Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1991, Side 32
w
Fyrir besta fráttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 2/Ö22
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Frjálst, óháð dagblað
MIOVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991.
Jón Baldvin Hannibalsson:
EB gafst upp
á kröf um um
veiðiheimildir
Jón G. Hauksson, DV, Lúxemborg:
„Mesti árangurinn af þessum fundi
var sá aö hann fór ekki út um þúfur.
Ég hef samt alla fyrirvara á hinni
endanlegu niöurstöðu þar sem enn
geta mál hlaupið í baklás. En takist
þetta eins og nú stefnir í er ég ekki
í nokkrum vafa um að þegar menn
líta til baka að nokkkrum árum liðn-
um verður þetta talinn einhver mesti
samningsárangur sem íslendingar
hafa náð í alþjóðlegum samningum,"
sagði Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra við DV eftir ráð-
herrafund EFTA og Evrópubanda-
lagsins um evrópska efnahagssvæð-
ið, EES, í Lúxemborg í gærkvöld.
„Það komu fram tillögur varðandi
öll hin stóru ágreiningsmál sem eftir
voru, þar á meðal sjávarútvegsmál.
Þessum tillögum, sem liggja fyrir
núna og eru settar fram með skilyrð-
um, hefur almennt verið vel tekið en
þó með fyrirvörum um nánari út-
færslu.“
- í hverju fólst sú lausn sem skyndi-
lega kom upp á borðið í gærkvöld?
„Norðmenn komu með tillögu í
sjávarútvegsmálum sem þótti nógu
athyglisverð af hálfu EB til að henni
væri tekið jákvætt meö fyrirvörum.
Hún er skilyrt því að EFTA-ríkin fái
tollfrjálsan aðgang með sjávarafurð-
ir að mörkum EES og sameiginlega
hafa Norðmenn og íslendingar fyrir-
vara gegn fjárfestingarrétti í fisk-
veiðum og frumvinnslu. Að því er
okkur íslendinga varðar hafa EB-
ríkin gefist upp á kröfum um einhliða
veiðiheimildir.“
Eldur við Hvalstöðina:
Björguðu rosknum
mannifrátjóni
Eldur kviknaði í íbúðarskála við
Hvalstöðina í Hvalfiröi laust eftir
miðnættið í gærkvöldi. Roskinn
maður, sem er matsvein á staðnum,
svaf innandyra þegar mikill reykur
breiddist út um íbúðina frá raf-
magnstöflu. Tvær konur voru á ferð
í bíl á þjóðveginum skammt frá og
sáu þær reyk leggja frá húsinu. Fóru
þær á staöinn og knúðu dyra. Þegar
ekkert svar fékkst börðu þær af
krafti á gluggana. Við það vaknaði
íbúinn og kom út. Hann sakaði ekki.
Slökkviliðsmenn voru við störf
skammt frá og var strax kallað í þá.
Um hálftíma tók að ráða niðurlögum
eldsins sem átti upptök sín í raf-
magnsinntaki. Að sögn Eyjólfs Jóns-
sonar slökkviliðsstjóra er mjög
sennilegt konurnar tvær hafi komið
í veg fyrir mikið tjón - aö minnsta
kosti sé ljóst að þær hafi bjargað
manninum frá því að hljóta skaða af.
-ÓTT
LOKI
Það er svo sem allt í lagi
að hleypa Spánverjum í
marhnútana!
Skipta
kvóta við EB
„Islendingar skipta á veiðiheim-
ildum við Evrópubandalagið. Þeir
láta Spánverja og Portúgala fá
kvóta í íslenskri fiskveiðilögsögu
en fá jafnmikinn kvóta í staöinn
ur grænlenskri fiskveiðilögsögu...
íslendingar munu af sinni hálfu
gera samkomulag við EB í sjávar-
útvegsmálum, nokkuð sem þeir
hafa ekki gert, sem grundvallast á
gagnkvæmum kvótaskiptum upp á
3 þúsund tonn. í staðinn leyfa Evr-
ópubandalagsríkin tollfrjálsan inn-
ílutning á fiski og fiskafurðum frá
1. janúar 1993,“ segir i fréttaskeyt-
um fá Reuters- og Ritzau-fréttastof-
unum í morgun þar sem fjallaö er
urn ráðherrafund EFTA og- Evr-
ópubandalagsins sem lauk í Lúx-
emborg í gærkvöld.
Hvorki Jón Baldvin Hannibais-
son utanríkisráðherra né Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra vildu tjá sig um tillögur þær
í sjávarútvegsmálum, sem bornar
voru fram á fundinum en Evrópu-
bandalagið hefur nú til skoðunar.
| skeytum fréttastofanna segir aö
íslendingar og Norðmenn hafi
komið hvorir með sína tillöguna í
sjávarútvegsmálum. Það er einnig
haft eftir utanríkisráðherra Lúx-
emborgar að samningsvilji íslend-
inga og Norðmanna í þeim málum
hafi bjargað fundinum frá því að
leysast upp.
DV spurði Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðaherra í nótt
um tvíhliða samninga við EB um
gagnkvæmar veiðiheimildir við Is-
land.
„Evrópubandalagið hefur sagt aö
það vilji taka slikar viðræður upp
án skilyröa. Við höfum ekki hafhað
slíkum viðræðum en þær áttu sér
stað milli aðalsamningamannanna
fyrir nokkrum dögum. Þeim er
ekki lokið og ekki hægt að slá því
föstu hver útkoman verður. íslend-
ingar hafa aldrei hafnað þeim
möguleika að ræða einhverjar
minniháttar veiðiheimildir á gagn-
kvæmnisgrundvelli ef það þjónar
hagsmunum beggja aðila,“ sagði
Jón Baldvin við DV í nótt.
-JGH Lúxemborg/Reuter/Ritz-
au/hlh
Þorsteinn Pálsson:
Ekki niður-
staða í f isk-
veiðimálið
I
Jón G. Hauksson, DV, Lúxemborg:
„Á þessum fundi fengum við ekki
niðurstöðu í fiskveiðimálið og að því
leyti fór fundurinn á annan veg en
við höfðum vænst. Um tíma leit út
fyrir að fundurinn færi út um þúfur
en á lokastigi hans varð hreyfmg þar
sem Norðmenn opnuðu fiskveiði-
málið af sinni hálfu. EB tekur þá til-
lögu nú til skoðunar. Þetta gerir að
verkum að meiri líkur en áður eru á
því að ásættanleg niðurstaða fáist. Á
þessum fundi kom fram meiri skiln-
ingur á sérstöðu íslands. Það er ekki
lengur verið að þrýsta á okkur með
veiðiheimildir í staðinn fyrir aðgang
að mörkuðum. Það gefur vonir án
þess að ég segi neitt fyrirfram,“ sagði
Þorsteinn Pálsson eftir EFTA-EB
fundinn í Lúxemborg í gærkvöld.
- Ert þú tilbúinn að veita einhverjar
gagnkvæmar veiðiheimldir og gera
tvíhliða samning við EB þar um?
„Það hefur aldrei verið útilokað af
okkar hálfu en EB hefur hins vegar
ekki haft mikinn áhuga á því. Banda-
lagið hefur verið með kröfur um ein-
hliða 'æiðiheimildir en á þessum
fundi \.það ekki að þrýsta á okkur
með þær.“
Jaröskjálftar snemma í morgun:
Mestu skjálftarnir á
t
i
t
t
35 ára búskaparferli
- sagðiFinnbogiVikaraðHjallaíÖlfusi
Armurinn á línuritinu tók stór stökk á jarðeðlisfræðideild Veðurstofunnar i
morgun. Stóru skjálftarnir, sem mældust 3,1-4,0 og áttu upptök sín í Ölf-
usi, fundust einnig á höfuðborgarsvæðinu. DV-mynd GVA
„Maður sefur ekki fyrir þessu
hérna - skjálftarnir vekja mann allt-
af. Við erum búin að búa hér í 35 ár
og ég held að þetta hafi verið það
mesta sem hefur fundist hér á því
tímabili. Það hafa orðið einir fimm
skjálftar frá því í gærkvöldi. Þaö kom
einn klukkan níu, annar um mið-
nætti og síðan þrír í nótt og morgun.
Við vöknuðum um hálfsjöleytið. Það
hristist það mikið. Samt skemmdist
ekkert því skjálftinn var það mjúk-
ur,“ sagði Finnbogi Vikar, bóndi að
Hjalla í Ölfusi, í morgun. Einmitt á
þessum slóðum, skammt frá Ölfusá,
er talið að tveir snarpir jarðskjálftar
hafi átt upptök sín um klukkan hálf-
sjö í morgun.
Barði Þorkelsson hjá jarðeðlis-
fræðideild Veðurstofunnar sagði við
DV að jarðskjálftahrina heföi staðið
yfir frá því aðfaranótt 17. júní - frá
neðanverðu Ölfusi til norðausturs og
upp fyrir Búrfell í Grímsnesi. Einn
af fyrstu skjálftunum mældist þá 2,8
á Richterskvarða.
„Skjálftarnir hafa fundist hjá mjög
mörgum á svæðinu í morgun og allt
til Reykjavikur. Ansi margt fólk sem
vaknaði hefur veriö að hringja til
okkar og láta vita,“ sagði Barði í
morgun. Hann telur sennilegt að
stærstu skjálftarnir séu gengnir yfir.
íbúi á Selfossi sagði að kona hans
og 4 börn heföu öll vaknað við skjálft-
ann um hálfsjöleytið: „Þetta byrjaði
eins og stór vörubíll væri á ferð fyrir
utan húsið - síðan fór allt aö hrist-
ast,“ sagði heimilisfaðirinn. Starfs-
maður á Hótel Örk í Hveragerði sagði
að tölvuskjárinn sinn hefði hrist í
stærsta skjálftanum og glös hreyfst
úr stað.
„Það kom hvinur á undan. Ekkert
færðist úr stað mér vitanlega en það
hrikti töluvert í húsinu. Skjálftarnir
eru hafa fundist undanfarna daga,“
sagöi Ingibjörg Eyþórsdóttir í Kald-
aðarnesi í morgun. Sá bær er
skammt frá Hjalla og á svæðinu þar
sem upptök stóru skjálftanna voru.
-ÓTT
Veöriö á morgun:
og
bjart veður
Á morgun verður hægviöri eða
vestangola. Skýjað verður með
köflum og sums staðar þokumóöa
vestanlands. Þokubakkar verða á
annesjum norðanlands en annars
léttskýjað eða heiöskírt. Hiti
verður á bilinu 10-20 stig, hlýjast
í innsveitum.
QtBlL ASrö
A/
ÞRÚSTIIR
68-50*60
VANIR MENN
t
í
t
t
t
t
t
t