Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991. 3 r___________________________________________________Fréttir Karl og kona sem áttu að fara á réttargeðdeildina að Sogni: Geðsjúka fólkið verður flutt á meðal f anga - þetta er aukarefsing fyrir almenna fanga, segir yíirfangavörður „Það er ákaflega erfitt að vista þetta fólk í fangelsum. En ég skil það sjónarmið vel að það sé mjög erfitt að hafa þetta fólk í langvarandi ein- angrun í Síðumúlafangelsinu. Ef þessi réttargeðdeild tekur ekki til starfa fyrr en einhvern tímann og einhvern tímann líst mér ekkert á að hafa þessa fanga innan um aðra til langs tíma,“ sagði Guðmundur Gíslason, forstöðumaður Hegningar- hússins, í samtali við DV í gær. Fangelsisyfirvöld hafa ákveðið að tveir geðsjúkir afhrotamenn, kona Geðsjúk kona, sem í tvígang hefur verið dæmd fyrir manndráp, verður flutt i Hegningarhúsið á meðal al- mennra fanga. og karlmaður, sem verið hafa í ein- angrun í Síðumúlafangelsinu frá í febrúar, verði vistuð í Hegningar- húsinu og á Litla-Hrauni fyrir 25. júlí. Konan hefur í tvígang verið dæmd fyrir manndráp - árið 1973 og í febrúar í vetur. Hún verður nú vist- uð í Hegningarhúsinu. Maður, sem veitti föður sínum alvarlega áverka með hnífi í vetur, fer á Litla-Hraun. Óvíst er hvenær fyrirhuguð réttar- geðdeild að Sogni, sem fólkið átti að fara á, tekur til starfa. „Þetta er mjög erfitt mál og ég er ekki viss um aö allir verði himinlif- andi þegar þetta fólk þarf að vera í afplánunarfangelsunum. Það geta skapast ákveðin vandamál og hafa iðulega gert,“ sagði Guðmundur. Björk Bjarkadóttir yfirfangavörð- ur sagði viö DV í gær að það væri hrein og klár aukarefsing fyrir fanga þegar geðsjúkt fólk væri vistað með þeim. Haraldur Johannessen fangelsis- málastjóri segir að hér sé um mann- Geðsjúkur karlmaður, sem veitti föður sínum alvarlega áverka með hnífi, verður fluttur að Litla-Hrauni og vistast þar meðal almennra fanga. úöarmál að ræða gagnvart tveimur einstakhngum: „Þau eru búin aö vera í einangrun síðan í febrúar, eða fimm mánuði. Réttast væri að þetta fólk væri vistað utan fangelsanna en það er útilokað. Þannig að þetta er spuming hvort á að loka þetta fólk inni um óákveðinn tíma í Síðumúlafangelsinu, jafnvel ár, eða á aö færa það í önnur fang- elsi og létta þar með af því einangr- uninni og reyna að ráða við vandann þar. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem fangelsisyfirvöld hafa í dag og ákvörðunin byggist á, stafar ekki yf- irvofandi hætta af þessu fólki. Komi shkt hins vegar í ljós mun fólkið ekki vistast innan um afplánunar- fanga,“ sagði fangelsismálastjóri. -PJ Auöi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.