Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Page 4
4 MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1991. Fréttir Kvennalistinn mótmælir stefnu ríkisstjómarinnar: Eykur útgjöld hverrar fjöl- skyldu um álján þúsund krónur „Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um breytingar á velferöarkerfinu fela ekki í sér bætta nýtingu á fjár- munum í þágu þeirra sem minnst hafa handa á milli heldur beinan nið- urskurð og aukinn tilflutning á kostnaði frá ríkinu yfir á neytendur. Eru það ekki síst barnafjölskyldur, aldraðir og fatlaðir sem verða fyrir barðinu á stefnu ríkisstjórnarinnar. Kemur þaö meðal annars fram í hærri lyfiakostnaði, þjónustugjöld- um og skólagjöldum. Áætlað er að þessi gjöld nemi að meðaltali um 18.000 krónum á ári á hverja fiögurra manna fiölskyldu í landinu." Svo segir meöal annars í ályktun landsfundar Kvennalista sem lauk í gær. í meginályktun fundarins er meðal annars mótmælt þeim niðúrskuröi á velferðarkerfinu sem boðaður er í hvítbók úr fiárlagafrumvarpi ríkis- stjómarinnar. Fram undan séu tímar mikilla breytinga og hugsanleg átök milli ýmissa hagsmunahópa í þjóðfélaginu. Þær breytingar, sem boðaðar hafi veriö, skipti konur afar miklu máh. Takist að koma þeim á sé stigið stórt skref aftur á bak sem geti tekið mörg ár að leiðrétta. Takist að koma í veg fyrir þær verði engu að síður að hefia endurreisn sem stefni í átt til aukins jöfnuðar, vald- dreifingar og nýsköpunar. Kvennalistakonur úr Reykjaneskjördæmi brugðu sér i sund i sundlaug Seltjarnarness til að búa sig undir átök dagsins á landsfundinum. F.v.: Kristín Halldórsdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir og Dóra Hlín Ingólfsdóttir. DV-mynd S í ályktuninni segir ennfremur: framkvæmdir við fiölbreytta at- könnun.Eflaþarfrannsóknirogleita „Gera þarf víðtæka áætlun og hefia vinnusköpun sem byggir á auðlinda- eftir frumkvæði fólksins og síðast en ekki síst þarf að taka miö af stöðu kvenna á landsbyggðinni." Síðan segir að breýtingar á velferð- arkerfinu hafi mun meiri áhrif á líf og stöðu kvenna heldur en karla. I stað þess að einkavæða þurfi áð draga úr miðstýringu velferðarkerf- isins og auka sveigjanleiká þess og sjálfstæði rekstrareininga. Loks segir að nái stefna ríkisstjóm- arinnar í kjara- og velferðarmálum fram aö ganga muni hún hafa í fór meö sér verulega kaupmáttarskerð- ingu á næsta ári, ekki síst fyrir kon- ur og aðra tekjulága hópa. Grund- vallarkrafa kvenna sé að þær geti lifað af launum sínum og þeim sé gert kleift að vera efnahagslega sjálf- stæðir einstaklingar. Erlendar lántökur voru meðal þeirra mála sem rædd voru á lands- fundinum. „Við ræddum um að það gæti verið mjög hættulegt að draga mikið saman framkvæmdir hins op- inbera ef samdráttur yrði á öðrum sviðum. Við slíkar aðstæður gæti veriö réttlætanlegt að fara út í aukn- ar erlendar lántökur. Það væri líka hugsanleg leið til að ná vöxtunum niður sem gæti aftur ýtt undir aukn- ar framkvæmdir innanlands," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þing- kona Kvennalista, við DV í gær. -JSS Mikið tjón vegna kartöflumyglunnar: Óvissa um framboð á kartöflum „Ég held nú ekki en maður getur aldrei verið öruggur. Þetta var gott sumar og þaö spratt vel víöast hvar og það er mikið til af kartöflum. En það er mikið sem skemmist út af þessari kartöflumyglu og það er voöalega erfitt að segja í dag hvort þetta muni verða nóg. Útlitið er þannig að það getur hvort tveggja gerst," sagði Páll Guðbrandsson, formaður Landssambands kartöflu- bænda, aðspuröur hvort hugsanlega verði skortur á kartöflum. Páll sagði ennfremur að tjónið vegna kartöflumyglunnar væri gif- urlegt hjá sumum bændum og það væri óbætanlegt. DV hafði einnig samband við Jó- hannes Gunnarsson, formann Neyt- endasamtakanna, og spurði hann hvort eitthvaö hefði borið á skemmd- um kartöflum á markaðnum. Hann kvað svo ekki vera og sagði að greini- legt væri að bændur stæðu sig vel í að flokka skemmdu kartöflumar úr. A.m.k. hefðu engar kvartanir borist til samtakanna vegna þessa. -GRS í dag mælir Dagfari Fram þjáðir menn Þetta eru nú meiri aumingjamir i Verkamannasambandinu. Ný- kjörinn formaður sambándsins lætur hafa það eftir sér um helgina að nú sé ekkert nema vamarbar- átta framundan. Hann kiknar í hnjáhöunum við minnsta mótlæti, þessi .maður, sem er nýbúinn aö taka við formennskunni af Jakan- um með þau vígreifu baráttuorð á vörum að nú þurfi aö sækja fram. Og hann hefur ekki fyrr tekið’við en hann hefur snúið sókn í vöm og ætlar að verja geröa kjarasamn- inga og ekki skrefinu meir! Samningar era allir lausir og við- ræður aö fara í gang. Menn hafa verið að tala um nýja þjóðarsátt og aukinn kaupmátt og hærri laun eins og gengur gerist í venjulegum kjarabaráttum. Launþegar hafa sótt, vinnuveitendur varist. Nú á að snúa þessu blaði við og það verða vissulega tímamót í íslenskri kjarabaráttu þegar samningar ganga út á það eitt að veija gamla samninga. Foringi verkamanna ætlar sem sagt að standa vörö um það sem hann hefur og telur það brýnasta verkefnið að koma í veg fyrir að samningamir veröi skert- ir. Formaður Verkamannasam- bandsins gerir meira. Hann berg- málar formann vinnuveitenda i vaxtamálum og í rauninni gengur ekki hnífurinn á milli þeirra í sam- eiginlegum harmagráti um það hvað þjóðin eigi bágt. Formaður vinnuveitenda segir að vinnuveit- endur hafi ekki efni á að borga hærri laun og hafi í rauninni ekki efni á að borga þau laun sem nú em greidd. Formaöur Verkamannasam- bandsins vorkennir vinnuveitend- um og skilur þrengingar þeirra en er þó staðráðinn í þvi aö verja þau laun sem verkamenn hafa í dag. Út á þaö gengur barátta hinna þjáöu manna á vom landi. Að láta ekki taka af sér hýruna. Þaö er þó einhver munur að heyra 1 talsmanni kennarastéttar- innar sem lætur engan bilbug á sér finna og heimtar hærri laun. Kenn- urum kemur þaö ekki við þó kreppa sé landlæg og álver úr sög- unni. Kennurum kemur ekki við þótt þjóðartekjur dragist saman og aöstaeður leyfi ríkissjóði lítið sem ekkert svigrúm til aö bæta við út- gjöld ríkisins. Kennarar era harðir í kjarabaráttunni og heimta sitt. Þeir ætla ekki að láta kreppuna bitna á sér, enda er það öllum ljóst að ef kreppan heldur áfram mun það bitna á launþegum jafnt sem öðrum og kennarar þurfa þvi meiri laun í harðnandi kreppu. Þeir ætla ekki að gjalda fyrir gjaldþrotin og ríkissjóðshallann og þeim kemur ekki viö þótt atvinnufyrirtækin væli og séu á hausnum. Þetta em menn að mínu skapi og ekki nóg með það. Kennarar segj- ast einfaldlega ætla að hætta að kenna ef þeir fá ekki kjarabætur og þeir ætla að snarhenda sér í önnur störf, sem bæði era léttari og betur borguö, að sögn. Það er ekki atvinnuleysið á þeim bæ og það er greinilega ekkert vandamál fyrir kennara að fá önnur störf ef þeir hætta kennslu, enda þótt allir aðrir grenji út af atvinnuleysi og bágum efhahag. Þetta er náttúrlega óskapleg hót- un þjá kennurum ef þeir hætta að kenna. Ríkissjóður hlýtur að liggja marflatur fyrir svona kjarabaráttu þar sem launþegamir hóta að fara í aðra vinnu. Hingað til hafa menn verið svo vitlausir að fara í verk- föll og banna öðrum að vinna sín störf. Kennarar era búnir að fá sig fullsadda af verkfóllum sem þeir hafa sífellt tapað á. Nú ætla þeir einfaldlega að fara að gera eitthvað annað. Formaöur Verkamannasam- bandsins ætti að læra af kennur- um. Verkamenn eiga að hóta því að leggja niður verkamannavinnu sína og hóta því að fara í önnur störf. Verkamenn gætu til dæmis tekið að sér kennslu þegar kennar- ar era hættir og þá mundu vissu- lega opnast möguleikar fýrir kenn- ara að fara í verkamannavinnuna og þannig geta hinar ýmsu stéttir landsins skipst á störfum frekar en að vinna þau störf sem þær kunna. Að minnsta kosti meðan þær fá ekki betri laun fyrir sína eigin vinnu en þær fá fyrir annarra vinnu. Að vísu segir enginn að sú sé raunin en það er allt betra en að vinna fyrir skítalaun 1 sínu eigin starfi. Það er þá betra að vinna fyr- ir skítalaun í annarra manna störf- um. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.