Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1991, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1991, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 20. JÚNl 1991. Höfn í Homafirði: Húsgagna- verslun brann ínótt Mikið tjón varð í bruna er kviknaði í Húsgagnaverslun J.S.G. á Höfn í Hornafirði í nótt. Húsið stendur eitt sér en stórir olíutankar standa þar nærri og var því mikil mildi að ekki fór verr. Neðri hæð hússins brann að mestu leyti. í efri hæð þess tókst að slökkva en ekki varö komist hjá miklum hita-og vatnsskemmdum. Vöru- geymslur í kjallara hússins urðu einnig fyrir miklu tjóni. Slökkvistarf gekk greiðlega og var allt yfirstaðið hálftíma eftir að eldsins varð vart. Tjón skiptir milljónum að sögn lög- reglu. „Ég var á gangi úti þegar ég sá eld- inn og barði á fyrstu dyr sem fyrir mér uröu til að hringja í slökkviliðið. Miðhæðin logaöi þá öll og gífurlegan reyk lagði frá efri hæðinni," sagði Vilberg Tryggvason sem fyrstur varð eldsins var. Mun þetta vera einn hættulegasti staðurinn í bænum vegna nálægðar viö olíutankana og er ekki leyfö bú- seta þar. Ekki er ljóst hvað olli brun- anum og mun rannsókn málsins fara fram á næstu dögum. -tlt Eyjólfur Konráö: Samþykki ekkert á þessu stigi „Ég samþykki ekkert á þessu stigi. Þetta er allt í mótun og svo lauslegar hugmyndir ennþá,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanrík- ismálanefndar, um hugmyndir um gagnkvæmar veiðiheimildir á milli Islands og Evrópubandalagsins um 2.600 þorskígildi. Hann sagðist ánægður með þann árangur sem íslendingar náðu á ráö- herrafundinum í Lúxemborg. „Þetta gengur okkur allt í haginn. Það eru þó ekki fullnaðarsigrar unn- ir. Mér frnnst mjög ánægjulegt að það gefst svigrúm til að vinna úr þessu sem hefur verið í farvatninu." Utanríkismálanefnd hélt fund í morgun klukkan níu til að ræða ráð- herrafundinn í Lúxemborg. „Ég mun leggja fram tvær tillögur á fundinum. Önnur verður um aö við íslendingar höldum áfram samn- ingum við Norðmenn um hafsbotns- svæðið á milli Jan Mayen og Noregs og íslands. Hin er um að við göngum inn í málaferli Norðmanna og Dana sem snúast um þaö hvort það eigi að vera miðlína eða ekki miðlína á milli Jan Mayen og Grænlands. Við og Norðmenn viljum miðlínu en Danir fyrir hönd Grænlendinga vilja að 200 mílur gildi frá Grænlandi til Jan Mayen." -JGH Markús líka f or- maður borgarráðs? - frnim sátu hjá og einn var á móti að leitað væri út fyrir borgarfulltrúa „Ég var ekki sátt viö að taka þá Nokkrar umræöur urðu um tillög- í borgarráð og kosinn formaður í því sambandi, nafn Árna Sigfús- ákvörðun að velja mann utan úr unaogþegargengiðvartilatkvæða ráðsins. Nokkrar umræður hafa sonar og nafn Vilhjálms Þ. Vil- bæ sem borgarstjóra, því sat ég hjá um hana var hún samþykkt með verið um hvort Iögum samkvæmt hjáimssonar. við afgreíðslu tillögunnar," segir 13 atkvæðum, 5 sátu hjá og einn sé heimOt að maður, sem valinn Magnús Óskarsson borgarlög- Katrín Fjeldsted borgarfulltrúi. var á móti. Þegar tillagan haíði hefur verið borgarstjóri utan borg- maður sagði í samtah við DV aö Nýr borgarstjóri var valinn í hópi veriö samþykkt stakk Davíö upp á arstjórnarflokksins, sé jafnframt hann teldi ekkert mæla á móti því borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis- því að Markús Örn Antonsson út- formaðurborgarráðs. Séþaðheim- í lögum og samþykktum Reykja- flokksins í gær. A fundinum bar varpsstóri yrði næsti borgarstjóri ilt mun Markús Örn einnig gegna víkurborgar að borgarstjóri yrði borgarstjóri, Davíð Oddsson, fyrst og var sú tillaga samþykkt með þvi starfi. Komi upp einhver vafi kjörinn formaður borgarráðs. frara þá tillögu að vahnn yrði mað- öllum greiddum atkvæðum borgar- verður að velja einhvern úr borg- -J.Mar ur utan borgarstjórnarflokksins til fulitrúanna. arstjórnarmeirihluta Sjálfstæðis- að gegna starfi borgarstjóra. Þarveröureinniggengiöfrákjöri flokksins. Tvönöfneruoftastnefnd ísland hefur öllum aö óvörum breyst í hið besta sólarland I júnímánuði og margir íslendingar orðnir Spánarbrúnir eins og sjá mátti í Vesturbæjar- lauginni í gær. Sólskinsstundir í Reykjavík eru komnar vel yfir meðallag og það stefnir i metmánuð. Hæðarhryggurinn, sem heldur sig blessunar- lega yfir landinu, er ekkert á förum og spáö er áframhaldandi hægviðri, bjartviðri og hita. DV-mynd GVA Stórtækir strokufangar: Stálu peninga- skáp og ætluðu af landibrott Þrír af sex fongum, sem brutust út úr Hegningarhúsinu við Skóla- vörðustíg á laugardagskvöldið, eru grunaðir um 4-5 innbrot í verslanir og fyrirtæki, rán í söluturni við Síðu- múla og stuld á bifreiö. Tveir af sex- menningunum stálu annarri bifreið. Sjötti fanginn gengur enn laus. Talið er að hann haldi sig úti á landi og má búast við því að bráðlega verði lýst eftir honum með tilheyrandi mynd- og nafnbirtingu. Framangreindir þremenningar eru grunaðir um að hafa brotist inn í Baaderþjónustuna við Hafnarbraut í Kópavogi aðfaranótt sunnudagsins og tekið þar peningaskáp með hundr- uðum þúsunda króna og haft hann á brott með sér. Peningaskápurinn fannst í kjarri á sumarbústaðalandi viðElliðavatn síðdegis ígær. Skáp- urinn hafði verið sprengdur upp. Til að flytja skápinn notuðu fangarnir bifreið sem þeir höfðu stolið. Fang- arnir eru einnig taldir hafa ógnaö afgreiðslustúlku í söluturni í Síðu- múla um helgina og stolið 17 þúsund krónum úr peningakassa. Fangarnir eru auk þess grunaðir um að hafa framið fjögur innbrot í fyrirtæki í Mjódd í Breiðholti. Tveir af sexmenningunum voru handtekn- ir á Kópavogsbraut nóttina eftir að þeir brutust út úr fangelsinu. Þeir voru þá á stolinni bifreið. Hinir þrír, sem grunaðir eru um þjófnaðinn á peningaskápnum, voru handteknir í flugafgreiðslunni á Reykjavíkurflugvelli á mánudags- morgun. Áætlun lá þá ekki fyrir en annaðhvort átti að fara beint til Fær- eyja eða fljúga austur á land og sigla með Norrænu frá landinu. í fórum mannanna á flugvellinum fundust á annað hundrað þúsund krónur og er talið fullvíst að þeim peningum hafi verið stolið í innbrotunum. -ÓTT Island í 6. sæti á Irlandi íslendingar eru í 6. sæti á Evrópu- mótinu í brids sem nú stendur yfir í Killarney á írland. í gær sigraði sveitin Tyrki en tapaði fyrir Pólverj- um. í dag verður spilað við Þjóðverja og Austurríkismenn en alls eru leiknar 25 umferðir. Svíar eru efstir með 162 stig, Bretar hafa 156,5 og Pólverjar 153 en íslendingar eru með 146 stig í 6. sætinu. -GRS LOKI Fannstekki einu sinni jafnoki Markúsar meöal borgarfulltrúanna? Veöriðámorgun: Bjart og hlýtt áf ram Á morgun verður fremur hæg norðvestlæg átt norðanlarids og vestan en suðaustlægari suðaust- anlands. Bjart veður verður víð- ast hvar og hiti á bihnu 9-20 stig að deginum, hlýjast í innsveitum sunnanlands. ÞRðSTUR 68-50-60 VANIRMENN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.