Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991.
17
Iþróttir
i Laugardalsvellinum í kvöld klukkan 20
rttilsigurs
l. Þriðji markvörðurinn meiddist á æfingu í gær
tóku léttan bolta meö strákum úr knatt-
spyrnuskóla Skallagríms og var gaman
að fylgjast með þeim litlu etja kappi við
landsliðsmennina.
Spurning um 2-3
sæti í liðinu
„Ég hef ekki endanlega valið byrjunar-
liðið. Það er alltaf viss kjarni sem liðið
byggist á og ég á enn eftir að gera upp
við mig nákvæmlega hvernig liðið verð-
ur skipað en þetta er spurning um 2-3
sæti. Tyrkirnir eru með ágætt lið qg
með snögga og tekníska leikmenn. Ég
hef reyndar aldrei leikið á móti þeim en
ég hef séð myndbönd af þeim í leikjun-
um gegn íslandi og síðan frá því gegn
Englendingum nú í vor. Þeir voru mjög
góðir gegn Englendingum og voru
óheppnir að tapa leiknum. Ég þekki
mjög vel til Sepp Piontek sem þjálfar
liðið. Það er ljóst að við eigum erfiöan
leik fyrir höndum og þeir eiga án efa
eftir að reynast okkur erfiðir. Þeir hafa
aldrei unnið ísland og munu án efa berj-
ast til sigurs nú,“ sagði Bo ennfremur.
Mun líklega
leika í neyð
„Ég mun auðvitað endurskoða ákvörð-
un mína ef Friðrik kemst ekki í leikinn.
Ég mun líklega leika ef leitað yrði til
mín í neyð en eins og staðan er býst ég
við að Friðrik verði með.
Eg verð samt tilbú-
inn ef neyðarkall
kemur," sagði Bjarni
Sigurðsson, mark-
vörður Valsmanna,
en eins og kunnugt
er hafði hann ákveð-
ið að hætta með
landsliöinu.
Málin skýrast þó
ekki endanlega fyrr
en í kvöld þegar liðið
mætir til leiks gegn
Tyrkjum.
-RR
ísland hefur
aldrei tapað
fyrir Tyrkjum
íslendingar og Tyrkir hafa fjórum
sinnum mæst á knattspymuvellin-
um. Fyrsti leikur þjóðanna var í Izm-
ir 1980 í undankeppni heimsmeist-
arakeppninnar og sigraði ísland á
eftirminnilegan hátt, 1-3. í annarri
viðureigninni í sömu keppni vann
ísland, 2-0, í Reykjavík.
Þriðji leikurinn var í undankeppni
heimsmeistaramótsins 1988 í Istan-
bul og þá varð jafntefli, 1-1. í fjórða
leiknum, sem fram fór á Laugardals-
vellinum í september 1989, fóru ís-
lendingar með sigur af hólmi, 2-0,
og gerðu um leið vonir Tyrkja um
að komast i úrslitakeppnina að engu.
ísland hefur því aldrei tapað fyrir
Tyrkjum, þrír vinningar og eitt jafn-
tefli.
-JKS
ma leiki“
snska liðsins
Laugardalsvellinum klukkan 20 í kvöld.
„Tyrkirnir fljótir
og teknískir“
Atli Eðvaldsson sagði að tyrkneska liðið
væri sterkt. í tyrkneska liðinu væru
mjög fljótir og teknískir leikmenn sem
hann þekkti vel frá því að hann lék í
Tyrklandi fyrir tveimur árum.
„Ég sá Englendinga vinna heppnissig-
ur á Tyrkjum fyrir tveimur mánuðum
í Evrópukeppninni og það er greinilegt
á öllu að Sepp Pinotek er að byggja upp
skemmtilegt landslið," sagði Atli.
„Uppstokkunin má ekki
verða of hröð“
Atli sagði ennfremur að nú væri verið
að gefa yngri leikmönnum úr 21-árs
landsliðinu tækifærið. Það er mín skoð-
un að uppstokkun á landsliðinu megi
ekki vera of hröð, hún verður að eiga
sér stað á 2-3 árum. Það er alls ekki
hægt að skella of mörgum nýliðum inn
strax. Bo Johansson velur 16 hæfustu
einstaklingana á hverjum tíma.
Ath var spurður hvort hann gæfi ekki
kost á sér áfram í landsliðið. - „Ég mun
gefa kost á mér áfram meðan ég er val-
inn og hef gaman að leika knatt-
spyrnu,“ sagði Ath Eðvaldsson, í samtal-
inu við DV í Borganesi í gær.
• Friðrik Friðriksson meiddist á
æfingu í gær og var jafnvel talið að
hann hefði nefbrotnað.
-JKS • Bo Johansson var broshýr á æfingu liðsins í Borgarnesi i gær en þar dvelur landsliðið fram að leiknum.
DV-mynd Sveinn
sð íslenska liðinu á Spáni eins og raun
rk af línunni i gær gegn Júgóslövum.
Spánarmótið í handknattleik:
Eins marks ósigur
- ísland tapaði fyrir Júgóslövum, 23-24
íslenska landsliðið í handknattleik
skipað leikmönnum 21 árs og yngri
tapaði naumlega fyrir Júgóslövum,
23-24, í öðrum leik sínum á Spánar-
mótinu í handknattleik í gær. Á
þessu móti, sem fram fer í Leon á
Spáni, keppa 8 efstu þjóðir á síðasta
heimsmeistaramóti í þessum aldurs-
flokki.
íslendingar höfðu tveggja marka
forskot í leikhléi, 14-12, en í síðari
hálfleik tókst Júgóslövum að jafna
metin og síga fram úr í lokin í mikl-
um baráttuleik.
„Ég er mjög ánægður með leik
strákanna. Þó svo að þeir hafi tapað
þá hefði sigurinn alveg eins getað
endað okkar megin svo jafn var leik-
urinn," sagði Gunnar Einarsson,
þjálfari íslenska liðsins, við DV í gær.
„Ég held að það hafi spilað inn i
að strákarnir áttu erfiðan leik gegn
Sovétmönnum deginum áður en
Júgóslavar áttu þá léttan dag og
möluðu Rúmena. Við höfum leikið
að mestu 6-0 vörn í þessum leikjum
sem hefur gengið sérstaklega vel en
sóknarleikinn þurfum viö aðeins að
shpa,“ sagði Gunnar. Hann sagði aö
menn hefðu leyst verkefni sín vel í
leiknum gegn Júgóslövum og enginn
einn leikmaður hefði staðið upp úr.
• Mörk Islands: Magnús Sigurðs-
son 4, Patrekur Jóhannesson 3,
Björgvin Rúnarsson 3, Jason Ólafs-
son 3, Gunnar Andrésson 3, Karl
Karlsson 2, Finnur Jóhannsson 2
Jóhann Ásgeirsson 2 og Einar G. Sig-
urðsson 1.
• Hallgrímur Jónasson lék í marki
íslands allan leiktímann og varði
ágætlega.
í dag leika íslendingar gegn Rúm-
enum og meö sigri kemst hðið í und-
anúrsht. í hinum riðlinum komast
Spánverjar og Svíar í undanúrsht.
-GH
Þjóðverjar EM-meistarar í kvennaknattspyrnu
Evrópukeppni kvennalandsliða
lauk í Álaborg í Danmörku á sunnu-
dag. Þýska landsliðið lék gegn því
norska í úrslitum og sigraði 3-1 eftir
framlengdan leik.
Norsku stúlkurnar náðu foryst-
unni í leiknum á 55. mínútu með
marki Birthe Hegstad en aðeins sjö
mínútum síðar jafnaði Heidi Mohr
fyrir þýska liðið. í fyrri hluta fram-
lengingarinnar gerði þýska liðið út
um leikinn með mörkum Heidi Mohr
og Silviu Neid.
Níu stúlkur í þýska landsliðinu
voru einnig í hði Evrópumeistara
V-Þýskalands 1989 er þær sigruðu
Nqrðmenn, 4-1, í úrslitaleik.
ítahr og Danir léku um þriðja sæt-
ið í keppninni og þar þurfti einnig
framlengingu til að knýja fram úr-
sht. Á 21. mínútu náði Helle Jensen
forystunni fyrir Dani en á 68. mínútu
jafnaði Silvia Fiorini fyrir ítalska hð-
ið. Emma Jozzelli tryggði síðan
danska liðinu sigur er hún setti
knöttinn í eigið mark á 4. mínútu
framlengingarinnar. -ih
• Ulfar Jónsson.
þýska mótið
Gylfi KriEljanason, DV, Akureyri:
Þremur islenskum golfleikur-
um hefur verið boöið á opna
þýska meistaramótið, sem veröur
haldið í nágrenni viö Múnchen
um næstu helgi. íslenskum golf-
spilurum hefur aldrei áður verið
boðið á þetta mót.
Golfspilararair, sem hér um
ræðir, eru Úlfar Jónsson, Sigur-
jón Arnarson og Karen Sævars-
dóttir.