Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Blaðsíða 30
42
Afmæli
MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 1991.
DV
Signrður Óli Ólafsson
Sigurður Óli Ólafsson, fyrrv. al-
þingismaður og kaupmaður, Foss-
heiði 34, Selfossi, er níutíu og fimm
áraídag.
Starfsferill
Sigurður Óli fæddist á Eyrar-
bakka og ólst þar upp. Hann stund-
aði öll almenn störf, reri margar
vertíðir á árabátum og mótorbátum
og kenndi við barnaskólann á Eyr-
arbakka tvo vetur. Hann er einn af
fyrstu bílstjórum Suðurlands, tók
bílpróf 1919, keypti bíl ári síðar og
stundaði akstur á Eyrarbakka.
Sigurður Óli flutti á Selfoss 1927.
Hann stofnaði þar verslun með
tengdaföður sínum og Júlíusi Guð-
mundssyni 1928 og veitti henni for-
stööu til 1964 en stundaöi síðan
verslunar- og skrifstofustörf í
Reykjavík. Hann er því einn af
landnámsmönnum Selfoss og átti
dijúgan skerf í því að móta hina
nýju byggð fyrstu áratugina.
Sigurður Oli var alþingismaöur
Árnessýslu og síðan Suðurlands
1951-67 og forseti efri deildar
1959-67. Hann var hreppsnefndar-
maður Sandvíkurhrepps og sýslu-
nefndarmaður 1938-47, sat í hrepps-
nefnd Selfosshrepps 1947-62, var
fyrsti oddviti hreppsins 1947-55 og
var sýslunefndarmaður hreppsins
1947-58. Þá var hann formaður sam-
bands sjálfstæðisfélaganna í sýsl-
unni, var formaður skólanefndar
Héraðsskólans á Laugarvatni
1951-67, formaður sjúkrahúsnefnd-
ar Suðurlands og Þorlákshafnar-
nefndarinnar. Hann var meðal
stofnenda Meitilsins hf. og átti sæti
í fyrstu stjórn hans. Þá var hann
endurskoðandi ríkisreikninga
1963-67.
Fjölskylda
Sigurður Óli kvæntist 10.10.1925
Kristínu Guðmundsdóttur, f. 8.2.
1904, húsmóður ert foreldrar hennar
voru Guðmundur Guðmundsson,
kaupfélagsstjóri Heklu á Eyrar-
bakka og síðar kaupmaður á Sel-
fossi, og kona hans, Ragnheiður
Lárusdóttir Blöndal.
Sigurður Óli og Kristín eignuðust
fjórar dætur: Þorbjörg, f. 24.3.1927,
húsmóðir á Selfossi, gift Kolbeini I.
Kristinssyni framkvæmdastjóra og
eiga þau einn son, Sigurð Kristinn;
Ragnheiður, f. 3.5.1929, dó í frum-
bernsku; Sigríður, f. 18.3.1931, dó í
bernsku; Sigríöur Ragna, f. 25.9.
1943, dagskrárgerðarstjóri barna-
efnis hjá ríkissjónvarpinu, gift Há-
koni Ólafssyni forstjóra og eiga þau
þrjú börn, Kristínu Mörtu, Sigurð
Óla og Hrefnu Þorbjörgu.
Sigurður Óli á tvö systkini á lífi:
Guðmund Geir, kaupmann á Sel-
fossi, og Gíslínu Margréti, húsmóð-
ur í Garðabæ.
Foreldrar Sigurðar voru Ólafur
Sigurðsson, f. 7.11.1869, d. 6.4.1950,
b. og söðlasmiður i Naustakoti á
Eyrarbakka, og kona hans, Þorbjörg
Sigurðardóttir, f. 7.8.1873, d. 18.2.
1940, húsmóðir.
Erlingur B. Magnússon
Erlingur Bjarni Magnússon sölu-
maður, Breiðási 10, Garðabæ, er
sextugurídag.
Starfsferill
Erlingur fæddist á Bæ í Reykhóla-
sveit og ólst þar upp. Hann er lærð-
ur smíðakennari en starfaði lengst
af sem vörubifreiðarstjóri í Reyk-
hólasveit og síðar í Reykjavík, en
þangað fluttist hann 1976.
Nú starfar hann sem sölumaður
hjá Húsasmiðjunni í Reykjavík.
Fjölskylda
Erlingur kvæntist 8.6.1957 Ásdísi
Helgu Höskuldsdóttur, f. 18.7.1937,
d. 13.6.1991. Hún var dóttir Höskuld-
ar Jóhannessonar, d. 11.8.1966, og
Guðbjargar Þórðardóttur sem bú-
setteríReykjavík.
Erlingur og Ásdís eignuðust sjö
börn, þau eru: Jóhanna, skrifstofu-
stúlka, búsett í Reykjavík, í sambúð
með Reyni Kristinssyni og á tvær
dætur; Ragnar Sævar, rafvirki, bú-
settur í Garðabæ, fráskilinn og á
tvær dætur; Höskuldur Geir, nemi
í húsasmíði, búsettur í Garðabæ;
Hinrik, d. 23.11.1989, átti soninn
Erling Bjarna; Guðbjörg Erna, bú-
sett í Garðabæ, í sambúð með Mar-
inó Pálmasyni og á einn son; Ellen
Ásdís, skrifstofustúlka, búsett í
Garðabæ, og María Erla, afgreiðslu-
stúlka, ógift og á einn son.
Erlingur á fimm alsystkini, þau
eru: Sigríður, húsmóðir, gift Sigurði
Sveinssyni rafvirkjameistara og á
fimm börn; Lúðvík, ógiftur, og á tvö
börn; Arndís, gift Stefáni Guðlaugs-
syni húsasmíðameistara og eiga þau
þrjú börn; Hákon, húsasmíðameist-
ari, í sambúð með Sigurlín Ellý Vil-
hjálmsdóttur og á meö henni eitt
barn, en hann átti fimm börn áður;
og Ingimundur, húsasmíðameistari,
kvæntur Sjöfn Smith og á með henni
fjögur börn.
Hálfbræður Erlings eru: Ólafur
Jón Magnússon, ógiftur og barn-
laus, og Gunnlaugur Magnússon,
kvæntur Guðríði Gýgju og eiga þau
tvo syni.
Uppeldissystir Erhngs er Hulda
Pálsdóttir, gift Halldóri Jónssyni
verslunarmanni.
Foreldrar Erlings voru þau Magn-
Erlingur Bjarni Magnússon.
ús Ingimundarson, f. 6.6.1901, d.
12.8.1982, fyrrum hreppstjóri í
Reykhólasveit, og Jóhanna Hákon-
ardóttir, f. 16.8.1901, d. 12.07.1937,
húsmóðir.
Foreldrar Magnúsar voru Ingi-
mundur Magnússon hreppstjóri og
Sigríður Einarsdóttir húsmóðir.
Foreldrar Jóhönnu voru þau Há-
kon Magnússon og Arndís Bjarna-
dóttir.
Erlingur verður að heiman á af-
mæhsdaginn.
Sigurður B. Magnússon
Sigurður B. Magnússon mats-
fulltrúi, Tunguvegi 23, Reykjavík,
ersextugurídag.
Litsjónvarpstæki
14" m/fjarst.
Kr. 1.950,-stgr.
5 ára ábyrgd
á myndlampa
VÖNDUÐ VERSLUN
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 !
Starfsferill
Sigurður fæddist í Hafnarfirði en
ólst upp í Reykjavík. Hann hóf nám
í húsasmíði hjá Helga Kristjáns-
syni húsasmíðameistara áriö 1948,
lauk sveinsprófi 1952 og fékk meist-
araréttindi 1956.
Sigurður hóf sjálfstæðan at-
vinnurekstur sem húsasmíða-
meistari 1960 og var með rekstur í
byggingarstarfsemi, ýmist einn eöa
ífélagi með öðrum.
Frá 1979 til 1982 starfaði hann á
Skráningardeild fasteigna hjá
Reykjavíkurborg en frá 1989 hefur
hann starfað sem matsfulltrúi hjá
Fasteignamati ríkisins.
Fjölskylda
Sigurður kváentist 7.9.1956 Sess-
elju Ásgeirsdóttur, f. 22.11.1936,
húsmóður og skrifstofudömu. Hún
er dóttir Ásgeirs Þorlákssonar og
Svanfríðar Sigurðardóttur sem nú
eru bæði látin.
Sigurður og Sesselja eiga fimm
börn, þau eru: Guðrún húsmóðir
og kennari, gift Ásmundi R. Ric-
hardsson framkvæmdastjóra og
búsett á Egilsstöðum; Ásgeir flug-
maður, búsettur í Kópavogi; Magn-
ús bakarameistari, í sambúð með
Valborgu H. Gestsdóttur hár-
greiðslumeistara og búsettur í
Reykjavík; Ingunn sölumaður, í
sambúö með Þorkeli Ágústssyni
iðnrekstrarfræðingi og búsett í
Kópavogi; Helga nemi. Barnaböm-
inerusjötalsins.
Sigurður B. Magnússon.
Foreldrar Sigurðar voru Magnús
L. Brynjólfsson, f. 18.7.1903, d. 2.6.
1941, sjómaður, fæddur að Ytri-Ey
á Skagaströnd, fórst með e/s Borg-
und, og Guörún S. Sigurðardóttir,
f. 22.6.1903, d. 12.4.1973, húsmóðir,
fædd í Bjálmholti í Holtahreppi,
Rangárvahasýslu.
Foreldrar Magnúsar, föður Sig-
urðar, voru Brynjólfur Lýðsson frá
Skriðnesenni í Óspakseyrarhreppi
í Strandasýslu og Kristín Indriða-
dóttir frá Ytri-Ey í Vindhælis-
hreppi, A-Húnavatnssýslu. Þau
bjugguaðYtri-Ey.
Foreldrar Guðrúnar, móður Sig-
urðar, voru Sigurður Sigurðsson
frá Bjálmholti í Holtahreppi, Rang-
árvallasýslu, og Borghildur Þórð-
ardóttir frá Sumarhðabæ í Holtum.
Þau bjuggu í Bjálmholti.
Sigurður tekur á móti gestum í
safnaðarheimih Bústaðakirkju eft-
ir kl. 20 á afmæhsdaginn.
Ætt
Ólafur var sonur Sigurðar, snikk-
ara á Syðri-Steinsmýri og á Breiða-
bólsstað, Sigurðssonar, b. á Ein-
túnahálsi, Jónssonar, b. á Fossi á
Síðu, bróður Nikulásar, langafa
Sveins í Völundi, afa Haralds, fram-
kvæmdastjóra Morgunblaðsins,
Leifs lögfræðings og Sveins verk-
fræðings Sveinssona. Móðir Ólafs
söðlasmiðs var Gyðríður Ólafsdótt-
ir, b. á Syðri- Steinsmýri, Ólafsson-
ar. Móðir Gyðríðar var Margrét
Gissurar, b. á Rofabæ, Jónsson-
ar.
Þorbjörg var systir Svanhildar,
móður Sigurgeirs biskups, föður
Péturs biskups. Þorbjörg var dóttir
Sigurðar, b. ogformanns í Nausta-
koti á Eyrarbakka, Teitssonar. Móð-
ir Sigurðar var Guðrún, systir Ólaf-
ar, langömmu Jóns, föður Hannesar
Jónssonar sendiherra. Guðrún var
dóttir Sigurðar, b. á Hrauni í Ölf-
usi, Þorgrímssonar, b. í Holti í
Stokkseyrarhreppi, Bergssonar, b. í
Sigurður Óli Olafsson.
Brattsholti, Sturlaugssonar, ættföð-
ur Bergsættarinnar. Móðir Guðrún-
ar var Ólöf Jónsdóttir, hálfsystir
Þorkels, langafa Salome Þorkels-
dóttur alþingisforseta.
Sigurður Óli dvelur á Sjúkrahúsi
Suðurlands á Selfossi.
Til hamingju með aímælið 7. október
90 ára
Kristín Friðríksaóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Aflagranda 40, Reykjavík.
Ragnar örn,
Fellsmúla 11, Reykjavík.
Sigurpáll Guðjónsson,
Neðri-Þverá, Fljótshlíöarhreppi.
80 ára
60 ára
Elin Brynjólfsdóttir,
Látraseli 7, Reykjavík.
Ólafur S.
Ólafsson,
Safamýri 67,
Reykjavík.
Ólafur
verður
að heiman
á afmælis-
daginn.
Jóna Kristjánsdóttir,
Saðurvangi 17, Hafnarflrði.
Anna Jóhannesdóttir,
Hátúni 10, Reykjavík.
Soffia Friðrilcsdóttir,
Mímisvegi 7, Dalvik.
Þórdís Haildórsdóttir,
Norðurgarði 9, Keflavík.
50 ára
75 ára
Jóhann Örn Guðmundsson,
Stakkhömrum II, Reykjavik.
Árni Þorsteinsson,
Miðflarðarnesseli, Bakkafirði.
Ágúst Eiríksson,
Löngumýri, Skeiðahreppi.
Halldóra Hjartardóttir,
Ljósheimum 14, Reykjavik.
Signý Einarsdóttir,
Ægisiöu 115, Reykjavík.
40 ára
70 ára
Elías Þórðarson,
Aðalstrætí 84, Patreksflrði.
Eva Benediktsdóttir,
Viggó Bjarnason,
Eiðistorgi 7, Seltjarnarnesi.
Jóhann Halldórsson,
Hjarðarhaga 36, Reykjavik.
Óskar Guðmundsson,
Eyjaholti 20, Garöi.
Sæmundur Halldórsson,
Mávabraut 8b, Keflavík.
Anna Guðríður Tryggvadóttir,
Hjaltabakka 10, Reykjavík.
Guðbjörg Hrönn Svéinsdóttir,
Ásabraut 15, Keflavík.
Þórgunnur Amalía Þorleifsdóttir
Þórgunnur Amalía Þorleifsdóttir
húsmóðir og fiskverkakona, Karls-
braut 12, Dalvík, er 75 ára í dag.
Starfsferill
Þórgunnur er fædd að Hóli á Upsa-
strönd og ólst þar upp við öll venju-
leg störf th sjávar og sveita.
Þórgunnur gekk í skóla á Dalvík
og veturinn 1933-1934 fór hún í hús-
mæðraskólann að Hallormsstað, þá
sautján áragömul.
Eftir að uppeldi barnanna lauk fór
Þórgunnur að vinna sem fiskverk-
unarkona.
Þórgunnur hefur unnið að hinum
ýmsu félagsstörfum og var m.a. einn
af stofnendum Slysavarnafélags
kvenna á Dalvík, en þau hjónin
höföu bæði mikinn áhuga á upp-
byggingu slysavarnamála og björg-
unarsveitar á staðnum.
í dag starfar hún með nýstofnuðu
félagi aldraðra á Dalvík og ná-
grenni.
Fjölskylda
Þórgunnur giftist 5.11.1937 Árna
Guðlaugssyni, f. 10.6.1912, d. 7.11.
1987, múrara. Árni var frá Miðkoti
á Upsaströnd, sonur Guðlaugs Sig-
urjónssonar, Jónassonar og Ónnu
Jónsdóttur, Hanssonar, Baldvins-
Þórgunnur Amalia Þorleifsdóttir.
sonar, Þorsteinssonar frá Upsum.
Þórgunnur og Árni eignuöust þrjú
böm, þau eru: Snorri, f. 17.1.1943,
d. 7.3.1985; Þorleifur Kristinn, f.
11.10.1946, d. 5.10.1974, ogSvanhild-
ur, f. 18.6.1948.
Foreldrar Þórgunnar voru þau
Þorleifur Þorleifsson, b. á Hóli, Jó-
hannssonar, Jónssonar, b. á Ingvör-
um, og Svanhildur Björnsdóttir,
Jörundssonar (Hákarla-Jörunds),
Selaklöpp í Hrísey.
Þórgunnur er næstelst átta systk-
ina, fimm þeirra eru á lífi í dag.