Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991. 5 Fréttir Kristján Þorbjömsson, aðalvarðstjóri lögreglu á Blönduósi: Tveir teknir á dag vegna hraðaksturs - þó er minna um glannaakstur og slys en 1 fyrra Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Umferðarhraöinn hefur minnkað, það er ekki nokkur vafi og það ber mun minna á glannaakstri en áður var, eins og að menn séu að aka fram- úr á ofsahraða á blindhæðum,“ sagði Kristján Þorbjörnsson, aðalvarð- stjóri lögreglunnar á Blönduósi, er DV léit inn á lögreglustöðinni þar á dögunum. Kristján sagði að umferðin hefði ekki verið mikil um þjóðveginn hjá Blönduósi fyrr en fyrstu helgina í júlí en þá var mikil umferð í norður- átt. Hann vildi heldur ekki gera mik- ið úr því hversu margir hefðu verið teknir fyrir of hraðan akstur á þeirra yfirráðasvæði það sem af er árinu en Blönduóslögreglan hefur löngum þótt vera „dugleg með radarinn" og margir hafa verið teknir þar á of miklum hraða undanfarin ár. „Já, er ekki sagt að við séum fræg- ir að endemum," sagði Kristján og hló við. Um tölur sagði hann að fram að lO.júlí hefðu 340 ökumenn verið teknir á of ndklum hraða en nærri lætur að þaö séu tveir á dag alla daga ársins að meðaltah. „Þetta byrjar aldrei af neinni al- vöru fyrr en komið er fram í maí og er ekki mikið miöað við árið í fyrra en þá tókum við 119 ökumenn eina helgina, svo að dæmi sé nefnt.“ 15voruáyfir 130 km hraða - Eruö þið harðir á því að stoppa menn ef þeir fara rétt yfir 90 km hraða, sem er leyfilegur? „Nei, allir sem við stöðvum aka á yfir 100 km hraða og allflestir á yflr 110 km hraða. Af þessum 340, sem nú hafa verið stöðvaðir, hafa síðan 15 verið á yfir 130 km hraða." - Eru þeir sviptir ökuleyfi á staðn- um? „Nei, það er vinnuregla hjá okkur að sviþta ekki menn ökuleyfum nema í undantekningartilfellum, okkur fmnst það ekki vera sann- gjarnt þó ekki sé nema vegna þess að menn búa sumir hér á svæðinu en aðrir t.d. á öðru landshorni." Kristján sagði að þeir ökumenn sem lögreglan á Blönduósi stöðvaöi fyrir hraðakstur væru stöðvaðir nokkuð jafnt um allar Húnavatns- sýslurnar en þó væri Hrútafjörður- inn „nokkuð drjúgur". „En við höf- um sloppið vel í ár, hér hefur ekkert banaslys orðið á móti fjórum á sama tíma í fyrra og slysin sem hafa orðið. hafa ekki verið jafnalvarleg og þá,“ sagði Kristján. Kristján Þorbjörnsson aðalvarðstjóri við lögreglubifreiðina sem aðallega er notuð við hraðamælingar i Húnavatnssýslum. DV-mynd gk Rauði krossinn lagði fram eina milljón - Kínverjar fóru fram á 200 mOIjóna aðstoö „Rauði kross Islands hefur til- kynnt framlag til alþjóða Rauða krossins vegna hjálparstarfs í Kína og nemur það einni milljón króna,“ sagði Jakobína Þórðardóttir hjá Rauða krossinum við DV. Hún sagði aö samtals heíðu borist 35 beiðnir um aðstoð frá aðalstöðv- um Rauða krossins í Genf það sem af væri þessu ári. „Við reynum allt- af að vera með og leggja eitthvað fram. Viðmiðunin er hvað beiðnin er stór og hvernig ástandið er hjá okkur í hjálparsjóðnum. Þessi beiðni var upp á fimm milljónir svissneskra franka. Okkur hafa borist óvenjumargar beiðnir það sem af er þessu ári. Þær eru álíka margar og undanfarið hafa komið á hverju ári. Margar þeirra hafa verið mjög stórar. Þetta er því eins og í öllu hjálparstarfi og neyðaraðstoð, mjög breytilegt, óútreiknanlegt og fylgir engum reglurn," sagði Jakobína. -JSS LAUGARDALSVÖLLUR ÍSLAND - TYRKLAND í kvöld kl. 20.00. Forsala á Laugardalsvelli og í sportvöruversluninni Spörtu í dag. Miðaverð: stúka kr. 1.000,- stæði 600,- Frítt fyrir börn yngri en 12 ára. Athugið! Aðgönguskírteini gilda ekki. MÆTUM Á VÖLLINN 0G HVETJUM 0KKAR MENN FLUGLEIDIR & FJARFESnNGARFÉLAGIÐ HaJnarstræd 7 101 Heykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.