Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1991, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1991, Side 28
F R ÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. 3 ' ' ■ ' ■ ■. : MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1991. Alþingi: Iðnaðarráðherra í kröppum dansi Snarpar umræður urðu á Alþingi í gær utan dagskrár um álmálið. Steingrímur Hermannsson hóf um- ræðuna og ásakaði Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra fyrir að hafa ekki hlustað á vamaðarorð hans og fleiri manna varðandi álmáhð fyrir ári síð- an. Ólafur Ragnar sagði dómgreind- arskort iðnaðarráðherra helstu ástæðuna fyrir því hvemig nú er komið. Páll Pétursson sagði ótímabæra handsalssamninga iðnaðarráðherra hafa stórskaðað samningsstöðu samningamanna Landsvirkjunar í álmálinu. Jón Sigurðsson rakti í stórum dráttum gang álmálsins og sagði eng- an hafa getað séð það fyrir að erlendu fyrirtækin þrjú myndu kippa að sér hendinni nú og fresta framkvæmd- um. Hann sagðist hafa rætt við aðila sem hefðu áhuga á aö koma hér upp verksmiðju til að vinna slípiefni úr súráli. Einnig hefðu átt sér stað við- ræður um að koma hér upp þilplötu- verksmiðju og rætt hefði verið um að koma upp fríiðnaðarsvæöi á Suð- urnesjum. Davíð Oddsson sakaði stjórnarand- stöðuna um ómaklegar og ódrengi- legar árásir á iðnaðarráðherra. -S.dór Fiskiðjan Freyja: Aukum ekki viðskipti við fiskvinnsluna - segir Sverrir Hermannsson „Við erum með yfir 70 prósent af fiskvinnslu í landinu og höfum ekki hugsað okkur að bæta við það. Ég vona að menn skilji þessa afstöðu okkar,“ sagði Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans. Sverrir hefur synjað Fiskiðjunni Freyju á Suðureyri um viðskipti við bankann. „Forsvarsmenn Norðurtangans og Frosta höfðu farið fram á fyrirgreiðslu að upphæö 50 milljónir króna, til kaupa á Freyju. Lands- bankinn ljáði máls á þeirri fyrir- greiðslu. Hins vegar hefur bankinn aldrei verið með almenn viðskipti við Freyju. Við vorum því sannfærðir um að þegar nýir aðilar og sterkir1 kæmu aö fyrirtækinu yrði auðgert að fá áframhaldandi viðskipti við ís- landsbanka um rekstur þess.“ í dag hitta forsvarsmenn Lands- banka stjórnarformann og fram- kvæmdastjóra Byggðastofnunar, til að ræða málefni fyrirtækisins. -JSS LOKI Það virðistvera hálfgerð málmþreyta í landanum? Óveöriö á Noröurlandi vestra: Tugir raf magns staura brotnuðu vegna ísingar Gyifi Eri3tjánssan, DV, Akureyxi: „Það eru um 50 rafmagnsstaurar brotnir eftir þetta veður sem var alveg kolvitlaust. Við urðum frá að hverfa í gær vegna veðurofsans en nú er veðrið orðið betra og við för- um af krafti í að gera viö og von- andi verður ástandið komið í betra horf þegar líður á daginn," sagöi Haukur Ásgeirsson, svæðissfjóri Rafmagnsveitu ríkisins á Norður- landi vestra, er DV ræddi við hann í morgun um skemmdir af völdum óveðursins sl. sólarhring. Mikiö norðaustan veður gekk yf- ir Norðurland í fyrrinótt og í gær og olli víða erfiðleikum. Verst var ástandið á Norðurlandi vestra þar sem ísing auk veöurofsans olli því að um 50 rafmagnsstaurar brotn- uðu og rafmagn fór af. Þetta gerðist á Siglufirði, í Fljótum, á afmörkuð- um stöðum í Skagafirði og á Skaga í Húnavatnssýslu. „Ástandið núna er þannig að Siglufjarðarlína er úti ennþá, þar brotnuðu 6 staurar í nótt, Siglfírð- ingar fá þó rafmagn með dísilvélum en það má búast við skömmtun í dag. Skagalína í Húnavatnssýslu að vestanverðu er einnig úti, Fljót- in eru aö mestu komin inn svo þetta stendur allt til bóta. Góðu fréttirn- ar eru þær að ísingin er hætt og vonandi lýkur viðgerðarstarfinu í dag ef vel viðrar,“ sagði Haukur í morgun. Áhrifa óveðursins gætti. víða. Skólahald féll víða niður, sending- ar útvarps féllu niður á svæðum í Þingeyjarsýslum og færð á vegum var víða mjög erfið. Ófært er enn um Víkurskarð, færð er mjög erfið í Öxnadal og á Öxnadalsheiði þótt fregnir hafi borist um það í morgun að flutningabílar hafi brotist þar í gegn í nótt. Ekkert var flogiö til Norðurlands í gær. í morgun var enn ófært flug- leiðina til Akureyrar en samkvæmt upplýsingum frá Flugleiðum átti að athuga raeð flug þegar liði á morguninn. b'MX. Það eru kannski einhverjir tilvonandi þingmenn i þessum hópi. Nemendur úr grunnskólunum komu i heimsókn I Alþingishúsið í gær til að kynna sér störf þingmanna. Er ekki annað að sjá en þeir séu áhugasamir um þingstörfin. DV-mynd GVA Veðriö á morgun: Kólnandi veður Á morgun verður allhvöss eða hvöss norðanátt. É1 verða norð- an- og austanlands en aö mestu úrkomulaust annars staðar. Kólnandi veður. Frost verður á bilinu 3 til 10 stig. Snjóflóð á Flateyri: Hlerar í smíðum fyrirglugga - þjóðvegurlokaður Snjóflóð lokaði þjóðveginum út frá Flateyri á milli bæjanna Sólvalla og Hvilftar og olli rafmagnsleysi í þorp- inu um kvöldmatarleytið í gær. Raf- magnsstaurar féllu og vegurinn er tepptur á talsverðum kafla. Annað flóð er tahð hafa fallið á svipuðum tíma. Stöðvaðist það um 50 metra fyrir ofan efsta húsið við Ólafstún. íbúum var gert viðvart og þeir beðnir að halda til í „neðanveröum" húsunum við götuna. Að sögn Kristj- áns Jóhannessonar sveitarstjóra stendur til að-'smíða hlera fyrir glugga í húsum við Ólafstún. Beðið er svars frá félagsmálaráðuneytinu vegna fyrirhugaðra varnargarða í hlíðinni fyrir ofan þorpið. Kristján sagði við DV að snjóflóðin væru snemmaáferðinniíár. -ÓTT íslenska stálfé- lagið gjaldþrota íslenska stálfélagið var úrskurðað galdþrota af bæjarfógetanum í Hafn- arfirði í gær. Eignir félagsins eru áætlaðar um 1,7 milljarðar og skuld- ir þess ríflega 2 milljarðar, þar af eru vel á fjórða hundrað milljónir gjald- fallnar. Hátt í 100 manns hafa starfað hjá fyrirtækinu og á starfsfólkið allt að fimm vikna laun inni hjá því. Að mati forsvarsmanna stálfélags- ins er ljóst aö kröfuhafar muni tapa hátt í 300 milljónum á gjaldþrotinu. Þá tapa hluthafar þeim 700 milljón- um sem þeir hafa sett í félagið. Skýr- inguna á gjaldþrotinu segja þeir sam- skiptavanda ásamt trúnaðarbresti milli erlendra lánardrotttna og eig- enda. -kaa Ásgeir Frímanns ÓF 21: Okkurrekur ísuður Línubáturinn Ásgeir Frímanns ÓF 21, sem er með fast stýri eftir brotsjó sem gekk yfir í fyrrinótt, var staddur um 30 sjómílur vestur af Látrabjargi í NA 10 vindstigum snemma í morg- un. Varðskipið Ægir var skammt frá. Að sögn Jóns Sigurjónssonar vél- stjóra hélt báturinn hægri ferð með stefnu í austur: „Okkur rekur í suð- ur. Það gengur ekkert í átt að landi. Það verður ekkert ákveðið hvert við förum fyrr en búið er að koma taug yfir í varðskipið þegar lægir. En það kemur til greina aö fara til Reykjavík- ur. Við erum komnir það sunnar- lega,“ sagði Jón í samtali við DV í morgun. Spáð er stormi á Breiðafjarð- armiðum í dag. Ekki er gert ráð fyrir að veður lægi fyrr en á morgun. 13 menn eru um borð í Ásgeiri Frí- manns. -ÓTT Laugardaga 10-17 Sunnudaga 14-17 TM-HÚSGÖGN SÍDUMÚLA 30 SÍMÍ 686822

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.