Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1991, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1991.
LífsstQI
VINBER
+6%
I
CQ
I
550 258
PAPRIKA
-5%
Bónus
I
640 357
ilrÍS~p
SVEPPIR
+1%
Bónus
I
657 493
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Meðalverð
flestra tegunda
fer hækkandi
- mest á tómötum og gúrkum
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verð á grænmeti í eftirtöldum
verslunum: Bónusi í Skútuvogi,
Fjarðarkaupi í Hafnarfirði, Hag-
kaupi í Skeifunni, Kjötstöðinni í
Glæsibæ og Miklagarði við Sund.
Bónusbúðirnar selja sitt grænmeti
í stykkjatali á meðan hinar saman-
buröarverslanirnar selja eftir vigt.
Til að fá samanburð þar á milli er
grænmeti í Bónusi vigtað og um-
reiknað eftir meðalþyngd yfir í kíló-
verð.
Mesta athygli vekur mikil hækkun
meðalverðs á tómötum og gúrkum
sem hækka um eða yfir helming
milli vikna.
Tómatar halda áfram að hækka í
verði og meðalverðið er nú 318 krón-
ur sem er 47% hærra en í síðustu
viku. Tömatar voru á lægsta verðinu
í Bónusi, á 235, en síðan koma Hag-
kaup, 269, Fjarðarkaup, 336, Mikli-
garður, 350, og Kjötstöðin, 398 krón-
ur. Munur á hæsta og lægsta verði
er 49%.
Geysimikil hækkun varð á meðal-
verði á gúrkum milli vikna. Hún
nemur 69% og meðalverðið er nú 261
króna. Lægsta gúrkuverðið er að
íinna í Bónusi þar sem kílóverðið er
118 krónur. Á eftir fylgir verðið í
Hagkaupi, 239, Fjarðarkaupi, 281,
Miklagarði, 298, og Kjötstöðinni, 370
krónur. Munur á hæsta og lægsta
verði á gúrkum er 214%.
Meðalverö á sveppum virðist
standa í stað en það hækkaði um 1%
frá síðustu könnun og er nú 557 krón-
ur. Sveppir voru á hagstæðasta verð-
inu í Bónusi, á 493. í röð á eftir kem-
ur verðið í Hagkaupi, 544, sama verð
var í Fjarðarkaupi og Miklagarði,
545, og Kjötstöðin með hæsta verðið,
657 krónur kílóiö. Munur á hæsta og
lægsta verði er 33%.
Vínber hækka einnig í verði en þó
ekki mikið. Meðalhækkun á grænum
vínberjum er 6% og meðalverðið er
453 krónur. Vínber fengust á lægsta
verðinu í Bónusi, á 258, en á eftir
fylgja Fjarðarkaup, 460, Hagkaup,
498, Kjötstöðin, 499, og Mikligarður
selur kílóið á 550. Munur á hæsta og
lægsta verði á grænum vínberjum
er 113%.
Græn paprika er eina grænmetis-
tegundin í könnuninni sem lækkar i
meðalverði milli vikna. Það er nú 524
krónur og lækkunin er því 5 af
hundraði. Græn paprika var á hag-
stæðastr. verðinu í Bónusi þar sem
kílóið er á 357 krónur. Síðan kemur
verðið í Kjötstöðinni, 535, Fjarðar-
kaupi, 544, Hagkaupi, 545, og Mikla-
garði, 640 krónur. Munur á hæsta og
lægsta verði á grænni papriku er 79
af hundraði.
Meðalverð á kartöflum hefur nú
um nokkurt skeið haldist óbreytt í
76 krónum kílóið. Kartöflur eru
ódýrastar í Bónusi þar sem kílóverð
á gullauga er á 58 en næst kemur
verðið í Hagkaupi, 75, Fjarðarkaupi,
75,50, Miklagarði, 82,50, og Kjötstöðin
selur sínar kartöflur á 89 krónur.
Munur á hæsta og lægsta verði er
53%.
Meðalverð á blómkáli tekur ekki
miklum breytingum þessar vikurnar
og það hækkar reyndar um 5% milli
vikna og stendur í 301 krónu. Blóm-
kál var á lægsta verðinu í Fjarðar-
kaupi, á 345, en síðan kemur verðið
í Hagkaupi, 379, Kjötstöðinni, 384, og
Miklagarði, 398 krónur. Munur á
hæsta og lægsta verði á blómkáli er
ekki mikill eða 15%.
Meðalverð á hvítkáli er það sama
og í síðustu viku eða 193 krónur.
Hvítkál er á lægsta verðinu í Bón-
usi, á 118, en þar á eftir fylgja Fjarð-
arkaup, 184, Hagkaup, 188, Kjötstöð-
in, 224, og Mikligarður, 250. Munur
á hæsta og lægsta veröi er 112%.
Gulrætur virðast einnig vera aö
hækka í verði en meöalverðið nú, 206
krónur, er 8% hærra en í síðustu
viku. Gulrætur eru á lægsta verðinu
í .Bónusi þar sem kílóverðið er 129
krónur. Kílóverðið í Hagkaupi er 169,
Fjarðarkaupi 187, Miklagaröi 245 og
Kjötstöðinni 298. Munur á hæsta og
lægsta verði á gulrótum er 131%.
-ÍS
Meðalverð á kartöflum hefur haldist stöðugt síðustu vikurnar.
Sértilboð og afsláttur:
Lambagrillsneiðar
og grísahnakki
I Miklagarðsverslunum eru bæði
gular melónur og vatnsmelónur á
sértilboði, kílóið af þeim gulu er á
95 kr. en vatnsmelónurnar eru á 99
krónur. Perur eru einnig á sértil-
boðsverði, kg á 145 krónur. Einnig
er hægt að gera góð kaup í Mark 195
mín. myndbandsspólum á 399 og 6
manna matar- og kaffistelli á 2.995
krónur.
Kjötstöðin var með afsláttarverð í
kjötborðinu hjá sér á marineruðum
lambagrillsneiðum sem voru á 695
kr. kílóið og grísahnakka með beini
sem var á 790 krónur. Einnig allar
tegundir af Kraft salatsósum, 380 ml,
á 179 og Gevalia kaffi, 500 g, er selt
á 230 krónur pakkinn.
Hagkaup var með afsláttarverð á
nektarinum sem seldar eru á 179
krónur kílóið. Ota Guldkomið vin-
sæla í 500 gramma pökkum er á 229,
20 stykki af Nóa hrís eða maltabitum
voru á 169 og Oxford kremkex með
mint-bragði, 200 g, var hægt að kaupa
fyrir 55 krónur pakkann.
Á tilboðstorgi Fjaröarkaups var
hægt að kaupa Gevalia kaffi, 500 g, á
233, Dixan þvottaefni, 3 kg pakka, á
578, Honig bollasúpur og spaghetti
eru á sértilboði og Jheri Redding
sjampó, 500 ml, og næring, 300 ml,
saman í pakka eru seld á 522 krónur.
í Bónusi, Skútuvogi, voru Nóa
súkkulaðirúsínur í 200 gramma
pökkum á 107 krónur, Sanitas pilsn-
er, ‘A 1, kostar 56, sýrópsbrauð frá
MS kostar 103 krónur og jaröarber í
glösum, sem hægt er að nota eftir á,
680 grömm, kosta 134 krónur.
ÍS
cSb
Kartöflur
Verð í krónum
1
A Ks76
J\ /V
/\ /
/
/ I
i 1
Des. Jan. Feb. Mars Aprll Mal Júní Júlí
Tómatar
Verð í krónum
Des. Jan. Feb. Mars Aprll Maf Júnl Júll