Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Blaðsíða 9
FÖSTUDA'GUR 11. OKTÓBER 1991 9 Utlönd Hroðaleg sjón blasti við fréttamanni Reuters þegar honum voru sýnd lík írösku hermannanna eftir að aftökusveit Kúrda hafði unnið vérk sitt. Símamynd Reuter Voðaverk Kúrda í Norður-írak: Hef na sín með fjöldamorðum Nú eru að berast til Vesturlanda nákvæmar upplýsingar um hermd- arverk skæruliða Kúrda í Norður- írak um síðustu helgi. Fréttamaður Reuters var viðstaddur þegar skæru- liðarnir myrtu um 60 íraska stríðs- fanga með köldu blóöi. Frá þessum atburðum hefur verið sagt í fréttaskeytum en nú fyrst eru að berast myndir af atburðunum. Hermennirnir voru óvopnaðir þegar þeir voru leiddir til slátrunar. Tildrög þess að til blóðbaðsins kom voru þau að menn úr íraska hernum og skæruliðar Kúrda áttu í bardög- um nærri borginni Sulaimaniya í norðurhluta íraks. Þar eru Kúrdar fjölmennir. Ófriðlegt hefur verið á þessum slóðum allt frá því Saddam Hussein lét blása til sóknar gegn Kúrdum að loknu Persaflóastríðinu. í bardögunum nú tóku skæruhðar um 60 hermenn til fanga og fluttu þá til borgarinnar. Þar var fóngunum smalað saman í hús, sem skæruliðar hafa á valdi sínu, og látnir krjúpa á gólfið með hendur á höfði. Síðan hófst skothríð á fangana og henni ekki hætt fyrr en hver maöur var fallinn. Þessi voðaverk eru hefnd Kúrda fyrir fjölmargar árásir hersins á óbreytta borgara í héruðum þeirra. Þúsundir manna hafa fallið í þessum herferðum á liðnum árum, enda nán- ast um útrýmingarherferð gegn Kúrdum að ræða. Reuter Svaraði brottrekstri með morðum Póstmanni nokkrum í bænum Ridgewood í New Jersey í Bandaríkj- unum mislíkaði' þegar yfirmaður hans, sem var kona, vildi ekki þýðast hann. í fyrstu áreitti hann konuna kynferðislega og var rekinn. Póstmaðurinn bjóst þá til aðgerða. Hann klæddist í hermannagalla, fékk sér tvær hálfsjálfvirkar vélbyssur, nokkrar handsprengjur og girti sig samurai-sverði. Þannig búinn hélt hann til póshússins og myrti konuna ásamt þremur öðrum starfsmönn- um. í fyrstu reyndi hann að verjast lög- reglunni þegar hún kom á staðinn en gafst upp þegar hann sá að um ofurefli liðs var að ræða. Hann er nú í haldi og bíður ákæru. Maðurinn heitir Joseph Harris og er 35 ára gamall. Á hönum árum hafði Harris oft verið kærður vegna kynferðislegrar áreitni við vinnufélaga sína. Hann gaf þá skýringu á framferði sínu að hann hefði ekki notið sannmælis á vinnustað sínum. Reuter Saklaus prakkarastrik sem verða að stóru báli. Þetta er hrifandi saga af sjö piltum sem segir frá and- spyrnu þeirra i Ðanmörku á timum seinni heimsstyrjaldarinnar, baráttuvilja þeirra og frelsisást, heitri baráttu gegn nasistunum með lifið að veði. Myndin er leikstýrð af hinum þekkta leikstjóra Dana, Soren Kragh-Jacobsen. HASKÓLABÍÓ BENT FABiUCIUS-BJEKRES0REN KRAGH-JACÖBSEN ,«iBJARNE REUTF.R ,... DAN LAUSTSEN. LA8S NIELSEN tEiP AXEL KIEUœi > .„ MORTEN DEGNBOL JACOB GROTH , !BTARDiNi MADSEGMONTCHRISTENSEN S0RENKRAGH-JACOBSEN öt-f bcrt&ndtv *wn xU-vutímtreftvv. PJudJh'Íií vur rfoí Kamktvr!ijjhrtlt'n »kri}í«n- í DDO ISLENSKU .í’n S fi e e n K r «tf h - -J a c « b » v k fil ta SANKT PETRl •MViígcfej. ' LAUGAVEGI ■ '> ir. . Loksins, loksins, segja eflaust sumir. Loksins sendir Egill Ólafsson frá sér sina fyrstu sólóplötu. Egill hefur sem kunnugt er lengi veriö viöriöinn tónlist og komiö víöa viö. Platan ber merki þess, er fjölbreytt og skemmtileg. Fjöldi þekktra listamanna aöstoöa Egil viö aö gera þessa plötu aö listaverki. Tvímælalaust ein athyglisveröasta plata ársins. T 1 F i _ ■ ■ ■ L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.