Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Side 10
10 MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1991. Útlönd___________________________________________________________ Framsal Honeckers veldur vandræðum - Kohlkanslariskersthugsanlegaíleíkinn Svo kann aö fara aö Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, muni þrýsta á stjómvöld í Moskvu aö þau framselji Erich Honecker, fyrrum leiðtoga Austur-Þýskalands. Honecker á yfir höfði sér ákæru fyrir manndráp. Klaus Kinkel, dómsmálaráöherra Þýskalands, sagöi i blaðaviðtali í gær að hann sæi fram á nokkur vanda- mál við að fá Honecker framseldan eftir að Gorbatsjov Sovétforseti hafn- aöi framsali á kommúnistaleiðtogan- um fyrrverandi. Þýskt tímarit hafði það eftir Gorb- atsjov að mál Honeckers væri fyrst og fremst mannúðarmál. Sovétleið- toginn sakaði stjórnvöld í Bonn um að vera í hefndarhug gegn Honecker sem hann lýsti sem gömlum manni sem heíði setið í fangabúðum nasista í tíu ár fyrir að vera kommúnisti. Ríkisstjórn Rússlands ákvað á íostudag að reka Honecker úr landi en hann hefur búið í Moskvu frá því í marsmánuði þegar hann flúði frá Þýskalandi í sovéskri herflugvél. Reuter Pitsusali býrsig undirhimnaríkisför Bandarískur pitsukóngur og millj- arðamæringur segir að auðæfi sín valdi sér andlegri áþján og svo kunni að fara að hann selji fyrirtæki sín og aðrar eigur til að búa sig undir himnaríkisfórina. Kaupsýslumaður þessi heitir Tom Monaghan og er rammkaþólskur. Hann á mikil auðæfi í listaverkum, fágætum bifreiöum, fasteignum, auk þess sem hann á pitsukeðjuna Dom- ino og hafnaboltaliðið Detroit Tigers. „Ekkert af því sem ég hef keypt hefur fært mér hamingju," sagði hann í viðtali við blaðið Detroit News í gær. „Yfirleitt keypti ég hluti til að vekja athygli á mér, til að fá fólk til að taka eftir mér. Það er höfuðsyndin dramb, verst allra synda, og ég er sekastur allra. Ég er mesti hræsnari sem til er.“ Monaghan varð milljarðamæring- ur, í dollurum talið, á pitsustöðum sínum sem lofa viðskiptavininum að koma með pitsurnar heim til hans á ekki lengri tíma en hálftíma frá því pöntun er gerð. Reuter Quayleersama um brandarana Dan Quayle, varaforseta Banda- ríkjanna, stendur nokk á sama þótt hann sé skotspónn grínista í heima- landi sínu. Svo sagði hann að minnsta kosti í viðtali viö ABC sjón- varpsstöðina í gær. Allt frá því Bush valdi hann sem varaforsetaefni sitt árið 1988 hefur Qayle mátt þola endalaust grín um mismæli sitt, reynsluleysi í stjórn- sýslu og herþjónustu. í viðtalinu í gær var Quayle ekki spurður um „Doonsbury" teikni- myndasyrpuna sem birtist í dagblöð- um um gjörvöll Bandaríkin þar sem látið hefur verið að því liggja að fikniefnalögreglan lægi á skjölum sem hreinsuðu Quayle af áburði um að hafa keypt fíkniefni árið 1983. Þaö var blaðið Indianapolis Star sem er í eigu íjölskyldu Qayles sem birti frétt um skjölin í síðustu viku. Dómsmálaráðuneytið rannsakar nú hvort leyfilegt var að sýna blað- inu skjölin. Reuter Bandaríkja- mennvilja verða 100 ára Bandaríkjamenn eiga sér þá ósk heitasta að verða hundrað ára og skiptir þá engu þótt efnahagur lands- ins sé í kaldakoli, ofbeldi og eitur- lyfjaneysla séu á hverju strái og þótt nýir sjúkdómar á borð við eyðni herji á landslýö. Samkvæmt niðurstöðum rann- sóknar, sem birtar voru í gær, vona 66 prósent Bandaríkjamanna að þeir' verði hundrað ára en aðeins sex pró- sent telja að þeir nái því marki. Flestir voru bjartsýnir á að vís- indamenn mundu fmna lækningu við öllum helstu sjúkdómum sem plaga þá og aðra jarðarbúa, þar á meðal krabbameini, eyðni og alzhei- mer. Þrír af hverium fjórum aðspurðum sögðu að þeir óttuðust að glata sjálf- stæði sínu á efri árum vegna heila- blóðfalla, beinbrota eða almennrar vanheilsu. Tæp áttatíu prósent sögö- ust vilja deyja úr bráöapest fremur en þjást lengi á elliheimili. •: * iij-,:! Úb'- 0 (01V l»V81 Reuter London.........................Verðfrd Tvær nætur og þrír dagar. 32.000 Frítt á eina sýningu í leikhúsum London. Kanpmannahöfn.................Verð frd Tvær nætur og þrír dagar. 28.300 Lúxentborg.....................Verðfrd Tvær nætur og þrír dagar. 31.300 Glasgow. . ....................Verðfrd þrjár nætur og fjórir dagar. 27.300 Trier/Lúxemborg..............Yerð frd Tvær nætur og þrír dagar 32.500 Amsterdam..................... Verðfrd Tvær nætur og þrír dagar. 28.100 Jólastemningin er óðum að færast yfir og ljósin glitra í gluggum stórverslananna. Þú gerir hagstæð jólainnkaup og nýtur alls þess sem heimsborgirnar hafa upp á að bjóða. Leitið upplýsinga hjá söluskrifstofum Flug- leiða og umboðsmönnum um allt land eða í síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar). *Verð á manninn í tvíbýli m.v. staðgr. og gengi 14.11. 1991: flugvallarskattur og forfallagjald (alls 2.350 kr.) ekki innifalið. Miðast við að gist sé aðfaranótt sunnudags. FLUGLEIDIR Nýjar þotur auka öryggi í flugi, áreiðanleika dœtlana og síðast en ekki síst þægindi farþega um borð. Síðustu sætin í Jólastemninguna Skutusex ■ ■ ■■■ ■ heimilislaus börmhofuðið Eiturlyíjasalar í Rio de Janero í Brasilíu skutu sex börn til bana og köstuði líkunum í fljót þar í borginni. Sjöunda barnið, sextán ára gömul stúlka, lifði af og gat hún borið kennsl á morðingjana þannig aö þeir eru nú í vörslu lögreglunnar. Morðin tengjast öll eíturlyfja- sölu í borginni og töldu morðingj- arnir af einhvrjum ókunnum ástæðum nauðsynlegt að ryðja börnunum úr vegi. Þau seldu öll eiturlyf á götum borgarinnar. Öll voru börnin skotin tvívegis í höfuöið og einnig stúlkan sem lifði. Hún er nú á sjúkrahúsi lífs- hættulega sár. Yngsta barnið var níu ára gamalt. . Fjölskylda Maxwells kvartar undan slúðursögum Ekkja breska íjölmiðlakóngsins Roberst Maxwells segir að bresk blöð hafi atað sig og böm sin auri í kjölfar dauöa manns síns. Hún segir að blöðin geri sér ó- spart mat úr dauöa hans og reyni að gera málið eins dularfullt og þeim sé nokkur kostur. Öðrum þykir sem þessar ásak- anir komi úr hörðustu átt því Maxwell byggði aUt veldi sitt á að selja almenningi slúðursögur og sveifst einskis í þeim efnum. Hann gaf m.a. út slúðurblaðið The Mirror sem var frsmst í sinni röð og skilaði eigandí sínum næg- um tekjum til að leggja út í kaup á öðrum fjölmiðlum. Jackson hætt- uraðopna buxnaklaufina Poppgoöið Michael Jackson hefur neyðst til aö breyta nýjasta myndbandi sínu vegna víðtækra mótmæla. í myndbandinu sást Jackson renna niður buxnaklauf- inni og hafa í frammi ýmislegt ósæmilegt athæfi. Nú um helgina kom yfirlýsing frá talsmanni Jacksons þar sem sagði að myndbandinu heíði ver- ið breytt og verstu hlutarnir felld- ir út. Á umræddu myndbandi sást túlkun sögvarans á nýju lagi sem nefnist Svart og hvítt. Það nýtur vaxandi vinsælda. Vilja leggja niður Norður- landaráðið Danski Framfaraflokkurinn ætlar að leggja fram á þingi til- lögu um að Danir segi sig úr Norðurlandaráði og að ráðið verði lagt niður. Það er Pia Kjársgaard sem mælir fyrir til- lögunni en hún á sjálf sæti í Norð- urlandaráði og sat siðasta fund þess í Mariuhöfn á Álandseyjum á dögunum. Hún segir að ráðið sé algerlega tilgangslaus stofnun. Póstmenn vilja rannsðkn Póstmenn í Bandarikjunum hafa beðið þingið að láta rann- saka vinnuaðstæöur á pósthús- um í landinu í kjölfar íjöldamorðs í Royal Oak i síðustu viku. Þá skaut bréfberi samstarfsfólk sitt Hann var haldinn mikiUi reiði í garö yfmmanna sinna. Reuter og Ritzau . : í ÍJ Í:H r ' ' ' ;■ i -J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.