Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Síða 4
Fréttir
■IBSI H3»0T}í() .í
MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 1991.
Heimsmeistaramótið í bridge 1 Yokohama:
Stórsigur íslenska liðsins
í átta liða úrslitunum
íslenska landsliöiö geröi sér lítiö
fyrir og gersigraði lið Bandaríkjanna
II í útsláttarleik í átta liða úrslitum
heimsmeistaramótins í bridge. Loka-
tölur í leiknum voru 274 impar gegn
184. Svíar verða andstæöingar Is-
lendinga í undanúrslitaleiknum en
Brasilíumenn og Pólveijar mætast í
hinum leik úrslitanna.
íslenska liöið spilaöi leikinn gegn
Bandaríkjunum á laugardag og
sunnudag. Spilaöar voru 6 lotur í
leiknum og landsliöið lagði grunninn
að sigrinum strax í tveimur fyrstu
lotunum. Fyrsta lotan fór 70-9, ís-
landi í hag, önnur lota 63-32 og staö-
an þá orðin 133^1. Bandaríkin klór-
uöu í bakkann í þriöju lotunni sem
fór 25-57 og var munurinn þá 60 imp-
ar. ísland vann tvær næstu lotur,
49-26 og 33-18 og þá var munurinn
98 impar fyrir síðustu 16 spilin. Síö-
asta lotan fór 42-31 fyrir Bandaríkin.
Evrópumeistarar Breta voru slegn-
irútafPólverjumnokkuöörugglega, ^
282-195. Þegar leikur þeirra var '
hálfnaður, höföu Bretar nauma for-
ystu, 122-119. Pólverjarnir unnu
stórsigur í fjóröu lotu, 69-8, og lögöu
þar með grunninn aö öruggum sigri
í leiknum.
Hinir tveir leikirnir í átta liða úr-
slitum voru öllu jafnari. Svíar voru
í basli með Argentínumenn lengi
framan af en möröu sigur í lokin.
Þeir lögöu grunninn að sigrinum í
þriðju lotunni sem þeir unnu, 59-18,
en lokatölur leiksins uröu 224-198.
Leikur heimsmeistara Brasilíu-
manna viö Bandaríkin I bauö upp á
mesta spennu en úrslitin í leiknum
réöust ekki fyrr en í síðasta spili.
Brasilía vann nauman sigur, 188-180.
í síðasta spili fóru Bandaríkjamenn-
irnir í fjóra spaöa í opnum sal sem
fóru tvo niður. í lokuðum sal spiluðu
Bandaríkjamennirnir flögur hjörtu
dobluö á hinar hendurnar og fóru tvo
niður. Ef flórir spaðar heföu staöið
heföu Bandaríkin komist í úrslitin í
staö Brasilíumanna.
Þaö er einkennileg tilviljun að Pól-
verjar og Brasilíumenn skuli mætast
í undanúrslitum því þessar sömu
þjóðir og nánast sömu spilarar mætt-
ust einnig í undanúrslitum í síðustu
heimsmeistarakeppni árið 1989.
Frábær frammistaða íslands vekur
furöu Japana enda ekki á hverjum
degi sem svo fámenn þjóö nær jafn-
langt í heimsmeistarakeppni. í tilefni
þess tók japanska sjónvarpið viðtal
við Bjöm Eysteinsson, fyrirliða liðs-
ins, sem sýnt var í sjónvarpinu í gær.
-ÍS
Afmælismót D V í bridge var haldið um helgina:
Úrslitin réðust í síðustu umferð
- Sveinn R. Eiríksson og Svavar Bjömsson sigurvegarar
Flestir bestu spilarar landsins, að landsliðsspilurunum undanskildum, voru
meðal þátttakenda á afmælismóti DV. DV-mynd GVA
Afmælismót DV var spilað á laug-
ardag með þátttöku flestra sterkustu
spilara landsins, að landsliösspilur-
unum undanskildum. Keppni var
geysijöfn og spennandi allt fram í
síðustu umferð, en Sveinn Rúnar
Eiríksson og Svavar Björnsson stóðu
uppi sem sigurvegarar í lokin. Þeir
voru í forystu mestallt mótið og voru
því vel að sigrinum komnir.
Þetta er fyrsta stórmót í bridge sem
Sveinn Rúnar sigrar í en hann er
aðeins 23 ára sem þykir ekki hár ald-
ur í bridge, Hann hefur verið fasta-
maður í unglingalandsliðinu í bridge
síðustu tvö árin.
í öðru sæti í mótinu urðu Sigurður
Vilhjálmsson og Hrólfur Hjaltason,
en þeir eru nýbyrjaðir að spila sam-
an. Árangur þeirra er athyglisverður
því fyrir viku unnu þeir stórmót
Flugleiöa á Akureyri.
Bragi Hauksson og Sigtryggur Sig-
urðsson, hinn landsfrægi glímumað-
ur og briddsari, urðu í þriðja sæti,
aðeins þremur stigum á eftir Sigurði
og Hrólfi. Þessir spilara fengu glæsi-
leg peningaverðlaun fyrir frammi-
stöðuna. Sveinn Rúnar og Svavar
fengu 70 þúsund krónur, Sigurður
og Hrólfur fengu 40 þúsund og Sig-
tryggur - Bragi 30 þúsund krónur.
Keppendur í mótinu voru alls 72
eða 36 pör. Keppnisstjóri var ísak
Örn Sigurðsson, reiknimeistari
Kristján Hauksson og Katrín Kristj-
ánsdóttir sá um miðadreifmgu. Af-
mælismót DV er haldið í tilefni þess
að 80 ár eru síðan dagblaðið Vísir
kom út í fyrsta sinn.
-ÍS
Lokastaða efstu para varð þannig:
1. Sveinn R. Eiríksson-Svavar Björnsson 222
2. SigurðurVilhjálmsson-Hrólfur Hjaltason 196
3. Bragi Hauksson-Sigtryggur Sigurósson HHHjHBI
4. Jörundur Þórðarson-Friðjón Þórhallsson 167
5. Oddur Hjaltason-Páll Hjaltason 160
6. Guðmundur Sveinsson-Jónas P. Erlingsson 129
7. Þröstur Ingimarsson-Bernódus Kristinsson 114
8. Hermann LArusson-Ólafur Lárusson 103
í dag mælir Dagfari________________
Hækkun skatta er lækkun
Ekkert er skemmtilegra í stjórn-
málaumræðunni en vitsmunalegar
umræður ráðherra og stjórnarand-
stæðinga um skattana. Segja má
aö það sé árviss atburður að ráð-
herra haldi því fram að skattar
lækki í flárlagafrumvarpi. hans.
Hvaða ráðherra sem í hlut á og
hvaða ríkissflóm sem situr. Með
sama hætti finnur stjómarand-
staðan það ævinlega út að skattar
hækki og gildir þá einu hvort þeir
hækka eða lækka. Þeir hækka allt-
af í augum stjómarandstöðunnar.
Nú er þessi umræöa farin af staö
einn ganginn enn. í stól flármála-
ráöherra situr Friðrik Sophusson
sem var manna gleggstur í sflórn-
arandstöðunni í tíð fyrri stjórnar
um þá skatta og skattahækkanir
sem Ólafur Ragnar Grímsson lagði
á þjóöina. Friðrik hefur tekið að sér
það hlutverk í nýju ríkisstjóminni
að útskýra það fyrir kjósendum
sínum að þjónustugjöld séu ekki
skattar og þess vegna era það ekki
skattahækkanir sem valda því að
tekjur ríkissjóðs munu hækka um
þijá milljarða króna og kannski
enn meir, vegna innheimtu á þjón-
ustugjöldum. Það er nefnilega ekki
sama hvað skattamir heita og ef
þeir heita þjónustugjöld era það
ekki skattar og þá hækka ekki
skattamir þótt ríkissjóður fái meiri
tekjur af þeirri gjaldtöku. Fólk
ræður því hvort það sendir börnin
sín í skóla og þess vegna er því í
sjálfsvald sett hvort það borgar
skólagjöld. Ergó: skólagjöld eru
ekki skattar.
Nú hefur Friðrik lagt fram flár-
lagafrumvarpið og þar kemur fram
að hlutfall skatttekna ríkissjóðs- af
landsframleiðslu hækkar úr 25,8%
í 26,1% milli ára. Þetta er hins veg-
ar útskýrt með þeim hætti að á
næsta ári verður viröisaukaskatt-
ur og tryggingargjald í fyrsta skipti
innheimt í tólf mánuði. Engir skatt-
ar eru lagðir niður og engum skött-
um er bætt við, vegna þess að þjón-
ustugjöld eru ekki skattar eins og
fyrr segir. Niðurstaða Friðriks ér
því sú aö skattar hækka ekki án
þess þó að lækka og hækkunin sem
verður er ekki hækkun vegna þess
að hækkunin stafar af því að nú
er innheimt í tólf mánuði en ekki
ellefu.
Stjómarandstaðan skilur auðvit-
að ekki að hækkun geti veriö lækk-
un, enda mælir hún fyrir munn
þeirra sem greiða skattana, þegar
hún segir aö skattar á næsta ári
verði meiri en á yfirstandandi ári
ef skattamir hækka á milli ára.
Sflómarandstaðan hefur þá skoð-
un að það séu tólf mánuðir í árinu
en ekki ellefu og skattgreiðendur
muna ekki eftir þessum tólfta mán-
uði í fyrra eða í ár, sem ekki var
skattlagður. Þessvegna hækka
skattar, segja stjórnarandstæðing-
ar.
Nú verður hver og einn að dæma
um það sjálfur hvort stjómarand-
staðan hefur rétt fyrir sér eða flár-
málaráðherrann, en þá verða hátt-
virtir kjósendur líka að standa
klárir að því hver skattbyrði þeirra
er af landsframleiöslu, hvort þeir
borgi í tólf mánuöi eða ellefu, eöa
þá hvort þeir greiði þjónustugjöld
fyrir börnin í skólana eða lyf ofan
í sjúklingana í flölskyldunni. Þetta
reikningsdæmi getur því ýmist
fengið út lækkun eöa hækkun eftir
því hvaða niðurstöðu menn vilja fá.
Fjármálaráðherra verður auðvit-
að ekki vændur um óheiðarleika
og eflaust kann hann margföldun-
artöfluna utan að. Hann veit og
skilur aö hækkun skatta er lækkun
ef sumir skattar era ekki taldir
með. Sömuleiðis er lækkun skatta
hækkun ef skattar era innheimtir
í tólf mánuði í staðinn fyrir ellefu.
Á næsta ári heitir ráðherrann því
að skattar lækki og þá má gera ráð
fyrir að það verði gert með þeim
hætti að breyta virðisaukaskattin-
um í þjónustugjald. Fólk ræður jú
því hvort það kaupir í matinn eða
leggur í flárfestingar og ræður því
þar af leiðandi hvort það greiðir
virðisaukaskatt af þeirri þjónustu
eða þeim vöram sem til boða
standa. Þannig má lækka skattana
verulega og um leið er hægt að
hækka virðisaukaskattinn án þess
að hækka skattana. Auk þess getur
ráðherrann lagt fram Qárlaga-
framvai-p á næsta ári þar sem ein-
göngu er reiknað með skattheimtu
í ellefu mánuði eða jafnvel bara í
tíu mánuði og þannig má lækka
skattana umtalsvert og hækka
skattaálagninguna í leiðinni án
þess að sú hækkun sé hækkun. Það
eru engin takmörk fyrir skatta-
lækkunum með því að hækka
skattana.
Dagfari