Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1991, Page 5
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1991.
5
Fólksflutningar:
Munar mikið um eina fjölskyldu
Regína ThDiarensen, DV, Gjögri:
Fjögurra manna íjölskylda flytur
úr Árneshreppi í haust. Er það áfall
fyrir hreppinn því það munar mikið
um eina fjölskyldu í íbúatölu.
Ég spurði prestinn um daginn
hversu margir byggju í hreppnum.
Hann svaraði strax: „Já, það er alltaf
að fækka hérna.“ Nú eru hér búsett-
ir 121; 65 karlar og 56 konur. Þar af
eru í „öldungadeiMinni" 15 karl-
menn og 8 konur.
Hér hefur verið rigning, ekta
ískuldi og þoka, 5-7 stiga hiti á dag-
inn en nokkuð kaldara að nóttu til.
Frumsýning í dag
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
Bönnuð innan 12 ára
Miðaverð kr. 450,-
laugarasbió
„Bakpokafölkið“ í Skagafirði. DV-mynd gk
Ætlum að sjá sem allra mest
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við komum til íslands fyrir þrem-
ur dögum og ætlum okkur að reyna
að fara sem víðast um og sjá sem
allra mest,“ sögðu þau Matthias Ogr-
irseik og Christine Knopf er DV ók
fram á þau í Skagafirðinum.
Þau voru þá á leið frá Varmahlíð
að minjasafninu í Glaumbæ og voru
allhressilega klyfjuð, svo að ekki sé
meira sagt. íslendingum finnst sá
fararmáti að ferðast uni með „allt á
bakinu" ávallt furðulegur, enda kjós-
um við þægilegri ferðamáta.
„Við komum með rútu til Varma-
hlíðar og ætlum að halda austur á
bóginn, komast til Mývatns og þaðan
hyggjumst við fara upp á hálendið,
upp í f]öllin,“ sögðu þau Matthias og
Christine og svo þrömmuðu þau af
stað að nýju.
FULLKOMINN G8ÍNA8I
„Leikaralöggan66 er fyndnasta löggumynd síðan
„Beverly Hill Cop66 ★ ★ ★ ★ (Pat Collins).
Michael J. Fox hefur aldrei verið betri. Fox og Woods eru stórkostlegir saman.
michhl j. rn
Fréttir
Fulltrúi Hafrannsóknastofnunar á flörugum fundi með Vestfirðingum:
Sjómennirnir einblína
um of á togararallið
- þetta er hallæri af mannavöldum, sagði fundarmaður úr röðum sjómanna
„Fundurinn telur að þær upplýs-
ingar, sem liggja til grundvallar til-
lögum Hafrannsóknastofnunar
fyrir næsta ár, séu engan veginn
fullnægjandi,“ segir í ályktun sem
hagsmunaaðilar fiskiðnaðarins á
Vestfiörðum stóðu fyrir á Hótel
ísafirði í vikunni. Telja þeir um 22
prósenta niðurskurð þorskkvóta,
byggðan á niðurstöðum Hafrann-
sóknastofnunar, ekki eiga við rök
að styðjast.
Ólafur Karvel Pálsson fiskifræð-
ingur var þar staddur á fundinum
fyrir hönd Hafrannsóknastofnun-
ar. Þar var mannmargt og skoð-
anaskipti lífleg.
I ályktuninni segir ennfremur að
nauðsynlegt sé aö koma á sam-
starfshópi sjómanna og fiskifræð-
inga.
„Mjög mikil gjá er milh viðhorfa
fiskifræðinga og þeirra sem dag-
lega umgangast þessa fiskistofna,"
sagði viðmælandi DV sem var á
fundinum. „Menn hér eru almennt
á því að þorskstofninn sé ekki verr
staddur en á síðasta ári. Okkar til-
lögur hníga að því að eðlilegt sé að
veiðin haldist svipuð og á síðasta
an.
Hann sagði að þeir sem stunduðu
þessar veiðar fylgdust með hreyf-
ingu fisksins og vissu hvað gæfi -
þeir væru ekki hafnir yfir Hafrann-
sóknastofnun en vildu meira sam-
starf.
„Við byggjum á mun víðtækari
rannsóknaröflun en sjómenn eru
að gagnrýna okkur fyrir. Þeir ein-
blína helst til mikið á togararall-
ið,“ sagði Óíafur Karvel Pálsson
fiskifræðingur. „Ég tel ekki að þeir
hafi sýnt fram á að gagnrýnin sé
rétt. Viö erum með það þétt stöðv-
amet á útbreiðslusvæði þorsksins
að við myndum ná breytingum á
útbreiðslu hans. Út áf fyrir sig er
nauðsynlegt að endurskoða rann-
sóknaraðferðir og við gerum það
stööugt. Gott er að fá ábendingar
frá sjómönnum í þeim efnum og
leituðum við einmitt til þeirra þeg-
ar togararallið var skipulagt."
Ólafur sagði niðurstöður úr tog-
ararallinu dóm reynslunnar sem
endanlega skæri úr um það hvort
verkefnið hefði skilað sínum mark-
miðum eða ekki, en þau miða að
því að betur gangi að stjórna fisk-
veiðum. Verður nýhðunarspá síð-
ustu fimm ára mikilvægur próf-
steinn á vinnu þeirra í því sam-
bandi.
„Kvótaskerðing myndi hafa áhrif
á þjóðarbúið í heild, er talað um 9
mihjarða tekjutap," sagði viðmæ-
landi DV. „Það sem alvarlegast er
í þessu er aö þetta er hahæri af
mannavöldum. Lítt ígrundaðar til-
lögur verða til þess að menn þurfa
að taka á sig einhverja skehi."
-tlt
Landgræðslan tekur land tll friðunar og uppgræðslu:
Húsavíkurkaupstaður annist smalanir
Jóharmes Sigurjónsson, DV, Húsavík:
Landgræðsla ríkisins og Húsavík-
urkaupstaðar hafa gert með sér
samning um landgræðslu í landi
Húsavíkur. Helstu efnisatriði samn-
ingsins eru eftirfarandi:
Landgræðsla ríkisins tekur til frið-
unar og uppgræðslu í samvinnu við
Húsavíkurkaupstað, eftir nánara
samkomulagi, land í eigu kaupstað-
arins. Land þetta var girt fjárheldri
rafmagnsgirðingu sumarið 1989.
Húsavíkurkaupstaður annast allar
lögboðnar smalanir á þessu svæði
og sér um að búfé, sem kann að kom-
ast inn á landgræðslusvæðið, verði
fjarlægt. Húsavíkurkaupstaður get-
ur heimilað búfjáreigendum að hafa
búfé í afgirtum hólfum innan svæðis-
ins. Kaupstaðurinn skal ennfremur
hafa umráðarétt yfir öllum nytjum
umrædds lands,
Unnið verði að uppgræðslu lands
innan hins friðaða svæðis í nánu
samstarfi beggja aðha.
Einar Njálsson bæjarstjóri hefur
lýst yfir mikilli ánægju með þennan
samning, sem hann telur um margt
stefnumarkandi, því shkur samning-
ur mihi Landgræðslunnar og sveit-
arfélags hefur ekki áður verið gerð-
ur.