Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991. Meiming_____________ Af svásum seimi Verkin á seinni tó.ileikunum í Skálholti laugardag- inn 13.7. voru alfariö fyrir einleiksílautu, sem í þokka- bót er sagt eitt ytirúnasnauðasta blásturshljóöfæri sem til er. Maður bjóst því ekki við miklu og valdi sér sæti aftarlega í kirkjunni til að geta dottað í friði. En eins og stundum gerist - og maður veit ekki hvort tónverkiö sjálft eöa flutningurinn gerir útslagið, þegar hvort tveggja gengur upp í æðri heild - þá varð hlust- andinn glaðvakandi og hóst og skrjáf frá áheyrenda- bekkjum hvarf smám saman gjörsamlega. Kolbeinn Bjarnason, flautan og tónverkin kölluöu fram þessa fágætu mvstík sem manar til eftirtektar. Hugurinn fór vítt og um vítt. Tíminn flaug. Öll verkin einkenndust af löngum taktlausum tón- um, þó að inni á milli kæmu stuttar og æstar tónabun- ur eins og fyrirvaralaus sverðsleiftur í samúræmynd eftir Kurosawa. Þessi sambúð blóms og brands var reyndar enn skiljanlegri, þar eð þrjú verkanna voru et'tir kóreska tónskáldið I. Yun. Auk þess hefur flautan alltaf verið hljóðfæri íhugunar og meditasjónar. Kolbemn. laðaði með dragandi tónum sínum fram ur minningahandraðanum vísubrot eftir madrigalist- ann Richard Stumbleston, lauslega útlagt: Menn undr- ast réðu svásan seim/ er seiddi ofan Heljar brún,/ en Freyja hvergi fargar þeim/^er fjörgað hefur ástar rún... - hugsun. er varö enn áleitnari í áhrifamiklu einleiksverki Atla Heimis Sveinssonar fyrir bassa- flautu. Lethe (= gleymska; 1989), þar sem holur hljóm- ur hljóðfærisins og heyrö Skálholtskirkju máluðu bet- ur en litir og orð stemninguna neðan úr ríki Hadesar. þar sem nýdánir lepja af fljótinu Styx til að öðlast gleymsku: auðvitað var sögnin um Orfeif og Evridís þar að auki skammt undan í bakhöfði manns. Að vísu var ekki laust við. að manni stykki bros, fyrsta skiptið sem Kolbeinn tók svona hálfan mið- stöðvarofn og lagði við munn. En þessi sjaldséða jör- munblístra. bassaflautan. sem nær áttund neðar en venjuleg þverflauta í C. s.s. jafnlangt niður og ví- óla lágfiðla. reyndist miklu virkara hljóðfæri en mað- ur átti von á, og eina ferðina enn reyndist Skálholts- kirkja sem sköpuð fyrir tónlistina. Kolbeinn lék tvær etýður frá 1974 og Sori (1988) eftir Kolbeinn Bjarnason, flautuleikari. Tóhlist Ríkarður Ö. Pálsson I. Yun, Lethe Atla Heimis eins og fyrr sagði og Canto del Alba (= morgunlokku) eftir Lavista frá 1979. í síð- astalda verkinu var mikiö um mulitfónisk tilþrif, urr og söng oní rörið o.þ.h. framúrstefnustæla, sem í þessu hægferðuga samhengi urðu sannfærandi í yfirvegaðri túlkun flytjandans, er virtist ekki aðeins hafa næga öndunar- og munnstillingartækni, heldur einnig mús- íkalskan næmleika til aö láta þessar þrautir líta ein- faldar og eðlilegar út. Slíkt er ekki heiglum hent. Myndgáta r— --vv wv Andlát Jónína B. Guðlaugsdóttir. Öldugötu 17. Hafnarfirði. andaðist á Hrafnistu. Hafnarfirði. mánudaginn 15. júlí. Gunnar Ingibergur Júlíusson, Kleppsvegi 48. lést á heimili sínu 14. júli. Jarðarfarir Jóna Magnúsdóttir frá Súgandafirði, sem andaðist á Elliheimilinu á Þing- eyri 11. júh, verður jarösungin frá Suðureyrarkirkju föstudaginn 19. júlí kl. 14. Lárus Þjóðbjörnsson lést í sjúkra- húsi Akraness 15. júlí. Útför Jónínu Halldóru Benedikts- dóttur frá Látrum, Aðalvík, sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á ísailrði 11. júlí sl„ fer fram frá ísafjarðarkap- ellu föstudaginn 19. júli Ú. 14. Guðrún Sigurþórsdóttir, Vífllsgötu 21, verður jarðsungin frá Langholts- kirkju fimmtudaginn 18. júlí kl. 13.30. Útfór Þorbjargar Ottósdóttur, Hæð- argarði 8, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum 10. júlí, fer fram frá Fossvogskapellu fóstudaginn 19. júlí kl. 15. Útfór Ástu Halldóru Gestsdóttur, Dvalarheimili aldraðra, Stykkis- hólmi, verður gerð frá Stykkishólms- kirkju laugardaginn 20. júlí kl. 14. Útför Steindórs Á. Steindórssonar, Holtsgötu 35, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. júlí kl. 15. Guðný Jónsdóttir lést 9. júlí sl. Hún var fædd í Hlíð í Þorskafirði 8. ágúst 1921, dóttir Guðrúnar Ámadóttur og Jóns L. Hanssonar. Eftirlifandi eigin- maður hennar er Bjöm 0. Þorleifs- son. Útför Guðnýjar verður gerð frá Víðistaðakirkju í dag kl. 15. Sæmundur Bjarnason Sólrún Guðjónsdóttir Garðar Ingólfsson Guðmundur Grettisson Sævar Ver Einarsson Messur Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyrirbæn- ir í dag kl. 18. Neskirkja. Bænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. Fella- og Hólakirkja. Samverústimd fyr- ir aldraða í Gerðubergi fimmtudag kl. 10-12. Helgistund. Umsjón hefur Ragn- hildur Hjaltadóttir. Tónleikar Jasskvartett Björns Thoroddsens á Kringlukránni Miðvikudaginn 17. júlí leikur jasskvart- ett gítaristans Bjöms Thoroddsens á Kringlukránni. Kvartettinn leikur þetta kvöid Swing og Latintónlist frá árunum 1950-1970. Með Birni leika Guðmundur Steingrímsson á trommur, Bjarni Svein- bjömsson á kontrabassa og Karl Möller á píanó. Þeir félagar hefja skemmtunina kl. 22. Aðgangur er ókeypis. Reykjavíkurquintettinn á Púisinum í kvöld heldur Reykjavíkurquintettinn tónleika á Púlsinum. Kvintettinn var stofnaður í mars sl. og hefur verið við stífar æfingar síðan en fyrstu tónleikar kvintettsins vom haldnir á Tveimur vin- um í byijun vikunnar við góðar undir- tektir. Hljómsveitin leikur gæöa rokk- tónlist. Sveitina skipa: Bragi Bragason gítar, Gunnar Elísabetarson trommur, Heimir Helgason hljómborð, Ingimar Oddsson söngur og Alfreð Lilliendahl. Tónleikamir hefjast kl. 22 og er aðgangs- eyrir kr. 300. „Happy hour“ verður kl. 22-23. Fyrirlestrar Skuggamyndasýning Fyrirlestur um Bhakti-Yóga veröur hald- inn mánudaginn 22. júlí kl. 19.30 i Gerðu- bergi, Breiðholti. Sýndar verða myndir frá Indlandi, indversk trúartónlist og ind- verskur grænmetisréttur. Þá verður opn- un á yóga miðstöð sunnudaginn 21. júli kl. 19.30 að Laugavegi 163. Þar verður fyrirlestur um endurholdgun, skugga- myndasýning imi endurholdgun og stór grænmetisveisla. Námskeiö Nuddnámskeið Námskeið í Namekoshi-shiatsu nuddi verður haldið dagana 17.-19. júli og 21. og 22. júli og er það ætlað byijendum sem lengra komnum. Diploma verður gefin. Upplýsmgar hjá Guðrúnu í síma 612026. Ferðalög Ferðafélag íslands Miðvikudagskvöld 17. júli kl. 20 Tóurnar - Sóleyjarkriki Ný og skemmtileg kvöldganga í Afstapa- hrauni. Gönguferð við allra hæfi á sér- stöku tilboösverði, kr. 600, fritt f. böm 15 ára og yngri. Brottfór frá Umferðarm- iðstöðinni, austanmegin. Hægt að taka rútuna á leiðinni, t.d. á Kópavogshálsi og v. kirkjugarð Hafnaríjarðar. Allir vel- komnir. Miðvikudagsferðir og sumardvöl í Þórsmörk Munið miðvikudagsferðimar í Þórs- mörk. Dagsferðir og til sumardvalar. Verð kr. 2.300 í dagsferðimar. Tilvalið að dvelja í góðu yfirlæti í Skagfjörðs- skála, Langadal, t.d. frá miðvikudegi til föstudags eða sunnudags. Pantið tíman- lega. Tilkyimingar Tilboð á ferðum leigubíla til og frá Keflavík Leigubílstjórar á Reykjavíkursvæðinu og á Aðalstöðinni í Keflavík hafa ákveðið að bjóða upp á sérstakt sumartilboö á ferðum milli Reykjavíkursvæðisins og Flugstöðvar Leifs Eirikssonar. Tilboðið gildir frá 17. júlí til 30. september og 1=1 farþega bíll kostar kr. 3.500 og 5-7 farþega bíll kr. 4.200. Sama verð gildir allan sólar- hringinn. Leigubílstjórar vilja með þessu vekja athygli á hve þægilegt og ódýrt það er að taka leigubíl tíl og frá flugstöðinni. Þetta hefur einnig mikinn tímaspamað í fór með sér og fólk getur mætt í frihöfn- ina þegar þvi hentar. Dýrfirðingar Munið sumarferðina í Kerlingarfjöll 19.-21. júlí nk. Síðustu forvöð að tilkynna þátttöku í síma 641599. Tilhamingju Hjónaband 1. júní sl. vom gefin saman í hjónaband í Kópavogskirkju af sr. Þorbergi Krist- jánssyni María Jónsdóttir og Páll Þór Kristjánsson. Heimili þeirra er í Uglu- hólum 6, Reykjavík. Hjónaband 22. júní sl. vom gefin saman í hjónaband í Arbæjarkirkju af sr. Guðmundi Þor- steinssyni brúðhjónin Guðmunda Áskelsdóttir og Kristján Þ. Jónsson. Heimili þeirra er að Hraunbæ 186, Reykjavík. Ljósm. Ljósmyndarinn Jóhannes Long. Tapaðfundið Fress í óskilum í gamla miðbænum Steingrátt og hvitt fress með grátt fram yfir augu, dökkan blett á nefi og ógelt er í óskilum í gamla miðbænum. Það er með bláa ól með bjöllu. Upplýsingar í síma 10539 á kvöldin. í? efitit bolta lamut batn! IUMFERÐAR Iráð t Faðirokkar, tengdafaðir og afi Benedikt Jónsson verkstjóri lést á heimili sínu, Auðbrekku 23, Kópavogi, 16. júlí. Fyrir hönd annarra aðstandenda Björg Benediktsdóttir Haraldur Skjóldal Jón Benediktsson Jónína Jónsdóttir Áslaug Benediktsdóttir Þór Benediktsson Kristjana Benediktsdóttir Hafdís Benediktsdóttir Elín Benediktsdóttir og barnabörn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.