar Ingvarsson á
Múlastöðum í gærkveldi en Flóka-
dalsá í Borgarfirði var opnuð eftir
hádegi í gær.
„Við sáum töluvert af laxi á svæði
tvö en það var ekki gott veiðiveður
þennan fyrsta hálfa dag. Ég hef aldr-
ei séð svona mikiö af fiski í Flóku í
opnun og margir af þessum fiskum
eru vænir. Ég veiddi þennan 14
punda á Pokabreiöunni og þar sá ég
20-30 laxa torfu. Fyrri laxinn kom
| um fimmleytið. Við erum hress með
þessa opnun í Flóku og laxinn verður
jafnvel í meira tökustuði í fyrramál-
. ið, viö skulum vona það,“ sagði Ing-
' varsemætlaðiaðrennastraxímorg-
unsárið fyrir lax í Flóku.
Tveir stórlaxar fóru af á sama
tíma í Norðurá
„Þetta er allt saman að koma til í
Norðurá og 158 laxar eru komnir á
land á þessari stundu," sagði Halldór
Nikulásson veiðivörður í gærkveldi.
„Veðurfarið var dýrðlegt hérna í
dag og var 29 stiga hiti í forsælu.
Þetta er kannski ekki mikið veiðiveð-
ur. Hollið sem hætti á hádegi í dag
veiddi 19 laxa og hann var 15 pund
sá stærsti. Það var Gunnar Petersen
yngri sem veiddi fiskinn á maðk í
Klettskvörn. í fyrrinótt fóru 45 laxar
í gegnum Laxfoss svo þetta er allt að
koma þótt það væri ekki verra þótt
færi að rigna. Það eru komnir 158
laxar á land með Munaðarnessvæð-
inu. í kvöld var fjör í Norðurá því
næstum á sama stað var sett í stór-
fisk á tveimur stöðum. Þetta gerðist
á Eyrinni og í Myrkhyl en þeir fór
báðir af,“ sagði Halldór ennfremur.
Fyrsti laxinn var maríulax í
Haukadalsá
„Það kom einn lax á land þennan
fyrsta hálfa veiðidag og það var mar-
íulax,“ sagði Torfi Asgeirsson í veiði-
húsinu við Haukadalsá í gærkveldi.
„Veiðimaðurinn, sem veiddi þenn-
an maríulax, heitir Bergþór Berg-
þórsson og veiðistaðurinn heitir
Dallur, fiskurinn tók maðk hjá hon-
um. Hann setti í annan lax en missti
hann eftir snarpa baráttu. Það eru
nokkrir laxar í Kvörninni en þeir eru
ljónstyggir, blessaðir,“ sagöi Torfi í
lokin. -G.Bender
í iHgling 1
borbeldavél
20 lítra ofn
meb undir- og yfirhita
oq grillelementi.
2 heilur, 15 og 18 cm.
HxBxD: 32x58x34 cm.
VERÐ AÐEINS
KR. 18.840,- stgr.
/rQnix
^ÁTÚN^^ÍMK^1^442^|
GMC Jimmy '84, 6,2, dísil,
sjálfsk., gullfallegur bill, ek.
76.000 m.
Ford Econolino '90, 250, 7,3, dls-
II, furbo, m/spili, köslurum og
öllum aukahlutum.
Geitabergsvatn í Svínadal:
Þrír sjö punda
urriðar á land
„Það hefur verið fjör á bökkum
Geitabergsvatns síðustu vikurnar og
vænir urriðar hafa komið á land,
þrír 7 punda hafa veiðst með stuttu
millibili," sagði veiðimaður sem
renndi um helgina í Geitabergsvatni
en hafði ekki árangur sem erfiði.
„Þessir stórfiskar tóku Devon, ís-
landsspún og tóbý. Það eru til rosa-
lega vænir fiskar í vatninu og mér
kæmi ekki á óvart þótt stærri fiskur
veiddist næstu daga,“ sagði veiði-
maðurinn í lokin.
-G.Bender
Fjölmiðlar
Sólskin í fréttum
Veöurfréttir og sólarmyndir voru
skemmtilegasta og athyglisverðasta
sjónvarpsefhi gærdagsins. Skæl-
brosandi veðurfræðingar sóðandi
sólum út um allt kort sanna áhorf-
andanum að þrátt fyrir allt sé von
í þessu landi. Það er ekki oft sem
veöurfræðingarair fá tækifæri til
að vera boðberar góðra tíðinda á
skjánum og slá í gegn. Eftir tvo
fréttatíma í beit dag eftir dag, sem
fjalla að mestu um útlendar nátt-
úruhamfarir og íslenskar peninga-
hamfarir, er ekki óeðlilegt að brúnin
lyftist á landanum þegar gott veður
er til umfjöllunar eftir hamfariraar.
Þaö hefúr stundum hvar flað að
manni að setja ætti hörmungar-
kvóta á fréttír. Taka til dæmis að-
eins fyrir eitt gjaldþrot á dag og síö-
an ljúka fréttatímanum með ein-
hverju bjartsýnistali til sáluhjálpar.
Hálfrar klukkustundar fréttatími,
sem fjallar að mestu um hrun í fisk-
eldi, loðdýraeldi, fiskvinnslu og ull-
arvinnslu, er of stór skammtur ofan
í fólk sem berst á heimavigstöð vum
við vaxtahækkanir húsnæöislána
og hækkandi framfærslukostnaö.
Reyndar er þaö svo aö peningar,
eða öllu heldur peningaleysi, viröist
vera aðalmálefhi þessarar litlu þjóð-
ar þegar litið er yfir fféttamatiö.
Ráöherrar og fjármálasérfræðingar
þjóðarinnar fylla út í skjáinn aftur
og aftur ogtalaí tölum sem enga
merkingu hafa fy rir fólk sem veit
ekki einu sinni hvað miUjaröur er
enda hefur það enga viðmiöun úr
sínu daglega lifi. Milljarðahrun í
einni atvinnugreininni gleymist eft-
ir viku þegar næsta atvinnugrein
hrynur og svo koll af kolli. Svona
gengur þetta árið út og ekkert breyt-
ist. Þá er fátt eins upplífgandi og
heiðbjart veðurkort og brosandi
veðurfræðingur.
Jóhanna Á.H. Jóhannsdóttir
AMC Jeep Comanche pickup,
m/húsi, 4.01 - 6 cyl., eínn m/öllu,
álfelgur, stór dekk.
M. Benz 500 SE ’80, ek. 139.000,
með öllu, ABS.
Oskum eftir hjólhýsum
og tjaldvögnum til sölu
Frúin hlær i betri bíl...
Veður
Breytileg átt, sums staðar verður gola eða kaldi sið-
degis en annars hægari og víðast léttskýjað. Hiti
verður viðast 15-20 stig i dag.
Akureyri léttskýjað 6
Egilsstaöir léttskýjað 11
Keflavíkurflugvöllur léttskýjað 9
Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 13
Raufarhöfn hálfskýjað 6
Reykjavik þokumóða 10
Vestmannaeyjar léttskýjað 8
Bergen alskýjað 11
Helsinki skýjað 11
Kaupmannahöfn skúr 12
Úsló rigning 9
Stokkhólmur skýjað 10
Þórshöfn skýjað 8
Amsterdam rigning 10
Barcelona léttskýjað 14
Berlin léttskýjað 11
Feneyjar þrumuveður 13
Frankfurt rigning 9
Glasgow skýjað 10
Hamborg þokumóða 10
London rigning 10
LosAngeles alskýjað 17
Lúxemborg súld 8
Madrid heiðskírt 11
Malaga alskýjað 20
Mallorka skýjað 12
Montreal léttskýjað 19
Nuuk þoka 3
París alskýjaó ‘ 9
Róm léttskýjað 19
Valencia skýjað 14.
Vín alskýjað 11
Winnipeg léttskýjað 15
Gengið
Gengisskráning nr. 113. -19. júní 1991 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Doliar 63,170 63,330 60.370
Pund 101,893 102,151 104,531
Kan. dollar 55,264 55,404 52,631
Dönsk kr. 9,0424 9,0653 9,2238
Norsk kr. 8,9135 8,9361 9,0578
Sænsk kr. 9,6465 9.6709 9,8555
Fi. mark 14,7010 14,7382 14,8275
Fra. franki. 10,2640 10,2900 10.3979
Belg. franki 1,6945 1,6988 1.7168
Sviss. franki 40,5456 40,6483 41,5199
Holl. gyllini 30,9649 31,0434 31.3700
Vþ. mark 34,8842 34,9725 35,3341
It. líra 0,04687 0,04699 0,04751
Aust.sch. 4,9559 4.9684 5,0239
Port. escudo 0,3964 0,3974 0,4045
Spá. peseti 0,5546 0,5560 0,5697
Jap. yen 0,44844 0,44958 0,43701
irskt pund 93,302 93,538 94,591
SDR 82,6820 82,8914 81,2411
ECU 71,6221 71,8036 72,5225
Fiskmarkaðinúr
Faxamarkaður
18. júní seldust alls 85,783 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meöal Lægsta Hæsta
Blandað 0,128 32,25 24.00 46,00
Karfi 6,560 35,74 33,00 40,00
Keila 0,389 35,00 35,00 35,00
Langa 0,127 49,00 49,00 49,00
Lúða 0,809 205,91 100.00 250,00
Steinbitur 0,038 58,00 58.00 58,00
Þorskur.sl. 63,756 81.68 78,00 84,00
Ufsi 0,658 39,99 38,00 78,00
Undirmál 3,671 56,81 38,00 78,00
Ýsa, sl. 9,647 112,47 85,00 118,00
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
18. júni seldust alls 216,596 tonn.
Smáufsi 0,385 37,00 37,00 37,00
Lúða 0,443 131,93 100,00 175,00
Grálúða 23,847 78,22 76,00 80,00
Ýsa 34.571 95,19 91,00 98,00
Ufsi 70,072 52,93 51,00 53,50
Þorskur 80,153 83,93 69,00 89,00
Koli 2,299 62,90 35,00 72,00
Karfi 4.824 37,32 36,00 38,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
18. júni seldust alls 46,148 tonn.
Undirmál 0.142 76,00 76,00 76,00
Langlúra 0,053 55,00 55,00 55,00
Langa 0,407 25,68 20,00 50,00
Keila 0,404 28,16 24.00 30,00
Steinbítur 0.556 43,33 38,00 58,00
Lýsa 0,109 15,00 15,00 15,00
Öfugkjafta 0,599 28,00 28,00 28,00
Karfi 4.803 37,06 15,00 41,06
Ýsa 1,538 91,38 70,00 110,00
Náskata 0,045 5,00 5,00 5,00
Lúða 0,063 295,00 295,00 295,00
Koli 0,444 60,00 60,00 60,00
Ufsi 12,552 48.44 44,00 55,00
Skata 0,073 87,52 86.00 89,00
Þorskur 23,536 85,82 76,00 100,00
Skötuselur 0,235 270,21 185.00 425,00
Skarkoli 0,589 49,00 49,00 49,00
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI • 653900