Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1991, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1991.
39
Veiðivon
Bjarni Júlíusson veiddi þessa 8
punda hrygnu á Þingeying nr. 8 og
tók fiskurinn í hyl sem nefnist M-804
í Kjarránni.
Eins og við greindum frá i gær hófst veiðin í Flókadalsá í Borgarfirði i gærdag og á myndinni sést Ingvar Ingvarsson
á Múlastöðum glíma við fyrsta laxinn úr ánni í sumar. Fimm laxar veiddust þennan opnunardag.
Þverá og Kjarrá rjúfa 300
laxa múrinn á naestunni
„Veiðitúrinn í Kjarrá gekk vel og
hollið veiddi 44 laxa, hann var 15
pund sá stærsti, veiddur á flugu,“
sagði Þórarinn Sigþórsson tann-
læknir en hann var að koma úr
Kjarrá í fyrrdag.
„Við Sigmar Bjömsson vorum
saman með stöngina og fengum 25
laxa sem verður að teljast ágætt
þessa dagana í veiði. Það var ekki
mikið af laxi í ánni og þessir fiskar,
sem við veiddum, voru ekki með lús.
Laxarnir komu í torfum í ána og
héldu sig í hópum. Kannski var einn
hylurinn með 20-30 laxa um kvöldið
en morguninn eftir voru þeir allir
komnir ofar í ána. Þeir héldu sig í
hópum og virðast hafa aflúsað sig
niðri í Þveránni. Það er ekki mikið
vatn í Kjarrá eins og er, það verða
vandræði ef ekki fer að rigna innan
tíðar. Hér væri ördeyða ef netaveiði
hefði ekki verið hætt í Hvítá. Ég held
að Þverá og Kjarrá eigi eftir að fá
mest út úr netaupptökunni í Hvítá,“
sagði Þórarinn í lokin.
Þverá og Kjarrá ijúfa 300 laxa
múrinn næstu klukkutímana sem
þykja tiðindi í stangveiðiheiminum
þessa dagana.
-G.Bender
Margar veiðiár opnaðar í dag:
„Mætti vera meira
vatn í Laxá í Dölum"
- segir Gunnar Bjömsson kokkur
Gunnar Björnsson hefur kokkað of-
an í veiðimenn í Laxá i Dölum í
mörg ár en líka fengið marga laxa
til að taka agnið.hjá sér þess á milli.
DV-mynd PBB
„Það er nóg að gera að standsetja
áður en fyrstu veiðimennirnir koma
og renna í Laxá í Dölum eftir matinn
á morgun. En veiðin byijar klukkan
flögur þennan fyrsta veiöidag sum-
arsins," sagði Gunnar Björnsson,
kokkur í veiðihúsinu Þrándargih við
Laxá í Dölum, í gærdag en áin verður
opnuð í dag.
Þær eru margar veiðiárnar sem
verða opnaðar í dag og næstu daga.
Þetta eru veiðiár eins og Korpa,
Brynjudalsá, Miðá í Dölum, Langá,
tvö efstu svæðin, Gljúfurá, Húseyjar-
kvísl, Sogið, Stóra-Laxá í Hreppum,
Ölfusá og Rangárnar, svo að fáeinar
sé taldar.
„Við höfum aðeins kíkt en ætlum
að gera það seinni partinn í dag þeg-
ar fleiri veiðimenn verða komnir.
Það hefur aðeins dregið fyrir sólu
þessa stundina og ekki væri verra
þó það færi að rigna," sagði Gunnar
kokkur og hélt áfram að laga til fyrir
veiðimennina.
-G.Bender
Arnar-
vatns-
heiðin að
opnast
Veiðimenn, sem ætla upp á
Arnarvatnsheiöi til veiði, geta
tekið gleði sína. Á hádegi á morg-
un verður byrjað að selja veiði-
leyfi á heiðina á Húsafelh. DV
hefur frétt að mikih áhugi séfyr-
ir Arnarvatnsheiðinni eins og
áður. Veiöimenn munu því fjöl-
menna næstu vikurnar á Arnar-
vatnsheiöi til að renna fyrir sil-
unginn.
-G.Bender
Fjölnúölar
Islenskt útvarp
Ríkisútvarpið rás 2 með Stefán
Jón í fararbroddi boðar nú íslenskt
tónlistarsumar. Tónhstarsumrinu
var hleypt af stokkunum á þjóðhá-
tiðardaginn en þá var eingöngu leik-
in islensk tónlist á rásinni. Mennta-
málaráöherra mætti á staðinn
ásamt hljómplötuútgefendum sem
gefa út hverja plötuna af annarri.
Rás 2 hefur lengi verið i farar-
broddi dægurstöðvanna hvað ís-
lenska dægurtónlist varðar. I einum
daglegum þætti, Landið og miðin,
er eingöngu leikin íslensk tónlist og
ef marka má undirtektir eru hlust-
endur ánægðir með þá stefnu. Flest-
um finnst þaö augljós krafa að í ís-
lensku útvarpi sé íslenskt efhi og
islensk tónlist höfð ihávegum. I
sjálfu sér ætti ekki aö þurfa sérstakt
átak til þess að islenskt efni fái að
njóta sín á öldum ljósvakans.
Samt er það svo að meðan rás 2
upphefur íslenska tónlist og tónhst-
armenn er önnur dægurstöð, FM,
að upphefja bandarískt efni. Þar er
átt við bandaríska vinsældahstann
sem einhveijir hafa séð sérstaka
ástæöu til aö endurvarpa hér viku-
lega. í þessu tilfelh er ekki íslenskur
útvarpsmaður að kynna listann til
fróðleiks heldur situr bandarískur
maður á heimaslóðum og upplýsir
íslenska hlustendur um þróun í
dægurtónhst þar í landi. Til hvers
eiginlega? Minnsta málí heimi er
fyrir íslenskan útvarpsmann að
stikla á stóru í bandaríska listanum
enda hefúr það oft verið gert hér-
lendis. Sama má gera viö enska,
þýska og danska vinsældalistann.
Það hefur varla verið hugsunin á
bak við útvarpsfrelsið að í slenskar
stöðvar tækju að sér að endurvarpa
útlensku efni. En meðan það er gert
verður aö taka ofan fyrir þeim sem
ennþá hugsa fy rir íslensku efni í
útvarpi fýrir íslendinga.
Jóhunna Á.H. Jóhannsdóttir
' IS ,!-:\>K\
ALFRÆÐI
ORDABOKIX
Kvenréttindafélag íslands
upphaflegt nafn Hið íslenska
kvenréttindafélag: ísl. samtök
um jafnréttisbaráttu kvenna;
stofnað 1907 að frumkvæði Brí-
etar Bjarnhéðinsdóttur sem að-
ildarfélag alþjóðasamtaka
súffragetta (The International
Alliance of Women); beitti sér
upphafl. einkum fyrir kosn-
ingarétti kvenna og hefur verið
í forustu jafnréttisbaráttu á ísl.,
einkum á sviði skatta- og trygg-
ingamála; stuðlaði að stofnun
Verkakvennafélagsins Fram-
sóknar (1914) og stóð að stofnun
Mæðrastyrksnefndar (1928). K
hefur gefið út ársritið 19. júní
frá 1951.
Veður
I dag verður hæg breytileg átt, skýjað við suðaust-
ur- og austurströndina og vestantil á Vestfjörðum
en annars léttskýjað. Hiti 10-16 stig í dag en svalara
i nótt.
Akureyri skýjað 9
Keflavíkurflugvöllur léttskýjað 8
Kirkjubæjarklaustur skýjað 9
Raufarhöfn skýjað 10
Reykjavík léttskýjað 7
Vestmannaeyjar léttskýjað 8
Bergen skúr 8
Helsinki hálfskýjað 15
Kaupmannahöfn skýjaö 11
Osló rigning 12
Stokkhólmur léttskýjað 13
Þórshöfn skýjað 6
Amsterdam þokumóða 11
Barcelona skýjað 18
Berlín léttskýjað 12
Chicagó léttskýjað 18
Frankfurt skýjað 10
Glasgow mistur 7
Hamborg rigning 10
London rigning 12
LosAngeles heiðskírt 17
Lúxemborg rigning 8
Madrid skýjað 19
Malaga heiðskirt 15
Mallorka léttskýjað 15
Montreal léttskýjað 22
Nuuk þoka 3
Orlando alskýjað 23
París rigning 11
Róm þokumóða 16
Valencia þokumóða 17
Gengið
Gengisskráning nr. 114. - 20. júní 1991 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 62,340 62,500 60,370
Pund 102,269 102,531 104.531
Kan. dollar 54,576 54,717 52,631
Dönsk kr. 9,0709 9,0942 9,2238
Norsk kr. 8,9385 8,9615 9,0578
Sænsk kr. 9,6711 9,6959 9,8555
Fi. mark 14.7185 14,7562 14.8275
Fra. franki 10.2880 10,3144 10,3979
Belg. franki 1,7007 1,7051 1.7168
Sviss. franki 40,7584 40,8630 41,5199
Holl. gyllini 31,0806 31.1604 31,3700
Vþ. mark 35,0077 35,0976 35,3341
it. líra 0,04696 0,04708 0,04751
Aust. sch. 4,9763 4,9890 5,0239
Port. escudo 0,3984 0.3994 0,4045
Spá. peseti 0,5554 0,6569 0,5697
Jap. yen 0.44867 0,44982 0,43701
irskt pund 93,672 93,813 94,591
SDR 82,3193 82,5306 81,2411
ECU 71,8219 72,0063 72,5225
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður
19. júni seldust alls 140,764 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meðal Lægsta Hæsta
Blandað 0,148 20,00 20,00 20,00
Grálúða 0,058 75,00 75,00 75.00
Karfi 38,808 34,72 31,00 35,00
Langa 0,282 46,07 44,00 47,00
Lúða 0,858 143,79 30,00 305,00
Rauðmagi 0,044 35,00 35,00 35,00
Skata 0,032 20,00 20,00 20,00
Skarkoli 7,172 59,89 59,00 72,00
Skötuselur 0,482 170,00 170,00 170,00
Sólkoli 0,071 60,00 60,00 60,00
Steinbítur 2,295 53,19 46,00 62,00
Þorskur, sl. 47,428 79,12 67,00 92,00
Ufsi 3,673 47,14 45,00 50,00
Undirmál 1,646 63,70 20,00 68,00
Ýsa, sl. 37,757 78,58 45,00 120,00
Fiskmarkaður Hafnarfiarðar
19. júni seldust alls 164,460 tonn.
Skötuselur 0,035 150,00 150,00 150,00
Þorskur, st. 0,326 96,00 96,00 96,00
Keila 0,670 38,28 38,00 40,00
Blandað 0,089 34,00 34,00 34,00
Smdufsi 0,523 38,00 38,00 38,00
Lúða 0,129 190,00 190,00 190,00
Grálúða 10,731 78,00 78,00 78,00
Rauðmagi 0,029 60,34 50,00 75,00
Ýsa 17,612 82,20 50,00 75,00
Smárþorskur 0,893 68,03 61,00 74.00
105,965 82,08 66,00 85,00
Koli 0,488 62,42 35,00 67,00
Ufsi 12,711 50,61 33,00 51,50 -
Steinbítur 0,652 57,74 55,00 59,00
Sólkoli 0,052 74,00 74,00 74,00
Langa 0,468 53,00 53,00 53,00
Karfi 13,084 33.71 33.71 32.00
36,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
19. júní seldust alls 192,450 tonn.
55,244 82,34 69,00 99,00
Ýsa, sl. 7,642 87,05 78,00 139,00
Keilaog bland 0,053 15,00 15,00 15,00
Steinbítur 0,293 45,14 34,00 60,00
0,392 28,64 15.00 29,00
Undirmál 2,590 56,81 50,00 65,00
Hlýri/Steinb. 2,385 40,00 40,00 40,00
Sólkoli 0,495 83,00 83,00 83,00
Lúða 0,069 288,19 256,00 395,00
66,034 46,19 41,00 47.50
Skarkoli 0,496 41,00 41,00 41,00
1,734 47,52 47,00 55,00
55,003 36,22 15,00 46,00
Blandað 0,016 15,00 15,00 15.00
Fiskmarkaðurinn í Þorlákshöfn
19. júní seldust alls 79,130 tonn.
1,339 79,00 79,00 79,00
Þorskur, smár 0,801 78,00 78.00 78,00
Ýsa, sl. 8,025 74,68 74,00 85,00
Karfi 53,278 31.82 31,00 34,00
Ufsi 0,512 48,13 45,00 49,00
3,300 33,57 33,00 36,00
0,082 60,00 60,00 60,00
Öfugkjafta 0,104 20,00 20,00 20,00
Skarkoli 5,706 30,55 30,00 44,00
0,044 20,00 20,00 20,00
Skata 0,035 270.00 270,00 270,00
Blandað 0,154 64,00 64,00 64,00
Undirmál 8,025 73,40 73.00 79,00
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI • 653900