Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 1991.
9
t=
Þannig var umhorfs á einu sjúkrahúsanna i Port-au-Prince á Haíti. Þar er talið að líkum í það minnsta hundrað manns hafi verið hrúgað saman i kæli-
geymslu og ættingjarnir látnir bera kennsl á fólkið. Ógnaröld ríkir nú á Haítí. Simamynd Reuter
Hörmungar á Haítí í kjölfar valdaráns hersins:
Fólk leitt til slátrunar
Um helgina hefur fólk fariö á milli
sjúkrahúsa í Port-au-Prince, höfuð-
borg Haítí, í von um aö geta borið
kennsl á lík ættingja sinna. Enginn
veit hve margir hafa verið myrtir í
kjölfar valdaráns hersins.
Á einu sjúkrahúsanna segja sjón-
arvottar að í það minnsta hundrað
líkum hafi verið kasað saman. Þar á
meðal voru bæði böm og konur og
hafði fólkið sjáanlega verið leitt til
slátrunar og skotið.
Ein útvarpsstöðvanna í borginni
sagði að í það minnsta 250 manns
hefðu fallið í grimmdarverkum hers-
ins eftir að Jean-Bertrand Aristide
forseti hrökklaðist frá völdum þann
30. september. Starfsmenn hjálpar-
stofnana í borginni segja að mun
íleiri hafi verið myrtir.
Heimamenn segja aö tilgangur
hersins með morðunum sé að hræða
stuðningsmenn forsetans frá því að'
halda uppi andstöðu gegn hinum
nýju valdhöfum. Herinn lætur mikið
fyrir sér fara í höfuöborginni og íjöldi
hermanna er þar með alvæpni.
Valdaræningjamir skipuðu þing-
inu aö koma sama til fundar í gær
og útnefna mann til að taka við for-
setaembættinu. Herinn vakti yfir
þingfundinum og í gærkveldi var
íjóst að þingmenn ætluðu að fara að
kröfu hans og viðurkenna að Ar-
istide hefði sagt af sér. Því hefði her-
innekkiræntvöldunum. Reuter
_______________Útlönd
Terry Anderson:
Bráðumfréttir
afgislamálinu
Bandaríski gíslinn Terry And-
erson sagði í viðtali, sem sýnt var
á CNN stjónvarpsstööinni í gær,
að líbönsku mannræningjamir,
sem höfðu hann í haldi, hefðu
sagt sér aö brátt yrðu „góöar
fréttir" af vestrænum gíslum.
í viðtalinu, sem tekið var upp á
Beirútsvæðinu, hvatti hinn 43 ára
blaðamaður til þess að hin lang-
varandi gísladeila yrði leyst Qjótt.
í bréfi sem fylgdí með mynd-
bandinu og sem var undirritað
af samtökunum Heilagt stríð ísl-
ams sagði að viðtalið værí næsta
skref í því að leysa gíslana úr
haldi.
Anderson sagöi að hann væri \
haldi með Terry Waite, sendi-
manni ensku kirkjunnar, sem
hvarf í janúar 1987 og Thomas
Sutiierland, rektor ameríska há-
skólans í Beirút, sem var rænt í
júní 1985.
„Mér var sagt að við mættum
búast við mjög góðum fréttum
mjög Qjótlega,“ sagði Anderson
sem hefur verið í haldi lengst
allra gísla í Líbanon. Honum var
rænt í mars 1985.
Viðtaliö var gert af Mbönsku
fyrirtæki sem bauö CNN það til
hirHnoar liu,tw
Bandariski gíslinn Terry Ander-
son hefur verið lengat allra í
haldi mannræningja í Beirút.
Siínamym) Reuter
Anibal Cavaco Silva, forsætisráð-
herra Portúgals, og Jafnaðar-
mannaflokkur hans unnu stórsigur í
kosningum um helgina. Teikníng Lurie
Stjórnarflokkurinn
vann í Portúgal
Stjómarílokkur jafnaðarmanna í
Portúgal fagnaði í morgun miklum
sigri í kosningum sem fram fóru í
landinu um helgina. Anibal Cavaco
Silva forsætisráðherra varaði þó við
að erfiðleikatönar væru framundan.
„Mikil og erfið verkefni bíða okk-
ar. Staðan í alþjóðamálum er ákaf-
lega flókin," sagði hann á fundi með
fréttamönnum í aðalstöðvum Jafn-
aðarmannaflokksins. En hann bætti
við: „Við emm að sjálfsögðu mjög
ánægðir með úrslitin sem em skýr
sigur. Þetta er sönnun þess aö lýð-
ræði í landinu hefur styrkst í sessi.“
Þegar nær öll atkvæði höfðu verið.
talin hafði Jafnaðarmannaflokkur-
inn fengið 50,59 prósent atkvæða og
kosningaspár gerðu ráð fyrir aö
hann fengi 132 af 230 þingsætum.
Sósíalistaflokkurinn undir stjóm
Jorges Sampaios sem fékk næstflest
atkvæöi fékk aðeins 29,04 prósent.
Einn stærsti sigurvegari kosning-
anna að þessu sinni var sinnuleysi.
Rétt tæpur þriðjungur atkvæðis-
bærra manna hafði ekki fyrir því að
neyta réttar síns á sólfógmm degi og
hafa aldrei jafnmargir setið heima.
Reuter
MÁMUDAGSTILBOÐ
ALLAR SPÓLUR Á KR. ÍOO,-
GRENSÁSVÍDEÓ BÝÐUR TIL MÁNUDAGSTILBOÐS, ALLAR SPÓLUR
Á KR. 100,- Á MÁNUDÖGUM
FRÁBÆR FRÁBÆR FRÁBÆR
OPIÐ ALLA DAGA KL. 12-23
GRENSÁSVEGI 24, SÍMI 686635, VIÐ HLIÐINA Á LANDSBANKANUM