Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991. 15 „2. október síðastliðinn lagði fjármálaráðherra fram frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1992.“ aukist sem hlutfall af landsfram- leiðslu þegar hann veit aö lands- framleiösla mun minnka stórkost- lega en sleppir aö nefna að skatt- byrðin að raungildi stendur í stað í fyrsta skipti í 7 ár. Það er sagt að hægt sé að segja ósatt með því að segja aðeins hluta sannleikans. Hvað er þá satt og hverju er logið? Arni M. Mathiesen Satt og logið Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, er kröfuharður maður. í leiðara sínum hér í blaðinu á laugardaginn var kemur fram að hann gerir miklar kröfur til ríkisstjórnarinn- ar. Þannig á það líka að vera. Kjós- endur eiga að gera miklar kröfur til ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar. Kröfumar verða hins vegar að vera réttmætar og í samræmi við það sem aðstandendur ríkisstjórnar- innar lofuðu fyrir kosningar og í samræmi við þann tíma sem ríkis- stjórnin hefur haft til þess að efna loforðin. Kosningaloforðin Frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins lofuðu því að hækka ekki skatta og að lækka þá á kjörtíma- bilinu, koma á jöfnuði í ríkisfjár- málum og minnka lántökur ríkis- sjóðs svo að vextir gætu lækkað. Þeir lofuðu einnig að standa ekki að kollsteypum í efnahagslíflnu heldur vinna að sem allra mestum stöðugleika til þess að kjósendur gætu gert framtíðaráætlanir sem féllu ekki um koll vegna stjórn- valdsaðgerða. 2. október síðastlið- inn lagði íjármálaráðherra fram ' * frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1992. Á bak við þetta frumvarp liggur gífurlega mikil vinna og niðurstað- an er frumvarp í samræmi við þau kosningaloforð sem nefnd eru hér að ofan. Það er hins vegar engin ástæða til stórkostlegra fagnaðar- láta því gjarnan hefði mátt ná meiri árangri. En árangurinn er samt sem áður veigamikill ef frumvarpið nær fram að ganga án mikilla breytinga. Árangurinn Samkvæmt frumvarpinu mun KjaUaiinn 9 Árni M. Mathiesen alþingismaður reiknuð á fóstu verðlagi, á ekki að hækka á milli ára. Það verður hins vegar að viðurkennast að sem hlut- fall af landsframleiðslu er líklegt að skattar hækki en það er vegna þess að landsframleiðslan mun væntanlega minnka vegna afla- brests en ekki vegna þess að skatt- arnir muni hækka. Sannleikurinn Á fimm suniarmánuðum reynd- ist erfitt að komast lengra í átt til stórra breytinga en að stöðva út- gjalda- og skatthækkanir, án þess að stórkostleg röskun yrði á högum fjölda fólks. Margar ástæður liggja þar að baki. Sennilegast krefst leit- in að bestu og hentugustu hug- myndunum og samræming sjón- armiða meiri umræðu og meiri „Jónas kýs jafnframt að gera mikið úr því að skattbyrðin aukist sem hlutfall af landsframleiðslu þegar hann veit að landsframleiðsla mun minnka stór- kostlega en sleppir að nefna að skatt- byrðin að raungildi stendur 1 stað í fyrsta skipti í 7 ár.“ útgjaldaaukning ríkisins verða stöðvuð, skattahækkanir verða stöðvaðar og lánsfjárþörfin mun dragast saman um % frá síðasta ári. Hallinn á ríkissjóði mun minnka um fimm milljarða. Skatt- ar á árinu 1992 munu verða þeir sömu að raungildi og á árinu 1991, jafnvel lækka lítillega. Þetta er í fyrsta skipti í 7 ár sem skattbyrðin, vinnu. Þessi umræða krefst þess hins vegar að gætt sé fullrar sann- girni gagnvart því sem vel er gert og gífuryrðin spöruð. Jónas kýs í leiöara sínum að gera engan grein- armun á sköttum og þjónustugjöld- um og hann kýs að álasa ríkis- stjórninni fyrir að standa viö gerða samninga. Jónas kýs jafnframt að gera mikið úr því að skattbyrðin Að hlusta á aðra Alþingi Islendinga er nú tekið til starfa í einni málstofu. Þetta er hið 115. löggjafarþing þjóðarinnar síð- an hið endurréista Alþingi var kvatt saman hinn 1. júh 1845. Ein málstofa á að auðvelda afgreiðslu mála og stytta málróf og koma í veg fyrir málþóf. Á Alþingi situr margur góður drengurinn og ætlar sér stóra hluti og sannarlega er af mörgu að taka því báglega horfir nú fyrir ís- lenskri þjóð eins og oft áður. Þjóðin er skuldum vafin eins og skrattinn skömmunum, atvinnuleysi meira' en verið hefur lengi og dökkar horfur í höfuðatvinnuvegi þjóðar- innar, sjávarútvegi og fiskveiðum, landbúnaðurinn skorinn niður við trog og iönaður allur í lamasessi. Vonir, sem bundnar voru við ál- bræðslu á Suðumesjum, em ótryggar og stofnun efnahagssvæð- is Evrópu, sem að sumra dómi gat leyst flestan vanda, komin út í hafs- auga. Sundurlyndi og stórkarlafyndni Verst er þó að enn tröllríður sundurlynclisíjandinn húsum í Al- þingi. Enginn trúir öðrum og ekk- ert er nýtilegt af því sem andstæð- ingurinn segir og jafnvel stórkarla- fyndnin, sem menn gripu til þegar annað brást, heyrist varla lengur. Plötuna, sem Alþýðubandalagið spilaði í fyrra, spila sjálfstæðis- menn nú og ummæli Davíðs í haust minna á orð Steingríms í vor. Það er þvi ekki að furða þótt sveita- menn norður ílandi tali um að það sé sami rassinn undir þeim öllum. Norðlensk stórhríð Hins vegar teljum við sveitamenn norður í landi að ekkert geti orðið Kjallarmn Tryggvi Gíslason skólameistari á Akureyri okkur til bjargar nema Alþingi og ríkisstjóm því að ekki fáum við tækifæri til þess að gera það sjálfir. Svo er miðstýringarvaldinu fyrir að þakka. En þó hillir ef til vill undir breytingar því að við getum farið að borga okkur sjálfum trygg- ingarfé af húsum og fasteignum í stað þess að senda þetta fé suður og við getum farið að flytja út nátt- úrulegt lambakjöt og fisk án þess að láta ágóðann renna suður og við gætum líka flutt inn allt okkar korn og mjöl frá útlöndum og jafnvel lokkað hingað norður ferðamenn beint frá útlöndum, meira að segja í svartasta skammdeginu, því að fátt hefur sterkari og meiri áhrif á menn en það sem er ólíkt því sem þeir eru vanir. Jafnvel norðlensk stórhríð í svartasta skammdeginu gæti orðið söluvara auðugum aröb- um, Japönum ellegar auðkýfingum að vestan. Atvinnuþref En nú þarf að spara, draga saman seglin og herða sultarólina. Fyrir höndum er atvinnuþref, jafnvel verkföll og miklar launakröfur, eins og stundum áður, og ekki að furða, því að engin fjölskylda lifir af einum launum eins og allt er í pottinn búiö. Það er því ekki björgulegt útlitið og satt að segja ber ég mestan kvíðaboga fyrir bömunum okkar og unga fólkinu sem ekki fær mikla uppörvxm eða hvatningu af orðræðum fyrir- manna og ráðamanna - nema þá ef til vill í hátíðarræðum sem oft eru þannig orðaðar að enginn skil- ur fyrir skrúðmælginni og orða- gjálfri, og svo virðist menntun ungs fólks vera orðinn mesti munaöur- inn svo að ekki sé sagt fullkomið óhóf. En hvað má þá til varnar verða, vomm sóma? Satt að segja held ég miklu .yröi þegar áorkað í hinni nýju málstofu á sameinuðu Alþingi íslendinga ef menn tækju að hlusta hver á annan og reyndu að skilja hvert verið væri að fara. í ná- grannalöndum okkar kemur það til aö mynda iðulega fyrir að menn sjá og skilja að andstæðingurinn hefur lög að mæla og hefur hugsað heila hugsun og getur jafnvel lagt gott til málanna. Það er nefnilega eðli og einkenni þroskaðs lýðræðis að enginn hefur allt vit og öll ráð. Hins vegar er það einkenni einræðis og alræðis að einn veit allt - og auðvit- að gildir enn hið fomkveðna að því verr gefast heimskra manna ráð sem fleiri koma saman. Tryggvi Gíslason „Fyrir höndum er atvinnuþref, jafnvel verkföll og miklar launakröfur, eins og stundum áður, og ekki að furða, því að engin íjölskylda lifir af einum laun- um eins og allt er 1 pottinn búið.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.