Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Page 24
24
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991.
Smáauglýsingar - Símí 27022
■ Bílar til sölu
Toyota Hi-Lux XTRA Cab, 2,4 bensin,
árg. ’85, með húsi, til sölu, toppbíll að
öllu leyti, ath. skipti. Uppl. í símum
92-15131, 92-14888 eða 92-12468.
Benz 230 E 1990, keyrður 37 þús. km,
sjálfskiptur, ABS, rafmagn í rúðum,
topplúga rafdrifin, klæðning velúr.
Mjög góður bíll. Uppl. í síma 91-
610430.
Tll sölu Nissan Patrol turbo disil, árg.
1986, háþekja, krómfelgur, 33" dekk,
spil o.fl. Upplýsingar í síma 91-624945
eftir kl. 16.
Til sölu Nissan Patrol Superroof disil,
árg. ’89, upphækkaður, 33" dekk, hvít-
ur, skráður fyrir 7-8 farþega. Verð 2.4
millj., góð kjör. Uppl. í síma 91-687600
milli kl. 13 og 16. Björgvin.
Til sölu MMC Pajero ’87, ekinn
74.000, 31" dekk, brettakantar.
Stórglæsilegirr bíll, (sjá mynd). Verð
1.600.000, skipti á ódýrari. Uppl. í síma
91-77081.
BMW, nýja 3-linan, árg. ’91, ekinn 2000
km, 5 gíra, rafmagn, höfuðpúðar o.fl.
Kostar nýr 2.075.000 stgr., v. 1.950.000
stgr. Uppl. í síma 91-622030. Helgi.
Toyota Celica turbo 4x4, árg. '90, til
sölu, ekinn 14 þús. km. Iburðarmikill
glæsivagn fyrir vandláta. Verð 2,7
millj., skipti á Benz æskileg. Uppl. í
síma 96-11025 eftir kl. 18.
Mltsubishi Starion turbo, árg. '82, til
sölu. Uppl. í símum 91-674750 og 91-
675896.
Mazda E-2000 pallbíll '88 til sölu, gott
útlit. Verð 580.000 + vsk. Uppl. í sím-
um 92-14815 eða 92-11603.
Til sölu Ford Sierra 1600 CL, árg. '88,
5 dyra, ekinn 58.000 km. Verð 800.000.
Uppl. í síma 91-687600 milli kl. 13 og
16. Björgvin.
Glæsilegur Chrysler Le Baron, árg. '79,
rafmagn í öllu, cruisecontrol T-topp-
ur, vél 360 cc, skoðaður ’92. Uppl. í
sírna 96-27448, 96-27688 og 96-27847.
Blazer '74, 350 cc, til sölu, í mjög góðu
ástandi. Uppl. í síma 91-651825.
Ath. Einstakt tækifæri. Til sölu Toyota
Twin Cam ’85, "dekurbíll". Möguleik-
ar á góðum staðgreiðsluafslætti eða
skuldabréfum. Uppl. í síma 91-42058.
■ Ymislegt
Kvartmiluklúbburinn heldur verð-
launaafhendingu vegna kvartmílu-
keppni 23. júní ’91 í félagsheimili akst-
ursíþróttaklúbba að Bíldshöfða 14,
föstudaginn 19. júlí ’91, húsið opnað
kl. 20. Kvartmíluklúbburinn, Bílds-
höfða 14, s. 674530.
Smágrafa. Tökum að okkur ýmiss kon-
ar jarðvinnu, hentar vel í garða o.fl.
Sími 985-30915 og 91-641323.
Geymið auglýsinguna.
■raily
■ vcnoss
KLUBBURINN
Æfing flmmtudagskvöld kl. 20. Kepp-
endur mæti fyrir kl. 19 á keppnis-
brautina v/Krýsuvíkurveg. Upplýs-
ingar í síma 91-674377.
„Þannig er verðið sem neytandinnn fær upplýsingar um inni i versluninni lægra en það sem honum er gert
að greiða."
Strikamerkingar
og greiðslukort
í leiðara DV 4. júlí sl. sakar Jón-
as Kristjánsson ritstjóri Neytenda-
samtökin (skammst. hér á eftir NS)
um að ganga gegn hagsmunum
neytenda. Nefnir Jónas máh sínu
til stuönings afstöðu NS til strika-
merkinga og greiðslukorta. Það er
því ekki úr vegi að útskýra hér af-
stöðu NS til þessara tveggja atriða,
svo misskilningur og rangtúlkanir
Jónasar séu ekki það eina sem les-
endur DV hafi. Reyndar er það
furðulegt hvernig Jónas gerir
Verðlagsstofnun upp skoðanir í
leiðaranum því Verðlagsstofnun
hefur ekki tekið þá afstöðu til þess-
ara mála sem Jónas heldur fram.
Strikamerkingar
Að undaníomu hafa æ fleiri
verslanir tekið í notkun þessa nýju
tækni. Ljóst er að þessu fylgja fjöl-
margir kostir, m.a. fyrir neytand-
ann og hafa NS ítrekaö bent á það.
í bækhngi, sem gefinn var út af
EAN-nefndinni á íslandi (en sú
nefnd annast um strikamerkingu
hér á landi), er bent á 10 atriði sem
gagnast smásöluverslunum: Auð-
veldara eftirht með því hvaða vör-
ur seljast, betri nýting á hihurými,
betra eftirlit með rýmun, hag-
kvæmara birgðahald, skemmri
þjálfunartími starfsfólks, aukinn
veltuhraði, lægri kostnaöur við
vörumóttöku og eftirlit, minni
kostnaður vegna verðmerkinga,
hraðari afgreiðsla við kassa og að
auðvelt sé að sjá stöðu efdr hvem
dag.
Eins og sjá má er ávinningur fyr-
ir verslanir að taka upp strika-
merkingu. Ágreiningurinn um
strikamerkingar er eingöngu um
það hvort verðmerkimiðar á ein-
stakri vöru eigi að hverfa með til-
komu strikamerkinga, en því and-
mæla NS. Og eins og bent hefur
verið á hér að framan eru tíu atriði
tahn upp til hagsbóta fyrir verslan-
ir meö strikamerkingu. Minni
kostnaður vegna verðmerkinga er
aðeins eitt þeirra atriða. Það er því
fásinna að halda því fram að ef
haldið verður áfram að nota verö-
merkimiöann sé sparnaður af nýju
tækninni fokinn.
En hvers vegna gera NS kröfu tíl
þess að áfram verði hver einstök
vara verðmerkt með thkomu
strikamerkingar? Það hefur m.a.
ítrekað komið í ljós að verslanir
muna ávaht eftir því aö breyta
verði í kassa þegar verðhækkanir
verða, en gleyma of oft að breyta
KjaUaiinn
Jóhannes Gunnarsson
formaður
Neytendasamtakanna
því á hhlukanti. Þannig er verðið,
sem neytandinn fær upplýsingar
um inni í versluninni, lægra en það
sem honum er gert að greiða. í
nýlegri sænskri könnun kom í ljós
að fjórðungur aðspurðra hafði tek-
ið eftir þessu. Og því meir sem
strikamerkingaverslunum fjölgar
hér á landi íjölgar einnig kvörtun-
um um þetta th NS.
Benda má á að nýlega var gerð
könnun í Svíþjóð um hvemig verð-
upplýsingar ættu helst að vera að
mati neytenda. Flestir, eða 82%
settu verðmerkimiðann í fyrsta
sæti og 66% jafnvel þó það myndi
hækka vöruverð líthlega. Það er
því ekki svo að sænsk yfirvöld séu
að reyna að hafa vit fyrir almenn-
ingi heldur telja Sviar þaö einfald-
lega best fyrir hagsmuni sína að
halda verðmerkimiðanum. í sam-
ræmi við það ætlar sænska stjómin
að leggja fram fmmvarp, þar sem
segir aö verðmerkimiðinn verði
áfram á vömm 1 strikamerkinga-
verslunum.
Á það skal bent að rannsóknir,
sem gerðar vom fyrir nokkmm
árum við Michiganháskóla í
Bandaríkjunum, leiða í ljós að
verðskyn neytenda minnkar þegar
hætt er aö nota verðmerkimiða.
Það er ekki síst af þessari ástæðu
sem NS telja mikhvægt að halda í
verðmerkimiðann og við teljum
okkur meö því vera eingöngu að
taka mið af hagsmunum neytenda.
Greiðslukort
í áðurnefndum leiðara heldur
Jónas því einnig fram aö NS skaði
neytendur með afstöðu sinni til
greiðslukorta. En um hvað stendur
dehan varðandi greiðslukort? NS
hafa bent á að það er vissulega
hagræði og þægindi fyrir neytend-
ur að geta notað greiðslukort. Við
höfum hins vegar bent á að kostn-
aður samfara notkun greiðslukorta
er nokkur. Og við höfum ekki viljað
fahast á að þaö sé eðlilegt og rétt-
látt að þessi kostnaður fari út í
vömverðið eins og nú er.
Verslanir greiða nú á bhinu
1-2,75% þóknun th greiðslukorta-
fyrirtækjanna vegna þeirra við-
skipta sem fara fram með greiðslu-
korti. Að auki þurfa verslanir að
lána þessa fjármuni vaxtalaust í
VI—1 'A mánuð. Oftar en ekki neyð-
ast verslanimar th að selja
greiðslukortanótumar th fjár-
mögnunarfyrirtækja með ærnum
aííollum. Það er því ljóst að
greiðslukortin hækka vömverð.
Þessu fyrirkomulagi hafa NS
andmælt og óskað eftir lagasetn-
ingu þar sem m.a. yrði tekið á þessu
vandamáli. Á meðan það hefur
ekki verið gert telja NS eðlhegt að
verslanir, sem taka á móti greiðslu-
kortum, veiti staðgreiðsluafslátt.
Reyndar gera allmargar verslanir
það nú þegar. í könnun, sem NS
gerðu á árinu 1987, kom í ljós að
87% aðspurðra styðja NS í þessu.
Það er því fráleitt að NS séu að
vinna gegn hagsmunum neytenda
eins og Jónas heldur fram, heldur
eru NS að reyna að tryggja að fullt
jafnræði sé nhlli neytenda, hvort
sem þeir nota greiðslukort eða
ekki.
Jóhannes Gunnarsson
„Verslanir muna ávallt eftir því að
breyta verði í kassa þegar verðhækk-
anir verða, en gleyma of oft að breyta
því á hillukanti.“