Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1991, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1991.
Fréttir
Byggingamál á Raufarhöfn:
Byggingarfulltrúi er líka
einn stærsti verktakinn
æskilegt að fulltrúinn væri óháður, segir Júlíus Hjörleifsson sveitarstjóri
„Það væri náttúrlega mjög æski-
legt að byggingarfulltrúinn væri
ekki jafnframt verktaki. Æskileg-
ast væri að það væri óháður bygg-
ingarfulltrúi," sagði Júlíus Þórar-
insson, sveitarstjóri á Raufarhöfn.
Málum er svo háttað á Raufar-
höfn að sjálfur byggingarfulltrú-
inn, sem tekur út byggingar eins
og lög gera ráð fyrir, er jafnframt
einn stærsti verktakinn á staðnum.
Umræddur aðili bæði á og rekur
með öðrum fyrirtækið JJR og er
nú að reisa dvalarheimili fyrir
aldraða. Hann hefur þó ekki eftirlit
með því sem byggingaulltrúi.
„Þetta er svolítið erfitt mál. Þetta
er það lítið sveitarfélag. Auk þess
er langt á milli sveitarfélaga. Þetta
er í sjálfu sér mjög óæskilegt en ég
vil ekkert vera að deila á þetta. Ég
þekki ekki forsögu málsins. Það er
spurning hvort það er nokkur ann-
ar kostur fyrir hendi,“ sagði Júlíus
Þórarinsson. -pj
Teiknimyndahetjan Indiana Jones hefur viðdvöl á íslandi í leit sinni að horfna landinu, Atlantis. Lendir hann í
hrakningum miklum og lætur sig m.a. síga ofan í hver sem gýs svo kröftuglega að kappinn þeytist hátt upp og
brotlendir í snjónum.
Teiknimyndahetja lendir 1 ævintýrmn á íslandi:
Indiana Jones í leit
að örlögum Atlantis
í nýlega útgefnu teiknimynda-
blaði, sem lýsir ævintýrum hetjunn-
ar Indina Jones og örlögum Atlantis,
er farið í feröalag til íslands með
söguhetjunni. Hann lendir flugvél
sinni á hjarni þöktu landinu og keyr-
ir á bíl sínum upp í óbyggðir í leit
að persónunni Thorskald. Sá á að
hafa undir höndum dularfullan og
eftirsóttan fomgrip. Með í för er vin-
kona Jones, Sophie.
Leið þeirra skötuhjúa liggur inn á
óbyggð landsvæði og finna þau kofa
Thorskalds yfirgefinn. Ekki er getið
um hvar á Fróni það á að vera. Leit-
in að Thorskald berst ofan í nærliggj-
andi hver og lætur kappinn sig síga
niður í opiö. Þar fmnur hann Thor-
skald frosinn! Á meðan hann er að
berjast við að losa forngripinn úr
hendi hins klakabrynjaða manns
verður hann skyndilega var við auk-
iö hitastig í holunni. Hann kallar á
vinkonu sína aö toga sig upp í flýti
en of seint. Heitt hveravatnið gýs
hátt upp og Indiana Jones með því.
Eins og sönnum teiknimyndahetj-
um sæmir verður honum þó ekki
meint af flugferðinni og brotlending-
unni. Stendur hann upp óskaddaður
og jafnframt sigri hrósandi meö grip-
inn góða í hendinni og segir: „Sjáðu
hverju hverinn hóstaði upp úr sér.“
-tlt
Þetta var engin grásleppuvertíð
- næstminnsta sem ég man, segir Ólafur Guðmundsson á Siglufirði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Hann sat „undir vegg“ verbúðar
sinnar á Siglufirði og „skar net af
teinum". Ólafur Guömundsson heitir
hann og sækir sjóinn á trillunni Far-
sæl SI-93.
„Þetta eru grásleppunetin, það þarf
að skera af þeim svo hægt sé að setja
önnur net á slöngurnar fyrir næstu
grásleppuvertíð," sagði Ólafur og þáö
lá beinast við að spyrja hann hvernig
grásleppuvertíðin í ár hefði gengið.
„Það var aldrei nein grásleppuver-
tíð. Ég náði 50 tunnum af hrognum
og það er það næstminnsta sem ég
man eftir. Núna tekur maður það
bara rólega, það þarf að dytta að
ýmsum hlutum og mála bátinn en
ætli maður reyni ekki að fara á færi
í haust. Það er bara svo lélegt að
hafa,“ sagði Ólafur.
Sauðárkrókur:
300 krónur á tímann
í bæjarvinnunni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég hef verið í unglingavinnunni
undanfarin ár en nú er ég í bæjar-
vinnunni og það er miklu meira
kaup, ég hef núna 300 krónur á tím-
ann,“ sagði Gunnar Ingi Gunnars-
son, 16 ára Sauðkrækingur, sem var
að vinna á sláttuvél er DV hitti hann
á Sauðárkróki.
Gunnar sagðist vinna á þessari
sláttuvél alla daga og slá grasflatir
víðs vegar í bænum. Hann sagði þetta
ágætt starf en í frítíma sínum æfir
hann og spilar fótbolta með Tindastól
í 3. flokki.
Níu tonn eftir
sólarhringinn
Þeir voru stoltir skipverjarnir á
Halldóri Sigurössyni ÍS 14 á ísafirði
sem lönduðu um 9 tonnum af fiskafla
eftir sólarhrings veiði. Kenndi þar
ýmissa grasa en þó var áberandi
mikið af stórum og góðum þorski.
Strákarnir veiddu í dragnót og sögðu
að veiðin hefði verið jöfn og góð, en
þeir lönduðu álíka afla deginum áö-
ur. -ingó
Haraldur Ágúst Konráðsson, Róbert Ágústsson, Einar Ágúst Yngvason og
fremst á myndinni situr sjálfur skipstjórinn á Halldóri Sigurðssyni, Guðmund-
ur Konráðsson. DV-mynd GVA