Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1991, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1991
11
Fréttir
Hæstiréttur dæmir viðskiptaráðuneytið:
Ráðuneytið braut log um
eðlilega viðskiptahætti
- auglýsti verðsamanburð á fermingarmyndum en gat ekki fyrirvara
Viðskiptaráöuneytíð hefur verið
dæmt í Hæstaréttí fyrir brot á lögum
um verðlag, samkeppnishömlur og
óréttmæta viðskiptahætti. í dómnum
er vitnað sérstaklega til þess ákvæð-
is að ekki sé heimilt að veita villandi
upplýsingar er áhrif hafi á eftirspurn
eftir þjónustu. Samkvæmt dómnum
á ráðuneytið að greiða ljósmynda-
stofunni Svipmyndum 226 þúsund
krónur, auk dráttarvaxta, og lög-
Auglýsing sú sem Ijósmyndastofan
Svipmyndir birti til að andmæla áður
birtri auglýsingu viðskiptaráðuneyt-
isins. Dómur Hæstaréttar kveður á
um að ráðuneytið greiði Ijósmynda-
stofunni allan kostnað við gerð og
birtingu þessarar auglýsingar.
manni hennar, Jóni Steinari Gunn-
laugssyni, 135 þúsund í málskostnað.
Tildrög þessa dóms eru þau að í
mars 1988 birtist á vegum viðskipta-
ráðuneytisins auglýsing í nokkrum
dagblöðum um mismunandi verð hjá
ljósmyndastofum. í auglýsingunni
var vitnað til verðsamanburðar
Verðlagsstofnunar á fermingarljós-
myndum án þess að þess væri getið
að ekki var reynt að meta gæði þjón-
ustunnar. Þá var sama mynd, sem
tekin var vegna auglýsingarinnar,
birt tvisvar og enn getið um mismun-
andi verð.
Að sögn Sigurgeirs Siguijónssonar,
eiganda að Svipmyndum, gat hann
ekki sætt sig við þessa auglýsingu.
Segir hann auglýsinguna hafa verið
illa unna og í henni hafi sérstaklega
verið höggvið að fyrirtæki sínu. Því
greip hann til þess ráðs að birta aðra
auglýsingu þar sem hann undirstrik-
aði að hjá sér skiptu gæðin máh. í
sömu auglýsingu setti hann rauðan
kross yfir auglýsingu viðskiptráðu-
neytisins.
Sigurgeir segist síðan hafa höfðað
mál gegn ráðuneytinu þegar það
neitaði að draga auglýsingu sína til
haka. Krafa Sigurgreirs var sú að
ráðuneytið greiddi sér þann kostnað
sem hann hefði orðið fyrir vegna
gerðar og birtingar á auglýsingu
sinni, auk málskostnaðar.
Dómur í undirrétti féll viðskipta-
ráðuneytinu í óhag og áfrýjaði það
þeim dómi til Hæstaréttar. Þar var
dómur undirréttar hins vegar stað-
festur. -kaa
KEA tapaði 30 milljón-
um fyrstu níu mánuðina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kaupfélag Eyfirðinga tapaði 30
milljónum króna fyrstu níu mánuði
ársins samkvæmt bráðabirgðaupp-
gjöri sem nú liggur fyrir en á sama
tíma á síðasta ári nam hagnaður af
rekstri félagsins tæpum 140 milljón-
um króna.
Magnús Gauti Gautason kaupfé-
lagsstjóri sagði í samtali við DV að
félagið hefði á árinu orðið fyrir
skuldatapi og þurft að greiða ábyrgð-
ir af lánum og næmi sú upphæð 87
milljónum króna. Stærstu einstöku
liðirnar þar væru vegna alifuglabús-
ins Fjöreggs og ístess hf. en bæði
þessi fyrirtæki urðu gjaldþrota á ár-
inu.
„Það sem er mun verra en í fyrra
er fjármagnskostnaöurinn, vextirnir
eru miklu hærri þannig að hagnað-
urinn af reglulegri starfsemi er
minni heldur en í fyrra þótt hagnað-
irn fyrir fjármagnskostnað sé meiri,“
sagði Magnús Gauti.
- Hver verða viðbrögð ykkar við
þessari stöðu?
„Það verður auðvitað áframhald-
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyii
Akureyringar og nærsveitamenn
eru nú að hefja þátttöku í forkeppni
íslandsmótsins í „karaoke" söng-
keppni og verður keppt á veitinga-
staðnum Kjallaranum á fimmtudags-
kvöldum næstu vikurnar.
Að sögn Kolbeins Gíslasonar munu
MDSKnM MUDl M Vni
j : faTOtag»«legi, fcr. )0Ó0. <f v«ðrounuríjw ' umkm. ^
Auglýsing viðskiptaráðuneytisins sem Hæstiréttur hefur nú dæmt villandi og brjóta gegn ákvæðum laga um verð-
lag, samkeppnishömlur og ólögmæta viðskiptahætti. í auglýsingunni er þess ekki getið að um mismunandi gæði
á þjónustu geti verið að ræða hjá þeim Ijósmyndastofum sem verðsamanburður Verðlagsstofnunar náði til. Er
það niðurstaða Hæstaréttar að i auglýsingunni sé gefið í skyn að um sambærilega þjónustu sé að ræða enda
sama mynd notuð til að undirstrika ólikt verð.
andi aðhald í okkar rekstri en það
eru ekki komnar upp á borðið neinar
stórar áætlanir um breytingar á
rekstrinum. En það verður reynt að
líta í öll hom og skoða þetta frá öllum
hliðum."
Heildartekjur KEA fyrstu níu mán-
uði ársins námu 6,6 milljörðum
króna og jukust um 7% milli ára.
Heildarlaunagreiðslur félagsins á
þessum sama tíma námu 935 milljón-
um króna og hækkuðu um 9% á
milli ára. Hagnaður fyrir fjármagns-
liði var 335 milljónir á móti 272 millj-
ónum á sama tímabili í fyrra.
Fjármagnskostnaður hefur hækk-
að mjög mikið á milh ára eða um 41%
og lækkar því hagnaður af reglulegri
starfsemi niður í 71 milljón úr 85
milljónum króna ári áður. KEA hef-
ur á þessu tímabili gjaldfært og lagt
til hliðar um 87 milljónir til að mæta
skuldatapi og greiðslum á ábyrgðum
sem félagiö var í. Skattar á tímabil-
inu námu 14 milljónum og niðurstað-
an er því tap sem nemur 30 milljón-
um króna. Eigið fé KEA er nú rúm-
lega 2.600 milljónir króna og hefur
aukist um 10% á milli ára.
Akureyringar í „karaoke“ söngvakeppni
sennilega sex keppendur keppa hvert
fimmtudagskvöld og komast sigur-
vegararnir áfram í úrslit. „Karaoke"
söngur fer þannig fram að söngvar-
inn fær undirspil og bakraddir til að
styðjast við og einnig texta á skjá
fyrir framan sig.
Fyrsta keppniskvöldið verður í
Kjallaranum annað kvöld.
JOLAGJAFAHANDBOK
1991
Miðvikudaginn 4. desember nk’. mun hin árlega jóla-
gjafahandbók DV koma út í 11. sinn.
Jólagjafahandbók DV hefur sívaxandi mæli orðið rík-
ari þáttur í jólaundirbúningi landsmanna enda er þar
að finna hundruð hugmynda að gjöfum fyrir jólin.
Skilaffestur auglýsinga er til 22. nóvember nk. en með
tilliti til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum bent
á að hafa samband við auglýsingadeild DV hið íyrsta
í síma 27022 svo að unnt reynist að veita öllum sem
besta þjónustu.
Ath.l Símafaxnúmer okkar er 62-66-84
auglýsingar